Tíminn - 27.07.1993, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 27. júlí 1993
Tíminn 13
Kvökhnessur í Friörikskapellu
í kvöld, þriðjudag 27. júlí, verður guðs-
þjðnusta í hinni nýju Friðrikskapellu að
Hlíðarenda í Reykjavík. Prestur verður
sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Guðsþjón-
ustan hefst ld. 20.30. önnur guðsþjón-
usta er fyrirhuguð þriðjudagskvöldið 17.
ágúst.
Samtökin um byggingu Friðrikskapellu
hafa nú afhent KFUM, KFUK, Knatt-
spymufélaginu Val, Karlakómum Fóst-
bræðmm og Skátasambandi Reykjavíkur
húsið til eignar og hafa félögin myndað
sjálfseignarstofhun um rekstur þess.
Stjóm Friðrikskapellu skipa: Þorsteinn
Haraldsson endurskoðandi, formaður,
Ammundur Jónasson framkvæmda-
stjóri, ritari, Ari Ólafsson verkfræðingur,
gjaldkeri, Kristín M. Möller meinatækn-
ir, Páll Gíslason læknir og sr. Valgeir
Ástráðsson.
Friðrikskapella er fjölnota hús og öllum
opin til kirkjulegra athafna, tónleika-
halds og funda. f húsinu rúmast 140-150
gestir og það hentar einkar vel til fjöl-
skylduathafna, skíma og giftinga.
Þeim, sem hafa hug á að nýta sér Frið-
rikskapellu á einhvem hátt, er bent á að
hafa samband við húsverði að Hlíðar-
enda í síma 11134 eða einhvem stjómar-
manna.
Þeim, sem beina vilja áheitum og gjöf-
um til hússins, er bent á ávísanareikning
nr. 1099 í íslandsbanka hf., Lækjargötu
12.
Friðrikskapella er opin virka daga,
nema laugardaga, milli kl. 13 og 16 fyrir
þá sem njóta vilja kyrrðar.
Landsmót Hvítasunnumanna
Hvítasunnumenn halda sitt árlega lands-
mót um verslunarmannahelgina í
Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Mótið
verður sett fimmtudagskvöldið 29. júlí
og því lýkur að morgni mánudagsins 2.
ágúst Dagskrá mótsins verður fjölbreytt
að vanda og við allra hæfi. Mikill og líf-
Iegur söngur einkennir samverustund-
imar ásamt með góðri fræðslu og fyrir-
bænaþjónustu. Kvöldvökur verða haldn-
ar fyrir yngri kynslóðina, kveiktur varð-
eldur auk fjölda annarra atriða.
Ræðumenn mótsins verða úr röðum
leiðtoga Hvítasunnusafnaðanna. Sú ný-
breytni verður á mótinu í ár, að haldið
verður sérstakt bamamót á sama tíma.
Þar verður boðið upp á leiki, föndur,
fræðslu auk brúðuleikhúss. Á bamamót-
inu verður dagskrá fyrir bömin allan
daginn og gæsla fyrir yngstu bömin á
meðan á samkomum stendur.
í Kirkjulækjarkoti reka Hvítasunnu-
menn safnaðanniðstöð og þar er góð að-
staða til samkomuhalds. Skálinn rúmar
á annað hundrað manns í gistingu og þar
er einnig hægt að kaupa mat á góðu
verði. Næg tjaldstæði em á svæðinu og
aðstaða fyrir tjaldvagna og húsbíla. Sam-
komumar verða haldnar í tveimur stór-
um og upphituðum samkomutjöldum,
sem rúma alls um 800 manns f sæti.
Á landsmótið em allir velkomnir og
þangað getur öll fjölskyldan komið og
notið helgarinnar í fallegu umhverfi og
góðum félagsskap.
Allar nánari upplýsingar fást í síma 98-
78448 eða 91-21111.
Hagyrðingamót á
Hallormsstaó 21. ágúst
Hið árlega hagyrðingamót verður haldið
á Hallormsstað laugardaginn 21. ágúst
og hefst með sameiginlegum kvöldverði
kl. 19. Á matseðli kvöldsins verða heitir
og kaldir réttir á hlaðborði og kosta
2.000 krónur. Húsið verður opnað kl. 18.
Panta þarf með viku fyrirvara.
Gistingu verður hægt að fá á sama stað,
þ.e. á Hótel Eddu, Hallormsstað, sími 97-
11705, í eins (kr. 3.150) og tveggja (kr.
4.150) manna herbergjum með 5% af-
slætti fyrir eina nótt, en 15% afslætti fyr-
ir tvær nætur eða fleiri. Svefnpokapláss í
skólastofu kostar 750 krónur. Gistingu
þarf að panta með tveggja vikna fyrir-
vara.
Samkoma verður að lokinni máltíð þar
sem heiðursgestur verður Helgi Seljan,
en undirbúningur fyrir þetta mót hefur
hvílt á herðum Hallgríms Helgasonar á
Þorbrandsstöðum í Vopnafirði.
SOÐASKAPUR
- ELDHÆTTA
Sýnum alhliða tillitssemi
í umferðinni!
IFERÐAR
Njáluslóðir—Þórsmörk
Árieg sumarferð framsóknarfélaganna I Reykjavík veróur farin laugardaginn 14.
águst 1993. Aö þessu sinni veröur fariö á söguslóðir Njálu og inn I Þórsmörk.
Aöalleiösögumaður feröarinnar veröur Jón Böðvarsson.
Feröaáætlunin er þessi:
Kl. 8:00 Frá BSl.
KJ. 10:00 Frá Hvolsvelli.
Kl. 11:15 Frá Bergþórshvoli.
Kl. 12:30 Frá Gunnarshólma.
Kl. 17:00 Úr Þórsmörk.
Kl. 18:45 Frá Hllöarenda.
KJ. 20:00 Frá Keldum.
Kl. 20:45 Frá Gunnarssteini.
Kl. 22:00 Frá Hellu.
Áætlaö er aö vera f Reykjavík kl. 23:30.
Skráning I feröina er á skrifstofu Framsóknarflokksins I slma 624480 frá 9.-13.
ágúst. Verö fyrir fulloröna 2.900 kr., böm yngri en 12 ára 1.500 kr.
Sumarhappdrætti Framsókn-
arflokksins 1993
Drætti I Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur veriö frestaö til 9. ágúst n.k.
Velunnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miöa, eru hvattir til aö greiöa heims-
enda giróseöla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eöa I slma 91- 624480.
FramsóknaríkMaMhn
Kópavogsbúar og nágrannar
Spilum félagsvist aö Digranesvegi 12 kl. 20.30 fimmtudaginn 29. júll. Spilaverö-
laun og molakaffi.
Frvyja, fétag framsóknarkvenna i Kópavogl
Spurö nú hvaöa mótleikari hennar hafi veriö besti „kyssarinn", svarar hún aö bragöi: „Bob Hope. Hann haföi svo
mjúkar varir!" Sfðari maöur hennar, John Peoples, verður aö una samkeppninni viö gamlar minningar.
Jane Russell hefur margs aö minnast:
Kynbomban sem sneri
sér aö málefnum barna
___
Jane Russell þeyttist með hraði
upp á stjömuhimininn í fyrstu
myndinni sem hún lék í. Utlag-
inn er orðin sígild og ódauðleg
ímynd Jane Russell sem kyn-
bombu í þeirri mynd. Samt átti
hún eftir að leika í mörgum
myndum þar sem hún sýndi aðra
hæfileika frekar, s.s. í Heiðurs-
menn velja ljóskur (Gentlemen
Prefer Blondes, önnur sígild
mynd) þar sem hún lék annað
hjól undir vagni Marilyn Monroe.
En Jane var alltaf svolítið öðru
vísi en glamúrstjörnumar í Holly-
wood. Hún fæddist í Minnesota,
ólst upp í Kaliforníu og stundaði
leiklistarnám þar við Max Rein-
hardt Theater Workshop. Hún
hefur alltaf verið mjög trúuð og
lausbeislað líf Hollywood átti aldr-
ei við hana. Hún giftist mennta-
skólakærastanum sínum og stóð
það hjónaband þar til hann dó. Nú
hefur hún verið gift John Peoples
í mörg ár og eiga bömin þeirra 8
(þrjú ættleidd börn hennar, þrjú
úr fyrra hjónabandi Johns og tvö
börn tvíburasystur Johns sem
misstu foreldra sína, öll gift), 15
bamaböm (eitt þeirra, Jamie, ný-
látið í fangelsi) og tvö barna-
bamaböm hug hennar allan.
Jane minnist margra frægra
mótleikara frá fyrri tíð. Marilyn
Monroe sem var ráðvillt og ein í
Hollywood, Clark Gable var stríð-
inn og skemmtilegur prakkari (Á
hverfanda hveli er uppáhalds-
mynd Jane), Robert Mitchum er
enn traustur og góður vinur, en
því miður hitti Jane aldrei Kat-
harine Hepbum.
Jane og fyrri maður hennar
höfðu verið barnlaus í 10 ára
hjónabandi þegar þau ákváðu að
taka börn til ættleiðingar. Þá ráku
þau sig á vegg í Bandaríkjunum,
þar sem ættleiðing á þeim árum
var enginn barnaleikur. Henni
áskotnaðist dóttir eftir krókaleið-
um og nokkru síðar var hún á
ieikferð í Englandi og fékk þar
upp í hendurnar son til ættleið-
ingar. Þar var skrifræðið algert
fótakefli og Jane komst að raun
um að þó að mikið væri um mun-
aðarlaus böm í Evrópu eftir stríð-
ið, stóðu alls kyns lagasetningar í
vegi fyrir því að bamlausir Banda-
ríkjamenn gætu komið þar til
sögunnar. Hún stofnaði því félags-
skap 1951 til að fá þingmenn til
að breyta bandarískum lögum til
að greiða fyrir slíkum ættleiðing-
um.
Jane er nú sátt við lífið og tilver-
una, nema einu vildi hún breyta
ef hún mætti lifa upp á nýtL Hún
harmar mjög dauða barnabarns-
ins Jamie og vildi að ekki hefði
komið til þess að hann gripi til
þess örþrifaráðs að stytta sér aldur
í vörslu lögreglunnar eftir hand-
töku vegna fíkniefnamáls. Fjöl-
skyldan ætlaði að leysa hann úr
haldi um morguninn, en það var
of seint.
Jamie bjó þá hjá afa sínum og
ömmu og Jane segir hann ekki
hafa þekkt muninn á réttu og
röngu þegar hann kom til þeirra,
hann hafi haldið að hann kæmist
upp með hvað sem er. „Ég kenni
sjónvarpinu og bíómyndunum
um hvemig fór,“ segir harmi sleg-
in amman.
Nú býr Jane, 72ja ára gömul, f friöi og ró f Santa Barbara meö slöari manni
sfnum. Fjölskyldan er henni eitt og allt núorðiö og þau hjón eiga samtals 8
börn, 15 barnabörn og tvö barnabarnabörn.