Tíminn - 09.09.1993, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 9. september 1993
Tíminn 7
Viöskiptavinur kannar hér gæði fisksins.
Hafnarf]örður:
Matvörumarkaður
við smábátahöfn
Fisk- og matvörumarkaður hefur
verið rekinn síðdegis á sunnudög-
um við veitingahúsið Kænuna hjá
smábátahöfinni í Hafnarfirði frá því
snemma sumars og hefur þetta
mælst vel fyrir. Á markaðnum, sem
staðsettur er í stóru tjaldi, bjóða
bæði fisksalar, fiskverkendur, og
ýmsir aðrir varning sinn á kosta-
kjörum. Auk allra mögulegra teg-
unda fisks er í boði á markaðnum
grænmeti, ostar og heimabakað
kaffibrauð svo eitthvað sé nefnt. At-
hygli vekur að á þessum matvöru-
markaði er hægt að gera góð kaup,
ekki síst í fiski en þar er kflóverðið á
Ld. ýsuflökum allt að 100 kr. undir
því sem algengast er í fiskbúðum.
Hefur þetta mælst svo vel fyrir að
ákveðið hefur verið að efna til flóa-
markaðar í markaðstjaldinu á laug-
ardögum þar sem Hafnfirðingum
og nærsveitarmönnum gefst kostur
á að leigja sér borð gegn vægu
gjaldi.
I tengslum við matvörumarkaðinn
í markaðstjaldinu er Kænan með
sjávarréttahlaðborð í veitingahús-
inu þar sem áhersla er lögð á að
bjóða upp á áhugaverða sjávarrétti
sem ekki eru á hvers manns borði
daglega. Af réttum þar má t.d. nefna
hnísukjöt, háf, gellur og ýmsa sfld-
ar- og laxarétti auk harðfisks o.fl.
Ábrystir eru meðal þess sem hægt
er að fá sér í eftirmat Að sögn Hild-
Aðstandendur hlaöborðs Kænunnar, frá vinstri: Auöunn Árnason, Hildur Gísla-
dóttir og Kristján Heiðarsson.
ar Gísladóttur hjá Kænunni er fyrst
og fremst verið að höfða til útlend-
inga og erlendra ferðamannahópa
með sjávarréttahlaðborðinu en í
ljós hefur komið að íslendingar eru
ekki síður spenntir fyrir því. Það er
þó ekki síst hvalurinn, hnísukjötið,
sem þykir spennandi meðal útlend-
inga, og er t.d. dæmi um að al-
mennt lófatak hafi brostið á þegar
norskur ferðamannahópur upp-
götvaði að hvalkjöt var á borðum.
Fólk hittist á markaönum
Harmonikkuleikarinn gefur matvörumarkaönum fHafnarfiröi óneitanlega sér-
stakan blæ. Hér má sjá Þórö Marteinsson spila sfgilt sjómannalag.
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaúur Nafn umboðsmanns Hefmlll Síml
Keflavík Guðrfður Waage Austurbraut 1 92-12883
Njarðvfk Katrin Sigurðardóttir Hólagata 7 92-12169
Akranes Aðalheiöur Malmqvist Dalbraut 55 93-14261
Borgames Soffía Óskarsdóttir Hrafnarkletti 8 93-71642
Styktdshóknur Erla Lámsdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Grundarflörður Anna Aðalsteinsdóttir Gmndargötu 15 93-86604
Heflissandur Lilja Guömundsdóttir Gufuskálum 93-66864
Búðardalur Siguriaug Jónsdóttir Gunnarsbraut 5 93-41222
IsaQörður Petrína Georgsdóttir Hrannargötu 2 94-3543
Hólmavfk Elisabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132
Hvammstangl Hólmfrlður Guðmundsd. Fifusundi 12 95-12485
Blönduós Snorri Bjamason Urðarbraut 20 95-24581
Skagaströnd Ólafur Bemódusson Bogabraut 27 95-22772
Sauðárkrókur Guðrnn Kristófersdóttir Barmahlfð 13 95-35311
SlgluQörður Guðrnn Auðunsdóttir Hverfisgötu 28 96-71841
Akureyri Baldur Hauksson Drekagili 19 96-27494
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Sævar Salómonsson Vallholtsvegi 11 96-41559
ÓlafsQörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð 8 96-32308
Raufarhöfn Eria Guðmundsdóttir Aðalbraut 60 96-51258
VopnaQörður Svanborg Vfglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289
Egiisstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350
SeyðisQörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136
Neskaupstaður Bryndfs Helgadóttir Blómsturvellir 46 97-71682
Reyðarqörður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167
EskiQörður Björg Sigurðardóttir Strandgötu 3B 97-61336
Fáskrúðsfjöröur Ásdís Jóhannesdóttir. Skólavegi 8 97-51339
Djúpivogur Ingibjörg Ólafsdóttir Borgarlandi 21 97-88962
Höfn Sigurbjörg Einarsdóttir Vfkurbraut 11 97-81274
Setfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317
Hveragerði Þórður Snæbjamarson Heiðmörk 61 98-34191
Þortákshöfn Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627
Eyrarbaktd Bjami Þór Erlingsson Túngötu 28 98-31198
Laugarvatn Margrét Lámsdóttir Miöey 98-61236
Hvolsvöilur Láms og Ottó Jónssynir Króktúni 18 98-78399
Vfk Sigurbjörg Bjömsdóttir Mánabraut 4 98-71133
Vestmannaeyjar Hrefna Hilmisdóttir Bröttugötu 39 98-12408
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR
BORGARTÚN 3 -105 REYKJAVlK ■ SlMI 632340 • MYNDSENDIR 623219
Frá Borgarskipulagi
Reykjavíkur
Breyting á landnotkun á reit milli Hallsvegar og Gagnvegar
í Reykjavík er auglýst samkvæmt 17. og 18. grein skipu-
lagslaga nr 19/1964.
Landnotkun er breytt úr helgunarsvæði/almennu útivistar-
svæði í þjónustusvæði (miðhverfi).
Uppdrættir með greinargerð verða til sýnis hjá Borgar-
skipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð, kl. 9.00-16.00
alla virka daga frá 8. september til 20. október 1993.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega á
sama stað eigi síðar en 3. nóvember 1993. Þeir sem eigi
gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir
tillögunni.
BORGARSKIPULAG REYKJAVÍKUR