Tíminn - 24.07.1993, Blaðsíða 3
Laugardagur 24. júlí 1993
Tfminn 3
Bokvitið virðist í askana látið þegar að kreppir:
Aðeins 1,7% atvinnuleysi
í hópi háskólamenntaðra
Atvinnuleysi meðal háskólamenntaðs fólks var aðeins 1,7% að
meðaltali sl. vor og af öllum háskólamenntuðum íslendingum und-
ir 74 ára aldri voru aðeins 4,1% sem ekki töldu sig vera á vinnu-
markaði. Þetta þýðir, aö yfir 94% allra með háskólanám að baki
voru í starfi sl. vor. Atvinnuleysishlutfallið var meira en fjórum
sinnum hærra, eða 7,3%, meðal landsmanna sem einungis hafa
lokið grunnnámi. Hlutfall atvinnulausra var þama mitt á milli, 3,6%,
meöal fólks með starfsmenntun og/eða framhaldsnám að baki.
Virðist þetta ekki benda til þess að bókvitið verði óneitanlega í ask-
ana látið á íslandi þegar að kreppir?
Þá vekur athygli að atvinnulausir
karlar voru fleiri en konur í öllum
hópunum. Kannski njóta konumar
þess að nærri helmingur starfandi
kvenna hefur hið opinbera að vinnu-
veitanda. Þar af starfa flestar við
heilbrigðisþjónustu, félagslega þjón-
ustu og í skólum. Þessar upplýsingar
má lesa út úr nýjustu vinnumark-
aðskönnun Hagstofunnar sem var
byggð á svörum hátt í fjögur þúsund
manna úrtaks landsmanna á aldrin-
um 16 til 74 ára. Könnunin leiddi f
ljós mjög stóran mismun á hlutföll-
um, bæði atvinnuleysis og atvinnu-
þátttöku, eftir því hvaða námi fólk
hafði lokið. Fólki var raðað í þrjá
flokka: Rúmlega helmingur svar-
enda var með gmnnnám (skyldu-
nám, auk gagnfræðaprófs, lands-
prófs, húsmæðraskólaprófs eða svip-
aðrar menntunar). Tæplega 40%
höfðu starfs- og framhaldsnám (þ.e.
allt umfram grunnnám að háskóla-
stigi). En um 10% úrtaksins höfðu
háskólapróf eða próf eða á háskóla-
stigi.
Þegar til þess er litið að könnunin
nær til fólks allt upp að 74 ára aldri
vekur það sérstaka athygli að yfir
97% háskólamenntaðra karla og yfir
94% kvenna skuli vera á vinnumark-
aði og atvinnuleysishlutfall þessa
hóps er samt mjög lágt (t.d. 1,4% hjá
konunum), sem fyrr segir.
í miðjuhópnum (starfs/framhalds-
nám) voru hins vegar aðeins 86% á
vinnumarkaði (90% karla og 80%
kvenna). Og af þeim voru 3,6% at-
vinnulausir, eða rúmlega tvöfalt
hærra hlutfall en meðal háskóla-
genginna.
Þegar litið er á hátt hlutfall fólks ut-
an vinnumarkaðar í þriðja hópnum,
verður hins vegar að hafa í huga að
honum tilheyra m.a. nær allir á aldr-
inum 16-19 ára, þar sem eðlilega er
minna en helmingur á vinnumark-
aðinum. Aðeins 76% karla og 73%
kvenna eru á vinnumarkaði af þess-
um grunnnámshópi. Og þar af eru
hátt í 8% karlanna og rúmlega 7%
kvennanna atvinnulaus. Það þýðir
með öðrum orðum, að rúmíega
fjórðungur (26%) karla og tæpur
þriðjungur (32%) kvenna í þessum
hóp voru ekki í vinnu þegar könnun-
in var gerð sl. vor.
Þegar spurt var um lengd atvinnu-
leysis kom líka í Ijós nokkur munur
milli kynja. Helmingur atvinnu-
lausra karla sagðist hafa leitað að
vinnu í þrjá til fimm mánuði. Aðeins
20% voru búin að eyða meira en
hálfu ári í atvinnuleyt, en hjá 16%
hafði hún aðeins staðið innan við
mánuð.
Atvinnuleit kvennanna hafði staðið
lengur. Meira en helmingur þeirra
hafði leitað sér að vinnu í hálft ár eða
lengur og þar af fjórðungurinn í
meira en ár. Rúmlega fjórðungur
hafði verið án vinnu í þrjá til fimm
mánuði og sárafáar minna en einn
mánuð.
Áberandi munur kom einnig í ljós
milli höfúðborgarsvæðis og lands-
byggðar. Innan við fjórðungur
(22,7%) atvinnulausra á landsbyggð-
inni hafði verið án vinnu í hálft ár
eða lengur, en það höfðu hins vegar
meira en 40% atvinnulausra höfuð-
borgarbúa orðið að þola. - HEI
Sighvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra segir að allar þær verð-
lagshækkanir sem orðið hafa að undanfömu skýrist af gengis-
lækkuninni og breytingum á virðisaukaskatti. Hann sagði að í
fljótu bragði kannaðist hann einungis við eitt dæmi þar sem þess-
ar tvær skýringar skýrðu ekki hækkunina og það væri hækkun á
sandi. Sandur er sem kunnugt er ekki fluttur til landsins og ætti því
ekki að hækka þó að gengið breyttist
Á blaðamannafundi í gær lagði
Sighvatur mikla áherslu á að þær
hækkanir sem orðið hafa að und-
anfömu bentu ekki til þess að það
væri að fara af stað einhver verð-
bólguskriða. Sú aukna verðbólga
sem hefði mælst væri vegna geng-
isfellingarinnar og bókaskattsins.
Gengisfellingin hefði hækkað
verðlag um 0,64% í síðasta mán-
uði og bókaskatturinn um 0,43%.
Á móti kæmi að auknar niður-
greiðslur hefðu lækkað fram-
færsluvísitöluna um 0,27%.
Sighvatur sagðist telja að versl-
unin hefði haldið að sér höndum
þegar gengið var fellt í nóvember í
fyrra og tekið neikvæð áhrif geng-
isfellingarinnar á sig, en margt
benti til að núna treysti verslunin
sér ekki til að gera það sama og
létu áhrif gengisfellingarinnar
koma fram í verðlagi.
Sighvatur lagði mikla áherslu á
að það mætti ekki koma því inn
hjá þjóðinni að hér væri að fara af
stað einhver verðbólgualda því að
þá væri hætta á að menn freistuð-
ust til að hækka vöruverð í skjóli
hennar.
Sighvatur sagði að það væri ljóst
að áhrif gengisfellingarinnar væru
ekki að fullu komin fram í verðlagi
og því mætti búast við frekari
hækkunum á næstunni.
Dæmi um hækkanir sem búast
mætti við að kæmu fram fljótlega
væri hækkun á sementi, enn fyrir
lægi beiðni þess efhis.
-EÓ
Sighvatur Björgvinsson viöskiptaráöherra lagöi mikla áherslu á þaö á fundl með blaðamönnum f gær að það væri
gengisfellingin og bókaskatturinn sem orsakaði hækkanirnar sem orðið hafa að undanförnu, en ekki gamli verð-
bólguhugsunarhátturinn. Frá vinstri: Eiríkur Guðnason aöstoðarseðiabankastjórí, Jón Sigurðsson seðlabanka-
stjóri og Sighvatur. Tfmamynd Aml Bjama
Við kappkostum að hafa ávallt á boðstólum flest það er ykkur kynni að
vanhaga um á ferðalaginu
Hagkvæniustu viðskiptiii gerið þið ávallt í kaupfelaginu
KAUPFÉLAGIO
Kaupfélag Steingrímsfjarðar
Hólmavík og Drangsnesi
Viðskiptaráðherra segir að búast megi við frekari
hækkunum vegna gengisfellingarinnar:
Engar verðhækk-
anir óeðlilegar
nema hækkun
ásandi