Tíminn - 13.10.1993, Síða 12
Áskriftarsími
Tímans er
686300
NYTT OG
FERSKT
DAGLEGA
reiðholtsbakarí
VÖLVUFELL113-SlMI 73655
labriel
HÖGG-
DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
GJvarahlutir
Hamarshöfða 1
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 13. OKT. 1993
Framkvæmdir við byggingu forsetabústaðar að
Bessastöðum hefjast á næsta ári
Ætlast til aö
forseti búi að
Bessastöðum
í vor verða hafnar framkvæmdir við byggingu forsetabústaðar að
Bessastöðum og í framtíðinni er ætlast til að forseti íslands búi
þar. Vigdís Finnbogadóttir hefur búið á heimili sínu við Aragötu i
Reykjavík. Ekki er Ijóst hver heildarkostnaður við framkvæmdir á
Bessastöðum er, en þær hafa staðið yfir í um nokkum tíma. Pétur
Stefánsson, framkvæmdastjóri Bessastaðanefndar, segir upp-
bygginguna bundna í lög og um hana sé pólitísk samstaða.
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga
sem lagt verður fyrir Alþingi í haust,
er gert ráð fyrir að um 82 milljónum
króna verði veitt í endurbyggingu
Bessastaða á árinu 1994. Lokið verð-
ur byggingu þjónustuhúss og svo-
kallaðs Norðurhúss, auk þess sem
verið er að endumýja allar skolplagn-
ir staðarins ásamt regnþró og regn-
vatnslögnum. f vor er gert ráð fyrir
að hafin verði bygging forsetabústað-
ar og mun hann rísa þar sem svo-
nefnt Ráðsmannshús er nú. Verður
Ráðsmannshúsið rifið, þar sem það
er talið ónýtt og nýtt hús byggt í stað-
inn. Það hús verður eins og Ráðs-
mannshúsið að ytra útliti, enda er
það fríðað, eins og aðrar byggingar að
Bessastöðum.
Nú er unnið að því að kanna hvort
fomleifar leynist við húsið og hafa
verið grafnir skurðir umhverfis húsið
í þeim tilgangi.
Varðandi þá spumingu hvort nauð-
synlegt sé að fara út í byggingu for-
setabústaðar, sagði Pétur Stefánsson
að uppbygging Bessastaða værí
bundin í lög og hann vissi ekki betur
en að það væri breið pólitísk sam-
staða um hana. Samkvæmt lögunum
er gert ráð fyrir að uppbyggingunni
WHt'í ■ ■ ■ | S M I
Á miörí mynd, sem tekin er af suöuríillð Bessastaöa má
A - sjá núverandl framkvæmdir viö þjónustuhúsið og norö-
* ij*.ÍWW1 anvert við Bessastaöastofu er jafnframt unnið að bygg-
5555s"""bI M ffi M ^í||} i| | C S H U S 8 Ingu Norðurhúss. Tll vinstrí er Ráðsmannshúsið sem
verður ríflö og þar verður byggður forsetabústaður,
■ .‘-'v • með sama útllti.
HHHHHHHHHH^IHHHHHI^HHHHHÍI^HHHHHHíhIHHHHBI Tfmamynd Áml Bjama
verði lokið fyrir árslok 1995, en
reyndar er ekki ljóst hvort það tekst.
Framkvæmdir hafa tafist töluvert
vegna fomleifafunda, sem hafa að
sögn Péturs bætt við 200 árum í sögu
staðarins.
Forsetaembættið á hús við Laufás-
veginn sem hefur verið notað við
móttökur og önnur tækifæri í þeim
húsnæðisþrengingum sem forseta-
embættið er í að sögn Péturs.
Eins og áður sagði er nú unnið að
byggingu þjónustuhúss og Norður-
húss. í þjónustuhúsi verður aðstaða
til matargerðar, framreiðslu og
hreingeminga, auk aðstöðu fyrir
starfsfólk. Norðurhúsið mun hýsa
tæknibúnað staðarins, þar verður
íbúð staðarvarðar og aðstaða fyrir bíl-
stjóra og öryggisverði. -PS
Stjórn veitustofnana tilnefndi vatnsveitustjóra en
Borgarstjóri hunsar til-
nefningu veitustofnunar
Borgarráð réft Cuðmund Þórodds-
son verkfræðing í stöftu vatnsveitu-
stjóra í gær að tillögu borgarstjóra,
sem þar með gekk framhjá tilnefn-
ingu stjóraar veitustofnana um
annan umsækjanda sem haffti hlot-
ift meirihlutastuðning hjá stjóra-
inni.
Það mun vera sjaldgæft að gengið
sé fram hjá tilnefriingum stofnana
borgarinnar með því að tilnefna
annan umsækjanda fyrir borgarráði.
Á nýlegum fundi í stjóm veitu-
stofnana vom greidd atkvæði um
umsækjendur um stöðu vatnsveitu-
stjóra. Þar fékk skrifstofustjóri Vatn-
sveitunnar, Hólmsteinn Sigurðsson,
þrjú atkvæði en Jón Óskarsson, yfir-
verkfræðingur Vatnsveitunnar,
hlaut eitt atkvæði.
í borgarráði var samþykkt sam-
hljóða að veita Guðmundi stöðuna
en Sigrún Magnúsdóttir sat hjá.
Þess má geta að Guðmundur Þór-
oddsson er sonur Þóroddar Th. Sig-
urðssonar, fyrrverandi vatnsveitu-
stjóra. -HÞ
...ERLENDAR FRÉTTIR...
MOSKVA— Bóris Jeltsln forseti
kann að ákveða að fresta þingkosn-
ingunum I desember og láta þær
fara fram ásamt forsetakosningun-
um slðar, hafði fréttastofan Itar-Tass
eftir háttsettum ráögjafa forsetans I
gær. Einn aðalandstæðingur Jelt-
slns, þjóöemissinninn Sergei Ba-
burin, sagðist heldur vilja vera I
framboði til nýs sambandsrikisþings
eða þings.
KARLSRUHE, Þýskalandi — Ut-
anrfkisráðherra Þýskalands, Klaus
Kinkel, sagði i gær að Maastricht-
samningurinn um nánari samein-
ingu Evrópu gæti tekiö gildi 1. nóv-
ember eftir að stjómlagadómstóll
Þýskalands sagöi samninginn sam-
ræmast stjómarskrá Þýskalands.
TÚNIS — Miðstjóm PLO samþykkti
i gær friðarsamninginn við Israel og
útnefndi Jassir Arafat æðsta yfirvald
til að fara meö stjóm á vesturbakk-
anum og Gaza-ströndinni.
TÚNIS — Fjölhliða viðræður um
bágar aðstæður flóttamanna i Mið-
Austuriöndum hófust i Túnis, fyrsti
fundurinn af þvl tagi sem haldinn er
I landi sem opinberiega er i strfði við
fsrael.
SARAJEVO — Serbneskir her-
menn sem sitja um Sarajevo létu
stórskotahriðina dynja á framvarðar-
Ifnu múslima I fyrrinótt þegar bar-
dagar hörðnuðu umhverfis höfuö-
borg Bosniu, aö sögn friöargæslu-
liða S.þ.
GENF — Alþjóðlegir neyðarflutn-
ingar á matvælum og lyfjum með
flugi til umsetinnar Sarajevo-borgar
hafa staðið lengur en loftbrú vest-
rænna bandamanna til Beriinar rétt
eftir slðari heimsstyijöld, að sögn
Sameinuöu þjóðanna.
TÓKÝO — Bóris Jeltsin og japanski
forsætisráöherrann, Morihiro Ho-
sokawa, hafa sniðgengiö deilu sem
hefði getað eyðilagt heimsókn rúss-
neska forsetans, með þvl að sam-
þykkja að fresta samningaviöræö-
um um langvarandi þrætu um yfir-
ráð yfir eyjaklasa.
TBUSI, Georgiu — Uppreisnarher-
menn helltu eldflaugum yfir hemað-
ariega mikilvægan bæ I vesturhluta
Georgiu I gær og stjóm Georglu
sagðist vonast til að rússnesk hem-
aðaraöstoð kæmist fljótiega til káka-
siska lýöveldisins.
AÞENA — Gamalreyndi sóslalista-
leiðtoginn Andreas Papandreou, átti
siödegis I gær að ieggja fram lista
yfir nýja rlkisstjóm eftir að PASOK-
flokkur hans vann stórsigur I kosn-
ingum i Grikklandi um helgina.
PARÍS — Forsætisráöhema Frakk-
lands, Edouard Balladur, ætiar að
koma fram með tillögu um heims-
viðskiptasamning til bráöabirgða þar
sem látið er biöa þar til siðar aö
leysa erfiðustu deilumálin, þrátt fyrir
vonbrigöi og háö Evróðubandalags-
ins og embættismanna GATT.
KAÍRÓ — Hosni Mubarak sór ( gær
embættiseið til setu þríðja sex ára
tlmabiliö I forsetastóli Egyptalands
og hét þvl að endurbæta skrifræðis-
kerfi landsins með þvl að setja nýja
menn til starfa.
DURBAN, Suður-Afríku — Árásar-
leiðangri á ættbálkastriöshátfö f
dreifbýli svartra I Natal, lauk meö
þvi að fýrirhuguð fómariömb brytj-
uðu niður árásarmennina sem
misstu a.m.k. 16 manns, að sögn
lögreglunnar.
STOKKHÓLMUR — Robert Fogel
og Douglass North, tveir Banda-
rikjamenn sem sagðir eru frumherj-
ar I efnahagssögu, unnu hagfræði-
verðlaun Nóbels fýrir verk sem hefur
átt þátt I að skýra vöxt og hnignun
efnahags.
SEÚL — Björgunartiði suður-kór-
eska sjóhersins sem reyndi aö ná
allt aö 160 likum sem álitið er að
séu lokuö inni I sokkinni ferju, mis-
tókst að koma flakinu á flot og sagði
að það myndi taka marga daga að
draga það upp á yfirboröiö.
DENNI DÆMALAUSI
^ður en ég segi þér hvað kom fyrír verðurþú að
muna að ég er bara lítill strékur. “