Tíminn - 16.11.1993, Blaðsíða 7
Hástökkvari í
raöir Vals í
körfu
íslandsmeistarinn í hástökki
karla, Einar Kristjánsson, mætti í
gærkvöldi á sína fyrstu æfingu
hjá meistaraflokki Vals í körfu-
knattleik. Einar, sem er 24 ára
gamall, hefur aldrei áður æft
körfuknattleik en eftir því sem
sögur henna þá er hann nokkuð
sprækur. Einar er 1.98 metrar á
hæð og nálægt 100 kílóum að
þyngd. Ef Einar gengur til liðs
við Val, eins og flest bendir til, þá
hlýtur koma hans að styrkja liðið
mikið enda skortir Valsliðið
óneitanlega miðherja síðan
Matthías Matthíasson lagði
skóna á hilluna vegna meiðsla
nú í byijun tímabilsins. Tíminn
sló á þráðinn til Einars í gær. „Ég
ætla að reyna hvort ég get hjálp-
að þeim eitthvað. Ég þekki þjálf-
arann nokkuð vel (Franc Book-
er) og hann hefur séð mig spUa
körfubolta og leist ágætlega á
mig.* Einar sagði körfuboltann
henta sér ágætlega sem æfingu
fyrir hástökkið sjálft sem hann
væri í á fullum krafti. „Maður er
óneitanlega spenntur fyrir þessu
því þá vantar stóran mann og
þeir ná ekki mörgum fráköstum.
Ég veit ekki hvort ég myndi fara
að spUa strax en ætli ég yrði ekki
að læra eitt eða tvö leikkerfi fyrst
í stað. Booker segir sjálfur að ég
eigi talsverða möguleika á að
spUa með þeim og ég vona það
en ég get náttúrlega ekki fuUyrt
um mína getu.' Einar sagðist
aldrei hafa leikið körfubolta í
neinni deUd eða flokki áður, en
hann hafi verið í skóla í Banda-
ríkjunum en þar hafi hann að-
eins leikið götubolta.
Þess má geta að Einar Kristjáns-
son er einn af eigendum Pizza 67
fyrirtækisins sem Valsmenn aug-
lýsa á upphitunarbúningum sín-
um.
Valur meiddist
Þjálfari og leikmaður Njarðvík-
inga, Valur Ingimundarson,
meiddist í leik Njarðvíkinga og
SnæfeUs í VisadeUdinni í körfu-
knattleik á sunnudagskvöldið.
Meiðslin voru á ökkla og við
fyrstu sýn líta þau út fyrir að
vera slæm tognun, þó ekki sé
vitað fyrir víst hvað valdi.
Meiðsli Vals verða könnuð nán-
ar í dag. Njarðvík á næst leik við
Hött á EgUsstöðum annað kvöld
í bikarkeppninni en því næst við
KR- inga næstkomandi sunnu-
dag í deUdinni.
Akstursíþróttamaöur ársins
Gísli Gunnar Jónsson, 28 ára
bifvélavirki, var um helgina
valinn akstursíþróttamaður
ársins 1993 á lokahófi íþrótta-
manna.
Það er ekki hægt að segja
annað en að Gísli Gunnar sé
vel að titlinum kominn, þar
sem hann er bæði íslands- og
bikarmeistari í flokki sérútbú-
inna bíla. Gísli Gunnar er
einnig fslandsmeistari í sand-
spymu í flokki útbúinna bfla.
Eyjólfur Sverrisson skora&i eina mark Stuttgart um helgina með góðum skalla í
fyrri hólfleik en það dugði ekki til því Stuttgart steinló ó heimaveíli gegn Bayer
Leverkusen. Á myndinni ó Eyjóifur í mikilli baróttu við Paulo Sergio sem skoraði
þrennu í leiknum.
Sex Víkingsstúlkur
í hópnum
Mæta ítölum í Evrópukeppninni
íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik mætir því ítalska í Evr-
ópukeppninni annað kvöld. Þetta
er einn af mikUvægustu leikjum
íslensks kvennalandsliðs í hand-
knattleik frá upphafi þvi það er
ljóst að ísland, Portúgal og ítalía
beijast um 2. sætið í riðlinum og
þar með möguleika á að komast í
úrslitakeppnina sem verður í
Þýskalandi næsta sumar. Rúss-
neska liðið er nær öruggt með
fyrsta sætið.
Eria Rafnsdóttir landsUðsþjálfari
hefur valið þann hóp sem tekur
þátt í undirbúningi íslenska liðs-
ins. íslcmdsmeistarar Víkings eiga
flestar stúlkur í hópnum eða alls
sex talsins. Hópurinn lítur annars
svona út: Fanney Rúnarsdó'ttir
Gróttu og Hjördís Guðmundsdóttir
Víkingi, Vigdís Finnsdóttir KR,
Inga Lára Þórisdóttir Víkingi, Her-
dís Sigurbergsdóttir Stjörnunni,
Steinunn Tómasdóttir Fram,
HaUa Helgadóttir Víkingi, Harpa
Melsted Haukum, Ragnheiður
Stephensen Stjörnunni, Andrea
Atladóttir ÍBV, Ósk Víðisdóttir
Frtun, Heiða Erlingsdóttir Víkingi,
Svava Sigmðardóttir Vfldngi, Una
Steinsdóttir Stjörnunni, íris Sig-
marsdóttir ÍBV, Guðný Gunn-
steinsdóttir Stjörnunni, Hulda
Bjamadóttir Vfldngi.
Auður Hermansdóttir Virum og
Laufey Sigurðardóttir Gróttu eru
meiddar.
Eyjólfur skora&i fyrir Stuttgart
Eyjólfur Sverrisson skoraði eina
mark Stuttgart í þýsku knatt-
spymunni á laugardaginn gegn
Bayer Leverkusen. Markið sem
Eyjólfur gerði með skalla á 17.
mínútu dugði þó ekki til stór-
ræða þar sem Bayer Leverkusen
gerði fjögur síðustu mörk leiks-
ins og sigraði örugglega, 1-4.
Þrjú af mörkum Leverkusen
gerði markahrókurinn Paulo
Sergio en hann er nú annar
markahæsti maður deUdarinnar,
hefur gert 11 mörk.
Eyjólfur lék sinn hundraðasta
leik með Stuttgart en hefur ekki
verið í byrjunarliðinu í þó nokk-
urn tíma. Hann byrjaði inn á
gegn Leverkusen og átti þokka-
legan dag og hlaut miðlungsein-
kunn í þýskum blöðum. Stuttg-
art færist nú neðar og neðar í
töflunni og er liðið nú aðeins
þremur stigum frá fallsæti en
upphaflega stefndi Stuttgart á
Evrópusæti.
Þórður Guðjónsson lék með
Bochum í 2. deildinni en það
dugði heldur ekki til, þar sem
liðið tapaði á útvelli gegn Mann-
heim, 1-0. Mannheim var eitt af
botnliðunum fyrir leikinn. Boc-
hmn heldur þó efsta sætinu þrátt
fyrir þennan tapleik.
Birgir
fulltrúi
IAAF
Birgir Guðjónsson, læknir og
formaður laga- og tæknideildar
FRÍ, hefur verið skipaður fuUtrúi
Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins
varðandi læknis- og lyfjaeftirlit á
heimsmeistaramótinu í hálfu
maraþoni sem fer fram í Osló í
Noregi 25. september 1994.
Þetta er stór og mikil rós í
hnappagat FRÍ, að maður úr
þeirra röðum skuli vera valinn í
þetta verkefni.
Daily Mirr
or heitir á
Breska blaðið Daily Mirror
heitir á liðsmenn pólska knatt-
spymulandsliðsins ef liðið vinn-
ur það hollenska á morgun í
undankeppni heimsmeistara-
mótsins í knattspymu. Fari svo
að Holland tapi, þá eiga Eng-
lendingar möguleika á að kom-
ast áfram í úrslitakeppnina en
þeir verða að vinna San Marino
stórt á morgun tíl að það takist.
Mirror hét hverjum og einum
leikmanni pólska liðsins 10.000
pundum, færi svo að þeim tæk-
ist að sigra það hoUenska. Blaðið
hefur einnig heitið á leikmenn
enska liðsins ef þeir komast
áfram en fer fram á að ensku
leikmennimir gefi góðgerðamál-
um upphæðina sem nemur
10.000 pundum á hvert mark
sem þeir skora, ef þeir komast
áfram.
Hiddink
rekinn frá
Valencia
HoUenski þjálfarixm Guus Hidd-
ink, var í gær rekinn frá spæns-
ka félaginu Valenda, og fékk því
að gjalda fyrir lélegt gengi hjá
liðinu að undanfömu. Valenda
var á toppi spænsku deUdarinn-
ar í byijun tímabUsins en féU í
sjöunda sæti eftir 0-3 tap gegn
Real Madrid í síðustu umferð.
Það sem gerði þó útslagið var 7-
0 tap gegn þýska Uðinu Karlsru-
he, í Evrópukeppni félagsliða
fyrir hálfum mánuði.
ÍKVÖLD
KörfuknatHeikur
Bikark. karla 16-Uða úrsUt
UMFG b-UMFG .......kl. 20
KR-ÍS ............kl. 21
Bikark. kvenna 8-Uða úrsUt
ÍBK-ÍS..............kl. 20
V_________________________)