Tíminn - 11.08.1993, Side 7
Miðvikudagur 11. ágúst 1993
Tíminn 7
Frá áramótum hefur viðvarandi atvinnuleysi á Akureyri verið frá 400 til 500 manns og því til viðbótar bíða hundruðir
vinnandi manna í óvissu meðan undirstöðufyrirtæki í bænum berjastfyrir lífi sínu:
Svartnætti yfir Akureyrí
Frá Akureyri.
„Fólk hérna er orðið viridlega
niðurdregið og áhyggjufullt,"
sagði einn viðmælenda Tún-
ans í gær um það ástand sem
ríkir á Akureyri. í síðasta
mánuði voru tæplega 400
manns á atvinnuleysisskrá, en
í janúar voru rúmlega 500
sloráðir atvinnulausir. Slipp-
stöðin-Oddi hf. er með
greiðslustöðvun en þar vinna
um 180 manns.
Hjá íslenskum skinnaiðnaði starfa
um 120 manns, en bráðabirgðafé-
lag sér um reksturinn út septem-
ber. Hjá Strýtu, sem tók við rekstri
K. Jónsson og Co, vinna um 80
manns. Strýta mun starfa til 15.
september. Hjá ullarvinnslufyrir-
tækinu Foldu starfa um 100
manns. Þrátt fyrir að þar hafi tek-
ist að hagræða og sala sé yfir áætl-
un á þessu ári er reksturinn ekki
tryggur þegar til lengri tíma er lit-
ið.
100 milljón króna
hlutafjáraukning
uppurin
Nú er um ein vika liðin síðan
Slippurinn-Oddi hf. fékk þriggja
viloia greiðslustöðvun. Fyrirtækið
er einn af burðarásum atvinnulífs
á Akureyri, en þar vinna um 180
manns. Það hefur verið lagt upp
með það fyrir augum að lækka
skuldir Slippsins um a.m.k. 200
milljónir króna og fá inn nýtt
hlutafé, en í því sambandi hafa
verið neftidar 40 milljónir króna.
Samhliða þessu á að leita leiða til
þess að hagræða enn í rekstri.
Það er reyndar ekki nema tæpt ár
síðan Vélsmiðjan Oddi, sem var að
mestu leyti í eigu KEA, og Slipp-
stöðin sameinuðust Markmiðið
var að hagræða og spara í rekstri,
en það hefúr að huta til tekist að
sögn Halldórs Jónssonar, bæjar-
stjóra á Akureyri. En það verður að
gera betur. Við sameininguna voru
lagðar inn í Slippstöðina-Odda hf.
105 milljónir króna í nýtt hlutafé.
Síðan hefur þetta fé að mestu leyti
tapast
Staðan í málefiium Slippsins er
óljós og líkur á að þær tvær vikur
sem eftir eru af greiðslustöðvunar-
tímabilinu dugi ekki til þess að
ganga frá skuldaefdrgjöf ef hún
fæst og endurskipuleggja rekstur-
inn. Það er þó enn tími til stefnu
og fyrirtækið er alls ekki komið f
þrot
„Þama hafa menn ákveðið að fara
af stað með þessa aðgerð — skapa
sér svigrúm tíl þess að leita leiða
áður en flestar eða allar Ieiðir eru
lokaðar," segir Halldór Jónsson
bæjarstjóri. „Það hefði örugglega
verið mögulegt að halda þessum
rekstri áfram eitthvað lengur, en
það hefði þá fyrr eða síðar komið
að því að það hefði þrengt að og
fyrirtækið síður getað staðið við
sfnar skuldbindingar. Ég held að
það sé skynsamleg ráðstöfun að
leggja þetta dæmi upp á þessum
tímapunktí."
Hvað gera stjóravöld
fyrir skinnaiðnaðiim?
Hjá íslenskum skinnaiðnaði
unnu um 120 manns, en fyrirtæk-
ið varð gjaldþrota fyrir skömmu.
Hömlur, dótturfyrirtæki Lands-
bankans - sem stofnað var tíl að
halda utan um rekstur fyrirtækja
Sambandsins, eftir að bankinn tók
þau yfir - reka íslenskan skinna-
iðnað út september, að sögn
Bjama Jónassonar, framkvæmda-
stjóra rekstrarfélagsins. Hvað þá
tekur við hjá fyrirtækinu og 120
starfsmönnum þess liggur ekki
fyrir.
Iðnþróunarfélag Eyjafiarðar
vinnur nú af fullum krafti að
stofnun nýs fyrirtækis er taki við
rekstri ÍSÍ 1. október. Það eina
sem liggur fyrir varðandi eignar-
aðila að hinu nýja fyrirtæki, er að
Akureyrarbær hefur lýst því yfir að
hann leggi í það fé, en verði þó
aldrei annað en minnihlutaeig-
andi. Ekki hefur verið leitað hóf-
anna hjá stómm fyrirtækjum í
bænum eins og KEA og Útgerðar-
félagi Akureyringa hf. varðandi
hlutafé. Áður verða að koma til lof-
orð um stuðning frá stjómvöldum
er tryggi að grundvöllur sé fyrir
rekstrinum. Þar vegur þyngst að
ríkið greiði niður gæmr sem ÍSÍ
vinnur úr.
„Ég held að það sé mjög erfitt að
meta einhverjar líkur í þessu
máli,“ sagði Bjami Kristinsson hjá
Iðnþróunarfélagi Eyjafiarðar í
gær, aðspurður um líkumar á að
það tækist að stofna nýtt fyrirtæki
um skinnaiðnaðinn. „Ég held að
dæmið sé í sjálfu sér ekki slæmt
rekstrarlega séð.“
Tekst að tryggja
rekstur lagmetisiðn-
aðarins?
Þann 11. mars á þessu ári var
sjávarafurðafyrirtækið K. Jónsson
& Co lýst gjaldþrota. Um það bil
einni viku síðar tók rekstrarfélagið
Strýta við starfseminni tíl bráða-
birgða, en að Strýtu standa Lands-
bankinn, Kaupfélag Eyfirðinga og
útgerðarfyrirtækið Samheiji. Hjá
Strýtu vinna um 80 manns. Fýrir-
tækið mun starfa til 15. septem-
ber, en stjóm þess sem er skipuð
fulltrúum frá Landsbanka, KEA og
Samherja, vinnur hörðum hönd-
um að því að fá inn hlutafé til þess
að tryggja áframhaldandi rekstur.
Hvort það tekst liggur ekki fyrir
ennþá.
Strýta verkar rækju og leggur
niður síld og kavíar. Verkefni hafa
verið næg í sumar og unnið á 16
tíma vöktum mestallan tímann.
Framtíðin ræðst hins vegar af því
hvort fé fæst inn í reksturinn eða
ekki.
Folda berst áfram
Folda hf. er arftaki Álafoss sáluga.
Þar vinna nú tæplega 100 manns,
en tekist hefur að hagræða í
rekstri síðan fyrirtækið var stofnað
árið 1991. Folda er opið almenn-
ingshlutafélag, en stærstu eigend-
ur era Framkvæmdasjóður Akur-
eyrarbjæjar, Iðnþróunarfélag Eyja-
fiarðar, Bændasamtökin og ístex
hf. Meginvandi Foldu hf., eins og
annarra fyrirtækja sem berjast fyr-
ir lífi sínu á Akureyri, er vöntun á
eiginfiármagni. Á síðasta aðalfundi
var samþykkt að auka hlutafé úr
70 milljónum í 100 milljónir
króna. Af því hefúr verið safnað 80
milljónum og stefnt að því að
safna a.m.k. þeim 20 til viðbótar
sem heimild er fyrir.
Að sögn framkvæmdastjórans,
Baldvins Valdimarssonar, hefur
reksturinn gengið þokkalega það
sem af er ársins. Sala hefur verið
heldur meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir og kostnaðarliðir era
undir áætlun, að frátöldum fiár-
magnskostnaði, sem reynst hefúr
þungur í skauti vegna hárra vaxta
og gengisfellinga. Á fyrsta starfsári
Foldu var hagnaður af rekstrinum,
en í fyrra var 48 milljón króna tap.
Vonast er til að ekki verði um tap
að ræða á þessu ári, en sem dæmi
um gott gengi má nefna að í síð-
asta mánuði var slegið sölumet,
þegar selt var fyrir tæpar 50 millj-
ónir króna.
Vegna sveiflna í sölu og fram-
leiðslu milli árstíða er reksturinn
fiármagnsfrekur. Þá liggur einnig
fyrir að endurnýja vélabúnað, sem
myndi aftur skila sér í betri nýt-
ingu.
„Það fylgir þessum rekstri auðvit-
að áhætta," sagði Baldvin Valdi-
marsson í samtali við Tímann í
gær. „Við vissum þegar við byrjuð-
um héma að þetta væri áhættu-
samur rekstur og það er þannig
ennþá. Þar sem að þetta er fiár-
magnsffekur og sveiflukenndur
rekstur, aukast að sjálfsögðu lífs-
líkumar eftir því sem eigið fé er
sterkara. Þannig er félagið líka
betur í stakk búið tíl þess að
bregðast við sveiflum á mörkuð-
um og til þess að geta tileinkað sér
fljótt tækninýjungar." -ÁG
Hlýindi næstu daga ráða úrslitum um berja-
sprettuna í ár:
Helst er von
með krækiber
Misjafnlega horfir með beija-
sprettu á landinu í ár. Einna skást
virðist útlitið vera á sunnanverð-
um Vestfiörðum. Kalt vor og
þurrkar í sumar valda því að ber
eru með minnsta móti sunnan-
lands og vestan. Á Norður- og
Austurlandi vonast menn eftir
góðviðri næstu daga svo allavega
rætist úr með krækiberin. Al-
mennt er talið að ekki sé tímabært
að fara til berja fyrr en seinni
hluta þessa mánaðar.
„Ég hugsa að það geti orðið tölu-
vert af krækiberjum ef það kemur
góður hlýviðriskafli," segir Jó-
hanna Lárusdóttir, húsfreyja á
Brekku í Mjóafirði. Hún vísar til
þess að krækiberin hafi náð að
þroskast á stuttum hlýindakafla í
vor og því geti ræst úr með þau.
Um bláberin gegnir öðru máli að
áliti Jóhönnu. „Þar eru varla kom-
ir grænjaxlar og haustið verður að
vera mjög gott eigi að rætast úr
með þau,“ bætir hún við. Aðspurð
neitar Jóhanna því að berjaspretta
sé óvenjuslæm á þessu sumri.
„Stundum hefur komið kuldahret
á vorin sem hefúr eyðilagt berin en
það gerðist ekki í vor sem leið,"
segir Jóhanna og kennir langvar-
andi þurrkaleysi og kulda um lé-
lega sprettu.
„Það vantar sól og hita,“ segir
Baldvin Haraldsson, bóndi á
Stóru-Hámundastöðum á Ár-
skógsströnd. Hann telur að kræki-
berin muni ef að líkum lætur ná
sér á strik. „Það er mikið af græn-
jöxlum í bláberjum og þau eru rétt
að byrja að blána en í aðalbláberj-
um eru nánast sætukoppar enn,“
bætir hann við. Baldvin hefur frétt
að berjaspretta sé misjöfn á Norð-
urlandi og hefúr Ld. heyrt að í
Laufási sé ekki búist við neinni
sprettu í ár. Jóhann segir að þó
þurfi ekki nema einn góðviðrisdag
til að berin taki við sér. „Nætur-
frost gæti hins vegar spillt öllu,"
bætir hann við.
„Ég á ekki von á mikilli berja-
sprettu, það var allt of kalt framan
af,“ segir Kristján Bjamdal, ráðu-
nautur á Suðurlandi. Þar vísar
hann til þess að of fáir grænjaxlar
hafi náð að myndast á köldu vori
sunnanlands. Hann segir að blá-
berin séu næmari fyrir vorkulda en
krækiberin og telur að lítið verði af
þeim í ár.
í sama streng tekur Friðrik Jóns-
son, héraðsráðunautur á Vestur-
landi, og telur rysjótta tíð í maí og
júní og þurrviðri í júlí orsök þessa.
Friðrik telur þó að fúllsnemmt sé
að geta sér til um hvemig berja-
sprettan verði.
Tálsvert kveður við annan tón hjá
Ragnari Guðmundssyni, bónda á
Brjánslæk á Barðaströnd. „Þetta
Iítur bara þokkalega vel út,“ segir
hann og telur að ef ekki kólni að
ráði, megi gera ráð fyrir að mikið
verði af berjum. Hann segir reynd-
ar að þegar fólk á þessum slóðum
tali um að vel horfi með berja-
tínslu sé átt við aðalbláberin.
Ragnar bendir samt á að berja-
spretta sé meiri á sunnanverðum
Vestfiörðum en á norðurfiörðun-
um og þakkar það skjóli fyrir
norðanátt. -HÞ