Tíminn - 04.06.1993, Page 1
HHBBB
Föstudagur
4. júní 1993
103. tbl. 77. árg.
VERÐ(LAUSASÖLU
KR. 110.-
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi bendir á uggvænlega skuldastöðu borgarsjóðs:
Skuldir á hvern borgarbúa
tvöfaldast á þremur árum
„Á þremur árum hafa skuldir á hvem borgarbúa tvöfaldast. Þær
vom 36.000 kr. á hvem íbúa í árslok 1989 en voru orðnar 72.000 kr.
árið 1992. Það ár er hallinn orðinn tæpir tveir milljarðar sem sam-
svarar 20 milljarða kr. halla á ríkissjóði. Langtímalán hafa aukist
um tvo milljarða kr. sem samsvarar öllum byggingaframkvæmdum
m.a. i mennta-, heilbrígðis- og dagvistunarmálum," segir Sigrún
Magnúsdóttur, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins.
„Þessi ársreikningur sýnir glögglega þá kollsteypu sem orðið hef-
ur á fjárhag borgarsjóðs á sfðustu ámm og keyrír um þverbak á ár-
inu 1992,“ segir Sigrún.
Sigrún bendir á að langtímalán
hafi aukist um rúma tvo milljarða
kr. á árinu. „Það samsvarar því að
fimmta hver króna sem við ráðstöf-
uðum 1992 sé tekin að láni,“ segir
Sigrún. Hún bendir á að það sam-
svari því að allar byggingafram-
kvæmdir borgarinnar í skóla-, dag-
vistunar-, öldrunar-, íþrótta-,
mennta-, heilbrigðis- og umhverfis-
málum hafi verið gerðar fyrir lánsfé.
„Þetta er uggvænleg staða hjá okk-
ar ágætu borg og hlýtur að hvetja til
endurskoðunar og endurmats á
störfúm okkar, sérstaklega meiri-
hlutans, áður en Iengra er haldið.
Hvar er nú hin trausta fjármála-
stjóm Sjálfstæðismanna?“ spyr Sig-
rún.
Hún vill að að borgarráði verði hið
fyrsta kynnt staða borgarsjóðs fyrstu
fimm mánuði þessa árs.
-HÞ
Sjá einnig blaðsíðu 3
Samdráttur í atvinnulífinu á Norðurlandi hefur áhrif á
fjárhagsafkomu verkalýðsfélagsins Einingar, sem var
rekið með 600 þúsund króna halla á síðasta ári:
Bótagreiðslur
skornar niður
Á nýafstöðnum aðalfundi verkalýðsfélagsins Einingar, sem hald-
inn var á Akureyrí, var ákveðið að lækka bótagreiðslur úr sjúkra-
sjóði sem var rekinn með nær þríggja milljón króna halla á síðasta
árí. Ennfremur var ákveðið að taka rekstur félagsins til endurskoð-
unar í Ijósi þess að félagið var rekið með 600 þúsund króna halla í
fýrra.
Ameriskur hafnabolti á erf-
itt uppdráttar hér meðal
unglinga:
Körfubolt-
inn vinsæl-
astur
Ameríski hafriaboltinn sem virt-
ist ætla að nema land hér á síð-
asta ári, á erfiðara uppdráttar nú
að því er afgreiðslufólk í verslun-
inni Byggt og búið segir. Nokkur
áhugi á íþróttinni gerði vart við
sig í fyrrasumar en virðist hafa
dalað aftur ef marka má sölu á
kylfum, gripglófum og öðmm
búnaði til íþróttarinnar.
Körfuboltinn er hins vegar
tískuíþróttin í sumar. I verslun-
inni Byggt og búið fengust þær
upplýsingar að mikil sala væri á
körfuboltavörum. Fólk á öllum
aldri kaupir körfuboltavömr en
yfirleitt em það þó stálpaðir
strákar. -GKG.
Samkvæmt ákvörðun aðalfundarins
vom bótagreiðslur úr sjúkrasjóði
lækkaðar um 45 krónur á dag miðað
við 100% greiðslur og einnig var
ákveðið að lækka útfarastyrk úr rúm-
um 123 þúsundum í 90 þúsund krón-
ur. Útfarakostnaður er talin nema um
100 þúsund krónum þar nyrðra, sam-
kvæmt upplýsingum frá skrifstofu fé-
lagsins. En alls námu greiðslur úr
sjúkrasjóðnum 23,2 miljónum króna í
fýrra. En sjúkrasjóður félagsins end-
urgreiðir m.a. kostnað félagsmanna
vegna sjúkraþjálfunar og vegna
krabbameinsleitar.
Höfuðástæðan fyrir versnandi fjár-
hagsafkomu félagsins er vegna þess
samdráttar sem orðið hefur í atvinnu-
Iífinu á félagssvæði Einingar á undan-
fömum missemm og ámm. Þegar
vinnutekjur dragast saman, minnkar
líka það sem félagið fær í formi félags-
gjalda og einnig greiðslur atvinnurek-
enda til sjúkrasjóðs, orlofssjóðs og
fræðslusjóðs. Auk þess hafa félags-
menn Einingar ekki farið varhluta af
atvinnuleysinu og hefur atvinnuleysið
mælst um og yfir 10%.
Mun fleiri konur em í Verkalýðsfélag-
inu Einingu eða 2427 á móti 1362
körlum, eða samtals 3789 virkir fé-
lagsmenn. Til viðbótar em 896 aukafé-
lagar og því em félagsmenn alls 4685.
Aðalfélagar skiptast þannig á milli
deilda félagsins að í Akureyrardeild
em 2846, 401 í Dalvíkurdeild, 255 í
Ólafsfirði, 121 í Grenivíkurdeild, 105 í
Hrísey og í Bflstjóradeild em alls 61
félagi.
Félagið fagnaði 30 ára afmæli í febrú-
ar sl. og í tilefni þeirra tímamóta var
ákveðið að ráða Þorstein Jónatansson
til að rita sögu félagsins og þeirra fé-
laga, sem vom fyrirrennarar þess eða
hafa sameinast því í tímans rás. En alls
er hér um að ræða 18 stéttarfélög sem
hafa starfað þar nyrðra f lengri eða
skemmri tíma. Á aðalfundinum var
stjóm félagsins endurkjörin en for-
maður þess er Bjöm Snæbjömsson.
-grh
Forsætisráðherra kynnti stjómarandstöðunni tillögu sína um
nefndarskipan:
Davíð kallar stjórnar-
andstöðuna á sinn fund
Davíð Oddsson forsætisráðherra kallaði forystumenn stjómarand-
stöðunnar til sín í gær til að kynna þeim með formlegum hætti tll-
lögu sína um sklpan nefndar sem komi með tillögur um viðbrögð
við vanda sjávarútvegsins. Fulltrúar stjómarandstöðunnar lýstu
sig tilbúna til samráðs viö ríkisstjómina, en lögðu til að henni yrði
fundinn annar farvegur en Davíð hefur lagt fram.
Halldór Ásgrímsson, varaformað-
ur Framsóknarflokksins, sagði að
engin niðurstaða hefði orðið á fund-
inum. Forsætisráðherra hefði kynnt
þá tillögu sem hann hefur þegar
kynnt í fjölmiðlum. Halldór sagði að
næsta skref í málinu yrði væntan-
lega tekið á ríkisstjórnarfundi næsta
þriðjudag, en þá er gert ráð fyrir að
stjórnin afgreiddi formlega tillögu
forsætisráðherra.
„Við erum tilbúnir til samráðs við
Gunnlaugur Stefánsson, varaforseti Alþingis, segir hafa verið óþarft að kalla Al-
þingi saman vegna bráðabirgðalaganna:
Enginn ágreinmgur um málið
Gunnlaugur Stefánsson, varaforseti Alþingis, telur ekki að þörf
hefði veríð á því að kalla saman Alþingi til að afgreiða lög um efna-
hagsaðgerðir vegna kjarasamninga, en lögin voru sett með bráða-
birgðalögum.
Gunnlaugur tekur því ekki undir
með Salome Þorkelsdóttur, forseta
Alþingis, sem sagði við Tímann í
gær að rétt hefði verið að kanna
hvort stjómarandstaðan væri til
viðræðu um að afgreiða lögin á Al-
þingi á skömmum tfma.
Gunnlaugur sagði að þau efnisat-
riði sem bráðabirgðalögin fjalla um
hafi verið rædd nokkuð ítarlega á
Alþingi áður en þingmenn fóru í
sumarfrí. „Ég hef ekki orðið var við
að það hafi komið fram neinn
ágreiningur frá stjómarandstöð-
unni eða innan stjórnarliðsins um
efni bráðabirgðalaganna. Þannig að
mér virðist að það ríki góð sam-
staða um bráðabirgðalögin sem
slík. Hefði aftur á móti verið um
viðkvæm ágreiningsmál að ræða
milli stjómar og stjómarandstöðu,
að ég tali nú ekki um innan stjóm-
arliðsins, hefði legið beint við að
kalla saman þing,“ sagði Gunnlaug-
ur. -EÓ
ríkisstjórnina á pólitískum vett-
vangi og sá pólitíski vettvangur er
að sjálfsögðu Alþingi og nefndir
þingsins, en jafnframt emm við til-
búnir til að eiga samtöl við ríkis-
stjómina um þessi alvarlegu mál.
Við höfum hins vegar verið heldur
neikvæðir gagnvart því að taka þátt í
sameiginlegri nefnd fulltrúa ráðu-
neytanna og stjórnarandstöðuflokk-
anna,“ sagði Halldór.
Halldór sagðist ekkert geta spáð
um það hvort forsætisráðherra
breyti tillögu sinni þegar hún kem-
ur til umfjöllunar á ríkisstjómar-
fundi næstkomandi þriðjudag. „Það
er greinilegt að þessi tillaga hefur
komið ýmsum ráðherrum ríkis-
stjómarinnar á óvart og við munum
að sjálfsögðu bíða eftir afgreiðslu
ríkisstjómarinnar á henni," sagði
Halldór.
Afstaða Alþýðubandalagsins og
Kvennalista er svipuð til málsins.
Flokkamir gagnrýna hvemig málið
ber að og gagnrýna hvemig nefndin
á að vera skipuð, þ.e. að í nefndinni
skuli ekki eiga sæti pólitískir full-
trúar stjómarflokkanna. Hins vegar
hafa flokkamir allir lýst sig tilbúna
til samráðs við ríkisstjómina. -EÓ