Tíminn - 29.01.1994, Side 3
Föstudagur 29. janúar 1994
Sfmtiw
3
Steingrímur Njálsson í varöhald til 21. febrúar:
Manni veittur
áverki á
kynfærum
Steingrímui Njálsson, sem
kunnur er fyrir að hafa framiö
marga kynférðisglæpi á liðn-
um árum, hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 21.
febrúar vegna áverka sem
grunur leikur á að hann hafl
veitt manni í fyrrinótt. Maður-
inn var fluttur í sjúkrahús með
áverka á kynfærum.
Atburðxuinn átti sér stað í
íbúð í Skipholti undir morgun
í gær. Þar voru staddir fjórir
menn sem setið höfðu að
drykkju alla nóttina og valdið
nágrönnum sínum óþægind-
um með drykkjulátum. Undir
morgun var óskað eftir sjúkra-
bíl vegna þess að maður hafði
orðið fyrir áverka á kynfærum.
Lögregla kom á staðinn og
handtók Steingrím vegna
gruns um að hann hefði vald-
ið áverkanum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu mun áverkinn sem
maðurinn hlaut ekki vera til-
kominn vegna þess að egg-
vopni hafi verið beitt.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu í
gær neitaði Steingrímur sakar-
giftum.
Vilhjálmur Arnason, heimspekingur og dósent vib Háskóla íslands, fékk ígcer viburkenningu frá Hagþenki,
sem er félag höfunda frœbirita og kennslugagna, fyrir bók sína Sibfrœbi lífs og dauba. Félagib veitir ár hvert höf-
undi viburkenningu fyrír framúrskarandi frœbistörfog samningu frœbirita og námsefnis. Vilhjálmur fékk viburkenn-
ingarskjal og 250 þúsund krónur.
Þab var Hjalti Hugason sem afhenti verblaunin fyrír hönd Hagþenkis. Á myndinni tekur Ragnheibur Óladóttir, eig-
inkona Vilhjálms, vib blómvendi frá Hjalta. Á milli þeirra stendur Vilhjálmur Árnason. EÓ
Tímamynd GS.
Týndi milljaröurinn kallaöur nánast „tœknilegt" atriöi:
Framboösmál félagshyggjuflokkanna eru aö skýrast:
Margir keppa
um aö komast
í efstu sætin
Ellefu sækjast eftir sætum
Framsóknarflokksins á sam-
eiginlegum lista félagshyggju-
flokkanna til borgarstjómar
Reykjavíkur. Tíu em í fram-
boði hjá Alþýðuflokknum.
Framboðsmál Alþýðubanda-
lagsins og Kvennalistans em í
undirbúningi. Reiknað er meö
að eftir miðjan næsta mánuð
liggi fyrir hverjir skipi sæti
framboðslistans fyrir hönd
flokkanna.
Þeir sem sækjast eftir sætum
Framsóknarflokksins em Al-
freð Þorsteinsson varaborgar-
fulltrúi, Bima Svavarsdóttir
hjúkmnarforstjóri, Geröur
Steinþórsdóttir kennari, Helgi
Pétursson markaðsstjóri, Ósk-
ar Bergsson trésmiður, Sigfús
Ægir Amason framkvæmda-
stjóri, Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi, Sigurður Thorl-
atíus læknir, Vigdís Hauks-
dóttir kaupmaður og Þuríður
Jónsdóttir lögfræðingur.
Sérstaka athygli vekur að
Gerður Steinþórsdóttir býður
sig fram, en hún var borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins
hér á ámm áður.
Þeir sem sækjast eftir sæti fyr-
ir hönd Alþýðuflokksins em:
Bolli Runólfur Valgarðsson,
Bryndís Kristjánsdóttir, Gunn-
ar Gissurarson, Gunnar Ingi
Gunnarsson, Gylfi Þór Gísla-
son, Hlírt Dáníelsdóttir, Pétur
Jónsson, Rúnar Geirmunds-
son, Skjöldur Þorgrímsson og
Þorlákur Helgason.
Meðal kvenna í Kvennalist-
anum hefur farið fram forval
sem fór þannig fram að konur
vom beðnar um að nefna þær
sem þær vildu helst sjá í fram-
boði. Á næstunni fer fram
leynileg kosning milii þeirra
sem oftast vom nefndar og em
tilbúnar til að vera á listanum.
Vitað er að Guðrún Ögmimds-
dóttir, Margrét Sæmundsdótt-
ir og Steinunn Óskarsdóttii
sækiast eftir sæti á listanum.
Brýnt aö vita hvaö
reikningsskilin segia
Framboðsmál Alþýðubanda-
lagsins em til umræðu í
flokknum þessa dagana og er
reiknað með að þau skýrist á
fundi stjómar kjördæmisráðs-
ins á miðvikudaginn. Form-
lega hefur einungis Ámi Þór
Sigurösson lýst yfir framboði.
En auk hans berjast Guðrún
Ágústsdóttir og Árthur Mort-
hens vun efstu sætin. Fleiri
koma til greina, en margir
leggja áherslu á aö annar full-
trúi flokksins komi úr röðum
verkalýðshreyflngarinnar.
-EÓ
„Auðvitað verða menn að hafa
einhverjar reglur og vera klárir á
því hvað þessi reikningsskil
segja hverju sinni og hverju er
verið að lýsa," segir Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi
um það hvers vegna ríkisvaldið
haldi aðgreindum A- og B-hluta
fjárlaga og hvort það geti talist
nánast tæknilegt atriði að
blanda einstaka þáttum þessara
hluta ríkissjóðs.
Óvenjulegur ágreiningur hefur
komið upp í Reykjavík milli
stjómar og stjómarandstöðu í
borginni þar sem borgarstjóri
og borgaryfirvöld ofmátu
skuldastöðu borgarinnar um
milljarö eins og greint hefur
verið frá í Tímanum. Borgar-
stjóri segir í viðtali við Morgun-
blaðið í gær að það sé nánast
tæknilegt atriði að færa skuldir
bílastæðasjóðs með heildar-
skuldum borgarinnar, en bíla-
stæðasjóður hefur sjálfstæban
fjárhag og sérstaka tekjulind, en
skuldbindingar hans eru ekki
hluti
borgarsjóðs þótt borgarsjóður
sé á endanum ábyrgur fyrir
þeim rétt eins og hjá öðrum
borgarfyrirtækjum.
Hjá ríkinu em sambærilegar
skuldbindingar og færslur í
mjög föstum skorðum. Að sögn
Sigurðar Þórðarsonar tilheyra
ríkisfyrirtæki og sjóbir sem
starfa sjálfstætt og em með eig-
in fjárhag B-hluta fjárlaga. Þessi
tengjast A- hlutanum, sem
byggist á skatttekjum, einungis
þannig ab B-hluta stofnanir
geta fengið framlög eba lán úr
A- hlutanum og þá er það gjald-
fært sem slíkt. Bábir hafi hins
vegar algerlega sjálfstæð reikn-
ingsskil og ef þab ætti að blanda
einstökum þáttum þama saman
þá þyrfti hreinlega að hafa
hvort tveggja allt í einum pakka
sem í sjálfu sér væri hægt ab
hugsa sér. Þá þyrfti hins vegar
að breyta fjölmörgu öðm, t.d.
að taka úr öll milliviðskipti
milli hlutanna og „þá er þetta
orðinn allt annar heimur,"
sagði Sigurbur. Um það hvort
eðlilegt væri að tala um nánast
tæknilegt atriði ef blandað er
saman skuldum sjóðs með sjálf-
stæð reikningsskil og skuldum
borgarsjóðs sagbi Sigurður að
auðvitað yrðu menn að vita
hverju sinni hvaba reikningsskil
verið væri ab tala um hverju
sinni og hverju þau ættu að
lýsa.
- BG
Sjómannasambandiö styöur tillögur Þríhöföanefndar um kvótaþing meö skilyröum:
Skref í átt til lausnar
Sambandsstjóm Sjómanna-
sambands íslands telur að tillög-
ur Þríhöfðanefndar um kvóta-
þing séu skref í átt til lausnar á
kvótabraskinu. Stuðningur sjó-
manna viö kvótaþingiö er þó
háður því m.a. að gerðar verði
breytingar á lögum um skipta-
Verbmæti og greiðslumiðlun. Þá
krefjast þeir þess að frá og með
ársbyrjun 1996 verbi skylt aö
selja afla á fiskmarkaöi, sem
landaö er til vinnslu innan-
lands.
„Við emm kahnski með já-
kvæðara plagg en menn hafa
skynjað hingab til. Þá bendum
við á leiðir til ab koma til móts
við þá galla sem em á tillögum
Þríhöfðanefndarinnar og gerum
þaö nánast að skilyrði. Jafnframt
krefjumst vib þess aö menn gefi
þama tveggja ára aölögunartíma
fyrir markabina. Ég vona bara að
viðbrögðin við þessu áliti verði
góð. Þá veit ég að Vélstjórafélag-
iö er með mjög svipaða afstöðu
og við og Farmannasambandið
er ekkert frá okkur þrátt fyrir
einhvem áherslumun á kvóta-
kerfiö. Það er líka allt annað
mál," segir Hólmgeir Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambands íslands.
Vélstjórafélag íslands sendi í
gær frá sér álit varbandi tillögur
Þríhöfðanefndarinnar og er þaö
efnislega samhljóða áliti sam-
bandsstjómar SSÍ.
Hann segist ekki eiga von á
öðm en að Þríhöfðamir séu að
vinna á fullu við fmmvarpsgerð-
ina. En samkvæmt 1. gr. bráða-
birgðalaganna á frumvarp, sem
tekur á kvótabraskinu, aö liggja
fyrir eigi seinna en nk. þriðju-
dag, 1. febrúar.
Að mati sambandsstjómarinn-
ar þarf samhliða kvótaþingi
sterkari ákvæbi í önnur lög svo
ekki fari á milli mála ab sjómenn
skuli ekki taka þátt í kvótakaup-
um. í því sambandi vilja sjó-
menn að lög nr. 24 frá 1986 um
skiptaverðmæti og greiðslumibl-
un verði lagfæri) þannig ab ljóst
megi verða að óheimilt sé að sjó-
menn taki þátt í kvótakaupum
útgeröa. Jafnframt telur sam-
bandsstjómin eðlilegt að beitt
verði sektum ef útgerðir verba
uppvísar aö brotum á kjara-
samningi og lögum.
Ennfremur telur sambands-
stjómin nauösynlegt að hækka
það hlutfall aflamarks sem skip
þarf að veiða til að halda sínum
veiðiheimildum, eða úr 25%
samkvæmt 12 gr. núgildandi
laga í 80%. Á móti hækkun hlut-
fallsins telur sambandsstjómin
ab þab megi breyta ákvæðinu á
þann veg að í stað þess að skip
missi alla aflahlutdeild sína, ná-
ist ekki aö veiöa framangreint
hlutfall, verði aflaheimildin
skert sem á vantar ab 80% mark-
inu hafi verið náb. Það er álit
sjómanna að með þessum breyt-
ingum sé komið í veg fyrir óeðli-
lega samþjöppun veiðiheimilda
hjá einstökum fyrirtækjum.
Þá leggja sjómenn áherslu á að
í viökomandi frumvarpi verði
sérstaklega girt fyrir allar hugs-
anlegar leiðir útgerða til að beita
varanlegu framsali aflahlut-
deildar innan fiskveiöiársins til
ab komast fram hjá kvótaþing-
inu og hafa þannig áhrif á
skiptaverð til sjómanna.
Sambandsstjómin tekur einnig
undir þær ábendingar Þríhöfba-
nefndar aö með kvótaþingi, séu
núgildandi ákvæði þýðingarlaus
sem kveða á um umsögn sveitar-
félaga og sjómannafélaga, þegar
aflaamrk er flutt á milli skipa
sem gerð em út hvort frá sinni
verstöð.
Þá er það mat sambandsstjóm-
arinnar að það komi ekki til
greina, auk þess sem engin rök
séu fyrir því að fiskvinnslustöðv-
ar geti flutt til sín aflahlutdeild-
ir, eins og gert er ráð fyrir í frum-
varpi til laga um stjóm fisk-
veiða. Einnig telur stjómin
óþarft með öllu ab lagt sé á sér-
stakt gjald til ab draga úr fjölda
færslna.
-grh