Tíminn - 18.05.1993, Page 2

Tíminn - 18.05.1993, Page 2
2 Tíminn Þriðjudagur 18. maí 1993 í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál á íslandi segir að efnahags- samdrátturinn muni halda áfram: Draga verði meira úr þorskveiðum i skýrslu OECD um íslensk efnahagsmál eru íslensk stjómvöld gagnrýnd fyrir aö fara ekki aö tillögum fiskifræöinga varðandi veiöar á þorski. Skýrsluhöfundar telja samverkandi áhrif umhverf- isþátta og ofveiði valdi því aö allt eins megi reikna meö aö áfram veröi óhjákvæmilegt að draga úr sókn í þorskstofninn. í skýrslunni segir að ef frá eru tald- ar ákvarðanir stjómvalda um veiðar úr þorskstofninum sé efnahagssam- drátturinn sem herjað hefur á ís- lendinga að mestu utan áhrifasviðs stjómvalda. Flest bendi til að sam- drátturinn í efnahagslífinu haldi áfram á þessu ári vegna minni þorskafla og nauðsynlegs aðhalds að innlendri eftirspum. Þá dragi at- vinnuleysið úr tekjum heimilanna. Tálið er líklegt að fjárfestingar fari ekki að aukast á ný fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. A næsta ári séu einnig ýmis merki um jákvæða þró- un á útflutningsmörkuðum okkar. Sérfræðingar OECD vara eindregið við að gengi krónunnar verði fellt því með því sé verið að fórna mikil- vægum markmiðum um stöðug- leika í verðlagsmálum. í skýrslunni segir að gmndvallarvandi íslensks sjávarútvegs sé ekki að finna í rangri gengisskráningu. Hann megi fyrst og fremst rekja til of mikillar af- kastagetu í greininni. Um gengis- fellingu nú segir í skýrslunni að hún kynni einungis „að hægja á óhjá- kvæmilegri hagræðingu sem sjávar- útvegurinn stendur frammi fyrir.“ í skýrslunni segir að búast megi við að áfram dragi úr tekjum ríkissjóðs vegna samdráttar í þjóðfélaginu. Mikilvægt sé að stjómvöld fórni ekki festu í ríkisfjármálum fyrir frið á vinnumarkaði. -EÓ ^kka rafveitna 1 AS1 -1993 SAMBAND ÍSLENSKRA RAFVEITNA er 50 ára um þessar mundlr. Jón Slgurflsson Iðnaðarráðherra fluttl ávarp á aðalfundl sambandslns, sem settur var f gær. Þar sagðist Jón telja að næsta stig f nýtlngu orkulinda landslns fælist f útflutningi á orku samhliða aukinni stóriðju. Jón benti á aö sökum takmarkaörar reynslu og tfmafreks undlrbúningsstarfs geti útflutn- ingur á raforku f gegnum sæstreng varta orflifl aö veruleika á allra næstu árum. GS/Tfmamynd Ami Bjama Pétur Thorsteinsson, lögfræðingur utanríkisráðuneytisins, segir að EES-samningurinn geti tekið gildi þó að búvörulögum verði ekki breytt: „Æskilegt að búvöru- lögunum verði breytt“ Pétur Thorsteinsson, lögfræöingur utanríkisráöuneytisins, segir æskilegt aö breyta búvörulögunum til samræmis við EES- samninginn til þess að eyða réttaróvissu. Hann segir hins veg- ar ekki víst að það sé nauðsynlegt. Þaö sé venjan aö þegar lög stangast á viö milliríkjasamninga þá reyni dómstólar aö túlka lögin í samræmi við milliríkjasamninginn. Pétur segir aö EES- samningurínn geti tekið gildi þrátt fyrír að búvörulögunum hafi ekki verið breytt Hins vegar geti orðiö erfitt að framkvæma bú- vörukafla samningsins veröi lögunum ekki breytt. Pétur var spurður hvort að það væri skilningur utanríkisráðu- neytisins að búvörulögin hafi veik- ari réttarlega stöðu en EES-samn- ingurinn þegar hann hefúr tekið gildi. Hann sagði að um það sé viss óvissa, en sagði jafhfiramt: „Þegar lög stangast á við milliríkjasamn- ing þá reynir dómstóllinn alltaf að túlka lögin í samræmi við milli- ríkjasamninginn." Pétur sagði að það væru engin fordæmi fyrir því að fslenskir dómstólar hafi komist að þeirri niðurstöðu að milliríkjasamning- ar hafi sterkari réttarlega stöðu en landslög. Hann benti þó á að Hæstiréttur hafi breytt túlkunum sínum á lögum eftir að mannrétt- indadómstólinn í Strassborg felldi úrskurð um að íslendingar brytu mannréttindasáttmálann. ,Af því þetta er vafamál þá er mjög æskilegt að breyta búvöru- lögunum til að eyða allri réttaró- vissu. Það er hins vegar ekki hægt að fullyrða að það sé nauðsynlegt því að við vitum ekki hvemig dóm- stólar taka á því,“ sagði Pétur. Pétur sagðist telja að EES- samn- ingurinn geti tekið gildi þó að bú- vörulögunum hafi ekki verið breytt. Hins vegar geti orðið erfitt að framkvæma samninginn að því er lítur að búvörum. Halldór Blön- dal landbúnaðarráðherra hefur haldið því fram að samningurinn geti ekki tekið gildi nema að bú- vörulögunum verði breytt EES-samningurinn fjallar að mjög litlu leyti um landbúnaðar- mál. Hann gerir þó ráð fyrir að heimilað verði að flytja inn nokkr- ar tegundir af blómum, grænmeti (gúrkur, tómatar og salathausa) og svo jógúrt Pétur sagðist telja að ekki þurfi að breyta búvömlögum til að leyfa innflutning á blómum og grænmeti. Ráðherra geti leyft innflutninginn á grundvelli gild- andi búvörulaga. Hins vegar banni búvörulögin innflutning á jógúrt. Um þetta atriði séu lögin í ósam- ræmi við EES-samninginn. Pétur tók fram að það kunni að vera að lögfræðingar landbúnaðarráðu- neytisins túlki þetta atriði á annan hátt og eðlilegt sé að þeirra túlk- anir ráði í þessu máli þar sem bú- vörulögin heyri undir landbúnað- arráðuneytið. Pétur sagði að þetta mál allt sé flókið og það liggi ekki í augum uppi hvernig eigi að fram- kvæma lög og samninga sem það varðar. Hann nefndi sem dæmi að í tollalögum segi að fjármálaráð- herra sé heimilt að láta ákvæði í milliríkjasáttmálum koma til framkvæmda. Hann sagði hugsan- legt að fjármálaráðherra geti með vísun í tollalög heimilað innflutn- ing á búvörum í samræmi við EES-samninginn og raunar einnig í samræmi við GATT-samkomu- lagið þegar og ef það næst. Pétur sagði að þetta og fleiri atriði þurfi lögfræðingar að skoða í sumar. -EÓ Fiskifélagið: Þorskafli með minnsta móti Þorskafli fiskiskipaflotans í aprfl sl. var með minnsta móti eða 18.580 tonn. Þar af var þorskafli togara 4.696 tonn, báta 11.196 tonn og smábáta 2.688 tonn. í sama mánuði 1992 nam heildarþorskaflinn alls 27.395 tonnum sem skiptist þannig að afli togara var 8.285 tonn, báta 16.535 tonn og smábáta 2.575 tonn. Þetta kemur m.a. fram í bráðabirgðayfirliti Fiskifélags íslands um aflabrögðin í ný- liðnum mánuði. Það sem af er fiskveiðiárinu nemur heildaraflinn alls 1.172.766 tonnum, en hann var 1.110.068 tonn í sömu mánuðum 1991-1992 og 793.924 tonn 1990-1991. -grfi í fýrra var kosið í Danmörku um Maastricht-, en í dag um Edinborgarsamkomulag: Danir greiða atkvæði um framtíð Evrópubandalags í dag greiða Danir atkvæði um Ma- astrichtsamkomulagið með viðbót sem kennd hefur verið við Edinborg. Samkvæmt Edinborgarsamkomuiag- inu eru Danir fríaðir frá því að taka þátt í sameiginlegum vörnum Evr- ópubandalagsins og þeir þurfa hvorki Auglýsing frá Seðlabanka Islands Staða bankastjóra í Seðlabanka íslands er laus frá 1. júlí 1993. Sam- kvæmt lögum um Seðlabanka íslands skipar ráðherra í stöðu banka- stjóra að fengnum tillögum bankaráðs. Bankaráðið auglýsir hér með eftir umsóknum um fyrrgreinda stöðu til undirbúnings tillögugerðar. í umsókn skal ítarlega greint frá menntun og starfsferli umsækjanda. Umsóknir sendist Seðlabanka íslands, Ágúst Einarssyni, formanni bankaráðs, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík, fyrir 15. júní 1993. Reykjavík, 17. maí 1993. SEÐLABANKIÍSLANDS, BANKARÁÐ að taka þátt í lokaþrepi gjaldmiðils- samrunans né uppbyggingu Evrópu- lögreglu. Samkvæmt skoðanakönnun sem Gallupstofnunin birti í gær ætla fimmtíu af hundraði kjósenda að greiða Maastrichtsamkomulaginu at- kvæði sitt. 32 prósent ætla að hafna samkomulaginu en 18 prósent eru enn óákveðin. Framtíð Maastricht- samkomulagsins er talin ráðast í þjóð- aratkvæðagreiðslunni í Danmörku. Breska stjómin segist ekki ætla að leggja það fyrir þingið ef Danir hafni því á nýjan leik. Þýski stjómarskrár- dómstóllinn á líka eftir að fjalla um samkomulagið til að það teljist endan- lega afgreitt í Þýskalandi. Danir sem em í forsæti ráðherraráðs EB fram til júníloka vonuðust til að geta lokið forystutímabilinu með því að staðfesta Maastrichtsamkomulagið sem lög Evrópubandalagsins. Poul Nyrup Rassmussen forsætisráðherra Dana sagði í gær að samkomulagið yrði að lögum 1. janúar 1994, ári seinna en upphaflega var ætlað. Andstæðingar þess í Danmörku hafa haldið því fram að þjóðaratkvæða- greiðslan í dag sé lögleysa af því að verið sé að kjósa um sama fyrirbærið í annað sinn en það er óheimilt sam- kvæmt dönskum lögum. Þeir vitna í danska og breska lögspekinga sem hafa haldið því fram að Edinborgar- samkomulagið hafi ekkert raunveru- legt gildi og fríi Dani ekki frá skuld- bindingum Maastrichtsamkomulags- ins. Edinborgarsamkomulagið var ekki fullgilt í aðildarríkjum EB eins og Maastrichtsamkomulagið heldur létu leiðtogar ríkjanna nægja að semja um það sín á miíli. Danski forsætisráðherrann neitaði því í gær að Maastrichtsamkomulagið væri grundvöllurinn að bandaríkjum Evrópu. Hann sagði að samkomulagið mundi auðvelda starf bandalagsins. Efst á verkefnalista þess væri að Ijúka samningum um aðild Austurríkis, Sví- þjóðar, Finnlands og Noregs að banda- laginu, styrkja tengslin við Mið- og Austur-Evrópu, ljúka við nýtt Gatt- samkomulag og hefja aðgerðir til að auka hagvöxt og draga úr atvinnuleysi innan EB-ríkjanna. Niels Helveg Pet- ersen, utanríkisráðherra Danmerkur, fullyrti fyrir helgi að Danir myndu koma í veg fyrir að leiðtogaráðstefnu Evrópubandalagsins yrði flýtt. Hún er á dagskrá árið 1996 og þá á að taka ákvörðun um það hvort dregið verði úr vægi „smáþjóða" innan bandalags- ins. Önnur ríki bandalagsins hafa lýst áhuga á að flýta ráðstefnunni áður en samningum við EFTA-ríkin lýkur. Pet- ersen sagði að Danir væru ekki eina ríki sem væri andsnúið þessum áform- um, nú skipti mestu að koma Maast- richtsamkomulaginu til að virka, slíkt mætti ekki trufla með einhverju breytingahjali.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.