Tíminn - 09.10.1993, Blaðsíða 12
Tíminn 12
Laugardagur 9. október 1993
Kynningarakstur
á Nissan Sunny
LX 1,4:
Góður „egóistabíll“
Nissan Sunny LX 1,4, sprækur
með fjölventlavélinni og á góðu
verði miðað við jafningja.
Tímamyndir Árni Bjarna
Nissan Sunny 1,4 var fóraarlamb okkar Tímamanna í vikunni og
sú gerð hans sem við kynntumst að þessu sinni var þrennra dyra
hlaðbakur með 1,4 1 véí, fímm gíra handskiptingu og kostar 965
þúsund krónur. Bfllinn er ökumanni mjög notalegur eins og vænta
mátti. Útsýni er gott til allra átta og rýmið í framsætum fyrirtak.
Þá er bfllinn hljóðlátur og þægileg-
ur á götunum, fjöðrunin nokkuð stíf
en hann er nákvæmur í stýrinu og
auðveldur viðskiptis í akstri allur.
Rýmið er sem fýrr segir fýrirtaksgott
framí bflnum. Þá eru hliðardymar
stórar og miklar og þeirra vegna
þarf að teygja sig nokkuð aftur til að
seilast eftir öryggisbeltunum. Og
vegna hinna stóru dyra þarf engar
sérstakar eróbikkæfingar til að setj-
ast inn í aftursætið en auk þess
renna framsætin fram á við og sæt-
isbakið hallast fram þegar tosað er í
þar til gerðan takka.
Setrýmið í aftursætinu er hins veg-
ar ekkert of mikið fýrir 100 kflóa
mann sem er 1,80 á hæð og farang-
ursrýmið fýrir aftan aftursætið held-
ur ekki stórt. Það verður að segjast
eins og er að bfllinn er prýðilegur
fyrir fólk sem ekur mest eitt síns liðs
eða með einn farþega. En þegar
bömin eru orðin fullvaxta og fara
með í sumarbústaðinn þá er ekki
hægt að koma miklum farangri
með. Okkur minnir að rýmið í hin-
um nýja og athyglisverða Nissan
Micra sé jafnvel ívið meira en í þess-
um Sunny, sem þó er stærri að utan.
Við ókum bflnum á götum Reykja-
víkur og skmppum einn túr til
Keflavíkurflugvallar til að sækja tvo
flugfarþega. Bfllinn rann ljúflega
eftir Reykjanesbrautinni. 1,4 1 vélin
er fýllilega nógu öflug og skilar hon-
um fljótt og örugglega fram úr bfl-
um sem aka á þetta 60-90 km hraða
og ekkert mál að finna rétta gírinn
til að geta verið fljótur að taka fram
úr.
Það var heldur þröngt um farþeg-
ann í aftursætinu eftir að búið var
að leggja niður tvo þriðju af aftur-
sætinu til að koma öllum töskunum
og farangrinum fýrir, fimm misstór-
um og þungum töskum og svo
tveimur bjórkössum. Með öllu þessu
hlassi varð það hins vegar ekki
merkt að aksturseiginleikar breytt-
ust að marki og fjöðrunin þoldi
þetta með mestu prýði og sömuleið-
is slumaði svo sem ekkert í vélinni
heldur og hún virtist allt að því jafn
spræk á bakaleiðinni. Það er rétt að
geta þess hér að það er ekki nokkur
ástæða til þess að vera að taka þenn-
an bfl með 1,6 1 vélinni. Þessi, sem
er 1,41 er fyllilega nógu öflug og auk
þess mjög spameytin.
Nissan Sunny LX 1,4 er grunngerð
Sunny línunnar en er engu að síður
búinn vökva- og veltistýri. í honum
er hins vegar ekki samlæsing, raf-
drifnir speglar eða rafdrifnar rúður
sem undirritaður telur ekki til
nauðsynja og hefur raunar hálfgerð-
an ímugust á og vill ekki í sína eigin
bfla, sérstaklega ekki hið síðast-
nefnda.
Þessi bfll hentar ágætlega einstak-
lingum eða hjónum með lítil böm.
Hann er þægilegur í akstri og um-
gengni og neyslugrannur. Fjöl-
skyldufólki almennt myndi þó stall-
bakurinn eða skottbfllinn henta bet-
ur og svo maður nú ekki tali um
skutbflinn sem er mjög rúmgóður
og vel hannaður vagn — en talsvert
dýrari.
Mælaborðið ermeð hefðbundnu sniði. Sætin fá hrós. Þau eru mátulega stinn og styðja vel við llkamann.
Verð á bensíni og dieselolíu á bifreiðar
Island
95 okt 69,23
98 okt 72,66
Diesel 23,90
Finnland
95 okt 55,62
98 okt 63,08
Diesel 36,60
miðað við 15. september 1993
Svíþjóð
95 okt 67,14
98 okt 70,10
jDiesel 44,70
,i Noregur
Í95 okt 74,59
98 okt 82,47
Diesel 32,77
í Danmörk
95 okt 55,29
!98 okt 58,53
Diesel 50,16
Útreikningar miöast við einn Itr. Athugiö aö 95 okt.
bensínið er blýlaust. Heimild: Dönsk samgönguyfirvöld.
Grikkland
95 okt 55,19
98 okt 61,15
Diesel 47,73
Ítalía I
95 okt 67,17
98 okt 69,41
Diesel 48,81
Portúgal
95 okt 57,11
98 okt 61,31
Diesel 41,99
Spánn
95 okt 54,39
98 okt 55,62
Diesel 43,48
Sviss
95 okt 57,56
98 okt 61,99
Diesel 60,52
Bretland
95 okt 51,87
98 okt 57,16
Diesel 51,87
Irland
95 okt 56,79
98 okt 60,78
Diesel 53,81
Þýskaland Holland |
95 okt 59,59 98 okt 65,16 Diesel 44,58 ,95 okt 68,29 '98 okt 74,77 Diesel 47,31
Austurríki |l Belgía
95 okt 59,01 98 okt 62,05 Diesel 49,27
95 okt 60,69 98 okt 68,07 jDiesel 49,71
Frakkland
95 okt 65,18
98 okt 69,24
Diesel 47,47
Lúxemborg
95 okt 47,91
98 okt 54,30
Diesel 39,73
Samkeppnisstofnun:
Aberandi aug-
lýsingaskilti á
bensínstöðvar
Olíufélögunum verður gert skylt
að auglýsa með áberandi hætti á
skiltum við bensínstöðvar verð á
bensíni, að því er ffam kemur í
fréttablaði Samkeppnisstofnun-
ar „Samkeppni". f fréttablaðinu
segir enn fremur að þetta sé m.a.
niðurstaðan af kæm FÍB til
Samkeppnisstofnunar um að ol-
íufélögin hafi haft samráð um
ákvörðun bensínverðs eftir að
bensínverð var gefið frjálst þann
1. aprfl sl.
Engin afgerandi niðurstaða
fékkst þó í þessu kærumáli þar
sem ekki þótti sannað að verð-
breytingar olíufélaganna hefðu
komið í kjölfar samráðs en hins
vegar væri fákeppni á þessum
markaði sem eðli málsins sam-
kvæmt kallaði á svipað verð hjá
öllum félögunum. Samkeppnis-
stofnun var þó ekki alls kostar
ánægð með útskýringar olíufé-
laganna og telur þau ekki full-
komlega hreinsa félögin af ásök-
unum FÍB. í ljósi þessa telur
Samkeppnisstofnun eðlilegt að
við eftirlit með verðmynduninni
sé í ríkum mæli miðað við þróun
á eldsneytismarkaði erlendis
einkum í Evrópu, auk þess að
kveða á um áberandi auglýsinga-
skilti eins og áður er vikið að. í
þessu samhengi birtir fréttabréf-
ið Samkeppni samanburðartöflu
á verði á bensíni og díselolíu í 18
Evrópulöndum. - BG