Tíminn - 09.10.1993, Qupperneq 13
Laugardagur 9. október 1993
Tíminn 13
Nýr og gjörbreyttur Isuzu Trooper tekinn til
kostanna:
Iburðarmikill
lúxusjeppi
Nenn hafa beðið nokkuð lengi
eftir nýjum Isuzu Trooper, en
þessi sterki jeppi hefur lítið
breyst frá því að innflutningur á
honum hófst fyrir um ellefu ár-
um. Arftaki gamla TVoopersins er
nú kominn til landsins, nýr og
gjðrbreyttur bíll. Þessi nýi Troo-
per er greinilega ætlaður allt öðr-
um kaupendahópi, því hér er á
ferðinni mikiU lúxusjeppi, nokk-
uð stærri (lengri gerðin), mun
flnirðarmeiri og dýrari heldur en
ságamli.
Þetta er það mikill lúxusbfll að
vel má skipa honum á bekk með
Range Rover, Landcruiser og
fleiri slflcum, enda kemur hann
til með að keppa við þessa bfla í
sölu.
Hðrð samkeppni
Bflheimar hafa undanfamar vikur
haft lengri og styttri útfærslu af nýja
Troopemum til sýnis, en samningar
um verð em á lokastigi. Lengri gerðin
með 3,2 1V-6 130 kW, 177 PS hestafla
vél kemur til með að kosta um 4 millj-
ónir króna. Með 3,01 fjögurra strokka
túrbódieselvél, millikældri, sem skilar
90 kW, eða 125 PS hö., er verðið held-
ur hagstæðara, eða um 3,6 milljónir
króna. Þetta er svipað verð og á Nissan
Patrol og ekki óhugsandi að Bflheim-
ar lendi þama að einhverju leyti í
samkeppni við móðurfyrirtækið Ing-
var Helgason hf., þar sem þessir tveir
bflar höfða til svipaðs kaupendahóps.
Það verður gaman að sjá hverjar við-
tökur dieselútgáfan fær, en samkeppni
um kaupendur í flokki dýrra jeppa
hefur líklega sjaldan verið harðari,
enda úr mörgu að velja. Talandi dæmi
um þetta er nýleg verðlækkun á Toy-
ota Land Cruiser.
Ætti að leggja meira upp úr
„standardgerðum"
Tíminn tók á dögunum styttri og
lengri útgáfuna af Isuzu TVooper í
stuttan reynsluakstur. Báðir bflamir
vom með bensínvélinni, hlaðnir auka-
búnaði með rafmagn í nánast öllu sem
á annað borð er hægt að hafa rafknú-
ið. Bflaprófunarmenn Tímans em
reyndar báðir gamaldags, íhaldssamir
og skynsamir í allri umræðu um
aukahluti í bflum.
Menn mega ef þeir vilja borga háar
upphæðir fyrir rafknúnar rúður, raf-
stiílanlega útispegla (í þessari út-
færslu var hægt að stilla spegilhallann
með rafmagni og að auki unnt að
leggja speglana upp að hliðunum með
því að ýta á takka inni í bflnum), upp-
hituð sæti, loftnet sem dregst sjálf-
krafa inn þegar drepið er á bflnum, og
annan óþarfa lúxus. Hins vegar er jafn
sjálfcagt að gefa þeim, sem ekki vilja
þennan búnað, kost á því að kaupa
hann ekki. M.ö.o. það ætti að leggja
ríkari áherslu á „standard" útgáfur
bfla og verðleggja aukahlutina sér-
staklega.
Þama er ekki endilega við innflytj-
endur bíla að sakast, heldur fremur
um að kenna flottræfilshætti þeirra
sem em tilbúnir að samþykkja 50 þús.
kr. hærri víxil fyrir t.d. rafdrifna spegla
og rúðuhalara. Það má leiða líkur að
því að menn geti verið á ágætu tíma-
kaupi við að skrúfa upp og niður rúð-
umar í bflum sínum. Þess utan er það
staðreynd að aukahlutir skila sér að
litlu leyti í endursölunni.
„Amerísk" aksturstilflnmng
Það fyrsta, sem tekið er eftir þegar
sest er undir stýri og ekið af stað, er
hversu nýi TVooperinn er „amerískur“
í akstri og öllum viðbrögðum. Þetta á
við um fjöðmn, hljóðeinangmn og
mjúka sjálfskiptingu. Fjöðmnin er til-
tölulega mjúk og finnst lítið fyrir þótt
ekið sé hratt á ójöfnum vegi. Það
finnst líka fyrir mýktinni þegar ekið er
greitt í beygjur, en Trooperinn á þá til
að leggjast dálítið á ytri hliðina; minn-
ir bfllinn þar á Range Rover og er þar
ekki leiðum að líkjast Að framan em
tvöfaldir klafaarmar og vindufjöðmn
með jafnvægisás, en að aftan er fjög-
urra liða gormafjöðmn með jafnvæg-
isás. Bæði styttri og lengri bfllinn
reyndust stöðugir á vegi og rásfastir
og hvomgur sýndi tilburði til að kasta
afturendanum til í kröppum beygjum.
Dekkin undir þeim hefðu þó að skað-
lausu mátt vera heppilegri.
Báðir bflamir vom á fremur hörðum
dekkjum, dekkjastærðin var
245/70RÍ4, en lfldega mætti bæta
aksturseiginleikana enn með mýkri og
jafnframt örlítið breiðari dekkjum.
Hljóðeinangmnin er ákaflega góð,
vélarhljóð heyrist vart nema gefið sé
duglega inn, og veghljóð og vind-
gnauð heyrist ekki heldur, jafnvel þótt
ekið sé greitt. Hins vegar finnur öku-
maður fyrir stífum hliðarvindi, sem er
eðlilegt á bfl af þessari stærð.
Sá styttri minnir um
margt á Bronco
Lengri bfllinn er 43 sentímetrum
meiri á lengdina en sá stutti og er í
raun enginn smájeppi, þó að það muni
ótrúlega mikið um þennan tæplega
hálfa metra. Þannig finnst mér lengri
bfllinn bjóða upp á skemmtilegri akst-
urseiginleika og þrátt fyrir að fjöðmn-
in sé sú sama í bflunum, virkar hún
mýkri í lengri bflnum.
Styttri bfllinn minnir um margt á
litla Broncojeppann í akstri, en Troo-
perinn býður þó upp á meiri aukabún-
að og þægindi og jafnframt talsvert
meiri snerpu. Mér finnst það galli við
þann styttri hversu laus hann virkar
að aftan á malarvegi, en líkt og með
Broncoinn þá venst þessi tilfinning.
Orkan úr tæplega 180 ha. V6 bensín-
vélinni skilar sér prýðilega og sér í lagi
reyndist styttri bíllinn sprækur. Skýr-
ingin á því gæti legið í því að sá bfll var
meira ekinn og vélin þess vegna nokk-
um veginn tilkeyrð. I samanburði við
t.d. Toyota 4Runner og Nissan Pathf-
inder er nýi TVooperinn talsvert kraft-
meiri, hann hreinlega stekkur áfram
ef gefið er inn.
Það er býsna skemmtileg tilfinning
að aka lúxusjeppanum Isuzu TVooper,
þar sem boðið er upp á flest þægindi
sem hægt er að hafa í venjulegum
fjöldaframleiddum bfl. Með öll þessi
hestöfl undir hægra fætinum verður
maður beinlínis bjartsýnn á lífið og
tilveruna við aksturinn einan saman.
Mjög góð sæti
Það fer virkilega vel um ökumann og
farþega í nýja Troopemum. Framsæt-
in em þægileg og styðja vel við líkam-
ann. Þau em með armpúðum, þar
sem þau snúa hvort að öðm, og brík
eða hillu innan á hurðum fyrir vinstri
hendi ökumanns og hægri hendi
framsætisfarþega. Sami háttur er á
afturí, en þar er hægt að leggja niður
breiðan og þægilegan „hjónadjöful",
séu aftursætisfarþegar tveir. Lengri
bíllinn getur tekið sjö manns í sæti,
en aftast í honum em tvö aukasæti
sem hengd em með böndum upp í
hliðamar, þegar ekki er verið að nota
þau. Böndin verður að herða vel, því
annars er hætt við að glamri í stólun-
um ef ekið er á ósléttu.
Trooperinn fær annars fyrstu ein-
kunn fyrir aftursætin. Þau em einkar
þægileg, með stillanlegum bakhalla
og höfuðpúðum sem falla nánast nið-
ur í bakið í neðstu stillingu. Aftursæt-
O ©
MJL
JAFNRÉTTISRÁÐ BÝDUR TIL
JAFNRÉTTISÞINGS
Á HÓTEL SÖGU DAGANA 14. OG 15. OKTÓBER 1993
fró kl. 10.00-17.00 báða dagana
Fimmtudagur:
Kl. 10.15 Setning - Lára V. Júlíusdóttir, formaður Jafnréttis-
ráós.
Ávarp félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðar-
dóttur.
Jafnrétti i atvinnulifinu - ávarp frá aóilum
vinnumarkaáarins.
Magnús Gunnarsson, formaður Vinnuveitenda-
sambands Islands og Benedikt Davíðsson,
forseti Alþýðusambands íslands.
Oróið frjálst - almenn skoöanaskipti.
Kl. 13.15 Staóa kvenna á vinnumarkaói.
Erindi: Kynskipt verkalýðsfélög - árangursrík leið
fyrir konur?
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræðingur.
Hugleiðingar: Elínbjörg Magnúsdóttir, formaður
fiskvinnsludeildar Verkalýðsfélags Akraness og
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalist-
ans.
Oróió frjálst - almenn skoóanaskipti.
Kl. 15.45 Konur - stjórnmál - áhrif - völd.
Erindi: Staða kvenna í stjórnmálum - þörf á nýjum
leiðum?
Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi og Olína Þorvaró-
ardóttir, borgarfulltrúi.
Hugleiðing: Olafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins.
Ávarp: Davíð Oddsson, forsætisráðherrra.
Orðiö frjálst - almenn skoðanaskipti.
Föstudagur:
Kl. 10.00 F|ölskyldan, hlutverk kvenna.
Erindi: Hagsmunir og hollustubönd.
Dr. Sigrún Júlíusdóttir, lektor.
Hugleiðingar: Árni Sigfússon, borgarfulltrúi og
Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur.
Orðið frjálst - almenn skoðanaskipti.
Kl. 13.15 Leióir i jafnréttisbaráttunni - Hvaó nú?
Elsa S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu
jafnréttismála.
Inga Jóna Þórðardóttir, formaður Kvenréttinda-
félags íslands.
Þorsteinn Antonsson, rithöfundur.
Telma L. Tómasson, fréttamaður.
Orðió frjálst - almenn skoóanaskipti.
Kl. 17.00 Þingslit.
JAFNRÉTTISÞiNG ER ÖLIUM OPIÐ OG ERU ÞEIR,
SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ KOMA OG HLUSTA Á
ATHYGLISVERÐ ERINDI, TAKA ÞÁTT í UMRJEÐUM OG
HAFA ÁHRIF Á ÞRÓUN ÞESSA MÁLAFLOKKS,
HVATTIR TILADSKRÁSIG.
SKRÁNING Á SKRIFSTOFU JAFNRÉTTISMÁLA
ÍSÍMA 91-27420.
Isuzu Trooper, lengri gerð. Þetta eru
kraftmiklir og rúmgóðir lúxusjeppar,
en verðið ræður ekki venjulegur Jón
Jónsson við.
Tlmamynd: Árni Bjarna
isbakið er hægt að leggja niður í
tvennu lagi 40% og 60% eða, ef með
þarf, í heild sinni.
Gott að ganga um bflinn
Þá er auðvelt að ganga um bílinn. Sér
í lagi má hrósa afturdyrunum. Þær
opnast í tvennu lagi, en hægra megin
er mjó hurð, eins og í gamla TYoo-
pemum, og stór hleri vinstra megin.
Þegar báðar eru opnaðar er gaflinn
allur opinn að aftan. Styttri bfllinn er
tveggja dyra og nokkuð þægilegt að
stíga inn og út úr aftursætinu á hon-
um. Það er hins vegar galli að þegar
framsætið er sett fram til þess að
hleypa fólki inn og út að aftan, fer það
í fremstu og uppréttustu stöðu og þarf
að stilla það upp á nýtt. Báðir bflam-
ir, sem Tíminn fékk til reynslu, vom
með fjögurra gíra sjálfskiptingu.
Þriðji gírinn er notaður sem „dræf' og
„dræfið" sem yfirgír. Skiptingin vinn-
ur vel og er laus við alla rykki og
hnökra þegar hún skiptir sér upp og
niður. Hún var auk hefðbundinna
hraðastillinga búin kraftstillingu, sem
virkar þannig að bfllinn skiptir sér á
hærri snúningi en ella. Þessi búnaður
fannst mér ekki nýtast innanbæjar, en
á vegum úti, t.d. við framúrakstur,
kom hann að góðum notum. Þá er
skiptingin búin svokallaðri vetrarstill-
ingu, sem er eiginlega ABS (sem
reyndar var líka í prófunarbflunum)
með öfugum formerkjum. Færir hún
átakið af því hjóli sem spólar hverju
sinni. Þetta er góður búnaður fyrir
okkur hér á norðurslóð.
Mætti skipta á skriðstilli og
þurrkurofa
Lengri bfllinn var búinn skriðstilli,
en það er að mínu mati fyrirbrigði
sem er óþarft hér á landi. Skriðstillir-
inn er á stilk hægra megin við stýrið,
þar sem þurrkurofinn er á venjuleg-
um bflum, en þurrkurofinn aftur uppi
í mælaborðinu hægra megin. Sömu-
leiðis er ljósarofinn í mælaborðinu
vinstra megin, en ekki í stýrinu. Þetta
fyrirkomulag er ekki til bóta og mætti
að skaðlausu skipta út skriðstillinum
fyrir þurrkurofa á stilk við stýrið.
Niðurstaðan af prófun á Isuzu Troo-
per er jákvæð. Þetta eru nýir bflar frá
grunni og eiga fátt sameiginlegt með
gamla TYooper (sem mætti reyndar að
skaðlausu fYamleiða í tíu ár í viðbót).
TYooperinn er mikill bfll, þægilegur,
kraftmikill og hljóðlátur með góða
aksturseiginleika. Verðið er sam-
keppnishæft, sér í lagi á dieselbflnum
og þá eigum við án efa eftir að sjá á
götum, við laxveiðiár og á Fákssvæð-
inu á næstu misserum. -ÁG
BÍLAVERKSTÆÐIHRAFNKELS
SAAB & CITROÉN
þjónusta