Tíminn - 29.04.1993, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 29. apríl 1993
Framkvæmd úrslitakeppni íslandsmótsins í handknattleik er nú í hættu þar sem tjórir af
fremstu dómurum landsins hafa lagt flautuna á hilluna, í bili að minnsta kosti:
„Framkoma manna gagnvart dóm-
urum til ævarandi skammar"
-segir Ólafur Steingrímsson dómaranefndarmaður
„Framkoma manna gagnvart dómurum er til ævarandi skammar,
þessum mönnum sem gefa sig í þetta, og ég skil ekki hve lang-
lundargeö þeirra er miklö, aö þeir skuli ekki vera löngu búnir aö
gefast upp á bessu,“ sagöi Ólafur Steingrímsson sem sæti á i dóm-
aranefnd HSÍ í samtali viö Tímann en fjórir okkar fremstu dómarar
hafa ákveðið aö hætta dómgæslu í bili vegna framkomu þjálfara,
leikmanna og aðstandenda félaga í garð þeirra.
hafi keyrt (leik Vals og Selfoss á mánu-
... Barcelona, Real Madrid og
La Coruna hafa ekkl aðeins bar-
ist á knattspyrnuvellinum I vetur,
heldur hefur einnig geisað strfð á
milli félaganna og forráðamanna
þeirra á öðrum vettvangi. Hefur
þaö birst f árásum þeirra á áhang-
endur hvorra annarra, deilum á
dómara og þvermóðsku þegar
samningar eru (gangi á milli þeirra
um leikmannakaup. Spænska
knattspyrnusambandið hefur nú
fengiö nóg af þessum deilum og
hefur kallaö saman fund með fé-
lögunum þar sem þeir hyggjast
setja niöur þessar deilur. .Allir for-
setarnir þrir gætu fengið fjársektir
fyrir agabrot eða sest niður við
borö, rætt málin og leyst þau,“
sagöi talsmaður spænska sam-
bandsins. .Þetta er komiö á fárán-
legt stig. Þetta á aö heita fþrótt."
... Hugmyndlr hafa veriö uppi
um að leika knattspyrnu á stórum
velli innanhúss I Moskvu en nú eru
þær hugmyndir að engu orðnar.
Eina húsið sem gat hýst slfkan
knattspyrnuvöll hefur veriö leigt
undir diskótek.
... Napoli er nú aö leita að arftaka
br&silfska leikmannsins Careca og
hafa þeir augastað á Abel Balbo
sem leikur með Atalanta. Það er
engum blöðum um það að ffetta að
um feitan bita er þar aö ræða,
enda er hann næst markahæsti
leikmaður deildarinnar.
... Losertdur SHOOT velja aö
venju þá leikmenn sem skipa léleg-
asta liö úrvalsdeildarinnar ensku
og er liöiö eftirfarandi: í markinu
stendur mark Crossley (Nott.For-
est) og varnarmenn þeir Roger
Joseph (Wimbledon), Jeff Kenna
(Southampton), Alan Harper (Ever-
ton) og Francis Benali (Southamp-
ton). Þeir Gary Crosby (Nott.For-
est), Terry Hurlock (Southampton)
og Clenn Cockerill (Southampton)
eai á miöjunni og framherjar þeir
Roger Palmer, (Oldham), Alan Cork
(Sheff.Utd) og Tony Cascarino
(Chelsea).
... f viótall við Ruud Gullit vegna
leiks Hollendinga og Englendinga
á Wembley sem fram fór I gær lýsir
hann furöu sinni á þvf aö Graham
Taylor landsliösþjálfari Englands
skuli ekki velja Chris Waddle f liðiö.
Gullit segir Taylor gefa Hollending-
um þar með gott forskot (leiknum
og menn þurfi að vera brjálaðir til
aö sleppa slfkum leikmanni. Hann
segist vera hrifinn af David Platt og
John Bames en Waddle sé tvf-
mælalaust besti enski leikmaður-
inn.
_. KSÍ-klúbburinn, sem er félag
stuðningsmanna (slenska lands-
liðsins f knattspyrnu, stendur fyrir
ódýrri ferö til Lúxemborgar til að
fylgjast með leik heimamanna
gegn [slendingum (undankeppni
HM (knattspyrnu. Þar er um að
ræða þriggja eða fimm daga ferðir
og kostar þriggja daga ferö 24.900
kr. þar sem innifalið er flug, gisting,
morgunverður, rútuferðir og miöi á
leikinn. Nú stendur yfir skráning I
KSl-klúbbinn og geta menn leitað
upplýsinga og skráð sig f sfma
699300 þar sem þeir Hörður Hilm-
arsson og Þórir Jónsson ern fyrir til
að svara spurningum.
... Gunnar Andrósson hyggst
kljúfa sig út úr þeim hópi sem
myndaöi Fram-liðiö f handknattleik
en liöiö féll f 2. deild f vor. Gunnar
hefur frá upphafi leikiö f Fram.
Nokkur lið hafa verið f sambandi
viö hann en ekkert hefur verið
ákveðiö. Jason Ólafsson er annar
efnilegur leikmaður f Fram en hann
hefur þegar lýst þvf yfir aö hann
ætli að vera um kyrrt f Fram.
_ Knattspymudómarar hittast
nú um helgina á áriegri landsdóm-
araráöstefnu sem haldin verður f
íþróttamiöstöðinni á Laugarvatni,
reyndar eins og á slðasta ári. Ráð-
stefnan hefst á fðstudag með þrek-
prófi (Laugardal og verður að þvf
loknu haldið aö Laugarvatni. Á ráð-
stefnunni er ráðgert aö fara yfir fyr-
irmæli sumarsins. Aöalgestur ráð-
stefnunnar er Englendingurinn Ken
Ridden sem hefur gegnt fjölmörg-
um ábyrgöarstööum fyrir alþjóða
knattspyrnusambandið.
Ólafur Steingrímsson segir að dómara-
nefndin ætli ekki að segja af sér heldur
ætli þeir ekki að gefa kost á sér til
áframhaldandi starfs.
Þeir Rögnvald Erlingsson, Stefán Am-
aldsson, Hákon Sigurjónsson og Guð-
jón L. Sigurðsson hafa ákveðið að leggja
flautuna á hilluna og segja ástæður vera
þær að ekki sé lengur vinnufriður vegna
ofsafenginnar framkomu leikmanna,
þjálfara og aðstandenda en um þverbak
dag.
„Menn þurfa að taka höndum saman.
Það er enginn leikur spilaður án dóm-
ara; menn þurfa að átta sig á því. Ég
held að það átti sig ekki allir á því að
dómarar eru bara mannlegir. Þeir geta
átt misjafna daga eins og þeir Stefán og
Rögnvald á mánudaginn var. Auðvitað
dæmdu beir ekki eins og þeir gera best,“
sagði Ólafur Steingrímsson. Ólafur
sagði að aðstæður hefðu hagað því
þannig að ákveðið hefði verið að þeir
dæmdu á mánudag. Hann sagði að
dómaramir hefðu haft aðstæður til að
hvíla fyrir leikinn og því hefði ákvörð-
unin um að þeir tækju leikinn verið tek-
in. *•
„Ég blæs á allar fullyrðingar eins og
Einar Þorvarðarson kom með að þeir
hefðu verið fullir eftir Evrópuleikinn
sem þeir dæmdu um helgina og því
mætt þunnir til leiks Vals og Selfoss á
mánudag. Þetta em toppdómarar. Þeir
vissu að þeir áttu að dæma þennan leik
og þeir gera ekki slíka hluti sem Einar
sakar þá um. Ég veit það því ég þekki
þessa menn. Þeir hafa lagt á sig gífur-
lega vinnu og þurft að fóma miklu til að
komast þangað sem þeir em í dag.“
Ólafur sagði að sér fyndist refsingar
þær sem beitt er fyrir grófa hegðun
gagnvart dómumm svo vægar að varia
væri hægt að telja þær vera til. Sem
dæmi nefndi hann markvörð sem leikur
f deildinni í dag sem hefði lent f því að
sparka í hurð og hefði fengið fyrir það
sex mánaða leikbann. Síðar hefði hann
ráðist á dómara og fengið tveggja leikja
bann. í því væri ekkert samræmi. „Það
má kannski segja að mistök þeirra Stef-
áns og Rögnvaldar í leik Vals og Selfoss
á mánudag að hafa ekki rekið þá Þor-
bjöm Jensson og Einar Þorvarðarsson,
þjálfara liðanna, í sturtu. Menn em of
Iinir að beita þeirri refsingu að reka
menn af bekknum. Þessir strákar vilja
halda leiknum í gangi við eðlilegar
ástæður í lengstu lög því þetta er nú
leikur. Eða þannig var það upphaflega
hugsað."
Ólafur sagði það ljóst að dómaranefnd-
in byggi ekki til dómara úr engu. Félög-
in hefðu ekki staðið sig í því að senda
menn sem vildu gefa sig í dómgæslu eða
hefðu eitthvað til bmnns að bera. Þess í
stað sendu félögin yngri meðlimi félag-
anna til að nýta dómaranámskeiðin sem
reglunámskeið, sem ættu svo að nýtast
einstaklingunum f leikjum. Á meðan fé-
lögin sinntu þessu ekki yrði engin fram-
för í þessum málum. „Okkar óskastaða f
dómaranefndinni er að vera með svo
marga dómara að við getum sagt við þá:
Þið fáið sex þúsund krónur fyrir að
dæma f úrslitakeppninni og ef þið
standið ykkur ekki þá verðum við að
setja ykkur niður. En við höfum ekki
þann mannskap til að gera þessar kröf-
ur.“ Ólafur sagðist ekki vita hvað aðrir
dómarar hygðust gera í kjölfar ákvörð-
unar þeirra Hákons, Rögnvaldar, Stef-
áns og Guðjóns en benti á að þessi hóp-
ur væri afskaplega samheldinn. Hann
sagðist jafnframt vona að þeir héldu
áfram og reyndu að klára úrslitakeppn-
ina. „Það kom í dag (í gær) formleg
áskorun frá Viggó Sigurðssyni um að
dómaranefndin í heild sinni hætti og við
ætlum að gera það. ÖIl umræða um
þessi mál hlýtur að koma með nýrri
dómaranefnd þar sem blása nýir vindar.
Það er enginn söknuður að því að hætta
núna. Ég hef dæmt og staðið að dóm-
aramálum frá því 1971 og ég hef alla tíð
haft gaman af þessu, allt þar til nú und-
ir lok keppninnar," sagði Ólafur Stein-
grfmsson að lokum.
Úrslitakeppni Evrópukeppni
landsliöa í knattspyrnu U16 í
Tyrklandi:
Ósigur gegn
Pólverjum
íslensku strákarnir í landsliði ís-
lands í knattspymu undir 16 ára
léku í gær við Pólverja í úrslita-
keppni Evrópukeppninni í knatt-
spymu sem fram fer í Tyrklandi.
Pólverjar höfðu betur og sigruðu 2-
0. Svisslendingar og N.írar sem em í
sama riðli skildu jafnir og þurfa ís-
lensku drengirnir jafntefli í leik
gegn Sviss á morgun til að tryggja
sér sæti í átta liða úrslitum.
Staðan
Pólland ísland 3 stig
Sviss 2 stig
N.írland 1 stið
Drengjalandsliöið i körfuknattleik:
Sigur á Búlgaríu
íslenska drengjalandsliðið í körfu-
knattleik lagði Búlgara að velli í fyrsta
leik sínum í undanúrslitariðli Evrópu-
mótsins í Litháen í gær. Lokatölur
urðu 98-70 eftir að staðan í leikhléi
var 47-42 okkar mönnum í hag. ís-
lenska liðið mætti einnig í gærkvöldi
liði Pólverja en úrslit lágu ekki fyrir
þegar Tíminn fór í prentun.
Jóhann Ingi Gunnarsson handknattleiksþjálfari um þá ákvörðun fjögurra dóm-
ara að leggja flautuna á hilluna og um dómaramát almennt:
„Það þurfa allir að
líta í sinn eigin barm“
Jóhann Ingi Gunnarsson handknattleiksþjálfari harmar það að
handknattleiksdómaramir Stefán Amaldsson, Rögnvald Er-
lingsson, Hákon Sigurjónsson og Guöjón L. Sigurðsson skuli
hafa ákveðiö að leggja flautuna á hiliuna. Hann segist vona að
með þessu viljl þelr koma af stað umræöum um dómaramði en
ekki það aö þelr séu endaniega hættfr. Jóhann segir að i þessu
máli þurfi allir aö líta í sinn eigin barm, ekki síst fólögin sem ekki
hafi staöiö sig sem skyldL
J4ér finnst synd að menn þurfi að eru ekki líkamlega í nógu góðu
grípa til þessara ráða. Þetta væri formi. Þó að þeir taki þrekpróf fyr-
svipað og ég hefði eftir sfðasta ir keppnistfmabilið þá þurfa menn
miðvikudagskvöld, þegar Selfossi að halda sér í formi eins og leik-
var dæmdur sigur á Haukum eftir mennimir. Mér finnst ekki óeðli-
að leiktíma var lokið, sagt við sjáff- legt að menn geri kröfur til dóm-
an mig; Ég er hættur, ég stend ekki aranna og ég veit að margir þeirra
í svona vitlausu og gefið út þá yfir- gera miklar kröfur tíl sín sjálfir.
lýsingu að ég væri hættur að þjálfa Dómaramir verða að setjast niður
handknattleik. Þetta væri svipað. og ræða sín mál en ekki að grípa til
Hins vegar verður maður að skoða aðgerða eins og þeir eru að gera
allar hliðar á málinu. Það gefur núna. Það væri svipað og leikmenn
auga Íeið að það hefur verið mjög og þjálfarar gerðu eitthvað svipað
óvægin gagnrýni á dómara í vetur af því að þeim fyndist dómaramir
en reyndar hefur hún verið það á ósanngjamir. Mér finnst viðbrögð-
undanfómum árum. Menn hafa in kröftug og þau væntanlega kalla
kannski upplifað þessa gagnrýni fram viðbrögð á móti sem ég vona
eitthvað sterkar f vetur. Það má að verði að menn setjist niður og
segja að svona væri varla sagt ef finni fleti á þessum málum. Hand-
ekki væri eitthvað til í því en ef- boltinn þarf á jákvæðri umfjöllun
laust er stundum full fast að orði að halda. Hann hefur fengið svo
kveðið. Auðvitað þurfa menn að mikla og jákvæða umfjöHun vegna
setjast niður og finna á þessu máli beinna útsendinga f sjónvarpi og
einhverja fleti því dómarar eiga fjölda áhorfenda á leikjunum að
ekki að upplifa sig sem einhverja við megum ekki við því að missa
hrákadalla eða svarta sauði. Ég hef hana niður útaf þessu“.
stundum sagt að dómarar séu
framkyæmdastjórar leíksins en |{ver$ vctína er Öaöll-
ekki einhverjir slæmir menn i böð- , . .
ulshlutverki svarta búningsins. iym á StOlf domara
^þarf idálítið að hrista upp í ^ fröftug UÚ?
„Það er búin að vera dálítil sam-
U.má or #21 ráfta? fella f þessu undanfarið. Auðvitað
Hvao er m raoar CT mjög erfltt að standa undjr mik.
JÞað þarf að ræða málin. Það er illi gagnrýni og ég verð að segja að
alveg Ijóst að margir dómaranna sumir ganga of langt í henni, bæði
eru ekki nógu klárir f slaginn; þeir í þjálfarastétt og forráðamenn fé-
iaganna. Gagnrynin má aldrei fara
út í að verða persónulegar svívirð-
ingar. Hún þarf að vera fagleg og
menn verða að skilja orðið gagn-
rýni, „rýni til gagns“. En auðvitað
þurfa allir að lfta f sinn eigin barm.
Menn verða að hafa það í huga að
dómarar geta átt slæman dag eins
og leikmenn. Þess vegna held ég að
menn verði nú að sýna þann
þroska, jafnt forráðamenn félaga,
þjálfárar sem dómarar, að setjast
niður og ræða þessi mál eins og
menn og reyna að finna lausn á
málinu. Það þurfa allir hverjir á
öðrum að halda vegna þess að það
fer enginn leikur fram án þess að
þjálfarar, leikmenn, dómarar,
áhorfendur og blaðamenn séu til
staðar. Allir þessir gegna mikil-
vægu hlutverki, enginn meira en
hinn og það þurfa allir að vera
með. Ég vona að ákvörðun þessara
fjögura dómara sé þeirra aðferð til
að kalla fram umræður um þessi
mál. Ég vil að minnsta kosti túlka
þetta þannig, frekar en að þeir séu
alveg hættir. Vildir þú eins og
staðan er í dag hætta þjálfun og
fara út í dómgæslu?
Ég hef hugsað nokkuð oft um það
í vetur hvort maður ættí að fara að
dæma. Ég er ekki að segja að ég
kærai eitthvað betur út úr því en
aðrir. Það þarf að eiga sér staö
ákveðin endumýjun. Við þurfum
að fá fleiri leikraenn sem eru ný-
hættir að leika og láta þá fara hrað-
ferð upp í að dæma 1. deildina. Ég
er ekki að segja að menn sem ekki
hafa spiiað handbolta geti ekki
orðið dómarar en við þurfum að
hafa eitthvað sambland af þessu
öllu. Þama eiga félögin sjálf sök,
fyrir að hafa ekki lagt metnað sinn
í að koma upp góðum dómurum".
Selfyssingar úr leik
Valsmenn tryggðu sér sæti í úrslitum fslandsmótsins i
handknattleik með sigri á Sellyssingum og ÍR-ingar
tryggðu sér þriðja leik gegn FH- ingum en þessi lið mætt-
ust í undanúrslitum íslandsmótsins í handknattleik í
gærkvöldi. Viðureign ÍR-inga og FH f íþróttahúsinu við
Austurberg var gífúrlega spennandi og réðust úrslitin ekki
fyrr en fjórar sekúndur voru til leiksloka þegar Branislav
Dimitrij tryggði ÍR- ingum sigurinn. Lokatölur urðu 24-23
eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13-10 ÍR-ingum f vil.
Þeir höfðu lengst af undirtökin í leiknum en FH-ingar
náðu að jafna þegar skammt var til leiksloka. Þriðji leikur
liðanna fer fram f íþróttahúsinu f Kaplakrika á föstudag.
Mörk ÍR: Branislav Dimitrij 7, Róbert Rafnsson, Jóhann
Ásgeirsson, Magnús Ólafsson 5 mörk hver og Matthías
Matthfasson 2. Mörk FH: Kristján Ara og Guðjón Áma 6,
Gunnar B. 3, Alexei TVufan og Hálfdan Þórðar 2 og Þorgils
Óttar og Sigurður Sveins 1.
Valsmenn báru nokkuð öruggan sigur af Selfyssingum á
Selfossi, 22-28. Selfyssingar höfðu yfirhöndtna framanaf og
höfðu yfir á hálfleik 12-10 en Valsmenn lögðu gmnninn að
sigri með því að skora fjögur fyrstu mörkin í síðari hálfleik.
Mörk Selfoss: Einar Gunnar 7, Gústaf B. 5, Sigurjón B,
Davíð Ketilsson, Sigurður Sv. og Jón Þórir tvö mörk hver
og Óliver Pálmason og Einar Guðmundsson 1. Mörk Vals:
Ólafur St. 6, Jón Kr., Valdimar Gr., Dagur S. og Jakob S.
fimm mörk hver, Geir Sveinsson tvö.