Tíminn - 18.05.1993, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 18. maí 1993
Tíminn
MALSVARI FRJALSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU
. Útgefandi: Timinn hf.
Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson
Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm.
Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson
Fréttastjórar. Birgir Guömundsson
Stefán Ásgrfmsson
Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gíslason
Skrtfstofur: Lynghálsi 9,110 Reykjavlk Slml: 686300.
Auglýslngasíml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300,
ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387.
Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf.
Mánaöaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,-
Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri
Póstfax: 68-76-91
Evrópa óvissu
og breytinga
Þegar sagnfræðingar framtíðarinnar fjalla um sögu
Evrópu á tuttugustu öldinni er líklegt að þeir álíti þrjá
atburði afdrifaríkasta í sögu álfunnar. Það eru að sjálf-
sögðu tvær heimsstyrjaldir, sem voru háðar í Evrópu, og
ný skipting álfunnar í lok þeirra styrjalda. Ekki síður
munu verða afdrifarík þau tímamót þegar sú skipting
álfunnar, sem upp var tekin í lok seinni heimsstyrjaldar,
hrundi með járntjaldinu, sem Berlínarmúrinn var tal-
andi tákn fyrir. Afleiðingar þeirra breytinga eru langt í
frá komnar í ljós ennþá.
í Evrópu eru nú átök milli þjóðernishyggju, sem er
mjög sterk, og alþjóðahyggju, sem birtist í bandalögum
á borð við Evrópubandalagið. Sem dæmi um hvað þjóð-
ernishyggjan er sterk er það að sérhvert ríki, sem laut
miðstýringu kommúnismans í Sovétríkjunum í sjö ára-
tugi, reis upp undir merkjum hennar þegar hann
hrundi.
Talsmenn alþjóðahyggjunnar og samræmingarinnar á
vegum EB halda því hins vegar fram að eina leiðin til
þess að lifa af sé að þjóðirnar vinni sem nánast saman.
Maastricht- samkomulagið er afurð þessarar skipulags-
hyggju.
I dag fara fram í Danmörku kosningar um afstöðu Dana
til Maastricht. Þessar kosningar eru eins og hinar fyrri
afar mikilvægar, og geta haft mikil áhrif á framvindu
mála í Evrópu. Samþykki Danir, fara aðildarviðræður
Norðurlandaþjóða á fulla ferð, en felli þeir, fara þær við-
ræður væntanlega í uppnám og biðstöðu og EES-samn-
ingurinn sömuleiðis. Þjóðir Suður-Evrópu, með Spán-
verja í broddi fylkingar, munu þá verða mjög tregar að
greiða fyrir slíkum viðræðum eða staðfesta EES-samn-
inginn.
Fyrir okkur íslendinga er ástæða til að fylgjast grannt
með úrslitunum í Danmörku. í raun er sama á hvorn
veginn fer; það getur komið að því að við þurfum að
leita eftir tvíhliða viðræðum á grundvelli þeirrar stefnu-
mörkunar, sem Alþingi samþykkti nú í vor og samstaða
tókst um á grundvelli tillögu Steingríms Hermannsson-
ar og Halldórs Ásgrímssonar.
Evrópubandalagið er ekki eina deigla breytinganna í
Evrópu. Nato stendur á örlagaríkum tímamótum og
leitar nú hlutverks í breyttu umhverfi. Nýjar þjóðir, sem
áður tilheyrðu austurblokkinni, leita nú aðildar að Nato
og telja sínum öryggismálum best fyrir komið þannig.
Forustumenn Nato munu hins vegar trúlega vilja skipu-
leggja bandalagið frekar miðað við staðbundin átök og
nýjar aðstæður, áður en fleiri þjóðir fá aðild að því.
Óvissa í stjórnmálum í Rússlandi og þeim ríkjum, sem
fyrrum mynduðu Sovétríkin, eykur enn á það óvissu-
ástand sem er í öryggismálum Evrópu. Hikandi við-
brögð hinna stóru bandalaga við átökunum á Balkan-
skaga sýna í raun að skipulag öryggismála í álfunni
hangir nokkuð í lausu lofti um þessar mundir. Vestur-
Evrópubandalagið er enn einn þátturinn í þessari mynd,
sem er að mótast og ekki er séð fyrir endann á.
Evrópa er því nú um stundir svæði óvissu og mikilla
breytinga í samskiptum þjóða. Atkvæðagreiðsla Dana í
dag er einn af þeim þáttum sem geta haft mikil áhrif á
framtíð Evrópu, hvaða augum sem menn líta þá mið-
stýringu sem Maastricht-samkomulagið hefur í för með
sér.
Áugfýsing er um það í dagblöðun-
um í dag að starf seðiabankastjóra sé
iaust til umsóknar frá 1. júií. Ekki er
tilgreint sérstakiegahvaða menntun
umsækjandi þarf að hafa, en óskað
eftir því að upplýsingar um mtnnt
un og fyrri störf séu iátnar fylgja um-
sókninni.
Ríkisútvarpið greindi frá því í há-
deginu í gær að staða seðiabanka-
stjóra væri nú í fyrsfa sinn augíýst
Jón Sigurðsson
ur bankaráðsins að þetta sé gert í
samræmi við anda frumvarps um
Seðiabanka sem liggurfyrir AJþingi.
Þetta er í fyrsta sinn sem Garri hefur
hcyrtað stjórasýslustofnanir fari eft-
ir anda frumvatpa tii laga, þóft al-
gengt sé og eðiilegt að fariðsé eftir
anda gildandi laga ef greinargóð
ákvteði eru ekki fyrir hendi um ein siðbótin sem ríkisstjómarflokk-
hvemig máismeðferð skuii vera. amir hafa knúið fram í mannaráön-
Þetta sýnir hins vegar svo ekki verð- ingarmálum hins opinbera. Ekki
ur um viilst að alger óþarfi er fyrir
Alþingi að starfa eins iengi og raun
ber ýftni við að afgreiða frumvörp.
Slfkt er greinilega óþarfi. Ifyrst
Seðiabankinn getur starfað eftir
ósamþykktum frumvörpunum ein-
um saman, þá er öðrum ekki vor-
Eins og hver airnar
Mtt þetta flæki málin nokkuð, fúli-
yrðir formaður bankaráðs, sem ætlar
að beita faglegu mati við ráðninguna,
að bankamálaráðherrann verði með-
höndiaður eins og hver artnar um-
sækjandi. í ljósi þess geta aliir verið
giaðir yfirþvíað það verður ekki pói-
itísk klfkustarfeemi sem ræður ferð-
inni þegar ráðíð verður í bankastjóra-
stöðuna.
Eini gailinn við þetta mál er að þeg-
ar er búið að ráða í stöðuna og auglýs-
ingín í gær kom því nokkrum mán-
uðum of seint Þessu greindi raunar
ríkisútvarpið frá ifka í frétt sinni af
málinu í gær. Sá sem búið er að ráða f
stöðuna er einmitt bankamálaráð-
herrann sem formaður bankaráðs
ætlar að meðhöndla á „faglegum for-
sendum" eins og hvem annan um-
sækjanda þegar umsókn hans berst
bankaráðinu. Það ætti að verða auð-
velt fyrir bankaráðsfbrmanninn því
þegar meirihiutí bankaráðs tók stöð-
una frá fyrir ráðherra sinn var búið að
fara yfir sviðið og ganga úr skugga um
það með „faglegu mati“ að enginn ai-
þýðuflokksmaður væri hæfari tii
einasta skal þess nú gætt að hinir
einu og sönnu lista- og fagmenn
kvikmyndanna njóti sín í toppstöð-
kunn að gera það líka. um, td. hjá Sjónvarpinu, heldur skal starfans, en einmitt ráðherrann. Þeg-
líka tryggt að réttu hæfiieikamenn- ar svo tiikynntverður formlega að nú-
F»tílí»öf mnf 'rn'r njlrt' s'n 1 bankakerfinu. Það er verandi bankamálaráðherra hafí verið
raglíigl Híal raunarnokkuðheppilegtilviijunfyr- valinn seðlabankastjóri mun það eng-
En það sem er þó sérstaklega gleði- ir ríkisstjómina hversu oft faglcg um koma á óvart I íins vegar geta all-
legt við þessa auglýsingu á banka- sjónarmið í mannaráðningum falla ir huggað sig við að hann var ráðínn
stjórastöðu f Seðlabankanum er það vel að flokkslínum, en það er önnur tii bankans á faglegum forsendum eft-
að með henni gefst tækifæri til að saga. ir að staðan hafði verið auglýst opin-
ráða í stöðuna á faglegum gmnd- Raunar er það ekki bankaráðið berIegafbIöðum.Þámunumennum
velli. Það kom líka fram hjá Ágústi sjálft, sem endaniega ræður í starf land alit hrópa: „Halelúja" og fagna
Einarssyni, formanni bankaráðsins, bankastjóra heldur er það banka- því að tími pólitískra embættaveit-
að hin „fogiegu sjónarmið“ hefðu málaraðherra.Sámaðurer ídagJón inga er loksins Íiðinn og tími faglegra
orðið ofan á þegar ákveðið var að Sigurðsson, en samkvæmt fréttum ákvarðana komínn. Síðan munu
augiýsastööunaístaðþessaðútdeila ríkisútvarpsins vill svo til að Jón menn krefjast þess að næsti banka-
henni beint til einhverra flokksgæð- mun vera einn þeirra fjölmörgu sem stjóri verði ekki með pólitíska fortíð
inga.Hérergreinilegaáferðinnienn hyggjastsækjaumstöðuna. heldur ,fogiega“. Garri
Skrípi, skrípi, skrípi, skrípis
Pálmi Jónsson alþingismaður
hefur tekið að sér að skilgreina
stjómmálamanninn Jón Baldvin.
Samkvæmt Pálma, sem beitir
fyrir sig þjóðlegum fróðleik í
skilgreiningum, er Jón Baldvin
„skrípi“ og pólitísk hamskipti
hans skrípisleg.
Ástæða þess að Pálmi velur Jóni
þessa nafngift eru nýlegar flug-
eldasýningar Jóns Baldvins varð-
andi landbúnaðarstefinu ríkis-
stjómarinnar. Jón Baldvin var
sem kunnugt er ekki tilbúinn til
mikilla samninga undir lok Al-
þingins um innflutning land-
búnaðarafurða og hver ætti að
ákveða jöfnunargjöld sem hugs-
anlegur landbúnaðarinnflutn-
ingur þyrfti að bera. Rimman var
orðin svo hörð milli Jóns og ým-
issa bændavina í Sjálfstæðis-
flokknum að hótanirnar ganga
nú á víxl og engum hefði dottið f
hug að hér fæm samstarfsaðilar
um stjórn landsmálanna.
Jón og kalkúnamir
Jón Baldvin vill geinilega ekki
láta bændavinina eiga neitt inni
hjá sér og skyndilega detta af
himni ofan fyrirmæli í utanríkis-
ráðuneytinu um að kanna verði
innflutning á kalkúnum, enda
standi hvergi skrifað að innflutn-
ingur á kalkúnum sé bannaður.
Hefur heldur aukist blóðþrýst-
ingurinn hjá bændavinum við
þetta, enda hótun um innflutn-
ing á hráu kjöti óvenju ódulbúin
hótun við sjúkdómavamir í land-
inu og landbúnaðinn í heild
sinni.
Morgunblaðið gerði um helgina
góða grein fyrir fundi í Lauga-
borg í Eyjafirði þar sem Halldór
Blöndal og Pálmi Jónsson ræddu
við kjósendur. Meðal annars hef-
ur Mogginn gagnmerkar yfirlýs-
ingar eftir Pálma og sýna e.t.v.
betur en margt annað hinn upp-
Jón Baldvln
byggilega samstarfsanda sem
ríkir á stjórnarheimilinu:
Hvik þú hvergi,
Halldór!
„Við sjálfstæðismenn tökum
ekki ábyrgð á þessum yfirlýsing-
um utanríkisráðherra og mun-
um ekki taka upp merki Jóns
Vitt og breitt
Baldvins í þessu máli,“ sagði
Pálmi og bætti við að þeir myndu
segja líkt og Hrafn rauði í
Brjánsbardaga: Ber þú sjálfur
fjanda þinn.
Sagði Pálmi sjálfstæðismenn
ekki mundu fara hamskiptum í
hinum þýðingarmestu málum
og leggja til að búvörulögin yrðu
afgreidd hið fyrsta á haustþing-
inu „og ef utanríkisráðherra kýs
að haga málum svo mun ég ekki
hirða um hvort hann situr leng-
ur eða skemur í sínu embætti,"
sagði fjárbóndinn Pálmi, sem
m.a. kvaðst hafa komið á fund-
inn til að lýsa yfir stuðningi við
landbúnaðarráðherra í þessu
máli og bað hann hvika hvergi í
málflutningi sínum.“
Augljóst er af þessari frásögn
Pálml Jónsson
Morgunblaðsins að mörgum
sjálfstæðismanninum er heitt í
hamsi og ekki kæmi á óvart í
allri þessari hamskipta- og
skrípaumræðu þótt í hópi
bændavina íhaldsins fengi Jón
Baldvin á sig viðurnefnið „Húsa-
víkur - Jón Baldvin". Slíkt gæti
svo sem þótt við hæfi eftir dygg-
an stuðning Jóns Baldvins í um-
ræðum á alþingi við Hrafri
(rauða?) Gunnlaugsson og hans
hirðmenn alla.
Stjóraarmyndunar-
viðræður?
Hitt er svo annað mál að með
þessu áframhaldi hlýtur það að
teljast kraftaverk ef ríkisstjórnin
lafir til hausts. Varia munu vær-
ingamar minnka úr því sem
komið er, enda ólíklegt að Jón
Baldvin láti sér nægja að vígbú-
ast kalkúnum. Miklu líklegra er
að deilan magnist enn frekar og
óformlegar stjórnarmyndunar-
viðræður fari að hefjast meðal
þingmanna strax upp úr miðju
sumri. Þá mun reyna á hvort
menn eru almennt þeirrar skoð-
unar að Jón Baldvin sé í raun sá
Húsavíkur - Jón Baldvin sem
sjálfstæðismenn telja hann vera.
- BG