Tíminn - 24.07.1993, Side 7
Laugardagur 24. júlí 1993
Tíminn 15
Landsmót skáta
í Kjarnaskógi
Skátar taka verslunarmannahelgina snemma, en þeir halda sitt árlega
landsmót í Kjamaskógi við Akureyri dagana 25. júlí til l.ágúst Búistervið
1500-2000 þátttakendum.
Skipulag mótsins verður með svip-
uðu sniði og verið hefur. Búðum al-
mennra þátttakenda verður skipt upp
í minni einingar, eða svokölluð
„þorp“. í hverju þorpi verða síðan
nokkur félög eða hluti félaga. Auk
þess verða sérstakar fjölskyldubúðir,
starfsmannabúðir o.fl. Dagskrá móts-
ins verður miðuð við þátttöku flokka.
Venjubundin flokkadagskrá hefst kl.
10 að morgni og lýkur kl. 17 síðdegis.
Á kvöldin verður sérstök kvölddag-
skrá, sem miðast við þátttöku sveita
og félaga. í tengslum við dagskrá
mótsins verða félagakeppnir, flokka-
spil og landskeppni í skátaíþróttum.
í tilefni þessa 21. Landsmóts skáta
hefur sérstök fígúra verið hönnuð fyr-
ir mótið og hefur hún hlotið nafnið
Laufi.
Þátttökugjald er tæplega 15 þúsund
krónur, en þar vegur matur þyngst af
einstökum liðum. Mótsgestum gefst
kostur á að fara í ferðalög með sér-
stakri ferðaskrifstofu mótsins. Kostn-
að við þær ferðir og ferðir til og frá
mótsstað verður að greiða aukalega.
Form: Skátamót
Aðgangseyrír
Mótsgjald fyrir alla dagana er 14.700 kr.
Gert klárt fyrir Landsmót skáta I Kjarnaskógi.
Atlavík endurvakin
Ungmennasamband Austurlands
stefnir að því að endurvekja Atlavík-
urstemninguna á Eiðum um versl-
unarmannahelgina. Eiðahátíð var
haldin í fyrsta skiptið í fyrra, við
dræma aðsókn. í ár er markið sett
hærra, en aðstandendur segjast fara
mjög létt með að taka á mótí fjögur
þúsund manns.
Haukur Hauksson „ekkifréttamað-
ur“ verður kynnir á útihátíðinni á
Eiðum. Þær hljómsveitir, sem halda
uppi íjörinu yfir helgina þar eystra,
eru: GCD, Ný dönsk, Jet black Joe og
Sú Ellen. Útihátíðin er haldin í sam-
vinnu við Hótel Valaskjálf á Egils-
stöðum. Þar treður upp hljómsveit-
in Bogomil Font og gildir aðgöngu-
miði á Eiða einnig fyrir böllin í Vala-
skjálf. Aðstandendur hátíðarinnar
auglýsa „loftbrú" á milli Egilsstaða
og Reykjavíkur, en Flugleiðir munu
væntanlega bjóða upp á pakkaferðir
þama á milli um verslunarmanna-
helgina. Á milli Egilsstaða og Eiða
verður síðan „landbrú" rútuferða.
Á Eiðum verður hópur bestu fall-
hlífarstökkvara landsins á laugar-
deginum. Þeir ætla að haldast í
hendur í loftinu og reyna að mynda
stærstu stjörnu, sem mynduð hefur
verið í fallhlífarstökki hérlendis til
þessa. Þá verður viðamikil flugelda-
sýning á staðnum og varðeldur.
Uppbygging útihátíðasvæðis á Eið-
um er langtímamarkmið þeirra
Austfirðinga og gert er ráð fyrir að
það taki nokkur ár.
Á sunnudeginum fer fram hljóm-
sveitakeppni og verður hún með
svipuðu sniði og þær í Atlavík forð-
um. Það verður fróðlegt að sjá hvaða
nýjar hljómsveitir skjóta þarna upp
kollinum, en í því sambandi má
minna á að Skriðjöklamir eru t.d.
skilgetið afkvæmi Átlavíkur.
Form: Útihátið
Aögangseyrir 6000 kr.
Skagfirska sveiflan í Galtalæk:
Búist við 10
þúsund á 26.
Bindindismótið
í HJulba
IvIhII
DRÁTTARVÉLAHJÓLBARÐAR
EIGUM MIKIÐ ÚRVAL HJÓLBARÐA UNDIR
ALLAR GERÐIR ÖKUTÆKJA. HAGSTÆTT VERÐ
GÚMMÍVINNSLAN HF.
Réttarhvammi 1 - Akureyri - sími 96-12600
i i i i i i i n ri i i i i i i i i i-i-i
í Galtalækjarskógi verður haldið
bindindismót í tuttugasta og
sjötta skiptið í röð. Bindindismót-
ið hefur verið vinsælt undanfarin
ár og trónað á toppnum hvað að-
sókn snertir, ásamt Þjóðhátíð í
Eyjum. Mótshaldarar búast við
um tíu þúsund manns í ár.
Geirmundur Valtýsson og félagar
koma suður heiðar með skagfirsku
sveifluna í farteskinu, en auk
þeirra troða upp í Galtalæk, Örkin
hans Nóa, Pandemonium og Tánn-
pína. Hörður Torfason kemur fram
einn með gítarinn, kvartettinn
Raddbandið lætur í sér heyra,
sömuleiðis séra Pálmi Matthíasson
og Magnús Scheving erobikk-
meistari leikur listir sínar. Af ann-
arri afþreyingu má nefna ökuleikni
BFÖ, karaokekeppni, flugeldasýn-
ingu. þrautaleiki og minigolf.
Bindindi verður í heiðri haft þessa
verslunarmannahelgi sem aðrar í
Galtalækjarskógi. Til þess að koma
í veg fyrir að áfengi verði smyglað
inn á svæðið, verða 150 sjálfboða-
liðar til reiðu, gerist þess þörf að
leita að víni við innganginn á
svæðið.
Nýjung í ár er forsala miða inn á
svæðið, en miðar keyptir í forsölu
eru 500 kr. ódýrari en þeir sem
keyptir eru við hliðið í Galtalæk.
Sætaferðir verða famar frá eftir-
töldum stöðum: Umferðarmiðstöð
BSÍ, öllum áfangastöðum Sérleyf-
isbfla Keflavíkur, Njarðvík, Sand-
gerði, Garði, Keflavík, Grindavík,
Vogum og Selfossi. Forsala að-
göngumiða fer fram á sömu stöð-
um.
Form: Bindindlsmót
Aðgangseyrir: Fullorönlr: 4800 kr.,
ungllngar: 4300 kr., böm: ókeypis.
Verðið er miðað við að keypt só I for-
sölu
IG TA-88268
staögreitt á aöeins kr.
GASGRILL
:MS90
án gaskúts
Olíufélagiö hf. hefur nú til afgreiöslu, á
ESSO bensínstöðvum um allt land,
fullkomið gasgrill á einstaklega
hagstæöu verði.
Eiginleikarnir eru þessir:
• Afkastamikill 30.000 BTU (8,8 kW)
tvöfaldur H-laga brennari sem
tryggir jafna dreifingu á
eldunarflötinn.
• 1809 cm2 eldunarflötur.
• 1040 cm2 færanleg efri grillrist.
• Fellanleg tréhilla aö framan.
• Tvær hliðarhillur úr tré.
• Botnhilla úrtré.
• Glerrúða í loki og hitamælir.
• Örugg festing fyrir gaskút.
• Leiöbeiningar um samsetningu á
íslensku.
• Notkunarleiöbeiningar á íslensku.
Gaskútar fyrir grilliö fást á
ESSO bensínstöðvum um
land.
Skiptiþjónusta á tómum
og áfylltum kútum.
Olíufélagið hf
Sími: 60 33 00