Tíminn - 18.05.1993, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. ma( 1993
Tíminn 3
Vinnsla og markaðssetning á kúfiski sýnd en ekki gefin veiði. Flateyri:
Mikið þróunar-
starf enn óunnið
GÁMUR ER GÓÐ GEYMSLA
Leigjum og seljum gáma af ýmsum stærðum og
gerðum: þurrgámar, einangraðir gámar og kæli-
gámar.
Við bjóðum viðskiptavinum að koma með vöru og
geyma í gámum að Höfðabakka 1 i lengri eða
skemmri tíma. Hý þjónusta.
„Þaö geríst ekkert nærrí strax í þessu máli enda bæöi dýrt og tíma-
frekt. Þaö leggur engin út f neina flárfestingu fyrr en markaðsmál-
in eru komin á hreint. Menn veðjuðu á kúfiskinn á sínum tíma, en
þaö kom ekkert út úr því. Kúfiskurinn er fyrst og fremst magnvara
en ekki einhver dýrindisvara," segir Karí Hjálmarsson hjá Hjálmi
hf. á Flateyri.
í áætlunum fyrirtækisins er gert
ráð fyrir allt að tveimur árum í þró-
unarstarf áður en veiðar og vinnsia á
kúfiski heijast fyrir alvöru, eða í
fyrsta lagi um mitt næsta ár. En
vinnsla og veiðar á kúfiski er eitt af
því sem forráðamenn Hjálms hf.
hafa veðjað á til að efla atvinnulífið í
þorpinu, en eins og kunnugt er þá
seldi fyrirtækið togara sinn sl. vetur
og keypti línubát í staðinn.
Ifyrra voru keyptar þangað vélar og
tæki úr þrotabúi Bylgjunnar hf. á
Súgandafirði og sérsmíðaður kúfisk-
bátur, Villi Magg, sem heitir nú Æsa.
Sá bátur fer reglulega til veiða og er
aflinn að mestu unninn í beitu.
Helstu markaðssvæði fyrir kúfisk-
inn eru m.a. Evrópumarkaður en
þangað er ætlunin að markaðssetja
hann lifandi en til súpugerðar á
Bandaríkjamarkaði. Enn sem komið
er hefur lítill sem enginn kúfiskur
verið seldur erlendis en á meðan er
unnið að ákveðnum vinnslutilraun-
um til að dæmið geti gengið upp.
„Bandaríkjamarkaður er lokaður
og þangað getum við ekki selt kú-
fiskinn nema að uppfylltum ákveðn-
um skilyrðum. Það þarf að taka alls
konar sýni úr hafinu við margbreyti-
Iegar aðstæður og að því eru Hafró
og Rannsóknastofnun fiskiðnaðar-
ins að vinna. Að okkar mati ganga
Bandaríkjamenn fulllangt í sínum
skilyrðum og í raun er þetta hálf-
gerð vemdarstefna af þeirra hálfu.
Þar í landi er skelfiskur 40% tilvika
þar sem matareitrun hefur komið
upp. En við erum bara með allt ann-
að haf en þeir.“
Fyrir nokkrum árum var stoftiað
fyrirtæki vestur á Súgandafirði,
Bylgjan hf. um veiðar og vinnslu á
kúfiski en það fyrirtæki varð gjald-
þrota. Þá fundust gjöful kúfiskamið í
sand- og leirbotnum við Önundar-
fjörð og í Jökulfjörðum í fsafjarðar-
djúpi, enda var kúfiskur mikið not-
aður til beitu hér á árum áður og er
enn.
„Þetta er nú kannski eitt af því sem
hefur gert okkur mjög erfitt fyrir.
Það var dælt peningum f Bylgjuna
og einnig til Stykkishólms. En hér
eru menn að reyna að borga allt
sjálfir og fá enga aðstoð neins staðar
frá,“ segir Karl Hjálmarsson. -grh
Lengri skóladagar í yngstu bekkjum í Garðabæ:
Ríkið greiðir
ekki kostnaðinn
Bæjarstjóm Garðabæjar hefur gert
samþykkt um að lengja skóladag
yngstu bekkja grunnskólans frá og
með næsta hausti um eina kennslu-
stund á dag. „Gert er ráð fyrir að auk-
inn kostnaður við kennslu verði um 5
milljónir króna og verður hann alfarið
greiddur af Garðabæ, en ekki ríkinu
sem lögum samkvæmt er ætlað að
greiða kennaralaun í gmnnskólum
landsins," segir í fréttatilkynningu frá
bæjarstjóm. „Með samþykktinni er
bæjarstjóm að koma til móts við
auknar kröfur foreldra í bænum um
lengri skóladag bamanna og um leið
er verið að undirbúa skólastarfið fyrir
samfelldan skóladag í einsetnum
skóla."
Lögð verður áhersla á að hinn aukni
kennslustundafjöldi verði nýttur til
kennslu í íslensku, tónlist og íþrótt-
um. -GS
VMJPALLAR
Leigjum og seljum mjög létta og meðfærilega ÁL-
VimUPALLA. Auðveldir og þægilegir í uppsetningu.
Sterk framleiðsla.
DRÁTTARKERRUR
0G HÁÞRÝSTISPRAUTUR
Leigjum 1 og 2 hásinga dráttarkerrur. Burðarþol
allt að 2 tonnum. Háþiýstisprautur, 110 bör, 210
bör og 240 bör. 1 og 3 fasa rafmagnsdælur og
bensíndælur til leigu.
LYFTARAR OG GÁMAGRINDUR
Eigum á söluskrá lyftara og gámagrindur fyrir 20
og 40 feta gáma.
Hafíð samband.
HAFNARBAKKI
Tœkjadeild
Höfðabakka 1, 112 Reykjavík
S. 676855, fax 673240
hver í sínum flokki
LADAi'S I,ADA is« LADASLADA
SAFÍR
loOOcc - 5gíra
495.000 kr.
130.000 kr. út
og 12.417 kr.
í 36 mánuði
SKUTBÍLL
1500cc - 5gíra Lux
597.000 kr.
150.000 kr. út
og 15.147 kr.
í 36 mánuði
SAMARA
1500cc - 5grra
639.000 kr.
165.000 kr. út
og 16.060 kr.
í 36 mánuði
SPORT
1600cc - 5gíra
859.000 kr.
225.000,- kr. út
og 21.543 kr.
í 36 mánuði
Tökum notaða bíla sem greiðslu upp í nýja og bjóðum ýmsa aðra greiðslumöguleika.
Tekið hefur verið tillit til vaxta í útreikningi á mánaðargreiðslum. •
AI AK KAI AH.IH K KOSTI7R!
BIFREIÐAR &
LANDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36