Tíminn - 09.10.1993, Side 1

Tíminn - 09.10.1993, Side 1
Frétta-Tíminn...Frétta-síminn...68-76-48—Frétta-Tíminn...Frétta-símlim.«68-7M8--Frétta-Tíminn...Frétta-síminn.«68-76-48-, Laugardagur 9. október 1993 191.tbl.77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 125.- Halim Al sakaður um kynferðislega misnotkun á dóttur sinni Þyngstu viðurlög eru dauðadómur Sé unnt að sanna að Halim Al hafi beitt kynferðislegu ofbeldi jafn- Ígildir það dauðadómi yfir honum samkvæmt íslömskum lögum. slamstrúarmenn líta á kynferðislegt ofbeldi gagnvart bömum sem einn alvarlegasta glæp er hugsast getur, jafnvel alvarlegri en morð. Þetta fékk Benedikt Ó. Sveinsson, Iæknir, sem skoðaði dætur Sophiu Hanesn í TVrklandi í apríl á síðasta ári, staðfest hjá yfirmönnum á há- skólasjúkrahúsinu í Istanbul þar sem stúlkumar voru skoðaðar. Sig- urður Pétur Harðarson sagðist í samtali við Tímann í gærkvöld einn- ig hafa fengið staðfesta sömu túlkun á refsingu við þessum glæp í TVrk- Iandi. Sigðurður Pétur hefur jafn- framt eftir Hasip Kaplan, lögfræð- ingi Halim Al, að Halim hafi aldrei vakið máls á grun um meint kyn- ferðislegt ofbeldi við réttarhöldin ytra. Forsaga málsins er sú að fyrir einu og hálfu ári síðan, í apríl 1992, fékk Sophia Hansen að sjá dætur sínar í fyrsta skipti eftir að Halim A1 nam þær á brott til TVrklands í júní 1990. Hún segist hafa haft hugboð um að ekki væri allt með feldu og við at- hugun á kynfærum eldri dótturinn- ar, Dagbjartar sem nú er ellefu ára gömul, kom í ljós ljót sýking. Úr nærfötum stúlkunnar náði hún sýni sem sent var til íslands til ræktunar. Hér á síðunni sést niðurstaða rækt- unarinnar staðfest af Áma Jóni Geirssyni, sérfræðingi á Landsspítal- anum. Hún er sú að stúlkan þjáist að öllum líkindum af bólgu í leggöng- um og eggjaleiðurum og þarfnist lyfjameðferðar samstundis. Jafn- framt em leiddar sterkar líkur að kynferðislegri misnotkun. Strax í kjölfarið fór Benedikt Ó. Sveinsson kvensjúkdómalæknir til Tyrklands og rannsakaði stúlkuna ásamt þarlendum sérfræðingum. Sú rannsókn var samhljóða niðurstöðu ræktunarinnar á Landspítalanum. Hann ræddi við báðar dætur Sophiu. í skýrslu hans, sem Tíminn hefur undir höndum, kemur fram að Dag- björt segist ekki vita hvað hafi verið gert við hana þegar hún var sofandi eða þegar hún hafi legið meðvitund- arlaus eftir barsmíðar. Fyrir liggja skýrslur frá þremur ís- Ienskum læknum um þetta mál, sem allar segja að mjög miklar líkur séu á að um kynferðislega misnotkun sé að ræða. Enn sem komið er hafa þó ekki verið lögð fram svo örugg rök að unnt sé að sanna það fullkomlega. Dagbjört kvartaði í apríl grátandi við mömmmu sína að henni væri illt í maganum og hefði verið það und- anfamar þrjár vikur. Hún hafði áður kvartað við tyrkneska ömmu sína sem eyddi talinu og hótaði lífláti ef Dagbjört segði Halim A1 frá þessu. Happdrætti Háskólans opnar spilasali: Nýtt tölvuspil Happdrætti Háskólans mun í næsta mánuði hefja rekstur 350 nýrra beinlínutengdra spilavéla, sem vonast er til að skili 200 milfjón króna ágóða á ári. Þeim verður komið fyrir í spilasölum á hótelum, vínveitingastöðum og víðar, en viðræður um uppsetn- ingu þeirra standa nú yfir. Að- gangur að nýju spilavélunum verður bannaður fólki yngra en 16 ára. Gert er ráð fyrir að komið verði upp 4-6 spilasölum á höfuðborgar- svæðinu, sem ekki verða tengdir vínveitingastöðum Spilavélamar koma hingað frá Bandaríkjunum þar sem þær ganga undir nafninu Video Lottery Terminal. Spilavélamar eru nú á leið til landsins en gert er ráð fyrir að í kerfinu verði 300-350 vélar. Hér er um að ræða eins konar tæknivæddan arftaka spilavélar- innar frægu, sem nefnd hefur verið „einhenti ræninginn". Happdrætti Háskólans er fyrsti aðilinn í Evr- ópu sem tekur þessa spilakassa í notkun. Þeir verða tengdir við móðurstöð í gegnum símalínu, en það felur í sér að hægt er að sjá samstundis hvort spilamaðurinn vinnur eða tapar. í hverjum spilasal verða 10-15 vélar. Vinningsmögu- leikar verða tvenns konar, smærri vinningar upp á hundruð eða þús- undir króna sem greiddar verða út í spilasalnum og hins vegar er hægt að vinna peningapott líkt og í lottói. Vmningshlutfall verður 90%. Framkvæmdastjóri Happdrættis Háskóla íslands segir að þeir renni blint í sjóinn með nýju spilavélam- ar. Þetta sé nýjung og þar af leið- andi liggi ekki fyrir hverjar viðtök- umar verða. Að hans sögn er búið að fá öll tilskilin leyfi fyrir rekstrin- um og vonast er til að einnig sé bú- ið að yfirstíga alla tæknilega örð- ugleika. Hægt verður að velja um íslenskan eða enskan texta á spila- kössunum. Fjáröflun H.H.Í. hefur farið vem- lega minnkandi undanfarin ár og er gert ráð fyrir að ágóði þess á þessu ári verði einungis um 160 milljónir króna. Nýju spilavélamar eiga að bæta þar úr. Ekki fékkst upp gefið hversu mikið þær kosta, en eftir því sem næst verður kom- ist em þær keyptar hingað til lands með nokkurs konar kaupleigu- samningi. -AG Sem kunnugt er tapaði Sophia Hansen forræðismáli yfir dætmm sínum fyrir undirrétti í Istanbul á fimmtudag. Hún hefur áfrýjað til hæstaréttar í Tyrklandi og hyggst hefja mótmælasvelti gegn úrskurð- inum í byrjun næstu viku. Halim A1 hefur á meðan dómsúrskurð um for- ræði yfir Dagbjörtu og Rúnu, sem er tíu ára. Þess ber að geta að gögnin um kynferðislega misnotkun vom ekki tekin fyrir í málsmeðferð undir- réttar í Tyrklandi. _ LANDSPÍTALINN _ DEHARTMENT OF MEDICINE April 27th 1992 rc?: DAGBJÖRT VF.SILE AL, dob 15.06.1981 This above named girl has been complaining of lower'* abdominal pain and purulent vaginal discharge for 3 weeks. This has not been paid any attention to. A specimen was taken and brought to Iceland v/here-the• bacteria streptococcus group A was grown from it. This gir! probablv suffers from vaginitis or salpingitis and needs medicál attention immediately. There is strong suspicion of sexual abuse. Árni Jón Geirsson, MD SpeciaVist in Internal Medicine Associate professor in Medicine „•.Ai.LMvtionriiusMtAi 'M'VAilTSOiVí wl’ MCÐKISX vtx ICKLA.N1) r.a uox is III XtYKJAVtK ICIILAND 1*1«. UMIUpl. T*Ut.« JJ4I40IU7 „Alvarlegur grunur um kynferöislega misnotkun," segir Árni Jón Geirs- son, sérfræöingur. Formaður Dagsbrúnar vill frekar hótanir frá t]ármálaráðherra en loforð Dagsbrún vill uppsögn kjara- samninga Trúnaðarráð Verkamannafélagsins Dagsbrúnar telur að segja beri upp gildandi kjarasamningum við at- vinnurekendur þegar samningur- inn verður endurskoðaður í byrjun næsta mánaðar. í ályktun fundar trúnaðarráðsins kemur fram að kjör verkafólks fara sífellt versnandi, atvinnuleysið er orðið viðvarandi og því er spáð að það muni enn aukast. Eignarmissir vofir yfir í vaxandi mæli og kaup- máttur minnkar dag frá degi sam- hliða því sem nýjar álögur eru lagð- ar á almenning. Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður félagsins, segir að verkafólk hafi t.d. enga tryggingu fyrir því að gengi krónunnar verði ekki fellt í þriðja sinn á skömmum tíma og þaðan af síður að ekki verði tekin upp einhver ný þjónustugjöld. Guð- mundur segir að það sé rætt meðal sumra að vextir verði lækkaðir um næstu mánaðamót en síðan verði þeir hækkaðir snarlega eftir 10. nóv- ember nk. þegar endurskoðun samningsins á að vera lokið. „Hinsvegar höfum við nokkra tryggingu fyrir því að atvinnuleysi eykst og þar með að tekjur verka- fólks almennt verða minni.“ Fjármálaráðherra hefur haft á orði að ef verkalýðshreyfmgin segir upp gildandi samningum þá mundi það væntanlega hafa þær afleiðingar að lækkun matarskattsins komi ekki til framkvæmda um áramótin. Já, þetta eru svona hótanir hjá honum Friðriki. Ég vil nú frekar fá hótanir frá honum Friðriki Sophus- syni en loforð.“ í ályktun fundar trúnaðarráðs Dagsbrúnar segir að kjarasamning- urinn frá því sl. vor hafi falið í sér kjaraskerðingu annað árið í röð. Þá hefur ríkisstjórnin ekki staðið við yf- irlýsingu sína um aðgerðir í at- vinnumálum né fyrirheit í efnahags- og peningamálum sem myndu leiða til vaxtalækkunar. Auk þes séu ýmis ákvæði í fjárlagafrumvarpinu sem ekki sé hægt að meta öðuvísi en svo að ríkisstjómin hyggist hlaupast undan merkjum og ganga á bak orða sinna frá því sl. vor. -GRH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.