Tíminn - 09.09.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 09.09.1993, Qupperneq 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn—68-76-48-.-Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48».Frétta-Tíminn...Frétta«símiiin...68-76-48. Fimmtudagur 9. september 1993 169. tbl. 77. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 125.- Hagkaup verður ekki heimilað að selja innfluttu skinkuna: Davíö studdi Halldór Blöndal í skinkumálinu Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur úrskurðað að forræði varð- andi innflutning á landbúnaðarvörum sé hjá landbúnaðarráðherra. Þessi niðurstaða þýðir að Hagkaup verður ekki leyft að selja 1,5 tonn af danskrí skinku og hamborgarhryggjum sem fyrírtækið hef- ur fiutt inn. Davíð sendi Friðriki Sophussyni fjármálaráðherra bréf í gær þar sem segin „Af sérstöku gefhu tilefni gaf ég yfirlýsingu á Alþingi sl. vor um að forræði á innflutningi búvara væri að óbreyttum lögum áfram hjá Iand- búnaðarráðherra. Þessa yfirlýsingu gaf ég að höfðu samráði við utanrík- isráðherra, fjármálaráðherra og þá- verandi viðskiptaráðherra. Engin at- hugasemd var gerð við þessa yfirlýs- ingu á þinginu, hvorki af ráðherrum né einstökum þingmönnum. Síðan hefur engin lagabreyting verið gerð. Yfirlýsingin hlýtur því að standa óhögguð og forræði málsins að vera áfram hjá landbúnaðarráðuneyti." Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra sagði að þessi niðurstaða þýddi að hann mundi, strax og um- sókn bærit frá Hagkaup til ráðu- neytisins, senda málið til Fram- Ieiðsluráðs landbúnaðar til umsagn- ar í samræmi við gildandi lög. Ráðu- neytið mundi síðan svara Hagkaup í framhaldi af því. Halldór sagðist ekki myndu draga Hagkaupsmenn á svari, en fyrst þyrftu þeir að senda ráðuneytinu bréf þar sem farið væri fram á að leyfa þennan innflutning. Halldór sagði að þessi niðurstaða forsætisráðherra ætti ekki að þurfa að koma á óvart. Niðurstaðan væri í samræmi við vilja þingsins eins og hann hefði birst í umræðum á Al- þingi. -EÓ Húsaleigubótum komið á með sparnaði í húsnæðiskerfinu? Kratar kref jast húsaleigubóta TÍMAMÓT eru nú aö veröa f l(fi sex ára bama á fslandl. I gær komu þessl sex ára böm f Mýrarhúsaskóla á Seltjamamesl f skólann og hittu þar fyrir Guðlaugu, kennarann sinn. Tfmamynd Aml Bjama Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra um innflutning á rjúpu frá Rússlandi: „Tel innflutning koma til greina“ Þingflokkur Alþýðuflokksins hefur samþykkt að styðja tillögu Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra um húsaleigubætur. Þingflokkurinn samþykkti að leita eftir viðræðum við sjálfstæðismenn um að kostnaði við húsaleigubætur yrði mætt innan núverandi hús- næðiskerfis. Tálið er að húsaleigu- bætur geti kostað ríkissjóð um 300 milljónir á ári. Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra staðfesti þetta í samtali við Tímann. Hann sagði að enn hefði ekki gefist tfmi til að ræða þessa leið við sjálfstæðismenn og því lægi ekki fyrir hvort hún yrði farin. Ekki lægi heldur fyrir hvar í húsnæðiskerfinu yrði skorið niður til að koma húsa- íeigubótum á. Báðir þingflokkar stjómarinnar hafa nú gefið ráðherr- um sínum umboð til að ganga frá fjárlagafrumvarpinu. -EÓ Össur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra, telur koma til greina að leyfa innflutning á rússneskum rjúpum til landsins, svo fremi að tryggt sé að rússneski rjúpnastofninn sé ekki haldinn smitsjúk- dómum. Össur segir að innflutningur á rjúpu geti leitt til minni veiði á íslenska rjúpnastofninum, en hann er í mikilli lægð um þessar mundir. Pétur kaupmaður í Kjötbúri Pét- miklu álagi. Innflutningur á ódýrum urs hefur lýst yfir áhuga á að flytja rjúpum hlýtur að draga úr veiðinni inn rjúpur frá Rússiandi. og þar með fælist í innflutningnum „Ég vil athuga hugmyndir Péturs talsverð vemd fyrir rjúpnastoftiinn. mjögvel. Það er ljóst að margir telja Þegar menn tala um sjúkdóma- íslenska rjúpnastofninn vera undir hættu í þessu sambandi þá ber að skoða það ofan í kjölinn. Innflutn- ingur á rússneskum rjúpum yrði ekki leyfður fyrr en búið væri að ganga úr skugga um að rússneski stofninn sé sjúkdómalaus. Það em hins vegar mjög góð rök hjá Pétri þegar hann bendir á að hingað kem- ur aragrúi farfugla á hverju ári. Hvaða munur er á því að þessir fugl- ar komi fljúgandi sjálfir á eigin vængjum eða með vængjum flug- vélanna?" spurði Össur. -EÓ Forstöðumaður Betei í Vestmannaeyjum varar fólk við geimverunum sem kváðu eiga að lenda hér á landi 5. nóvember: „Utsendarar djöfulsins lenda á Snæfellsjökli“ Snorrí Óskarsson, safnaðarhirðir hjá Betelsöfnuöinum ( Vest- mannaeyjum, segir að geimverumar, sem eigi að birtast á Snæ- fellsjökli i byijun nóvember, séu útsendarar djöfulsins. Magnús Skarphéðinsson, einn af talsmönnum nýaldarmanna, segir þessa afstöðu dæmi um þröngsýni krístinnar trúar og ekki koma sér á óvarL Hann segist einnig hafa vísbendingu um að geimfaríð sem á að lenda og geimverumar sjálfar verði ekki sýnilegar. „Ég kalla þetta tæknivæddan draugagang," segir Snorri Óskars- son, safnaðarhirðir Betel í Vest- mannaeyjum." Það er svo lítið hægt að byggja á þessu. Menn þurfa helst að vera miðlar til þess að ná sam- bandi og það er akkúrat það sem heitir á daglegu máli spíritismi og biblían stendur gegn. Þetta eru and- ar blekkingarinnar. Höfðingi þess- ara geimvera heitir nú bara djöfull- inn og satan." — En er þetta ekki bara einfaldlega blekking? J4ei, þetta er endiiega alveg blekk- ing. Maðurinn er þríeinn, hann samanstendur af þremur þáttum; líkama, anda og sál. Andlegi þáttur mannsins er mjög opinn og næmur fyrir öðrum öndum og getur haft samskipti við þá. Þannig getum við td. haft samskipti við Guð og engla. Biblían talar um veröldina sem sýni- lega líkamlega veröid og andlega. Jesús Kristur rak út illa anda. Nú er- um við á þeim tíma að við eigum von á því að endurkoma Jesú Krists eigi sér stað, vegna þess að það er loforð fagnaðarerindisins. Við end- urkomuna verða myrkraöflin bund- in. Það er talað um það í biblíunni að djöfuilinn verði bundinn í þús- und ár og þá verður friður á jörðinni og það verður æðislegt að vera til þá. Þar sem djöfullinn veit að hann hef- ur þennan óralitla tíma, þá er hann að blekkja manninn og það gerir hann bara til þess að eyðileggja hann.“ Snorri segist ekki hafa rætt þessar skoðanir við nýaldarsinna persónu- Iega. Hann segist ekkert hafa á móti því sjálfur, það séu leitandi sálir og vilji eflaust vel. Þeirra mein sé að þau hafi ekki tekið mark á ritning- unni. Skilaboð Snorra og trúbræðra hans í Fíladelfíusöfnuðinum og öðr- um trúarhópum til þeirra sem að ætla að taka á móti geimverunum á Snæfellsjökli í byrjun nóvember eru einföld," skellið þið á þetta.“ Magnús Skarphéðinsson, einn af talsmönnum nýaldarsinna, segir af- stöðu Snorra ekki koma sér á óvart „Þetta er bara í anda þröngsýnnar umræðu sem kristin trú hefur fest í, í umræðu um þessi mál sem önnur skyld mál," segir hann.“ í annan stað lýsir þetta yfirmáta vanþekk- ingu á reynslu fólks sem séð hefúr fjúgandi furðuhluti." Magnús segir þónokkuð marga jarðarbúa hafa séð verur koma út úr geimförum eða fljúgandi furðuhlutum og það sé útilokað að segja að þetta sé al- heimssamsæri og boðverur frá hinu illa. Sú kenning standist ekki reynsluna. Boðin um að verur utan úr geimn- um eigi að lenda 5. nóvember á Snæfellsjökli eða í nágrenni hans eru sögð hafa borist til fjölda sam- bandsmiðla UFO-félaga, sem er al- þjóðlegur féiagsskapur áhuga- manna um fljúgandi furðuhluti. Magnús segist hins vegar sann- færður um að það komi engar áþreifanlegar geimverur á jökulinn. „Ég hef trú á að það komi einhverjar huglægar verur," segir Magnús. „Geimverur eru til tvennskonar. Þær eru til í mannsmynd og huldu- fólksmynd. Það er bara skyggnt fólk sem sér þenan huglæga heim og hann er fyrir því mjög raunveruleg- ur. Geimverur eru annars vegar af flokki A, efnislegar, líkamlegar og á efhisiegum farartækjum. Hins vegar eru þær af flokki B og þá eru þetta orkuleg eða huglæg fyrirbæri, sem einungis skyggnir sjá. Ég er sann- færður um að það kemur bara geim- far af flokki B á Snæfellsjökul og hef vísbendingar um það. Þær vísbend- ingar sem ég hef eru frá þessu fólki sem hefur samband við þessar geim- verur og það eru allt huglægar geimverur." -ÁG

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.