Tíminn - 18.05.1993, Page 8

Tíminn - 18.05.1993, Page 8
12 Tfminn Þriðjudagur 18. maí 1993 Framsóknarfélögin í Hafnarfirði Opið hús að Hverfisgötu 25 alla þríðjudaga kl. 20.30. Komið og fáið ykkur kaffisopa og spjallið. FmrnóhnmfUögbi Kópavogur— Framsóknarvist Spilum framsóknarvist að Digranesvegi 12 fimmtudagana 13. mal, 20. mal og 27. mal kl. 20.30. Kaffiveitingar og göð verölaun. Fneyja, féiag framsóknarkvenna Framsóknarkonur—Vorferð Félag framsðknarkvenna I Reykjavlk fer I vorferð á uppstigningardag 20. mal. Fariö frá Umferðarmiðstöðinni kl. 13.30. Bláfjöllin — Bláa lónið og margt þar á milli. Tilkynnið þátttöku til Kristrúnar s. 11746 eða Sigríöar s. 813876. Takið með ykk- ur gesti. Stjómki Vestfirðingar „Átaktil endurreisnar(< SWngrimur Alþingismennimir Steingrímur Hermannsson og Ólafur Þ. Þóröarson munu kynna tillögur Framsóknarflokksins I efnahags- og atvinnumálum á almennum stjómmálafundi I stjómsýsluhúsinu á Isafiröi þriðjudaginn 25. mal kl. 20.30. Allir velkomnir KjörxtæmissambantlframsóknarTnanna & Vestjórðum Sumartími skrifstofu Framsóknarflokksins Frá 17. mal verður skrifstofa Framsóknarflokksins i Hafnarstræti 20, III hæð, op- in ffá kl. 8.00 til 16.00 frá mánudegi til föstudags. Verið velkomin FramsóknarHokkuhnn Ótafur BLAÐBERA VANTAR HAFNARSTRÆTI • TRYGGVAGATA AUSTURSTRÆTI - AÐALSTRÆTI Afmælis- og minningargreinar Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir birtingardag. Þœrþurfa að vera vélritaðar. Aðilar í ferðaþjónustu og hálendisferðum, sveitarfélög og verktakar Til sölu er um 60 m2 hús, sem byggt er upp í þrem flutnings- einingum. Tilvaliö til flutnings á erfiöa staöi. Húsiö skiptist í eldhús, sal, herbergi, WC og anddyri. Hagstætt verð. Upplýsingar í síma 91-641929. Nýbúfræðlngar fyrir framan Hóladómklrkju. Timamynd Guttormur Bændaskólinn á Hólum: Fyrsti stúdent- inn útskrifaður síðan 1802 Frá Guttormi Óskarssyni, Tfmanum, Sauðárkróki. Bændaskólanum á Hólum í Hjaltadal var slitiö föstudaginn 7. maí við hátíðlega athöfn í Hóladómkirkju að viðstöddu miklu fjölmenni. Sr. Bolli Gústavsson, vígslubiskup Hólastiftis, flutti hugvekju, kirkjukór Hóladómkirkju og nágrennis söng við und- irleik Sólveigar S. Einarsdóttur og Gerður Bolladóttir söng við undirleik Rögnvaldar Valbergssonar. í ítarlegri ræðu skólastjórans, Jóns Bjamasonar, kom m.a. fram að 53 nemendur stunduðu nám við Hólaskóla s.l. vetur og 25 nýir búfræðingar brautskráðust frá skólanum eftir tveggja vetra nám. Þar af vom þrír erlendir nemend- ur. Brautskráður var nú stúdent frá Hólaskóla Þorlákur Magnús Sigurbjömsson ffá Langhúsum í Fljótum, en hann er sá fyrsti sem hlýtur stúdentspróf frá skólanum síðan 1802. Hæstu einkunn á bú- fræðiprófi hlaut Kristín Láms- dóttir frá Kirkjubæjarklaustri. Skólinn var fullsetinn í vetur, sem og undanfarin ár. Inntöku- skilyrði í skólann hafa verið hert vemlega að undanfömu. Skulu nemendur nú hafa lokið a.m.k. tveggja ára framhaldsskólanámi og numið þar hinar ýmsu gmnn- greinar. Vægi gmnngreina á námsskrá Hólaskóla hefur því minnkað, en áherslumar færst meira að sérgreinum búfræði- námsins. Námsskrá skólans er í stöðugri endurskoðun og kapp- kostað er að hún fylgi grannt breyttum forsendum í almennu framhaldsnámi. Þeir umsækjend- ur, sem eiga mikla starfsreynslu að baki, eiga meiri möguleika á skóla- vist, þó svo að nokkuð skorti á bóklegan undirbúning. Brasilía Að minnsta kosti 111 fangar vom drepnir og 35 aðrir særðir í októ- ber 1992, þegar herlögregla gerði áhlaup á Álmu 9 í Casa de De- ten^ao fangelsinu í Sao Paulo, til að stilla til friðar. Um 20 lögreglu- menn særðust. Næstu daga heim- sótti hópur Amnestymanna fang- elsið fjómm sinnum. í hópnum var réttarlæknir. Hópurinn ræddi við fanga og skoðaði þá, og talaði við stjórnvöld, mannréttindasam- tök og ættingja. Ýmislegt bendir til þess að flestir hinna látnu hafi verið drepnir í klefum sínum eftir að þeir gáfust upp. Byssuskot höfðu lent á veggj- um niður við gólf og í rúmhæð, og styður þetta vitnisburð þeirra sem lifðu af. Þeir segja að félagar þeirra hafi verið drepnir liggjandi eða sitjandi með hendur yfir höfði. Þetta var ennfremur staðfest við kmfningu. Hermt var að margir hinna særðu hefðu verið fluttir burt undir því yfirskini að útvega þeim læknishjálp, en þeir hefðu þess í stað verið teknir af lífi án dóms og laga. Nokkrir reyndu að fela sig innan um líkin, en lög- reglumenn em sagðir hafa stungið byssustingjum sínum í þau til að finna menn á lífi. Hermt er að þeir, sem gáfu frá sér lífsmark, hafi ver- ið skotnir. Nokkmm föngum var sfðan skipað að safna líkunum saman í fangaklefunum. Vitni seg- ir að margir þessara fanga hafi síð- an verið teknir af lífi. Lögreglan segir að fangar hafi skotið á sig, en fangar sem komust lífs af segja að fangar hafi ekki haft skotvopn, og uppþotin í Álmu 9 hafi ekki verið útbreidd og að komast hefði mátt að samkomu- lagi við uppreisnarmenn. Ráðherra almannaöryggis á þess- um tíma, sem bar ábyrgð á fang- elsum Sao Paulo og lögreglu borg- arinnar, sagði: „Við aðstæður eins og þarna vom, hefur lögreglan íyr- /í r ÁKALL OMHJÁLP é irmæli um að skjóta til að drepa. Það er ekkert óeðlilegt við að hún noti vélbyssur, því þegar allt kem- ur til alls, þá var líf lögreglumann- anna í hættu". Herlögreglan og aðrar opinberar stofnanir rannsökuðu fjöldamorð- in, en samkvæmt lögum Brasilíu má aðeins sérstakur herdómstóll dæma f málum herlögreglu- manna. Enginn herlögreglumað- ur hefur verið ákærður eða dæmd- ur fyrir sams konar brot í fangels- um Sao Paulo. Vinsamlega sendið bréf á ís- lensku, portúgölsku eða ensku og biðjið um að skipuð verði sjálfstæð rannsóknarnefnd, sem hafi vald til að ákveða hvort mannréttindabrot hafi verið framin, og að láta þá sem bám ábyrgð á morðunum, svara til saka fyrir dómstólum, Ld. á þessa leið: „Your Excellency, In October 1992 at least 111 pri- soners were killed and 35 others wounded after military police stormed block 9 of the Casa de De- ten^ao in Sao Paulo, to quell a disturbance. Around 20 police off- icers were wounded. An Amnesty Intemational fact-finding team, including a forensic doctor, found considerable evidence that most of the dead were killed in their cells after surrendering. I appeal to you for a fuil and independent inquiry, with powers to ascertain responsi- bility for human rights violations, and for those found responsible to be brought to justice. í október 1992 vom að minnsta kosti 111 fangar drepnir og 35 aðr- ir særðir, eftir árás herlögreglu á álmu númer 9 í Casa de Detengao fangelsinu í Sao Paulo í því skyni að bæla niður óeirðir. Um 20 lög- reglumenn særðust. Rannsóknar- nefnd Amnesty International, sem kom á staðinn ásamt réttarlækni, komst að þeirri niðurstöðu að vemleg líkindi væm á að flestir hinna látnu hefðu verið drepnir í klefum sínum eftir að hafa gefist upp. Ég fer fram á að nákvæm og hlutlaus rannsókn fari fram á at- burðinum, með valdi til að tryggja ábyrgð á mannréttindabrotum, og að hinir ábyrgu verði leiddir fýrir dómstóla. Skrifið til: President Itamar Franco Palacio do Planalto Brasilia D.F. BrazU

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.