Tíminn - 21.12.1993, Side 7

Tíminn - 21.12.1993, Side 7
Þriðjudagur 21. desember 1993 *im ítiti 7 Velsæmisbrot að H.I reki happdrættisvélar Rekstur happdrættisvéla Happdrættis Háskóla íslands kann að falla undir velsæm- isbrot en er ekki siðferðislega rang- ur. íslensk stjómvöld hafa að nauðsynjalausu knúið Háskóla ís- lands til aðgerða sem geta misboðið velsæmiskennd almennings. Þetta er niðurstaða álitsgerðar sem sam- in var fyrir Siðfræðistofnun Há- skólans. Dr. Kristján Kristjánsson, lektor við Háskólamn á Akureyri, samdi skýrsluna fyrir Siðfræðistofnun. Kristján kemst að þeirri niðurstöðu að happdrættisvélamar faJli undir skilgreiningu á happdrætti fremur en fjárhættuspili og því gildi sömu siðferðisreglur um þær og önnur happdrætti. í niðurstöðu hans segir að gera beri greinarmun á siðferð- isbrotum og velsæmisbrotum og rekstur happdrættisvélanna geti fallið undir hið síðamefnda. Rök Kristjáns em þau að það geti taiist skortur á velsæmi, að Háskóli ís- lands, sem byggi stöðu sína í sam- félaginu umfram allt á þekkingu. Anægður með niðurstöðuna segir forstjóri HHÍ Forstjóri Happdrættis Háskóla ís- lands er ánægður með niðurstöður skýrslu dr. Kristjáns Kristjánssonar um happdrættisvélarnar og segir hana staðfesta túlkun forsvars- manna happdrættisins. Ragnar Ingimarsson, forstjóri H.H.Í., segir að skýrslan staðfesti ná- kvæmlega það sem forsvarsmenn happdrættisins hafi haldið fram. „Niðurstaða Kristjáns er að skjávél- arnar séu hreinræktað happdrætti en ekki fjárhættuspil. Eins kemur fram í skýrslunni að það sé ekkert siðferðislega rangt við rekstur þeirra. Það eina sem Kristján bendir á er að það geti verið brot á velsæmi að Há- skóli íslands reki happdrætti. Menn hafa alltaf haft misjafnar skoðanir á því hvort Háskóli íslands eigi að reka happdrætti og um þetta nýja papp- írslausa happdrætti gildir það sama. Reyndar er umræða um velsæmi mjög vandasöm eins og kemur fram í skýrslunni því það er svo breytilegt frá einum tíma til annars hvað telst velsæmisbrot og hvað ekki,' segir Ragnar Ingimarsson. -GK Samgönguráðherra hefur ráðið Magnús Oddsson í starf ferða- málastjóra frá l.janúar 1994 tdl 31. desember 1997. Magnús var einn umsækjandi um stöðu ferðamálastjóra, sem auglýst var 8. október sl. Ferða- málaráð samþykkti samhljóða að mæla með Magnúsi í stöðuna, en samkvæmt lögum um skipulag ferðamála ber ráðinu að veita um- sögn um umsækjendur um starf ferðamálastjóra. Magnús hefur verið markaðs- reki fyrirtæki sem geti höfðað til lægstu hvata þeirra sem séu veikir fyrir. Hins vegar segir Kristján að ef Háskólinn fái ekki nægilegt fé til bygginga og tækjakaupa úr opin- berum sjóðum verði að h'ta svo á að velsæmisbrotið sé sök ráða- manna þjóðarinnar fremur en for- ráðamanna Háskólans. í niðurstöðu skýrslunnar segir ennfremur að þar sem engin rök liggi fyrir um að vélamar valdi meira böli en gleði geti ekki talist siðferðislega rangt að bjóða upp á þær. í því samhengi vitnar Kristján í bandarískar tölur sem segja að 3% fullorðinna séu spilaffklar á meðan um 10% þeirra misnoti áfengj. í niðurstöðu Kristjáns segir að það sé „vandséð hvaða siðleg rök geti stutt þá skoðun að happ- drætti séu almennt siðferðislega röng, þrátt fyrir að þau geti valdið böli hjá minnihlutahópi fólks sem vegna þroska- og/eða ístöðuleysis nær ekki því sem fræðimenn kalla meðal-viljastyrk." Kristján setur fram þá skoðun sína í skýrslunni að það yrði Há- skólanum til álitsauka að gangast sjálfur fyrir rannsókn á ólíkum veðleikjum á íslandi og áhrifum þeirra á þátttakenduma. Siðfræði- stofnun Háskólans tekur undir niðurstöður Kristjáns og telur jafn- framt að það sé Háskólanum og Rauða krossi íslands siðferðislega skylt að gangast fyrir áðumefndri könnun. -GK stjóri Ferðamálaráðs íslands síðan í apríl 1990 og var jafnframt settur ferðamálastjóri frá apríl 1990 til sama tíma 1991 og frá 1. septem- ber sl. til áramóta. Magnús sat í Ferðamálaráði íslands 1984 til 1990 og í framkvæmdastjóm ráðs- ins frá 198 5 til 1990. Þá hefur hann átt sæti í fjölmörgum nefndum og stjómum á vettvangi ferðamála. Magnús er kvæntur Ingibjörgu Kristinsdóttur og eiga þau einn son. -GRH Magnús Oddsson ráð- inn ferðamálastjóri Handverksiðnaður efldur Til nýsköpunar í atvinnulíf- inu, segir forsætisráðherra „Það má gera ráð fyrir að þessir fjármunir nýtist vel og efni raun- vemlega til nýsköpunar í atvinnu- lífinu og veitir víst ekki af," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra um 20 milljóna króna fjárveitingu til eflingar handverksiðnaðar í landinu. Handverk er heiti á þriggja ára reynsluverkefni, sem varðar þrigg- ja manna verkefnisstjóm en Byggðastofnun fer með fjármuna- gæslu og útborgun fjármuna sam- kvæmt nánara samkomulagi við forsætisráðuneytið. Jafnframt er gert ráð fyrir að á starfstímanum leitist verkefnisstjómin við að afla sértekna tíl rekstrar verkefnisins s.s. með þjónustu- og námskeiða- gjöldum, árgjöldum og styrkjum. Handverki er ætlað að efla handverksiðnað í landinu og er þar m.a. átt við hefðbundinn heimilis- iðnað og handverks- og listmuna- iðnað ýmisskonar sem stundaður er af einstaklingum og smáfyrir- tækjum. Ætlað er að í allt starfi um 800-900 manns við þennan iðnað þar sem konur em fjölmennar. Meðal hlutverka Handverks er að stuðla að uppbyggingarstarfi á sviði handverksiðnaðar í landinu, koma upp kerfi tengiliða um land allt, liðsinna þeim einstaklingum og fyrirtækjum sem starfa að hand- verki, heimilis- og listiðnaði, miðl- un upplýsinga og fræðsluefnis, stuðla að framfömm í framleiðslu og frámsetningu handverksmuna og efla gæðavitund í greininni. Til dæmis með fræðslu um hönnun og verklag, stuðla að samvinnu um vömþróun og varðveislu eldri hefða í handverki og verkmennt. Koma á fót gagna- og hugmynda- banka þar sem m.a. verði geymdar upplýsingar um eldri verkmenntir, möguleika varðandi nýtingu nátt- úrulegra hráefna, nýjunga o.fl. Þá kemur einnig til álita að verkefnisstjóm hafi fmmkvæði um skipulegt átak í sölu- og kynning- armálum t.d. með samsýningum og útgáfu bæklinga. Formaður verkefnisstjómar er Helga Thoroddsen, verkefnisstjóri í Þingborg. Aðrir í stjóm em Eyjólf- ur Pálsson hönnuður og Jóhanna Pálmadóttir, kennari á Hvanneyri. -GRH Guðjón B. Ólafsson látinn Guðjón B. Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Sambands ísl. sam- vinnufélaga, er látinn. Guðjón var 58 ára gamall, fæddur 18. nóv- ember 1935 í Hnífsdal. Hann lauk prófi frá Samvinnuskólanum 1954, var starfsmaður hjá SÍS 1954 og 1955 og hjá Iceland Products í New York 1956 til 1957. Guðjón var fulltrúi sjávarafurðadeildar Sambandsins 1958 til 1964, framkvæmdastjóri á skrifstofu SÍS í London 1964-1968 og sjávarafurðadeildar Sambandsins 1968-1975. Forstjóri Iceland Se- afood Corporation 1975-1986 og forstjóri SÍS frá 1986. Auk þess gegndi Guðjón fjölda annarra trúnaðarstarfa og sat í stjómum margra fyrirtækja. Dr. Lúðxik Kristjánsson hefur lengi verið þjóðkunnur sem rithöfúndur og sagnlræðingur, enda hölúndur maigra rita, sem oft og lengi mun vitnað til. Langstærsta verk hans eru Islenskir sjávarhættir. Vestlendingar hlaut framúrskai’andi góðar viðtökur er ritið kom lyrst fyrir augu lesenda fyrir 40 ámm, eins og umsagnir þær, sem hér fylgja, bera ljóslega með sén Dr. Árni Friðriksson: Má óhætt fullyrða, að hér er að ræða um einstakt rit í sinni röð. - Með þvi að hiklaust má gera ráð fyrir að enginn verði fyrir vonbrigðum með sögulokin, verður hér um að ræða hcilsteypt og vandað ritverk, sent ekki verður otþakkað." (Morgunblaðið 20. des. 1953.) Vilhjálmur S. Vilhjálmsson, rilhöfundur: "Ég hef verið að lesa bók Lúðviks Kristjánssonar, Vestlendingar. Þetta er frainúrskarandi góð bók, stórii’óðleg, eftirminnileg og vel gerð frá hendi höíundarins, einhver hin besta bók um þjóðleg fræði, sem ég hef lengi lesið. Það er sannarlega lengur að því að fá svona góða bók." (Alþýðublaðið, 8. jan. 1954.) Dr. Jakob Benediktsson: 'Vestlendingar er merkileg bók, því að hún vísar veginn að nýjum viðfangsefnum í sögu síðustu aldar. Og þó að efnið sé ekki tæmt, þá tlytur hún svo mikinn nýjan fróðleik, að nún er stórmikill tengur íslenskri menningarsögu." (Tímaiit Máls og menningar, des. 1953.) Ólafur Lárusson, prófesson Eftir að prófessor Ólafur hefur í megindráttum getið ethis 1. bindis Vestlendinga, segir hann: "Lúðvík Kristjánsson segir sögu þessarar menningarváðleitni Vestlendinga í riti sínu. Er furðulegt, hve ýtarlega hann hetur getað rakið hana, enda augljóst að hann heftir unnið vandlega að þessu verki og víða leitað heimilda og orðið næsta tundvís í þeiiri leit sinni. Bókin er lipurt og skilmerkilega rituð og hin skemmtilegasta aflestrar." (Skímir 1954.) Þórarinn Þóraiinsson, ritstjóri: "Lúðvn'k Kristjánsson ritstjóri heftir þegar unnið sér orðsrir sem málsnjall og áreiðanlegur sagnaritari. Þessi orðstír hans muh ekki minnka við þessa bók. - Hefur Lúðvík tekið sér fyrir hendur að rekja merkan þátt í viðreisnarsögu þjóðarinníu' á seinustu öld. Þessunt merka þætti hefur hingað til ekki verið gerð nein sæmileg skil áður, og er hér því vissulega um gott verk og nauðsynlegt aðræða." ("l'íminn, 22. des. 1953.) SKUGGSJÁ Bókabúð Olivers Steins sf.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.