Tíminn - 24.07.1993, Qupperneq 6
14Tíminn
Laugardagur 24. júlí 1993
Akureyringar gera sér vonir um aö fá fimm til sex þúsund gesti um verslunarmannahelgina. Og þaö er nóg pláss á nýja Fláöhústorginu.
Fjölskylduhátíðin „Halló Akureyri1'
Framlag Akureyringa til skemmtana og dægrastyttíngar um verslunar-
mannahelgina veröur fjölskylduhátíöin „Halló Akureyri". Þetta er í annað
skiptíð sem „Halló Akureyri" er haidin, en þessi tílbreýtni var reynd í fyrsta
skiptiö í fyrra og þóttí þá takast vel, þrátt fyrir skamman undirbú ningstíma.
Að sögn G. Ómars Péturssonar,
framkvæmdastjóra hátíðarinnar, er
stefnt að því að fjölga bæjarbúum
um fimm til sex þúsund um versl-
unarmannahelgina. „Halló Akur-
eyri“ er hugsuð sem hátíð fyrir alla
fjölskylduna og þess vegna tekið
nokkuð mið af þörfúm bama fyrir
skemmtan og afþreyingu. Þannig
verður tívolíið, sem nú er staðsett
við Reykjavíkurhöfn, flutt norður og
sett upp á Akureyri fyrir helgina, þar
sem það verður opið alla daga hátíð-
arinnar til miðnættis. Þá verða til
leigu línuskautar fyrir börn og boð-
ið upp á siglingar á hjólabátum, svo
eitthvað sé nefnt. Pollurinn og Eyja-
fjörðurinn verða samt meira nýttir
fyrir fullorðna. Þar verður boðið upp
á sjóstangaveiði, skemmtisiglingar
og sæsleða, ásamt aðstöðu til sjó-
skíða- og seglbrettaiðkunar.
Yfir daginn verður útimarkaður í
miðbæ Akureyrar. Þar verða til sölu
handunnir munir frá Akureyri og
nágrenni, skiptimarkaður á leik-
föngum fyrir krakka, leiktæki fyrir
böm og einnig er í deiglunni að
halda þar rokktónleika á laugardeg-
inum. Ef af þeim verður, munu þar
fyrst og fremst koma fram hljóm-
sveitir frá Akureyri.
Á eyrunum norðan Glerár setja
Þórsarar upp 400 fermetra stórt
tjald, þar sem boðið verður upp á
skemmtanir á daginn og unglinga-
dansleiki á kvöldin.
Þar verður síðan, eftir að hefð-
bundnu dansleikjahaldi lýkur, starf-
rækt svokallað pakkhús, sem verður
opið frá klukkan þrjú til fimm á
nóttunni. í pakkhúsinu geta þeir,
sem vilja skemmta sér ögn lengur,
komið saman og gert sér glaðan
morgun. Þar verða seldar veitingar
og jafnvel boðið upp á einhver
skemmtiatriði.
Hljómsveitimar Pelican og Rokka-
billyband Reykjavíkur halda uppi
stemningunni í Sjallanum um versl-
unarmannahelgina. í skemmti-
staðnum 1929 verða Skriðjöklar og
Pláhnetan.
Neskaupstaður bætist í ár í hóp
þeirra sveitarfélaga, sem bjóða upp á
opna fjölskyldudagskrá án sérstaks
aðgangseyris um verslunarmanna-
helgina. Þeir bæta þó um betur en
aðrir með fríum tjaldstæðum og
vægu verði á dansleiki í Egilsbúð.
Þessi heimabær Hjörleifs Gutt-
ormssonar verður opinn gestum og
gangandi frá föstudegi til mánu-
dags; boðið er upp á líflega
skemmtidagskrá og allir em vel-
komnir á „Neistaflug ‘93“. Ferða-
málafélag Neskaupstaðar og ná-
grennis stendur fyrir þessari hátíð,
auk flestra hagsmunahópa í bæn-
um. Hvað varðar gestafjölda, segir
Þröstur Rafnsson framkvæmda-
stjóri að menn renni dálítið blint í
sjóinn, en þeir vonist til að fá sem
flesta.
Form: Fjötskytduhátíð
Aðgangseyrír Enginn á hátiðina, en greltt
fyrir hverja skemmtan fyrir sig.
Meðal þess, sem boðið verður uppá,
er: útimarkaður, tívolí, sjóskíðasýn-
ing, sæsleðaferðir, skoðunarferðir á
sjó og landi, götuboltakeppni, flug-
eldasýning, útibíó, briddskeppni,
dansleikir og tónleikar.
Verð inn á dansleiki í Egilsbúð er
600 kr. á föstudagskvöld og 1200 á
sunnudagskvöld og laugardag. Þess
utan verða ókeypis útidansleikir í
miðbænum.
Eftirtaldar hljómsveitir koma fram
á „Neistaflugi ‘93“: KK-Band, Rand-
vers-félagar, Bogomil Font og millj-
ónamæringamir, Sú Ellen, Hljóm-
sveit Magneu, Ózon og Allod Imm-
ug.
Form: FJölsKykiuhátíð
Aðgangseyrin Ókeypls, en greltt sér fyrir
dansieikl og afþreyingu
Náttúmn er viðkvæm!
Hún er auðlind sem við verðum að hlúa að og virða.
Látum náttúruna ekki verða
hugsunarleysi og leikaraskap að bráð.
U MHVERFBRÁÐUNEYHÐ
_____
Neistaflug á
Neskaupstað
Neskaupstaður bætíst í ár í hóp þeirra sveitarfélaga, sem bjóða upp á opna
fjölskyldudagskrá án sérstaks aðgangseyris um verslunarmannahelgina.
Þeir bæta þó um betur en aðrir með frium tjaldstæðum og vægu verði á
dansleiki í Egilsbúð.
ÞAÐ ER BARA BÆJARLEIÐ I BORGARNES \
Komið við í einni glæsilegustu
þjónustumiðstöð landsins.
Opið frá kl. 8-23.30 alla daga.
Kjörbúð með miklu matvöruúrvali - Veitingasalur -
Greiðasala - Olíu- og bensínsala - Útibú Sparisjóðs
Mýrasýslu - Upplýsingamiðstöð ferðamanna - Úrvals
snyrtiaðstaða með skiptiborði fyrir kornabörn.
sjálfsali allar riœtur KA UPFÉLAG BORGFIRÐINGA — OLÍUFÉLAGIÐ HF. (93)7**00