Tíminn - 13.10.1993, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.10.1993, Blaðsíða 5
Miövikudagur 13. október 1993 Tíminn 5 Tilraunin átti að vera til undir- búnings á ferðum til Mars Þær Sally Silverstone og Jayne Poynter eru nú aftur komnar í mannlegt samfélag. Þær hafa ný- lokið tveggja ára dvöl í risastórri eerkúlu í eyðimöridnni í Arizona ir sem þær gegndu hlutverid frumkvöðla sem á ensku kalla sig Jbiospherians", þ.e. að lifa á hringrás náttúrunnar. Bresku stúlkumar tvær hafa nú yfirgefið þriggja ekra gróðurhúsið sem kostaði 150 milljónir dollara, þar sem þær voru þátttakendur í einhverri furðulegustu vísinda- legu tilraun sem gerð hefur verið. Ásamt sex öðrum áttu þær heimili sitt í Biosphere 2, umhverfi líkast því að það komi úr Disneylandi. Það er sköpunarverk milljarða- mærings frá Texas, sem hefur það markmið að leggja fram rannsókn- ir sem verði undirstaða ferðalaga til Mars. Hugmyndin var sú að kanna hvort maðurinn gæti lifað í um- hverfi, sem er sjálfu sér nægt með því að endumýta eigið loft, úrgang og vatn, án aðstoðar utan frá. Þegar Silverstone, sem er 38 ára, bjó sig undir að yfirgefa þessa til- búnu veröld, kveið hún því að horfast í augu við hversdagsheim- inn aftur. „Tilfinningar mínar koma sín úr hverri áttinni. Ég á eftir að sakna þess að vera óhult inni í Biosphere 2, en er líka Spennt og hlakka til að hitta fjöl- skyldu mína og vini,“ sagði hún þegar hún beið eftir að heilsa upp á móður sína, bróður og systur, sem vom komin til Arizona frá Eng- landi tilað taka á móti henni. „Eitt er þó alveg víst, ég verð ekki dýr í rekstri þegar mér verður boðið út, ég býst ekki við að verða fær um að fást við meira en hálft glas af hverju sem er,“ bætti hún við. Eini dropinn af áfengi, sem hefur kom- ið inn fyrir varir hennar á undan- fömum tveim árum, hefur verið eitt og eitt glas af bananavíni sem bmggað var innan geimhjálmsins. Reyndi á þolrifin — ekki síður en vísindin Tilraunin reyndist ekki síður ná til þolgæðis en vísinda. Gler- og stálhjálmurinn umlykur örlítinn regnskóg, eyðimörk, haf og gras- sléttur, þar sem saman em komnar 3.800 tegundir jurta og dýra. En plöntur visnuðu, hænumar neituðu að verpa, býflugur og kól- ibrifúglar drápust og kakkalakkar tímguðust örar en búist hafði ver- ið við. Svínin, sem reiknað hafði verið með að ætu úrgang og gæfú frá sér áburð, átu of mikið af ann- arri fæðu og varð að slátra þeim áður en ætlað hafði verið. Tilraunin var stundum umdeild. „Fölsun", var hrópað, þegar 600.000 rúmfetum af lofti var dælt inn eftir þrjá mánuði til að hindra að sjálfboðaliðamir féllu í öngviL Það hneykslaði líka suma þegar Poynter, 31 árs umhverfisfræðing- ur, fór út fyrir geimsvæðið til að láta sauma á sig fingur sem hafði Jayne Poynter bjó I tvð ár t glerhýsinu þar sem gróður þreifst vel, en hænurnar verptu ekki og ýmsar dýrategundir þoldu ekki lífiö viö þessar kringumstæöur. skorist af í slysi. Þegar hún kom aftur til félaga sinna, smyglaði hún með sér poka fullum af vamingi og gerði þannig enn tortryggilegri fúllyrðingar um að þeir, sem inni fyrir dveldu, ætluðu að fullnægja eigin þörfum. Poynter hélt því fram að í pokanum væri eingöngu rannsóknarefni, en ekki Mars- súkkulaðistykki eins og sums stað- ar var haldið fram. Loddarar með tækni- brellur? Eða ávannst eitthvað? Enn vandræðalegri voru upp- ljóstranir varðandi koltvísýrings- skrúbb, sem hreinsar loft og ein- hver rétti hópnum. 10 manna ráð- gjafanefnd tilraunarinnar leystist upp í febrúar eftir að margir nefndarmenn lýstu því yfir að vís- indakröfúr þyldu ekki nánari at- hugun. Aðrir hættu þátttöku í tilrauna- verkefninu sárhneykslaðir. „Þetta átti að vera stórmál," sagði Rocky Stewart tölvuforritari. „Allt átti að vera Iokað, innsiglað vistkerfi, svo að ekki þyrfti á vélrænum kerfum að halda. Þessir „biospheriar" eru loddarar. Þetta er bara tækni- Óvenjuleg mannvirki voru reist I eyöimðrkinni í Arizona og þar áttu aö fara fram tilraunir til aö undirbúa feröir til Mars. Sitthvaö þótti athuga- vert viö framkvæmdina, en sá, sem stendur fjárhagslega straum afæv- intýrinu, ætlar aö halda áfram næstu lOOárin! brella." Hvaða vísindalegu gildi svo sem tilraunin er sögð búa yfir, kom ýmsum vísindamönnum á óvart hversu vel kerfið verkaði. Hópur- inn ræktaði 80% af eigin fæðu og endurvann allan úrgang og vatn. Aðalsigurvegarinn verður að telj- ast sá sem ber hitann og þungann af fjárhagshliðinni, Ed Bass, sem væntir þess að tilrauninni verði haldið áfram í heila öld. Meira en ein milljón gesta heim- sótti Biosphere 2 og borgaði hver 10 dollara fyrir að virða fyrir sér þennan „dýragarð" manna. Bass hefúr trú á því að ekki síðar en árið 2000 fari garðurinn að skila hagnaði og þegar er farið að þjálfa aðra kynslóð „biospheriana" fýrir næsta tilraunatímabil. Hátíðartónleikar SÍ „Það gildir nokkuð sem gert er,“ sagði skáldið, og vonandi telst ekki ofseint að Ijúka lofsorði á Hátíðar- tónleika Sinfóníuhljómsveitar ís- lands og Rfkisútvarpsins sem haldnir voru í Háskólabíói 30. september. Tilgangur tónleikanna var í og með að kynna þrjá verð- launamenn Útvarpsins og veita þeim Tónvakaverðlaun: stjómand- inn Páll P. Pálsson hlaut Heiðursfé fyrir hljómsveitarverk sitt Conc- erto di giubileo (júbflkonsert); ein- leikarinn Þorsteinn Gauti Sigurðs- son sigraði í keppni flytjenda í sumar og hlaut að launum Keppn- i«fé, og Haukur Tómasson tón- skáld fékk Pálsfé (ísólfssonar) fyr- ir hljómsveitarverk sitt Strati, sem frumflutt var á tónleikunum. Heimir Steinsson útvarpsstjóri af- henti verðlaunin og flutti litla ræðu á tónleikunum. Fýrst spilaði Þorsteinn Gauti ein- leik í 3. píanókonsert Rakhman- ínovs, gríðarlega löngu verki og erfiðu fyrir píanóið. Þorsteinn spil- aði þetta með fúrðulegu öryggi og lagði að auki svo mikið til þess músíkalskt séð, að verulega skemmtilegt var á að hlýða. Þor- steinn er, eins og við alltaf vissum að hann yrði, einn okkar albesti pí- anisti. Hlutur hljómsveitarinnar er mjög lítill í þessum konsert, smá-undirspil. Eftir hlé kom svo Strati Hauks Tómassonar, en nafn- ið mun vísa til þess að verkið sé IagskipL eftir því sem tónleika- skráin segir. Þar gat óæft eyra m.a. heyrt Jiomage á JSB“ þar sem stefbrot færist með síendurtekn- ingu upp eða niður tónskalann, og á öðru plani æfingar í rytma. Kunnáttufullir hafa vafalaust heyrt margt fleira af þessu tagi í þessu áheyranlega verki ung- skáldsins (f. 1960). Síðastur á efnisskrá var fyrr- greindur hljómsveitarkonsert Páls P. Pálssonar, kunnáttusamlega samið verk og skemmtilegt áheymar fyrir áheyrendur, og sennilega skemmtilegt líka í flutn- ingi íyrir spilarana. Þótt ekki hafi það farið hátt, hef- ur Páll P. Pálsson verið fastráðinn stjómandi Sinfóníuhljómsveitar íslands í fjóra áratugi, og hefur vaxið mjög í þeirri íþrótt hin síðari ár. Páll er gott dæmi um jákvæðan viðskiptajöfnuð íslendinga á einu sviði ftjálsra viðskipta: „Evrópu- samvinnan" dregur til sín í sívax- andi mæli ýmiss konar uppa og undirmálsfólk, svo til umtals- verðrar landhreinsunar horfir, en á móti flytjast hingað hámenntað- ir tónlistarmenn til að spila í Sin- fóníuhljómsveitinni, kenna í tón- listarskólum víða um land, stjóma, syngja og semja tónlist. Þessi „innflutningur" hefur á liðn- um áratugum auðgað menningar- líf vort meira en orð fá lýst, enda ber tónlistin vafalaust af öðmm listum hér á landi um þessar mundir. Sig. SL Rösklega riðið í hlað Sinfóníuhljómsveitin hóf reglu- legt tónleikahald vetrarins í Há- skólabíói 7. október með miklum glæsibrag og með nýjan aðal- stjómanda á palli. Sá er Finni eins og Petri Sakari og heitir Osmo Vánska. Jafnframt hafa verið gerð- ar ýmsar breytingar á Háskólabíói sem bæta eiga hljómburðinn (þann hljómburð sem Páll ísólfs- son mun hafa sagt í vígsluræðu að ætti fáa sinn líka). Einleikari á fiðlu var Auður Hafsteinsdóttir, en á efnisskrá vom verk eftir Þorstein Hauksson, Carl Nielsen og Beetho- ven. Ad Astra - - upp til stjamanna - eftir Þorstein Hauksson er mjög stflhreint verk og áheyrilegt og þótti mönnum stjómanda og hljómsveit takast vel flutningur- inn. Auður Hafsteinsdóttir vann sömuleiðis frækilegan sigur með einleik sínum í fiðlukonsert Niels- ens, en þetta var fmmraun hennar sem einleikari með Sinfónfuhljóm- sveitinni. Leikur Auðar einkennd- ist af tæknilegu öryggi, skaphita og músíkölsku innsæi. Konsertinn gerir miklar kröfur til einleikarans, en er jafnframt mjög skemmtileg- ur áheymar. Síðasta verkið, 7. sinfónía Beetho- vens, var samt hápunktur kvölds- ins frá tónlistarsjónarmiði. Bæði hljómsveit og stjórnandi sýndu ótvírætt hvers þau em megnug — hljómsveitin er þegar búin að fá vottorð frá útlöndum um ágæti sitt, en þessir tónleikar sýndu að Osmo VSnská er ekki fisjað saman þegar tónsprotinn er annars vegar, enda benda þessir fyrstu tónleikar til þess að mikils megi af tónleika- haldi vetrarins vænta. Sig. SL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.