Tíminn - 25.09.1993, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.09.1993, Blaðsíða 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn.. Frétta-síminn...68-76-48...Frétta-Tíminn .Frétta-síminn...68-76-48. Laugardagur 25. september 1993 181.tbl.77. árg. VERÐ(LAUSASÖLU KR. 125.- Þorsteinn Pálsson segir að vextir gætu verið 3% lægri ef bankarnir þyrftu ekki að afla fjár fýrir töpuðum útlánum: Bankakerfinu hefur orðiö á í messunni" Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að þessi mynd sé táknræn fyriryfirbygginguna (þjónustugreinum, greinum sem veröi að draga saman hjá sér um leiö og framleiöslan dregst saman. Timamynd Ámi Bjama Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra gagnrýndi yfirbyggingu þjónustugreina harðlega á aðal- fundi Samtaka fiskvinnslustöðva. Hann sagði að þegar kreppti að í framleiðslugreinum yrðu þjón- ustugreinar að laga sig að því. Þor- steinn gagnrýndi einnig bankakerf- ið fyrir háa vexti og sagði að vextir gætu verið 3% lægri ef bankamir þyrftu ekki að afla tekna til að standa undir töpuðum útlánum. „í fréttum í þessari viku var frá því greint að kalla hefði þurft saman ekki færri en fimmtán bankastjóra til þess að undirrita samning þriggja viðskiptabanka og samtaka sparisjóða við Seðlabankann. Ég hygg að samningurinn sem þeir tmdirrituðu hafi verið góðra gjalda verður. Myndimar af bankastjórun- um fimmtán voru á hinn bóginn einkar táknrænar fyrir þá yfirbygg- ingu þjónustugreina sem launafólk og framleiðsluatvinnuvegir í land- inu hafa ekki lengur efni á að standa undir. Við þurfum mjög að huga að því um þessar mundir að það er fram- leiðslan sem stendur undir þjónust- unni og velferðarkerfinu í landinu. Þegar að kreppir í framleiðslunni geta aðrir ekki haldið áfram að haga Þetta er þó mjög misjafht eftir skip- um, þar sem erm er stórgróði (9%) hjá frystiskipunum, en hins vegar bullandi tap (9%) á togurunum. Afkoma fisk- vinnslunnar er hins vegar í jámum að meðaltali, þ.e. rúmlega 4% hagnaður af sér eins og ekkert hafi í skorist," sagði Þorsteinn í upphafi ræðu sinnar. Þorsteinn sagði á tímabilinu 1973- frystingunni en húrrandi tap, 13-15%, af saltfiskvinnslu, enda hráefnisverðið komið yfir 70% af söluverðmæti salt- fisksins. Fiskvirmsla hefur ekki minnkað eins mikið og fiskafli að undanfömu, því út- 1990 hefði framleiðni fjármagns aukist um 4% f sjávarútvegi en minnkað um 14% þegar litið væri á atvinnulífið í heild. A tveimur ára- flutningur á ísfiski var um 14% minni á fyrstu sjö mánuðum þessa árs en á sama tímabili í (yrra. Verði samdrátturinn jafn mikill á árinu öllu þýðir það að útflutn- ingur á ísfiski hefur minnkað um 44% frá árinu 1990. Þjóðhagsstofnun segir helstu ástæðuna vera þá, að verð á ísfiski hafi verið tiltölulega hátt hér á landi miðað við verð á erlendum fiskmörkuð- um. Áætlað er að 5% meira verði fryst af botnfiski á þessu ári en í fyrra, en salt- fiskvinnsla minnki á hinn bóginn um 12% milli ára. Árið 1994 er áætlað að frysting verði um 6% minni en á þessu ári, en saltfiskvinnsla muni dragast sam- an um rúman fjórðung (27%), þar sem hún er miklu háðari þorskveiðum en frystingin. Frá 1992 hefur verð á afurðum botn- fiskvinnslunnar lækkaað f erlendri mynt, td. um heil 17% mælt f SDR. Og í krónum talið er aðeins um 0,8% hækk- un að ræða. Verð á botnfiskafurðum er nú lægra en það hefur verið í mörg und- anfarin ár, sé tekið tillit til verðbólgu í markaðslöndunum. Þessa staðreynd ásamt því sem vitað sé um framboð og eftirspum telur Þjóðhagsstofnun gefa ástæðu til að ætla að verð fari hækkandi, þótt áþreifanlegar vísbendingar þar um skorti. Úrtak Þjóðhagsstofnunar sýnir veruleg- an mismun milli fyrirtækja. Þannig hafi í fyrra 30% þeirra verið rekin með 10% tapi eða meira, en önnur 30% þeirra hinsvegarmeðhreinumhagnaði. -HEI tugum hefði framleiðni vinnuafls aukist um 72% í sjávarútvegi, 40% í iðnaði og 20% í verslun. Árangur sjávarútvegsins væri tvöfalt meiri en þjóðfélagsins í heild. „Þessar tölur sýna að sjávarútveg- urinn verður að gera kröfu til þess að aðrar og ekki síst þjónustu- og verslunargreinar nái meiri fram- leiðni. Nái þessar greinar ekki við- hlítandi árangri á þessu sviði lendir það á framleiðslugreinum að standa undir óþarflega miklum kostnaði við þjónustuhlið þjóðfélagsins. Sjávarútvegurinn rís ekki undir því við ríkjandi aðstæður eigi hann að tryggja launafólki sambærileg lífs- kjör og þekkist í grannríkjunum," sagði Þorsteinn. Þorsteinn gagnrýndi háa vexti hér á landi. Á síðasta ári voru framlög banka og sparisjóða í afskriftasjóði 6,8 milljarðar eða 68% af þeim tekj- um sem bankamir fá í gegnum vaxtamun. Þorsteinn sagði að vextir gætu verið 3% lægri en þeir eru í dag ef bankarnir þyrftu ekki að verja öllum þessum fjármunum í afskriftir vegna tapaðra útlána. Hann sagði að aldrei yrði hægt að komast hjá því að bankar töpuðu hluta af því fé sem þeir lánuðu út, en þessar miklu afskriftir sýndu augljóslega að bankakerfinu hefði orðið á í messunni. „Það er ekki ásættanlegt að bank- amir velti afleiðingum ógætilegrar stjómunar yfir á framleiðslufyrir- tækin og launafólkið í landinu. Efnahagsvandræðunum verður ekki einungis mætt með hagræð- ingu í sjávarútvegsfyrirtækjum og lækkandi kaupmætti almennings. Bankarnir verða einnig og ekki síð- ur að sýna meiri árangur f hagræð- ingu og stjómun. Þeir geta ekki haldið áfram að vitna í Litlu gulu hænuna og segja „ekki ég — ekki ég“.“ . -EÓ Boris Jeltsín, forseti Rússlands, herti í gærkvöld á umsátri um þinghúsbygg- inguna í Moskvu þar sem uppgefnir þingfulltrúamir, andstæðingar hans sitja á neyðarfundi. Spenna jókst mjög í Moskvu í gær þegar sérsveitir innanrík- isráðuneytisins streymdu að þinghús- inu sem kallað er Hvíta húsið. Jeltsín hefur áður sagst myndu forðast að grípa til vopna til að knýja fram úrslit í deilu sinni við þingið sem hann rak heim fyrir fjórum sólarhringum. Jeltsín virðist hafa þrotið þolinmæðin f gær- kvöldi því að hann skipaði innanríkis- og vamarmálaráðherrum sínum að af- vopna sveitir sem gæta þinghússins og sjálfboðaliða sem gætt hafa þingsins og þingmannanna brottreknu. Lögreglu- maður og kona létust af skotsárum sem þau hlutu í árás á höfuðstöðvar samveld- ishersins í gærkvöldi. Lögregla handtók m'u manns í kjölfar skotanna og borgar- stjóri Moskvu, Yúrí Luzhkov, segir að þeir hafi játað á sig drápin en skotið hafi Tré noröaustanlands eru hálf tuskuleg eftir kalt sumar: „Þetta er búið að vera eitt kald- asta ár sem menn hafa lifað á Norðausturlandi og það hefur auðvitað haft sín áhrif. Skógur- irm vex minna og það eru skemmdir frá hretinu í vor. Þær skemmdir eru kannski ekki eins alvarlegar og lítur út fyrir. Trén eru tuskuleg og hafa ekki náð sér í sumar, en jafría sig væntan- lega næsta sumar ef það gerist ekkert meira,“ segir Jón Lofts- son skógræktarstjóri. í byrjun næsta mánaðar, eða þann 2. október nk. verður mik- ið um dýröir á Hallormsstað en þá verður haidið hátíðlegt 90 ára afrnæli Gróðrarstöðvarinnar. Heiðursgestur hátíðarinnar verður forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir. Skógræktarstjóri segir að stærstu skógræktaráaetlanir gangi samkvæmt áætlun og ekki ólíklegt að ætla að alls hafi verið gróðursettar um 3-4 miljónir plantna í ár. Þrátt fyrir að mikið hafi verið gróðursett f gegnum tíðina er mikið starf enn óunnið og má benda á að 25% af upphaflegu skóglendi er horfið og aðeins 1% eftir. En menn láta ekki deigan síga og t.d. hefur framleiðsla á skóg- arplöntum aukist alveg gífur- lega á undanfömum ámm og nú stendur til að bjóða ræktun platna út á almennum markaði. Að mati Félags garðyrkjubænda er talið að útboð á plöntum muni leiða til verðlækkunar. Skógræktarstjóri sagðist ekki geta sagt til um það, en að hans sögn er þetta orðin afar sérhæfð framleiðsla með tilheyrandi tækni og búnaði. Hinsvegar sé nokkuð Ijóst að hagkvæmni stærðarinnar við framleiðsluna muni skipta þar verulega máli. -grh verið samkvæmt skipunum harðlínu- herforingja sem eru andsnúnir Jeltsín. Samkvæmt fréttum Reuter fréttastof- unnar hófust róstumar með því að hóp- ur vopnaðra manna réðst að höfúðstöðv- um samveldishersins með beim afleið- ingum sem áður greinir. Árásarmenn- imir flýðu þegar OMON, víkingasveit lögreglu, kom á vettvang. Þá var einnig á kreiki orðrómur um árás á stöðvar leyni- þjónustunnar GRU. Hundruð hermanna sitja nú um þinghúsið og fjöldi vel vopn- aðra hersveita er í viðbragðsstöðu í ná- grenninu. Khasbulatov þingforseti sagði f gær- kvöldi að umsátrið um þinghúsið og all- ar tilraunir til að aívopna varðsveitir þingsins og að þvinga þingið út með valdi þýddi að borgarastyrjöld væri skoll- in á í Rússlandi og að Jeltsín bæri ábyrgð á henni. Þegar Tíminn fór í prentun höföu engar fregnir borist af frekari átökum eða bardögum. Reuter/sá Bf 1 iifBi juei a a UlVUlvbr HÁSKÓI Verðandi ökukennarar þurfa að ■ N LA A LASTIGI lögð á kennarann í ökukennaranum. jo vvUi uuuiuiv itr ituiii j xvumarorw skóla íslands. AIls sóttu 47 manns um hefur umsjón með náminu. Hann Á sföasta ári var gerður samningur á miili Umferðarráðs og Kennarahá- skólans um að skóiinn tæki að sér að inga nám, eða sem ein önn. Að baki einnar einingar sé reíknað með einni vinnuviku og 25 kennslustundum. sjá um kennsluna, en yfirstjóm með náminu er þó í höndum dómsmála- ráðuneytisins. Námskeið til ökukenn- Þrátt fyrir að námið sé ekki meira en 15 einingar munu nemendumir ekki útskrifast fyrr en í júlí á næsta ári. Með því að hafa nám til ökukennara við KÍ er verið að tengja námið kenn- aramenntuninni þar sem áherslan er viðleitni til að bæía ökukennslunaog stuðla þar með að bættri umferðar- menningú," segir Andrés Guðmunds- son. -giii Þjóðhagsstofnun segir um 2,5% hagnað hafa verið af veiðum og vinnslu 1992: Afkoman nú snúist niður í 2-4% tap Þjóðhagsstofnun reiknast til að botnfiskveiðar og vinnsla hafi skil- að um 2,5% hagnaði að meöaltali á síðasta ári. Nú hafi hins vegar sigið á ógæfuhliðina. Samkvæmt stöðumati nú í september er 3% hreint tap af veiðunum miðað við afla yfirstandandi árs en 6% ef miðað er við áætlaðan afla næsta árs. Jeltsín missir þolinmæðina gagnvart burtreknu full- trúaþingi Rússlands: Borgarastyrjöld?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.