Tíminn - 24.07.1993, Síða 6

Tíminn - 24.07.1993, Síða 6
6 Tíminn Laugardagur 24. júlí 1993 ARfÐ 1956 varð gríöarlegt landflæmi i Afríku norð- austanverðri, sem veríð hafði bresk nýlenda frá því um alda- mót, sjálfstætt ríki undir nafn- inu Súdan. Þegar áríö áður var hafiö þar borgarastríð, sem að því sinni stóö til 1972. Síðan var fríður í landinu aö kalla í rúman áratug, en 1983 hófst þar aftur borgarastríð. Stendur það enn. Þetta víðlendasta ríki Afríku (2.503.890 ferkílómetrar) hefur sem fiest önnur ríki í álfunni sunnan Sahara reynst heldur vandræðalegur samsetningur. Norðan til er það mikið til eyöi- mörk, sunnar tekur viö sav- annagróður og syðsti hluti landsins, sem er hálendari en aðrír hlutar þess, er frumskógi vaxinn. Þar eru og fenjaflóar miklir. Um þrír af hverjum fjór- um landsmönnum, sem ails eru um 30 milljónir, eru músl- ímar, flestir þeirra súnnítar. Ar- abíska er móöurmál flestra þeirra eöa aö þeir tala hana öðrum þræöi. Hinir skiptast í þjóðflokka, sem tala afrísk mál og aðhyllast í trúarefnum blöndu af krístni og afrískri heiöni. Byggð íslömsku ar- abanna er mest viö Níl og þverár hennar og í savanna- beltinu, hinna krístnu og heiðnu blökkumanna á frum- skógasvæöi suöurhlutans. Markalínan milli þessara tveggja menningarheilda, sem landsmenn skiptast í, er ekki allfjarri fljótunum Bahr el-Arab og Bahr el-Ghazal, sem falla í Hvítu Níl aö vestan. Það er milli þessara aðila, íslamskra araba norður- og miölandsins og krístinna og heiðinna Afr- íkumanna suöuríandsins, sem borgarastríö hafa staðið lengst frá því að landið varð sjálfstætt ríki. Þrælahalds- og heittrúarríki Sá ágreiningur á sér rætur sem liggja djúpt. Útþenslu araba og íslams inn á svæðið sem varð ríkið Súdan, einkum að norðan frá Egyptalandi, var sam- fara hemaður araba á hendur blökku- mönnum, aðallega í þeim tilgangi að ræna fólki til að hneppa það í þræl- dóm. Þetta færðist í vöxt eftir að Eg- yptar höfðu lagt undir sig svæðið 1821, en með þeim landvinningum má segja að grundvöllurinn hafi verið lagður að því að umrætt svæði varð eitt ríki. Jafnframt því sem Bretar tóku að sækja til áhrifa í Egyptalandi á síðari hluta 19. aldar, lögðu þeir fast að Eg- yptum að banna hjá sér þrælahald og þrælaverslun og það sagði til sín í eg- ypska Súdan. Þrýstingur frá Bretum varð til þess að Ismail kedífi (jarl) af Egyptalandi reyndi að útrýma þræla- haldinu og beitti hann til þess hörku- aðferðum. Það olli mikilli reiði meðal íslamskra Súdana, enda var þá svo komið að efnahagslíf þeirra byggðist á þrælahaldi öðru fremur. Þeir litu svo á að þrælahald væri löghelgað sam- kvæmt íslam og varð það til þess að heittrúarmanni að nafni Muhammed Ahmed ibn al-Sayyid Abdullah, sem nefndist Mahdi (svo eru kallaðir frels- arar í íslam), varð gott til liðs er hann hóf uppreisn 1881. Hafði hann náð mestum hluta egypska Súdans á sitt vald 1885 og var það þar með orðið sjálfstætt ríki í fyrsta sinn. Sjálfstæð- isbarátta Mahdis gegn Egyptalandi og breska heimsveldinu, sem á þeim ár- um lagði Egyptaland undir sig í raun, var ekki hvað síst barátta fyrir hags- munum þrælahaldara og þrælasala í nafni íslams. Út á það er Mahdi síðan þjóðhetja í föðurlandi sínu. Eftirmenn hans biðu mikinn ósigur fyrir Bretum í orrustunni við Omdur- man 1898 (sem margir kannast við úr æviminningum Churchills, er þar var með). Þar með komst landið undir yf- irráð Breta og var eftir það (þangað til það varð sjálfstætt á ný) kallað ensk- egypska Súdan, af því að svo hét að Bretar og Egyptar stjómuðu því í fé- lagi. Suöursúdðnsk börn I flóttamannabúöum: miklu fleiri væru fallnir úr hungri ef hjálparstofnana hefði ekki notið við. s Útrýmingarhernaður bókstafsíslams: Arabískir Súdanir fordæma Bandaríkin fyrir árásir á Jraska bræður okkar“: bróðurhugurinn nær ekki til kristinna og heiðinna blökkumanna suðurlandsins. ÞJOÐAR- HREINSUN SÚDAN Óhressir með sjálfstæðið Heiðingjar suðurhlutans undu bresku yfirráðunum fremur vel, enda bundu þau endi á mannaveiðar arab- ískra þrælasala meðal þjóðflokka þar. Að skapi sunnlendinga var einnig að Bretar aðskildu suðurhlutann stjóm- arfarslega að nokkm frá íslömskum hlutum landsins. Sunnlendingar tóku kristni og tileinkuðu sér evrópska menningu að einhverju marki. Þann- ig var í raun í haginn búið fyrir það að suðurhlutinn yrði sérstakt ríki. í sam- ræmi við þetta tóku sunnlendingar sjálfstæði Iandsins sem heildar með tortryggni. Þeir þóttust fá gmnsemdir sínar gagnvart ríkisstjóm sjálfstæðs Súd- ans staðfestar er sú stjóm hófst þegar að sjálfstæði fengnu handa við að að-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.