Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 11

Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 11
Laugardagur 24. júlí 1993 Tíminn 23 Betri er krókur en keda Smábæir eins og Spring Valley, Kaliforníu, eru þekktir fyrir náin kynni íbúanna á meðal. Allir þekkja alla og fólk stendur saman og hver veitir öðrum aðhald þar sem samfélagið verndar íbú- ana í heild sinni svo framarlega sem allir hlíti reglum og „normum“ samfélagsins. Menn starfa saman, eyða frítíma sínum saman og eru á flest- an hátt eins og ein, stór fjölskylda. Charles Schmidt ætti aö vera þjóöféiagsfræöingum ráögáta. Þess vegna tóku íbúar smábæjar- ins það mjög nærri sér þegar frétt- ist að Patricia Elaine, 26 ára gam- all hjúkrunarfræðingur, hefði ver- ið myrt á hrottafenginn máta. Reyndar urðu vibrögðin hjá blóð- heitari íbúum snábæjarins á þann veg í fyrstu að þeir fóru út á göt- umar með byssur sínar og hugð- ust finna morðingjann upp á eigin spýtur, og „fullnægja réttlætinu" án dóms og laga. Blessunarlega tókst þeim þó ekki að taka lögin í sínar hendur. Fimmtudagsmorguninn, 15. júní, 1989 lögðu Patricia og sam- býlismaður hennar, Charles Schmidt, af stað í daglegan skokk- túr. Þau skokkuðu ætíð sama hringinn, fyrst framhjá verslunar- miðstöðvum, skrifstofum og verk- stæðum og síðan til Quarry Road, sem var afskekktur stígur í útjaðri smábæjarins, mjög eftirsóttur af útivistarfólki. Patty var í betra formi en hinn 28 ára gamli sam- býlismaður hennar og seig fjótlega fram úr og jók stöðugt forskot sitt. Henni fannst alltaf jafn gaman að því að „taka sambýlismann sinn í bakaríið" eins og hún kallaði það þegar hún hafði betur. Þennan dag náði hún óvenju miklu forskoti. Charlie sagði síðar að hann hefði fengið krampa í hægri fót og þurft að stoppa um stund þangað til verkurinn leið hjá. Á nokkrum sekúndum missti hann sjónar á konunni sinni um það leyti sem hún hvarf á milli trjánna við Quarry Road. Þegar Charlie lagði aftur af stað hljóp hann jafn hratt og hann komst til að ná Patty en fóturinn var aftur til vandræða og því stað- næmdist hann eftir nokkur hundruð metra og kastaði mæð- inni. Hann settist niður á bekk og kom þá skyndilega auga á hreyf- ingarlausan líkama í stuttri fjar- lægð, skammt frá hlaupastígnum. Konan var í íþróttagalla og Charlie sá strax að þetta hlyti að vera Patty. Hann taldi í fyrstu að hún væri að bregða á leik, en þegar hann kom nær henni og lagði höndina á brjóst hennar, fann hann að líkami hennar var and- vana. Lést samstundis Hið fríðsæla útivistarsvæði breyttist á nokkrum mínútum í vettvang hávaða og ringulreiðar. Nágrannar komu æðandi að, lög- reglan þandi sírenur sínar og allir virtist í uppnámi. Læknir sem kom á staðinn staðfesti að Patty væri látin en enn var ekki ljóst hvort hún hefði verið myrt. Eina huggunin sem hægt var að veita syrgjandi ástmanni hennar var að Patty hafði látist skyndilega og þan þess að þjást. Eftir að Charles hafði jafríað sig nægjanlega til að geta gefið lög- reglunni skýrslu, var hann keyrð- ur heim til sín. Nágrannar hans tóku á móti honum og vöktu með honum fram eftir nóttu. Aðalum- ræðuefnið var gott samband þeirra og missir hans við fráfall hennar. Patricia Elaine hafði verið mjög aðlaðandi kona, íþróttamannslega vaxin og fögur. Hún naut starfs síns sem hjúkrunarfræðingur og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á spítalanum sem hún vann á í bæn- um. Charles var sjálfur sjóliðsfor- ingi og hafði kynnst konu sinni á ferðalagi nokkrum árum áður. „Það var ást við fyrstu sýn,“ sagði Charles síðar. Þau höfðu notið virðingar í hnu litla samfélagi í Spring Valley. Þau voru samlynd að talið var, eyddu mestum frítíma sfnum saman og ekkert benti til annars en að sam- band þeirra hefði verið til fyrir- myndar á flestum sviðum. Ljóst var að Patty hafði ekki dáið af eðlilegum orsökum (líkamleg- um). í fyrstu var talið að hún hefði verið vegin úr launsátri, það er að segja að morðinginn hefði beðið hennar á afviknum stað og flýtt sér síðan af vettvangi strax eftir morð- ið. Enginn hafði séð til manna- ferða eða bílferða en hins vegar Noel Armstrong sá verulega ágóöavon I aö gera vini sínum „greiöa". hafði sést til ferða bifhjóls á svip- uðum tíma og morðið átti sér stað. Fyrsta læknisskoðun leiddi í ljós að Patricia hafði orðið fyrir þungu höggi, mögulega eftir að hafa orð- ið fyrir bifhjólinu. Vitni sem taldi sig hafa séð „slysið“, hafði þó ekki náð að sjá númerið á hjólinu en þetta var það sem lögreglan gaf sér snemma við rannsókn málsins að hefði gerst. Þrátt fyrir að yfirvöld gerðu það sem í þeirra valdi stóð til að upp- lýsa málið, fannst sjóliðsforingjan- um, sambýlismanni Patriciu, ekki nóg að gert og gekk sjálfur hús úr húsi til að afla sér upplýsinga um málið. Hann bað fólk um að hjálpa sér við að finna manninn á bifhjól- inu og hvatti hugsanleg vitni til að gefa sig fram og skýra frá því sem þau kynnu að hafa séð. Óljós vitnis- buröur Það kom á daginn að margir þótt- ust geta hjálpað til en hins vegar var erfitt að færa sönnur á hverjir væru trúanlegir og hverjir ekki. í meginatriðum stönguðust vitnis- burðir flestra þeirra á. Einn sagði að blökkumaður á Yamaha hjóli hefði keyrt Patty niður án þess að stöðva hjólið og brunað síðan burt. Annar sagði að maður af spænskum uppruna hefði keyrt á Patty á Kawasaki hjóli og enn aðr- ir sögðu að hjólið hefði verið af Harley Davidsson gerð. Samt virtist mönnum bera saman um að bifhjólið hefði verið græn- eða bláleitt með hvítum röndum. Eftir fjölmargar ábendingar komst lögreglan að þeirri niður- stöðu að maðurinn hefði verið hvítur með skollitað hár, fremur barnalegt andlit og skegglaus. Hann var talinn vera um tvítugt, stuttklipptur og í hermannajakka. Skotin á bakiö Það var ekki fyrr en 16. júní sem málinu var slegið upp á forsíðum dagblaða og fékk upp úr því mikla athygli í fjölmiðlum. Það var eftir að krufningarskýrslan leiddi í ljós að það hafði ekki aðeins verið keyrt á fórnarlambið heldur hafði árásarmaðurinn líka skotið Patty í bakið af stuttu færi með 22ja kal- íbera skammbyssu. Skotið hafði farið í hjartað og hún hafði látist samstundis. Það var engum vafa undirorpið að maðurinn á mótorhjólinu hafði skotið Patty en hvers vegna? Og hvernig stóð á því að ekkert hinna „fjölmörgu vitna að atburðinum" hafði heyrt skothvellinn? Þetta voru meginspurningar sem lög- reglan varð að finna svör við. Á meðal fyrstu tillagna var að öku- maður hjólsins hefði ekið um hljóððkútslaus til að hávaðinn í vélinni yfirgnæfði skothvellinn. Ef svo var hlaut að vera um þaul- skipulagt ásetningsmorð að ræða en tilgangurinn var enn óljós. Ef um skipulagðan glæp var að ræða, var líklegast að morðinginn tengdist fórnarlambinu á einhvern hátt. Ekki var lengur hægt að úti- loka afbrýðisemi eða hefrídar- ásetning svikins elskhuga þótt ekki væri vitað til annars en Patr- icia hefði ætíð verið manni sínum trú. Þegar rannsókn málsins bar eng- an áþreifanlegan árangur, voru yf- irvöld í nærliggjandi borgum og byggðarlögum látin vita og lýst eftir manninum á hjólinu. Lög- reglan gerði rassíu í að stöðva ökumenn á hjólum, svipuðum í útliti og því sem til hafði sést og síðan var kannað hvort eigendur ættu 22ja kalíbera skammbyssur. Þrír þeirra reyndust eiga skotvopn af sama tagi en þeir höfðu allir pottþétta Oarvistarsönnun og voru brátt leystir undan öllum grun. Líftryggingin Um hríð hvarflaði að lögreglunni að einhver náinn aðstandandi hefði fengið leigumorðingja til að myrða Patty. Sú tilgáta kom upp í kjölfar þess að líftrygging Patriciu var óvenju há og komu 50.000 dollarar f hlut sambýlismanns hennar og aðrir 50.000 í hlut ætt- ingja. Það mál var rannsakað út og suður en allt bar að sama brunni, ekkert benti til þess. Eiginmaður hennar, Charles, virtist samt ná sér snemma á strik og aðeins þremur mánuðum eftir jarðarför- ina kynntist hann nýrri konu sem hann trúlofaðist og hóf sambúð með. Það liðu löng þrjú ár fyrir yfirvöld í Spring Valley og hvorki gekk né rak í málinu. Lögreglan velktist enn í vafa um hvort tilviljun hefði ráðið því að Patty féll fyrir kúlu morðingjans, hvort einhver hefði myrt hana vegna líftryggingarinn- ar eða hvort um væri að ræða ástríðuglæp einhvers sem átt hefði vingott við fórnarlambið. Enn var samt unnið að rannsókn málsins þar sem ákveðnir menn innan morðdeildar lögreglunnar neituðu að gefast upp fyrr en í fulla hnef- ana. Máliö leysist Loks bar þrautseigjan árangur. Einn af „snuðrurum" lögreglunn- ar sagðist vita af manni með mis- jafnt orðspor sem hafði unnið á hóteli í Spring Valley árið 1988. Til hans hafði komið maður og beðið hann að myrða konu að nafni Patr- icia Schmidt fyrir ríflega þóknun. Honum var stórlega misboðið og hafnaði tilboðinu. Hann ákvað að Ieggja nafn mannsins á minnið og það reyndist vera Charles Schmidt, hinn syrgjandi eigin- maður. Lögreglan hélt umsvifalaust á fund Charles þar sem hann var tekinn í stranga yfirheyrslu. Hinn hægláti myndarlegi maður, með hlédræga brosið, virtist snemma ókyrrast þegar lögreglan beindi að honum óþægilegum og nærgöng- ulum spurningum. Það var ekki tekið á honum með neinum silki- hönskum og án þess að lögreglan hefði nokkrar sannanir fyrir því að Charles væri viðriðinn dauða konu sinnar, var spurt hreint út: „Af hverju reyndir þú að leigja morð- ingja til að myrða konuna þína ár- ið 1988?“ í fyrstu svaraði Charles ekki þeirri spurningu en ítrekaði ein- ungis að hann hefði ekki komið nálægt dauða konu sinnar á nokk- urn hátt. Með auknum þrýstingi gaf Charles þó eftir og áður en yfir lauk viðurkenndi hann að hafa lát- ið myrða konuna sína í ábataskyni. Hann hélt hins vegar fast við það að hann hefði ekki sjálfur tekið í gikkinn, til þess hefði hann fengið vin sinn, Noel Patrick Armstrong, 22 ára gamlan. Yfirvöld höfðu fljótlega uppi á Armstrong og var hann ásamt Charles handtekinn og þeir ákærðir fyrir morð af fyrstu gráðu. Við húsleit hjá Armstrong fannst morðvopnið, 22 kalíbera Luger skammbyssa. Armstrong viðurkenndi fjótlega að hann hefði tekið að sér að myrða Patty fyrir 75.000 dala þóknun. Charles hafði þó ekki borgað honum nema 50.000 doll- ara þegar upp var staðið, enda gerði hann ekki ráð fyrir þeim möguleika að líftryggingin skiptist á milli fjölskyldu Patriciu og hans sjálfs. Aðrar reglur gilda hins veg- ar um skiptingu eigna og fjár þeg- ar fólk er í sambúð en ekki vígðri sambúð. Schmidt hafði sjálfúr sagt að hann ætlaði sér ekki að græða annað á dauða konunnar sinnar en full yfirráð yfir húseign þeirra hjóna og frelsi til að lifa lífinu með nýrri vinkonu sinni. Svo virtist sem Schmidt hefði ekki viljað skilja við konuna sína af ótta við að samfélagið hafnaði honum þar sem skilnaðir eru tiltölulega fátíð- ir í hinu fámenna bæjarsamfélagi í Spring Valley. Tilgátan er langsótt en af tvennu illu hlýtur þó krókur- inn að reynast keldunni betri. „Til hvers eru viniru Langri baráttu var lokið hjá liðs- mönnum lögreglunnar með fulln- aðarsigri. í dómssalnum fór allt eftir bókinni og minnast menn enn svars Armstrongs þegar hann var spurður af sækjanda hvers vegna hann hefði látið undan beiðni vinar síns, að myrða Patr- iciu. „Til hvers eru vinir," sagði Arm- strong og brosti. Enn er ekki búið að dæma endan- lega í máli þeirra en í héraði var Charles Schmidt dæmdur í lífstíð- arfangelsi en Armstrong til 27 ára fangelsisvistar. Málið er vert athygli fyrir þær sakir að í stað hins hefðbundna skilnaðar valdi Charles Schmidt þá leið að myrða eiginkonu sína án þess að hagnast fjárhagslega á dauða hennar. Þegar einfaldara virðist að grípa til byssunnar en að ganga til skilnaðar, er illa komið fyrir amerísku þjóðfélagi.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.