Tíminn - 24.07.1993, Side 12
20 Tíminn
Laugardagur 24. júlí 1993
UÍA vildi fá körfuknattleiksmann úr NBA-deildinni á Eiðar:
Ekki von á neinum
vegna sumarleyfa
UÍA bar víuraar í Körfuknattleikssamband íslands um að það hefði
miliigöngu um komu körfuknattleiksmanns úr bandarísku NBA-
deildinni á útihátíðina á Eiðum um verslunarmannahelgina.
Sigurður Amar Helgason,
framkvæmdastjóri UÍA, segir að
enn hafi ekki neinn fengist til að
koma þar eð körfuknattleiks-
mennirnir eigi svo stutt sumar-
frí og ekki hefði verið byrjað að
biðla til þeirra fyrr en í júní sem
er of stuttur undirbúningstími.
„Ég býst ekki við að neitt af því
að við fáum hingað körfubolta-
mann úr því sem komið er,“ seg-
ir Sigurður. „Engin sérstök nöfn
höfðu verið nefnd heldur var
bara verið að leita að þekktum
íþróttamanni úr NBA- deildinni
sem fólk hér þekkir. Kaupið
höfðum við enn ekki rætt enda
gætum við ekki borgað neitt sem
skipti þessa íþróttamenn máli.
Þess í stað ætluðum við að bjóða
þeim eitthvað skemmtilegt eins
og ferð fara upp á jökul.“
— GKB
GRILLSKÁLINN HELLU
Veitingar við allra hæfi.
Opið alla daga frá kl. 8.00-23.00.
VERIÐ VELKOMIN • SÍMI98-75881.
FERÐA-
MENN
Við bjóðum
ykkur
velkomna til
Hvammstanga
í verslun okkar fáið þið flestar þær vörur sem
ykkur kann að vanhaga um á ferðalaginu.
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga
Hvammstanga
FERÐAFÓLK
GOÐAFOSS ÁSBYRGI ALDEYJARFOSS
DIMMUBORGIR
DETTIFOSS
Verió velkomin á félagssvæöi okkar, sem
býöur upp á marga fegurstu staöi landsins
Við bjóðum þjónustu okkar á HÚSAVÍK í:
K.Þ. Matbæ (matvöruverslun)
K.Þ. Miðbæ (fatnaður - ferðavörur - iþróttavörur o.fl.)
K.Þ. Smiðjunni (vélavarahlutir - byggingavörur - verkfæri o.fl.) \
Söluskálanum Naustagili (matur - drykkur o.fl. o.fl.)
I útibúum að: Fosshól við Goðafoss - Laugum, Reykjadal -
Reykjahlíð við Mývatn - Ásbyrgi - Gljúfrabúi við Laxárvirkjun -
sem öll veita ferðamönnum margvíslega þjónustu.
ESSO þjónusta.
KAUPFÉLAG ÞINGEYINGA
Axel Fiedler skipsfiórí í brúnni.
Tímamynd: Ami Bjama
Danskt varðskip í höfn í tilefni af hafnardegin-
um sem er í dag:
Vædderen í
Reykjavíkurhöfn
Danska varðskipið Vædderen liggur nú við Reykjavíkurhöfn. Þetta er
eitt af fiórum nýjum varðskipum sem Danir hafa nýiega tekið í notkun.
Það er um 3.500 rúmlestir og um borð eru alls 62 menn.
Skipstjóri Vædderen, Axel Fiedler,
segir skipinu sérstaklega vera ætlað
að hafa eftirlit með kafbátum og
flugvélum auk fiskveiða. „Við erum
að koma frá Grænlandi þar sem við
vorum í þrjá mánuði en skipið er
sérstaklega hannað til að vera í
Norður-Atlantshafi og getur siglt í
gegnum eins metra þykkan ís. Það
getur jafnframt verið heilan mánuð
á siglingu í einu án nokkurra vand-
kvæða,“ segir Axel.
Um helgina gefst almenningi tæki-
færi til að skoða Vædderen en á
þriðjudag heldur það til Færeyja.
Dönsk varðskip hafa verið tíðir
gestir í Reykjavíkurhöfn þótt íslend-
ingar hafi tekið eigin landhelgis-
gæslu að sér árið 1926. Eftir að
danski sjóherinn tók nýju varðskip-
in í notkun hafa þau legið í Sunda-
höfn en nú eftir að Gamla höfnin var
dýpkuð geta þau komið þar að landi
og fagnar Axel því. -GKG.
VINDHEIMAMELAR 1993
Dagskrá:
Föstudagurinn 30. júlí < .
Kl. 9.00 Dómar kynbótahrossa
Laugardagurinn 31. júli
Kl. 10.00. Töltkeppni - 200 m völlur
Kl. 10.00. Eldri flokkur unglinga
Yngri flokkur unglinga
Kl. 13.00. Gæðingaíþróttir, A fl.
Gæðingaíþróttir, B fl.
Skeið, fyrri sprettur
Yfirlitssýning kynbótahrossa
Björn og Hrímnir
Sigurbjörn og Vídalín
Opin keppni í gæðingaíþróttum.
Opin keppni í tölti og gæðingaskeiði.
1 unglingakeppni leiða saman hesta sína Olafsfirö-
ingar, Siglfirðingar, Húnvetningar og Skagfirðingar.
Sunnudagurinn 1. ágúst
Kl. 11.00. Gæðingaskeið
Kl. 13.00. Töltúrslit
Yngri fl. unglinga, úrslit
Eldri fl. unglinga, úrslit
Björn og Hrímnir
Sigurbjörn og Vídalín
Kynbótahross, úrval
Kl. 16.00. Skeið, seinni sprettur
Gæðingaíþróttir, B fl. - úrslit
Gæðingaíþróttir, A fl. - úrslit
Verðlaun í skeiöi: 250 m-1. verðl. 75.000
2. verðl.. 30.000
3. verðl. 20.000
150 m -1. verðl. 40.000
2. verðl. 20.000
3. verðl. 15.000
Skráning hjá Magnúsi Lárussyni á Hólum í
síma 95-36587 dagana 26. og 27. júlí frá kl.
10-22.
Aðgangseyrir kr. 1.500 fyrir alla dagana. Kr.
1.000 á sunnudag.