Tíminn - 25.09.1993, Síða 13

Tíminn - 25.09.1993, Síða 13
Laugardagur 25. september 1993 Tíminn 13 Þurrpækill á rúllupvlsu 1/2 dl salt 1/2 dl sykur 1 tsk. saltpétur Blandið vel saman, nuddið utan á rúllupylsuna og geymið hana í pæklinum í plastpoka, sem loka skal vandlega, og geymið í ísskáp í um það bil fjóra daga. Sjóðið rúllupylsuna í rúmlega eina klukkustund, sem reyndar fer eft- ir stærð, og setjið hana í létta pressu. Gott er að pressa rúllu- pylsuna og reyndar kjötpylsur yf- irleitt í plastpoka, svo soðið renni ekki frá þeim. Hreinsa skal æöar úr lifrinni áöur en hún er hökkuð. Hræriö I lifrarpylsunni meö hendi eöa sleif. Hafiö keppina rúmiega hálffulla, saumiö fyrir og jafniö í keppnum. Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari bendir lesendum Tímans á nýja aðferð við matreiðslu á lifur, sem hann hefur reyndar notað lengi: „Lifrarbollur" fyrir börnin Úlfar Eysteinsson, matreiðslu- meistari og veitingamaður á Þrem frökkum, hefur verið þekktur fyrir að fara ótroðnar slóðir í matargerð. Hann hefur þó ekki verið þekktur fyrir sláturgerð og af þeim sökum hafði Tíminn samband við Úlfar og var hann spurður hvort hann hefði ekki einhvem rétt á takteinum sem væri búinn til úr slátri. Úlfar var fljótur til svars og benti á fljótlegan rétt sem hægt væri að búa til úr lifur, nokkurs konar lifrarboll- ur eða klattar, þar sem lifrin er hökkuð saman við hráar kartöflur. Úlfar sagði að rétturinn væri sér- staklega heppilegur fyrir yngri kyn- slóðina. „Það eru svo mörg böm sem vilja ekki borða lifur, en með því að gera þetta verður hún mjög meyr, eiginlega eins og hamborgari. Eg gerði þetta fyrir mín böm, sem nú em vaxin úr grasi og ég vona að þau geri þetta fyrir sín böm,“ sagði Úlfar Eysteinsson matreiðslumeistari í samtali við Tímann. Lifrarbollur 500 gr lifur 250 gr hráar Þykkvabæjarkartöflur Lifrin og kartöflumar eru hakkaðar saman. Bollumar eru skammtaðar á pönnuna með skeið og með þessu er hægt að nota kokteiisósu, hráan lauk, franskar kartöflur eða soðnar. Þá er hægt að laga lauksósu og hafa með og einnig spælt egg. „Þegar þetta hefur verið hakkað, verður úr þessu lint, hálfgert deig og síðan notaði ég bara stærstu skeiðina á heimilinu og hellti á pönnuna og þar jafnaðist það úr deiginu. Þetta er afskaplega fljótlegt og það má segja að þetta sé svona ný leið til að fá yngri kynslóðina til að borða lifur, enda er gífurlega mikið af bætiefn- um í henni.“ -PS KitchenAid ORÐSENDING Okkur er ánægja að tilkynna að við höfiim tekið að okkur um- boð á íslandi fyrir KitchenAid. Hrærivélar og úrval fylgihluta er nú fyrirliggjandi hjá okkur og söluaðilum um land allt. íslenskur leiðarvísir fylgir öllum vélum og hússtjómarkennari okkar, Dröfh H. Farestveit, veitir faglega ráðgjöf. KitchenAid' — Mest seldu hrærivélar á íslandi í 50 ár! Eínar Fanestveit&Co.hf Borgartúni 28 V 622901 og 622900 VESTFROST A FRAB/ÍRU VERÐI ..yoM^Knur í mörgum stœrðum Yfir 25 ára reynsla á íslandi. Niðurfall í botni fyrir afþíðingu Óryggisrofar v/hitabreytinga og bama Spamaðarsfilling - djúpfrystirofi Ljós í loki Danfoss kerfi Dönsk gœðavara - 3ja ára ábyrgð Úrval kœli- og frystiskápa Orkusparandi - Tvœr pressur í sambyggðum skápum Hœgri eða vinstri opnun Djúpfrystirofi - öryggisrofi Danfoss kerfi ocííSesi • FAXAFEN 12 • SÍMI 38000 • ÓÝRAR FRYSTIKISTUR, KÆLI - OG FRYSTISKÁPAR Slátursala I Miövangi, en hún er síöasta kaupfélagsverslunin á höfuöborgar- svæöinu. Verslunin er f eigu Kaupféiags Suöurnesja. Tlmamynd Ámi Bjama Síður en svo að sláturgerð virðist á leiðinni að leggjast niður: MEIRA OG MEIRA BER Á ÞVÍ AÐ UNGT FÓLK TAKI SLÁTUR „Það er ekki spuming, að þetta em mjög góð matarkaup,“ sagði hann Jónas starfsmaður í Miðvangi í Hafnarfirði, þar sem slátursala stendur nú yfir. Hvert slátur með sviðnum haus kostar þar 509 krón- ur. Að sögn Jónasar virðist þeim fremur fjölga en fækka sem kaupa og gera slátur. Það bæri líka meira og meira á því að unga fólkið taki slátur. Hann sagðist því síður en svo hafa trú á því að sláturgerð sé neitt á leiðinni að leggjast af í landinu, meðan svo er. Jaftiaðarlega taldi Jónas að um 150 slátur seljist á dag. Mest sé hún fyrir og um helgar, mikil ös á fimmtudög- um, föstudögum og laugardögum. Að öllu óbreyttu verður ófrosið slát- ur til sölu 2-3 vikur til viðbótar í Miðvangi. - HEI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.