Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 3
Laugardagur 24. júlí 1993
Tíminn 11
sem eru að koma í fyrsta skipti
inn á slík svæði. Ferðamenn eru
því hvattir til að hafa samband
við landverði og spyrjast íyrir
um hvaða gönguleiðir og hvaða
fræðsla sé í boði.
eld úti í náttúrunni nema á
sandi.
2. Akstur utan vega
Akstur utan vega veldur í flest-
um tilfellum ef ekki öllum,
skemmdum á náttúrunni.
Slemmdirnar eru oft ekki aug-
ljósar strax eftir verknaðinn og
koma jafnvel ekki í ljós fyrr en
löngu síðar. Þjöppun jarðvegsins
undan hjólbörðum bifreiða
dregur úr flæði lofts og vatns
um jarðveginn og veldur þannig
eðlisbreytingum jarðvegsins.
Hjólbarðarnir skaða einnig í
mjög mörgum tilfellum gróður-
inn og í kjölfarið getur vatnsrof
byrjað og síðan uppblástur. Um-
merki eftir akstur utan vega eru
í mörgum tilfellum vel sýnileg
30-40 árum eftir verknaðinn.
Það er því nauðsynlegt að ferða-
menn geri sér grein fyrir afleið-
ingum af slíkum akstri og þekki
þær reglur sem í gildi eru. Nátt-
úruverndarráð hefur bannað
akstur utan vega á friðlýstum
svæðum og brot á þeim reglum
varða sektum. Landverðir á veg-
um ráðsins eru starfandi á
mörgum friðlýstum svæðum og
ferðamenn ættu að hafa sam-
band við landverði til þess að fá
upplýsingar um þær reglur sem
gilda um viðkomandi svæði.
3. Friðlýst svæði
Náttúruverndarráð hefur frið-
lýst 70 svæði á landinu og auk
þeirra eru önnur tvö friðlýst
samkvæmt lögum. Mörg þessara
svæða eru vinsælustu ferða-
mannastaðir landsins t.d. Gull-
foss, Geysir, Landmannalaugar,
Dettifoss, Dyrhólaey, Skógafoss,
Þjóðgarðarnir í Skaftafelli og
Jökulsárgljúfrum og á Þingvöll-
um. Um verslunarmannahelgina
safnast venjulega saman mikill
fjöldi manna á friðlýstum svæð-
um og ekki er óalgengt að tjald-
svæðin fyllist. Það er því nauð-
synlegt að ferðamenn hlíti sett-
um reglum og fari að tilmælum
landvarða. Landverðir Náttúru-
verndarráðs eru ferðamönnum
til aðstoðar og upplýsingar. í
þjóðgörðunum er venjulega
boðið upp á gönguferðir undir
leiðsögn landvarða sem nýtast
vel óvönu göngufólki og þeim
4. Rusl og um-
gengni
Umgengni um landið hefur á und-
anförnum árum batnað mikið. Það
er þó svo að hún má enn batna til
þess að hægt sé að segja að hún sé
fullkomin. Þetta kom bersýnilega
f Ijós eftir mótið í Þjórsárdal í
júní. Nú fer í hönd mesta ferða-
helgi ársins og fólk safnast fyrir á
mörgum stöðum á landinu. í sum-
um tilfellum á stöðum sem ekki
eru tilbúnir að taka á móti slíkum
fjölda. Það er því mikilvægt að
fólk gangi vel um og virði þau lög
og reglur sem gilda um umgengni
um náttúruna. í reglugerð um
náttúruvernd er kveðið á um að
öllum sé skylt að sýna varúð í um-
gengni landsins svo að henni verði
ekki spillt að óþörfu. Enginn má
fleygja frá sér eða skilja eftir rusl á
víðavangi, sem er til hættu eða
óprýði. Menn skulu ávallt yfirgefa
áningarstaði hreina og snyrtilega
þannig að ekkert sé skilið eftir
sem lýti umhverfið. í reglugerð-
inni er ennfremur kveðið á um að
vegfarendur skuli gæta þess að
kasta eigi frá sér umbúðum eða
öðru slíku rusli við vegi eða vega-
slóðir.
Eigi má að óþörfu eyða eða spilla
gróðri, hvorki með mosa- lyng-
eða hrísrifi, né á annan hátt, segir
í reglugerðinni. Það ætti að vera
öllum ljóst eftir þessa upptaln-
ingu að náttúruverndarlög kveða
skýrt á um það hvernig umgengni
við landið og náttúru þess skuli
hagað og að viðurlög við broti
gegn þessum reglum geti verið
fjársektir.