Tíminn - 25.11.1993, Síða 1
ENN DREGUR ÚR
INNFLUTNINGI
-sjá baksíðu
HVERNIG VÆRI
EF PAPPÍRS-
GREIFAR KEYPTU
HLUTABRÉF í
SJÁVARÚTVEGS-
FYRIRTÆKJUM?
-sjá síðu 3
MOUNT EVEREST
KUFINN INNAN-
HÚSS í REYKJAVÍK
-sjá síðu 7
VERÐMUNUR Á
NAUÐSYNJAVÖR-
UM EYKST STÖD-
UGT MILLI
REYKJAVÍKUR OG
LANDSBYGGÐAR-
INNAR
-sjá síðu 7
ERU „GALLAR"
KVENNA FRÉTTA-
EFNI?
-sjá baksíðu
ÞJÖÐIN JÁ-
KVÆÐ í GARÐ
HÁSKÓLA
ÍSLANDS
-sjá síðu 6
SAMSTAÐAN
ÝTTI VIÐ STJÓRN-
VÖLDUM UM
KVÓTAKAUP
SJÓMANNA
-sjá baksíðu
USTAMENN
FRAMTÍÐAR
-sjá síðu 6
RJÚPNAVEIÐI-
BANNIÐ VIRT
-sjá síðu 5
Óheiðarleg viðskipti
„Nauðsyn á hlutlausum fiskmarkaði," segir forseti FFSÍ
„Því miður er ekki hægt að segja
að í dag séu viðskipti með fisk
heiðarleg og opinber. Þar er hver í
feluleik fyrir þeim öðrum sem Líka
starfar í sjávarútvegi/ segir Guð-
jón A. Kristjánsson, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins.
Til að uppræta þessi meintu
óheiðarlegu fiskviðskipti leggur
Guðjón A. það tii að komið verði á
fót hlutlausum fiskmarkaði fyrir
ferskan sjávarafla. Þessi markaður
hafi enga aðra starfsemi en að selja
sjávarfang til kaupenda.
Hann leggur jafnframt áherslu á
að fyrsta krafa fiskimanna í kom-
andi kjaraviðræðum við útvegs-
menn verði sú að útgerðarmaður
skuli sjá til þess að afli verði seldur
á löggiltum uppboðs- eða fisk-
markaði. Sé það ekki gert skal
verð einstakra fisktegunda í afla
ákvarðað af meðalverði innlendra
fiskmarkaða á meðalverði undan-
gengins almanaksmánaðar.
Forseti FFSÍ telur að ef sljómvöld
þori ekki að stíga skrefið í frjálsri
verðmyndun til fulls þá sé ekki um
annað að ræða eri að taka upp
verðlagsráðsverð á nýjan leik.
„Því verður hins vegar varla trú-
að að sú ríkisstjóm fijálsrar verð-
myndunar og samkeppni sem nú
situr, þori ekki að fylgja eftir sín-
um markmiðum að þessu leyti.'
Auk þess telur Guðjón A. að
verðmyndunarkerfi sem byggist á
sölu sjávarfangs á hlutlausum fisk-
markaði muni leiða til þess að ekki
verði veitt of mikið á skömmum
tíma vegna þess að það lækkar
verð til sjómanna og útgerða. Að
hans mati mundi þetta fyrirkomu-
lag einnig tryggja að hlutaskipti
færa fram úr heildarsöluverði afl-
ans en ekki hluta verðsins eins og
nú gerist í beinum viðskiptum
með reiknistofur fiskmarkaða sem
millilið. Jafnframt mundi aðferðin
tonn á móti tonni leggjast af.
-GRH
ÞAÐ FER ENGINN
• •
1 JOLAKÖTTINN
Á LAUGAV EGINUM
Þessi texti birtist á Ijósaskiltinu ofan á bílageymslu Kringlunnar. Hann fór svo fyrir brjóstið á kaupmönnum í Kringlunni að
þeir kröfóust þess að hann yrði fjarlægður. Timamynd Ami Bjarna
Kringlumenn vilja ekki
Kaupmenn í Kringlunni komu í veg fyrir að auglýsingar frá keppi-
nautum þeirra við Laugaveginn birtust á auglýsingaskilti við Kringl-
una í jólamánuðinum. Það er Kviksýn sem hefur skiltið á leigu og
sér um sölu á auglýsingum, en það fyrirtæki á einnig auglýsingaskilti
við Lækjargötu.
Laugavegssamtökin pöntuðu
birtingar á tveimur auglýsinga-
skiltum í einn mánuð, annars
vegar á Nýja bíó-húsinu við
Lækjargötu og hins vegar í
Kringlunni. Það er Kviksýn sem
selur auglýsingar á bæði skiltin
og á skiltið í Lækjargötu, en hitt
er í eigu Kringlunnar. Fyrir þetta
ætluðu Laugavegssamtökin að
greiða 70 þúsund krónur.
Þegar þetta barst kaupmönnum
í Kringlunni til eyma, var boðað
til neyðarfundar, þar sem þessu
samkeppni
var mótmælt harðlega og þess
krafist að auglýsingamar birtust
ekki á Kringluskiltinu. Það varð
að ráði og Laugvegssamtökun-
um tilkynnt að af birtingu yrði
ekki.
Þess má geta að fyrirtæki í
Borgarkringlurmi auglýsa á skilt-
inu í Kringlunni, auk þess sem
fyrirtæki í Kringlunni auglýsa á
skilti Kviksýnar við Lækjargötu.
-PS
Fékk blökk
í andlitið
Þyrla sótti manninn
Stærri þyrla Landhelgisgæsl-
unnar TF-SIF var um klukkan
15 í gær send til að sækja slasað-
an sjómann um borð í nótabát-
inn Svan, sem staddur var 13
mílur suðvestur af Hvalbak og
hafði hann fengið blökk í andlit-
ið. Var í fyrstu talið að hann
væri alvarlega slasaður. Þegar
læknir kom á staðinn kom þó í
ljós að meiðsli hans vora minni
en ætlað hafði verið í fyrstu.
Þyrlan var komin á staðinn um
klukkan 18 eftir að hafa haft
viðkomu á Höfn í Homarfirði til
að taka eldsneyti. Þegar á stað-
inn var komið kom í ljós að of
mildl ókyrrð var í sjó til að hægt
væri að láta lækni síga niður í
bátinn. Var þá stefnan tekin á
Berufjörð, þar sem lygnara var
og var maðurinn kominn um
borð í þyrluna rétt fyrir klukkan
20 og lenti þyrlan við Borgar-
spítala upp úr klukkan 22 í gær-
kvöldi.
Meiðsli mannsins voru ekki
fullkönnuð en hann var meðal
annars kjálkabrotinn. -PS
Svalbarðasvæðið er ekki úthaf
Aðild að Svalbarðasamkomulaginu kemur til álita
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra segir að það geti vel komið til
álita að íslendingar gerist aðilar að Svalbarðasamkomulaginu og vill alls
ekki útiloka slíkt.
Hinsvegar bendir flest til þess að
aðild að því samkomulagi, sem er
frá þriðja áratug þessarar aldar,
geti ekki skapað réttindi til nýting-
ar á auðlindum nema þá á grand-
velli sögulegrar reynslu og hana
hafa íslendingar ekki.
Að mati ráðherra hafa íslensk
stjórnvöld ekki önnur gögn í
höndum en þau sem benda til
þess að Svalbarðasamningurinn
njóti það almennrar viðurkenn-
ingar að það sé ekki hægt að líta á
svæðið sem úthaf. „Það er því ekki
hægt að virða það að vettugi."
Þorsteinn segir að við slíkar að-
stæður væri það fullkomlega óá-
byrgt og óraunsætt að taka aðra
afstöðu en ríkisstjórn hefur tekið
hvað varðar veiðar íslenskra skipa
á fiskvemdunarsvæði Norðmanna
við Svalbarða.
Ráðherra lagði áherslu á að í
þessu máh þyrfti að hafa heildar-
hagsmuni íslendinga í huga og
það yrði gengið eins langt og hægt
er út frá því sjónarmiði. Hann
benti hinsvegar á að, m.a. þyrfti að
semja við Norðmenn um veiðar úr
ört vaxandi stofni norsk-íslensku
síldarinnar. Hann sagði jafnframt
að það hefðu ekki verið forsendur
til viðræðna við Norðmenn varð-
andi veiðar íslenskra skipa í
Smugunni eða annarsstaðar frá
því fundað var um málið í Stokk-
hólmi í sumar.
„Ef aðstæður verða fyrir hendi
þá geri ég ráð fyrir því að viðræð-
ur embættismanna landanna geti
farið af stað, eins og rætt hefur
verið um,“ sagði sjávarútvegsráð-
herra.
-GRH
Á RÁS
SIÐA2
W VETT- WSJÓNVARP
F VANGIfR W ÚTVARP
f SIÐA 3 f SÍÐA 8
W fÞRÓlTIR
W SÍÐA5