Tíminn - 06.01.1994, Qupperneq 16

Tíminn - 06.01.1994, Qupperneq 16
Vebrib í dag • Suburland til Brei&arfjarban Noröaustanátt, víbast kaldi eöa stinn- ingskaldi, en allhvasst á stöku stab. Léttskýjab. • Vestfirbir og Vestfjarbamib: Na., stinningskaldi.eba allhvasst fram eftir degi, en allhv. eba hvasst sd. Él, einkum norban til og á mibunum. • Strandir og Norburland vestra: Norbaustan stinningskaldi eba all- hvasst. Él á mibum og annesjum en hægari og úrkomulítib til landsins fram eftir degi. Allvöss norbaustanátt og él síbdegis. • Norburland eystra, Austuriand ab Clettingi: Norbaustanátt, víb- ast kaldi eba stinningskaldi en allhvasst á stöku stab. Él. • Austfirbir og Austfjarbamib: Stinningskaldi eba allhvasst,ÉI. • Subausturland og Subausturmib: Na. stinningskaldi eba allhvasst og él á mibunum, en hægari og víba léttskýjab til landsins fram eftir degi og síbar noröankaldi eba stinningskaldi austan til á mibunum, en bjartvirbi annars stabar. Formabur Framsóknarfíokks segir oö viörœöur um yfirtöku þyrlusveitarinnar megi ekki tefja fyrir upp- byggingu okkar eigin björgunarsveitar: Ekki gefiö ab við ráöum viö kostnaðinn Steingrímur Hermannsson, for- maöur Framsóknarflokksins, seg- ir sjálfsagt aö ganga til viöræöna um yfirtöku á rekstri leitar- og björgunarsveitarinnar á Keflavík- urflugvelli, en þaö megi ekki tefja fyrir því aö íslendingar komi upp björgunarsveit á eigin vegum. Þá sé hins vegar engan veginn sjálf- gefiö aö íslendingar hafi fjárhags- legt bolmagn til þess aö halda þyrlusveitinni úti. „ Mér finnst æöi mörgu um þetta ósvaraö," segir Steingrímur. „Hver á til dæmis aö kosta þenn- an rekstur? Þetta er hundraö manna fyrirtæki, eigi aö halda úti björgunarþyrlunum fjórum. Hvert á aö vera björgunarsvæöi þessarar sveitar og hversu langt á þaö aö ná út á Atlantshafiö? Er þetta til skamms tíma, eöa til langs tíma? Og á þetta aö veröa eftir aö bandaríska omstuflug- sveitin er farin héöan? Þurfá þá Bandaríkjamenn eitthvaö á björgunarsveit hér að halda og ætla þeir á einhvem hátt aö taka þátt í kostnaði við rekstur henn- ar?" -ÁG Þrettándinn kvaddur Aö venju veröa jólin kvödd meö viðeigandi hætti á þrett- ándanum, þ.e. í kvöld. Bál verö- ur tendrað I nokkmm brennum aö viöstöddum álfum, tröllum og forynjum. í Reykjavík gang- ast Feröafélag íslands og Valur fyrir sameiginlegri blysför og fjölskyldugöngu um álfa- og huldufólksbyggðir í Öskjuhlíð. Gengið verður meö hliösjón af huliösvættakorti sem Borgar- skipulag Reykjavikur gaf út fyrir nokkrum ámm. Brottför frá Perlunni er kl. 20. Gengið verð- ur í rúman hálftíma og lýkur henni með brennu á Valsvellin- um. Kl. 21 hefst síðan flugelda- sýning í umsjón Landsbjargar. Á sama tíma gengst Hafnar- hópurinn fyrir þrettándagöngu. Gengiö veröur frá Hafnarhús- inu nibur á Miöbakka. Þaöan heldur annar hluti hópsins með ströndinni inn í Laugames og kveikir þar fjömbál. Hinn hóp- urinn siglir út í Engey og kveik- ir fjömbál viö Engeyjartaglið ef sjóveöur leyfir. Stefnt er aö því aö kveikja í báöum brennum samtímis kl. 21. Skotiö verður upp flugeldum. -EÓ Stjórn SVR hf. skorar á starfsfólk: Undirritiö þiö ráöningasamninga! Stjóm SVR hf. sem tók viö rekstri strætisvagnaþjónust- unnar í Reykjavík 1. des sl. hef- ur nú gert sérstaka samþykkt og sent hana starfsmönnum fyrir- tækisins, þar sem skoraö er á þá starfsmenn sem enn eiga eftir aö undirrita ráöningasamninga sína, að gera þaö fyrir miöjan mánubinn. Aö öbrum kosti megi „félagið, vibskiptamenn þess og starfsmenn" eiga von á frekari óþægindum. Stjóm SVR hf. segir í samþykkt sinni aö fyrirtækið sé eins og milli steins og sleggju í forræð- isdeilu ASÍ og BSRB yfir starfs- fólki og að þetta hafi leitt til þess aö endurteknar tilraunir hafi veriö gerðar til að stofna til ófriðar um rekstur félagsins, eins og t.d. meö boðun um fundahöld þann 15. des sl. Nú þegar hafa 90 starfsmenn undirritað ráðningarsamninga sína. Formannskipti hjá SUJ Sigurður Pétursson, formaður Sambands ungra jafnaöar- manna, mun á sambands- stjómarfundi SUJ á laugardag láta af embætti. Fundurinn er sérstaklega boðaöur til að kjósa eftirmann Siguröar og í önnur embætti sem kunna að losna vegna tilfærslna innan stjóm- arinnar. Sigurður hefur verið formaður frá því haustiö 1990, en lætur nú af störfum á miöju seinna kjörtímabili sínu af persónu- legum ástæðum. Þess má geta að eiginkona Sig- urðar, Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi, hefur einnig ákveðið að draga sig út úr for- ystusveit í stjómmálum. Guömundur Magnússon, þjóöminjavöröur, er hér á tali viö slökkviliösmann. Tímamynd CS Lá viö stórbruna í Viö lá að stórbruni yrði þegar eldur kom upp í þaki Þjóð- minjasafnsins klukkan rúm- lega fimm í gær. Fyrir snar- ræði slökkviliðsins tókst að koma í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í hefilspæni sem notaðir eru sem einangr- un í eldri hluta þaks hússins. Viðvörunarkerfi safsins fór ekki í gang af einhverjum ókunnum ástæðum. Eldur kviknaði í klæðningu í þaki hússins, en þar vom iðn- aðarmenn við vinnu. Verið er aö leggja eirþakklæðningu á húsið. Hita þarf eirinn þegar hann er lagður og mun klæðn- ing undir honum hafa hitnað svo mikið að eldur kviknaði. Ræstingakonur uppgötvuðu eldinn eftir að iðnaðarmenn- imir höfðu bmgðið sér frá í kaffi og var þegar í stað kallað á slökkvilið. Slökkviliðsmenn mfu strax þakið á þeim stað þar sem sáust litabrigöi á eirklæðn- ingunni og slökktu eldinn. Aö sögn Jóns Viðars Matthíasson- ar, varaslökkviliðsstjóra, átti eldurinn aðeins eftir að brenna tvö viðarborð í viðbót til að ná aö læsa sig í hefilspæni sem em í eldri hluta þaksins. „Ef eldur- inn hefði náð í þessa spæni er Þetta er báturinn sem bjargaöist þegar bátageymsla Þjóöminja- safnsins brann fyrir tœpu árí síöan. Báturínn var í stórhœttu þegar eldurinn kom upp í safninu ígœr þvíaö hann var nánast undir þeim staö þar sem eldurínn kviknaöi. Tímamynd C S erfitt að ráða í hver endalokin hefðu orðið," sagöi Jón Viðar. Eldurinn var slökktur mjög fljótlega, en samhliða hófust slökkviliðsmenn handa við að vama því að húsið og munir þess yrðu fyrir reykskemmd- um. Settir vom upp öflugir blásarar sem hindmðu aö reyk- urinn bærist víðar um húsið. Talið er að óvemlegar reyk- skemmdir hafi orðið. Einnig er talið að óvemlegar vatns- skemmdir hafi orðið, en þess var sérstaklega gætt að nota sem minnst vatn við slökkvi- starfið. Eldvamakerfi Þjóðminjasafns- ins brást í þessu tilviki. Jón Við- ar sagöist ekki kunna skýringu á því, en reykur hefði verið orðinn svo mikill að kerfið hefði átt að láta vita um eld- inn. -EÓ Þjóöminjasafninu

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.