Tíminn - 08.01.1994, Page 10
10
Laugardagur 8, janúar 1994
Enginn
flýr sig
sjálfan
Hann sat í bílnum
meb sjálfsmorb í
huga og beib eftir
rétta andartakinu til ab skera
sig á púls. Þá sá hann fórnar-
lambib ganga framhjá og
sjálfsmorbshvötin vék fyrir
annarri hvöt: drápsfysninni.
voru 11 stungusár á líkama
hennar, þar af þrjú á hálsi auk
þess sem andlitið var illa skorið.
Morðinginn hafði auösjáanlega
haft þaö að meginmarkmiði að
ganga frá henni endanlega.
Lögreglan varð einskis vísari í
rannsókn sinni. Ástæða glæps-
ins var ókunn, ekki þótti líklegt
Þab var ekkert rökrétt vib morbib á
Sharon Calligan og þess vegna libu
þrjú ár ábur en málib leystist.
í nóvember 1992 var rannsókn-
arlögreglumaður að blaða í
gömlum gögnum Northamp-
ton- lögreglunnar í Granby,
Massachusetts. Það, sem vakti
athygli hans, var gömul mappa
í flokknum „Óleyst mál". Fram-
an á möppunni var mynd af
forkunnarfagurri konu, sem
hafði verið myrt þremur árum
áður.
Undir venjulegum kringum-
stæðum hefði viðkomandi látið
kyrrt liggja, en einhver innri
eölishvöt fékk hann til að opna
möppuna og kynna sér máliö.
Það var 19. desember 1989 sem
lík konunnar fannst. Hún
fannst í bifreið á bílastæði fyrir
framan verslunarmiöstöð. Líkið
var nokkuð illa útleikið, sérstak-
lega andlitið, en það var engum
vandkvæðiun bundið að nafn-
greina konuna, vegna skilríkja
sem hún bar í töskunni. Einnig
fundust peningar í töskunni,
þannig að hægt var að útiloka
ránmorð. Hún hét Sharon Gall-
igan, 20 ára háskólamær í Mass-
achusetts.
Rannsókn lögreglunnar sýndi
að Sharon hafði samleigt með
vinkonu sinni í lítili íbúð í
grenndinni. Kvöldið áður hafði
hún farið út í búð, rétt fyrir lok-
un, í þeim tilgangi að kaupa
matvörur og jólagjafir. Herberg-
isfélagi hennar beið hennar, en
hún sneri ekki aftur.
Lögreglan yfirheyrði fjölda
manns, þ.á m. kærasta Sharon,
en enginn reyndist grunsamleg-
ur og fátt var um vísbendingar.
Málið vakti mikla athygli í fjöl-
miðlum á sínum tíma. Sharon
var sem fyrr segir einstaklega
glæsileg stúlka og fyrirmyndar-
nemandi. Fjölmiðlamenn
þyrptust til Granby til að fjalla
um málið.
Örlög á örlög ofan
Fjölskylda hennar var harmi
lostin. Þetta var ekki í fyrsta
skipti sem hún haföi orðið fóm-
arlamb glæpamanna. Sharon
hafði verið nauðgað tveimur ár-
um áður og eitt sinn hafði hún
sloppiö við illan leik undan
fyrrverandi kærasta, sem lagði á
hana fæð eftir að sambandi
þeirra lauk. Eins og móðir
hennar sagði: „Hún var loks bú-
in að ná sér andlega núna eftir
fyrri áföll. Er ekkert réttlæti í
þessum heimi?"
Krufning sýndi að Sharon
hafði verið stungin til bana. Alls
Teikning lögreglunnar eftir framburbi vitnis. Þab, sem er sérstakt vib teikn-
inguna, er ab lögreglan dáleiddi vitnib. Síbar urbu menn orblausir er þeir
sáu hversu mjög myndin líktist morbingjanum.
aö morðinginn hefði þekkt
fómarlambið persónulega og
þaö gerði málið snúnara en ella.
Sharon átti sér engan óvin, svo
vitað var. Hún haföi verið ein-
staklega óheppin allt sitt líf og
sennilega hafði hún, þegar yfir
lauk, aðeins verið röng mann-
eskja á rangri stundu. Allir við-
mælendur lögreglunnar vom
sammála um að hún hefði ekki
getað átt einn einasta óvin.
Þvert á móti var hún einn vin-
sælasti nemandi skólans og átti
stóran og tryggan kimningja-
hóp. Fyrst og fremst vantaði
vitni að því sm gerst hafði á
bílastæðinu fyrir framan versl-
unarmiöstööina. Búið var að yf-
irheyra allt starfsfólk og svo
virtist sem enginn hefði séð
neitt óvenjulegt.
Dálciöslan
Það kviknaði loks von hjá lög-
reglunni, þegar einhver tók eftir
hraðbankalúgu skammt frá
morðstaðnum. Lögreglan var
búin að tímasetja moröið nokk-
uð nákvæmlega og þegar færsl-
ur bankans vom yfirfamar, kom
í ljós að einn notandi haði tekið
út peninga á kort sitt einmitt
um sama leyti og taliö var að
Sharon hefði verið myrt. Haft
var samband við viökomandi
og sá tjáði lögreglunni að hann
minntist einskis, en konan hans
hafði beöið í bílnum á meðan
hann fór að taka út peningana
og hún hafði tekiö eftir ungvun
manni fyrir framan gráan Toy-
ota, sem henni þótti einhverra
hluta vegna gmnsamlegur. Hún
mundi ekki útlit hans, en þegar
lögreglan spurði hvort hún væri
reiðubúin til að láta dáleiöa sig
af sálfræðingi, samþykkti hún
það. Dáleiðslan gekk vel; eftir
að konan féll í trans tók undir-
vitundin við og þá gat konan
gefið lýsingu á viðkomandi.
Hún sá hvítan mann um þrí-
tugt, fölan og grannan með
óvenju stór útstæð augu. Hann
hafði verið með svarta húfu,
þannig að háraliturinn var
óljós, en þetta var samt miklu
betra en ekkert fyrir lögregluna.
Allir helstu fjölmiðlar komu
teikningunni á framfæri, sem
lögreglan lét gera eftir lýsing-
unni, og viðbrögðin létu ekki á
sér standa.
Hinn grunabi
sleppur
Aðeins tveimur dögum seinna
Kenneth Mitchell hvarfíþrjú ár.
Þab var ofseint ab hegna honum
þegar hann loks fannst.
var framiö vopnað rán. Ræn-
ingjamir vom þrír og afgreiðslu-
maðurinn kveikti strax, þegar
hann sá einn þeirra. „Hann var
nákvæmlega eins og sá á mynd-
inni." Lögreglan veitti glæpa-
mönnunum eftirför og endaði
sá eltingarleikur með því að bíll
ræningjanna lenti í árekstri viö
annan bíl. Lögreglan náði að
handtaka tvo þeirra, en sá
þriðji, lykilmaðurinn og sá sem
afgreiðslumaðurinn hafði
þekkt, slapp úr klóm lögregl-
unnar. Enn virtust örlögin að
verki.
Félagar hans sögðu manninn
heita Kenneth Mitchell, 34 ára.
Þeir vissu fátt um hann annaö
en að þeir höfðu kynnst nokkr-
um dögum fyrir ránið. Lögregl-
an hafði upp á sambýliskonu
hans, en hún sagði að eftir rán-
ið misheppnaða hefði ekkert til
Mitchells spurst. Hún sýndi lög-
reglunni mynd af honum og
eftir það var lögreglan ekki í
vafa — rétti maðurinn var fund-
inn. Þeir, sem höfðu vantreyst
dáleiðsluaðferðinni, urðu aö
játa sig sigraða. Myndin var slá-
andi lík hinum eftirlýsta Kenn-
eth Mitchell.
Næstu daga sat lögreglan um
híbýli Mitchells og þá staði sem
hann var vanur að sækja, en án
árangurs. Hann virtist hafa guf-
aö upp og enginn vissi neitt um
ferðir hans.
Mitchell var fæddur í E1 Paso í
Texas, yngstur fimm systkina.
Fjölskyldan hafði flust til Gran-
by árið 1975. Foreldrar hans
voru heiðarlegt fólk, sem vann
sína vinnu af samviskusemi, en
snemma fór að bera á brestum í
syni þeirra. Hann var fyrst
handtekinn 13 ára fyrir búðar-
SAKAMAL
hnupl og eftir það kom hann
oft við sögu lögreglunnar. Hann
náði þó að fara í gegnum
menntaskóla, en lengri varð
skólagangan ekki. Árið 1979
giftist Mitchell, en hjónaband-
inu lauk hálfu ári seinna.
Eftir skilnaðinn hafði Mitchell
verið í lítilli vinnu og smám
saman urðu afbrot hans tíðari.
Enn ein tilviljunin
Og þá komum viö aftur að
upphafinu. Mitchell hafði verið
í felum í þrjú ár, en þegar rann-
sóknarlögreglmnaðurinn var aö
fletta í gegnum „Sharon Gallig-
an"-málið í nóvember 1992,
fannst honum hann þekkja
Mitchell af myndinni. Eftir
skamma umhugsun minntist
hann þess að hafa séð hann á
vegahóteli í Westfield í Massac-
husetts, aðeins tveimur dögum
áður. Tilviljunin var svo alger að
hann átti bágt með að trúa að
þetta gæti staðist. Hann gerði
þegar viðeigandi ráðstafanir og
hjólin fóm að snúast. Enn var
von til að hafa hendur í hári
þessa manns, sem svo ákaft
hafði verið leitað í þrjú ár.
Sagan öll
Hópur lögreglumanna fór til
vegahótelsins og hélt til her-
bergis 5. Þegar lyklinum var
stungið í skrána og lögreglan
mddist inn, var aðkoman held-
ur ömurleg. Vissulega var Mitc-
hell í herberginu, en enn einu
sinni hafði hann sloppið úr
klóm réttvísinnar, hann var lát-
inn. Hann hafði framið sjálfs-
morð aðeins sólarhring áður
með því að skera sig á púls. Við
hlið hans lá brotin viskíflaska
og sex þéttskrifaðar blaðsíður á
borðinu, kveðjubréf. Þar stað-
festi Mitchell að hann væri sek-
ur um morðið á Sharon og vildi
skýra frá því sem gerst hafði
kvöldið sem Sharon dó.
Hann hafði sjálfur verið hald-
inn miklu þunglyndi á þessum
tíma og sá ekki aðra leið en að
svipta sig lífi. Hann fann sér
hníf, keyrði aö bílastæðinu fyrir
utan verslunarmiðstöðina og
lagði bílnum þar. Hann fór í
huganum í gegnum misheppn-
að líf sitt og beið eftir kjarkinum
til að stíga skrefið til fulls. Hann
mundaði hnífinn, en sá þá und-
urfagra konu, Sharon Galligan,
ganga framhjá. Hann varð
skyndilega yfir sig snortinn af
fegurö hennar og ekkert fjarlæg-
ara en að fremja sjálfsmorð. Af
einhverjum innri hvötum, sem
honum tókst ekki að spoma
gegn, stökk hann út úr bílnum
og greip í handlegg hennar.
Hann ætlaði að segja eitthvað
fallegt við hana, en hún rak
strax upp hræðsluóp. Þá tók
hann fyrir munn hennar, ýtti
henni inn í bílinn og stakk
hana með hnífnum. Eftir fyrstu
stunguna varð allt svart og
Mitchell mundi ekki hvað gerð-
ist næst. Hann gerði síðar við-
eigandi ráðstafanir og hafði ver-
ið kvalinn af eigin samvisku síð-
an. Hann vildi fremur svipta sig
lífi en að þurfa að horfa framan
í ættingja sína í réttarsalnum og
útskýra hvers vegna.
Kenneth Mitchell tókst að
sleppa undan armi laganna, en
það var til lítils. Að mati sál-
fræðinga var hann í eðli sínu
klofinn maður, en með kröftuga
samvisku og eftir morðið á
Sharon var aðeins tímaspursmál
hvenær hann gæfist upp. Eng-
inn fær umflúið sjálfan sig.