Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 2

Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 2
2 Tíminn Laugardagur 24. júlí 1993 Lagt til að sveitarfélögum á Austurlandi verði fækkað úr 30 í 8: Atkvæði greidd um sameiningu 20. nóvL Allar umdæmanefndir sem vinna aö tillögum um sameiningu sveitarfé- laga hafa samþykkt að 20. nóvember næstkomandi veröi tillögur nefhd- anna lagöar undir dóm kjósenda. TUIögur um sameiningu sveitarfélaga eru mjög mislangt komnar. Lengst er vinnan komin á Austurlandi og þar er lagt til að sveitarfélögum veröi fækkað úr 30 í 8. Tvær nefndir sem félagsmálaráð- sameiningu sveitarfélaga. Þessar herra skipaði hafa undanfarin ár unnið að tillögum um sameiningu sveitarfélaga. Ekki var full samstaða um tillögumar í sveitarfélögunum og ákvað Samband íslenskra sveitar- félaga fýrr á þessu ári að skipa átta umdæmanefndir sem hefðu það hlutverk að vinna að tillögum um nefndir eru að störfum og eru m.a. að kanna hug íbúa til sameiningar og kanna hagkvæmni sameiningar. Náðst hefur samkomulag milli nefndanna um að kosið verði um til- lögur þeirra þann 20. nóvember. Vinna umdæmanefndanna er mis- langt komin. Lengst er hún komin á Austurlandi. Þar liggja fyrir fullmót- aðar tillögur um að fækka sveitarfé- lögum úr 30 í átta. Skemmst er vinnan kominn á Vesturlandi, Vest- fjörðum og Norðurlandi vestra. Stefnt er að því að allar nefndimar hafi skilað tillögum fyrir 15. sept- ember og þá hefjist formleg kynning á þeim. Hljóti tillaga umdæmanefndar meirihluta í öllum sveitarfélögum sem málið varðar skulu sveitar- stjórnimar taka ákvörðun um fram- kvæmd sameiningar. Hljóti tillaga umdæmisnefndar hins vegar ekki samþykki í öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum en þó meirihluta í a.m.k. 2/3 þeirra er viðkomandi sveitarstjómum heimilt að ákveða sameiningu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa sameininguna enda hamli ekki landfræðilegar aðstæður. Verði ekki af sameiningu á gmnd- velli atkvæðagreiðslu er umdæma- nefnd heimilt að leggja fram nýja til- lögu. Það á að gera fyrir 15. janúar 1994. -EÓ Utanríkisráðuneytiö skiptir sér ekki af því hvort mál- staður Sophiu skaðist: Ekki í okkar verka- hring Benedikt Jónsson, skrifstofu- stjóri utanríkisráðuneytisins, segir ráðuneytið ekki skipta sér af neinum „aukatengdum fjár- öflunum" vegna baráttu Sophiu Hansen en í gærkvöldi hafði Kvennaklúbbur skipulagt upp- boð á konum og pantað fatafellu til að skemmta henni til styrkt- ar. „Það er ekki í okkar verkahring að leggja mat á þessa þætti málarekstursins," sagði Bene- dikt. Eins og Tíminn sagði frá í gær telja fróðir menn skemmtunina geta skaðað baráttuna þar eð bókstafstrúaðir múslimar gætu notfært sér hana gegn Sophiu. -GKG. Eftirlit Gæslunnar með veiðarfærum skipa og báta úti fyrir Suðvesturlandi: Strand vegna fjárskorts Sökum fjárskorts hefrir Landhelgisgæslan ekki getaö fýlgt eftir sem skyldi eftiriiti með veiöarfæmm skipa og báta. Þetta eftirfit Gæslunnar fór aðallega ftam á miöunum út af suðvesturhomi landsins og var m.a. notast við þyrf u. Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá Gæslunni, segir að stofnunin hafi ekki fengið neina sérstaka fjárveit- ingu til eftirlitsins, sem sé mannfrek aðgerð en hafi skilað ágætum ár- angri þann stutta tíma sem það stóð yfir. „Þeir vom að vísu óhressir sumir skipstjóramir að fá menn allt í einu ofan úr himnum um borð. En eins og ég segi þá gafst þetta vel en það vantar bara fjármagn til að halda þessu áfram," sagði Helgi Hallvarðs- son. -grh Fólksbílum fækkaði um rúmlega 700 í fyrra og alls nærri 5.100 á ijórum árum: Fólksbflum á íslandi fækkar Bflaeign fslendinga hefur minnkaö stórfega ár frá ári og veröur nú aö fara allt aftur til ársins 1985 til þess aö finna dæmi um færri fólksbíla í hlutfalli við ibúa en í byrjun þessa árs. Ríkastir uröu landsmenn af bíl- um árið 1988 þegar bilaeignin komst alls i 138.400 bfla. Þar af vom al- mennir fólksbflar þá rúmlega 125.200 talsins. Síöan hafa flestar tölur verið niöur á viö, síöast fækkaði bflum um rúmlega 700 á sfðasta ári. Fólksbílar og bílar á 1.000 íbúa FóUcsbflan A 1.000 íbúa: Alls hefur fólksbflum í landinu þá fækkað um nærri 5.100 á fjór- um ámm, í stað þess að þeim hefði mrft að Qölga um svipaða tölu til æss að halda í við fólksljölgunina. slendingar þyrftu nú að eiga um 10.000 bflum fleira til þess að halda sama hlutfalli milli bfla og fólks, þ.e. fólksbfl fyrir hverja tvo íbúa, eins og árið 1988. í upphafi þessa árs átti þjóðin að- eins rúmlega 120.100 fólksbfla. Það þýðir aðeins 458 bfla á hverja 1.000 íbúa. Fara verður allt aftur til ársins 1985 til þess að finna lægra hlutfall (425 bfla á 1.000 íbúa). Hæst komst þetta hlutfall hins vegar árið 1998, í 498 bfla á 1.000 íbúa. Síðasta áratuginn hef- ur fjöldi fólksbfla (1-8 farþega), og hlutfall fólks og bfla þróast sem hér segir: 1983 96.000 403 1984 100.200 417 1985 103.000 425 1986 112.300 460 1987 120.100 486 1988 125.200 498 1989 124.200 490 1990 119.700 468 1991 120.700 466 1992 120.100 458 Fjöldi fólksbfla var þannig í lok síðasta árs orðinn sá sami og fimm ámm áður þótt íslendingum hefði íþróttir um helgina: Knattspyrna Laugardagur 1. deild kvenna ÍBA-Valur..................kl. 14 2. deild karla Þróttur Nes.-BÍ............kl. 14 4. deild karla Snæfell-Árvakur............kl. 14 Víkingur Ól.-H.B........kl. 14 Fjölnir-Afturelding.....kl. 14 Hvöt-HSÞ.b..............kl. 14 Dagsbrún-KS.............kl. 14 Mánudagur 1. deild karia Víkingur-Valur..........kl. 20 Pollamót KSÍ og Eimskips fer fram um helgina á Laugarvatni. Riðlakeppnin verður spiluð í dag og fyrir hádegi á sunnudag. Úr- slitaleikimir hefjast svo klukkan 16 á morgun. íslandsmótið í frjálsum íþróttum fatlaðra hefst í dag klukkan 13 og stendur til 16. Mótið fer fram í Mosfellsbæ. á hinn bóginn fjölgað um tæplega 15.000 á þeim fimm ámm. Að vísu er ein tegund bfla sem fjölgað hefur mjög hratt síðustu þrjú árin, þ.e. vöm- og sendibflar. Á fimm ámm, 1984 til 1989, fjölg- aði slíkum bflum aðeins um tæp- lega 600, í tæplega 12.200. Árið 1990 fjölgaði þessari tegund bfla hinsvegar um tæplega 1.000. Árið þar á eftir bættust enn 1.500 við og enn á þriðja hundrað í fyrra, eða samtals um 2.700 vöm- og sendi- bflar á aðeins þremur ámm. Rútu- bflum hefur á hinn bóginn fækkað um nærri 200 á sömu ámm, í 1.160. Alls áttu íslendingar því rúmlega 136.100 bfla á skrá í lok síðasta árs, sem þýðir 519 bfla á hverja þúsund landsmenn. En það hlut- fall var 550 bflar á hverja þúsund íbúa fjórum ámm fyrr. - HEI Skoðanakönnun á viðhorfi neytenda til verðs á kjötvörum: Þeim fækkar sem finnst kjöt dýrt Samkvæmt skoðanakönnun sem Hagvangur hefur gert fyrir Samstarfshóp um sölu á lamba- kjöti hefur þeim fækkað veru- lega sem telja verð á lambakjöti of hátt eða um 15% frá júní 1992 til júní 1993. Á sama tíma fækkaði þeim einnig um 15% sem telja að nautakjöt sé of hátt íverði. Engin breyting varð á afstöðu svarenda til verðs á kjúklingum og þeim fækkaði um 6% sem fannst svínakjöt of dýrt Jafn- framt vom svarendur spurðir um afstöðu til nautahakksins og hafði þeim fækkað um tæp 3% sem töldu það of dýrt í verði. Margt bendir til að sumartilboð sauðfjárbænda og nautakjöts- framleiðenda skýri að einhveiju leyti hvað þeim fækkar sem telja nauta- og lambakjöt of dýrt, en svonefndir Lambakjötsdagar hafa skilað að meðaltali 25% lækkun til neytenda á til dæmis lambalæri, hrygg og lærissneið- um. Tilboð nautgripaframleið- enda, Nautaveisla, lækkaði verð á gúllasi, hakki og hamborgur- um um allt að 30%. -EÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.