Tíminn - 08.01.1994, Blaðsíða 6
6
aMfflMflílttff'lMÍ
Laugardagur 8. janúar 1994
W'\ æ-V -' 7'i : - ' ' -v ' ' ' V ' - , s,
FRAMSOENARFIÖKKURIHN
Sveitarstjórnardagur Framsóknar-
flokksins verður laugardaginn 15. janú-
ar með fundum um sveitarstjórnarmál í
öllum kjördæmum. Einstakir fundar-
staðir og framsögumenn verða auglýst-
ir í blaðinu næstkomandi þriðjudag.
Grundar-
fjörður
Alþingismennimir Ingibjörg Pálma-
dóttir og Finnur Ingólfsson boða til
almenns stjómmálafundar miðviku-
daginn 12. janúar kl. 20.30 I félags-
heimilinu. Allir velkomnir.
Fundarboöendur
E,,n Páll Stefán
Austur-Húnvetningar
Almennur stjómmálafundur veröur haldinn á Hótel Blönduósi mánudaginn 10.
janúar kl. 20.30. Allir velkomnir. Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Elln R. Undal
Skagstrendingar
Veröum til viötals I Dagsbrún þríöjudaginn 11. janúar kl. 16-18.
Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Vestur-Húnvetningar
Almennur stjómmálafundur veröur haldinn I Vertshúsinu á Hvammstanga þriöju-
daginn 11. janúar Id. 20.30. Allir velkomnir. Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Elln R. Undal
Guömundur
Jóhannes Geir
Valgeröur
Norðurlandskjördæmi
eystra
Almennir stjómmálafundir verða haldnir á eftirtöldum stööum svo sem hér segin
Mývatnssveit, Hótel Reynihllð, mánudag 10. jan. kl. 21.00.
Mývatnssveit, viötalstlmi I Seli, Skútustööum, sama dag kl. 14.00.
Raufarhöfn, félagsheimilinu Hnitbjörgum, þríöjudaginn 11. jan. kl. 21.00.
Þórshöfn, félagsheimilinu Þórsveri, miövikudaginn 12. jan. kl. 21.00.
Kópaskeri, fundarsal Gistiheimilisins, fimmtudaginn 13. jan. kl. 20.30.
Alþingismennimir Guðmundur Bjamason, Valgerður Svemsdóttir og Jóhannes
Geir Sigurgeirsson flytja framsöguræöur.
Á fundinum I Reynihllö veröur sérstaklega fjallaö um ferða- og umhverfísmál.
Þlngmenn Framsóknarflokkslns,
Norðurlandskjördæml eystra
Nýárshappdrætti Fram-
sóknarflokksins 1994
Drætti f Nýárshappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestaö til 3. febrúar
1994. Velunnarar flokkslns, sem ekki hafa greitt heimsendan glróseðil, eru hvattir
til að gera skil eigi slöar en 3. febrúar. Þaö er enn tækifæri til aö vera meö. Allar
frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins, Hafnarstræti 20, III. hæö, eöa I
slma 91-624480.
Framsóknarfíokkurinn
Siglfirðingar
Almennur stjómmálafundur verður haldinn I Suöurgötu 4, miövikudaginn 12. janú-
ar kl. 20:30.
Allir velkomnir. Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Elln R. Undal
Hofsósingar— Fljótamenn
Veröum til viðtals I Höföaborg, Hofsósi, fimmtudaginn 13. janúar kl. 16-18.
Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Elln R. Undal
Skagfirðingar
Almennur stjómmálafundur veröur haldinn I Framsóknarhúsinu, Sauöárkróki,
fímmtudaginn 13. janúar kl. 20:30.
Allir velkomnir. Páll Pétursson
Stefán Guðmundsson
Elln R. Undal
Sumir reyna
oð treina sérjólin sem iengst, þótt
þeim sé þegar lokib hjó flestum.
Hestamenn íFóki og Lionsmenn í
Tý em dœmi um þó fyrrnefndu,
þar sem þeir efna til mikillar þrett-
óndagleöi í Reiöhöllinni kl. 15 í
dag, þótt kominn sé 8. janúar. Þar
munu ólfakóngur og -drottning
ósamt Grýlu og hennar hyski
dansa og syngja v/'ð stóra brennu.
Stefnt er oð veglegri flugeldasýn-
ingu í lokin. Eitt gleggsta merkiö
um lok jólanna em hins vegar
jólatrén, sem skreyttu flestar stofur
borgarbúa í þrettón daga, en hafa
nú lokiö hlutverki sínu og fó þar
meö oð fjúka út fyrír dyr í þús-
undatali. Yngstu borgamrnir sjó
þó ennþó íþeim nokkurt notagildi
til leikja, þar til hreinsunarmenn
hiröa þau í góma sína.
Tímamynd GS
Fjárlaganefnd rœöir um aö láta vinna skýrslu um SR-mjöl:
Ríkisendurskoöun geri
úttekt á sölu SR-mjöls
Lögö hefur veriö fram krafa í
fjárlaganefnd Alþingis um
aö Ríkisendurskoöun geri
úttekt á sölu ríkisins á hluta-
bréfum í SR-mjöli. Haraldur
Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Andra, segist líta svo á
aö aöeins eitt tilboö hafi
komiö í hlutabréfín, þ.e. frá
honum sjálfum. Hann segir
fráleitt aö líta svo á aö tilboö
hafi komiö frá hópi fyrir-
tækja og einstaklinga, sem
Jónas A. Aöalsteinsson er
fulltrúi fyrir. Aöeins sé um
aö ræöa yfirlýsingu um viö-
ræöur um hugsanleg kaup á
hlutabréfunum.
Fulltrúar Framsóknarflokks í
fjárlaganefnd Alþingis lögöu
til á fundi nefndarinnar í gær
aö Ríkisendurskoöun verði fal-
ið að gera úttekt á sölu hluta-
bréfanna í SR- mjöli. Nefndin
mun taka afstöðu til beiðn-
innar á fundi á þriöjudaginn.
Haraldur finnur ásökunum
sínum stað meö því aö vísa til
greinargeröar sjávarútvegsráð-
herra um sölu SR-mjöls, sem
birtist í Tímanum í gær. Þar er
vitnaö í bréf hæstaréttarlög-
mannanna Benedikts Sveins-
sonar og Jónasar A. Aðal-
steinssonar. í því segir: „Við
erum reiöubúnir aö beita okk-
ur fyrir því að kaupendahóp-
urinn setjist aö samninga-
boröi meö seljendum á þeim
grundvelli að kaupverö veröi
eigi lægra en nafnverð hluta-
bréfanna." Haraldur segir frá-
leitt að líta á þetta sem eigin-
legt kauptilboð. í mesta lagi
megi líta svo á að lögmennim-
ir bjóðist til að smala saman
einhverjum ótilgreindum að-
ilum til að ræða hugsanleg
kaup á hlutabréfum ríkissjóðs
í SR-mjöli.
Haraldur ber einnig fram
ásakanir á hendur Hreini
Loftssyni, hæstaréttarlög-
manni og formanni einka-
væðingamefndar. Haraldur
telur sig hafa rökstuddan gmn
um að lögfræðiskrifstofa
Hreins og fleiri lögmanna hafi
nú um áramótin tekið að sér
lögfræðistörf fyrir Sjóvá- Al-
mennar tryggingar hf., en Sjó-
vá er einn af þeim aðilum sem
lýst hafa áhuga á að kaupa SR-
mjöl.
Hreinn Loftsson sendi frá sér
yfirlýsingu í gær, þar sem
hann segir fullyrðingar Har-
aldar rangar. Hið rétta sé að
Ólafur Axelsson, hrl. og með-
eigandi Hreins í lögfræðiskrif-
stofunni Lögmönnum Höfða-
bakka, hafi tekið að sér lög-
fræðistörf fyrir Sjóvá-Almenn-
ar tryggingar.
Hreinn var spurður af hverju
lægra tilboði í SR-mjöl hefði
verið tekið.
„Ástæðan fyrir því að lægra
tilboðinu var tekið er einfald-
lega sú, að um betra boð var
að ræöa. Kaupendahópurinn
er traustur og samanstendur af
70-80% viðskiptamanna SR-
mjöls hf. Eignardreifingin er
mikil og stuðningur er frá við-
komandi bæjarfélögum og
starfsmönnum.
Áframhaldandi rekstur öflugs
fyrirtækis er einnig tryggður,
að mati seljanda, en þaö skipt-
ir ekki minnstu máli. Sölu-
verðiö er 725 milljónir króna
og greiðist að mestu á þessu
ári, en 200 milljónir færast yf-
ir á árið 1995. Að mati sér-
fræðinga á verðbréfamarkaði
er söluverðið hagstætt, en fyr-
irfram var talið að búast mætti
við tilboðum á bilinu 650-750
milijónir króna," sagði
Hreinn.
-EÓ
BÆNDUR - BÆNDUR!
LISTER sauðfjárklippur, kúaklippur og hestaklippur.
• Nova barkaklippur með breiðum kömbum.
• Super-Profi með mótor í handfangi, breiðir kambar.
• Mótor í handfangi, mjóir kambar (Ijárhaus/kúahaus).
• Kambar og hnífar • Varahlutir • Viðgerðarþjónusta
• Brýnsla
FISHER sjálfbrynningarker fyrir kýr, hesta, sauðfé
og svín.
Tunguker og flotholtsker. Varahlutir í allar gerðir.
MUELLER mjólkurkæligeymar. Varahlutaþjónusta.
SAUÐFJÁRMERKI. Númeraðar raðir og ál-
renningar.
ARÆÐI HF. Seljugerði 10, 108 Reykjavik.
Sími (91) 81 11 15, eftir kl. 13:00.
Faxallan sólarhringinn: (91) 81 11 15.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri Arnarborg
Staða leikskólastjóra viö leikskólann Arnarborg við
Maríubakka er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur ertil
17. janúar n.k.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson framkvæmda-
stjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deildarstjóri í síma
27277.
Dagvist barna
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, simi 27277.