Tíminn - 04.02.1994, Síða 2

Tíminn - 04.02.1994, Síða 2
2 §Mk» Föstudagur 4. febrúar 1994 Tíminn spyr... Á ab gefa opnunartíma veitingahúsa frjálsan? Sigur&ur B; Stefánssón, Stórstúku íslands: „Nei. Ég tel aö opnunartími veit- ingastaöa sé nú þegar nógu lang- ur og enga nauðsyn beri tíl aö hafa opið allan sólarhringinn. Þá er ég hræddur um aö frjáls opn- unartími muni leiða menn í meiri freistni til aö drekka meira og skapa þannig sér og sínum fleiri vandamál. Það er kannski dálítíð óheppilegt í núverandi ástandi aö þaö loka allir á jama tíma og í þeim efnum mætti kannski hliðra eitthvaö 01. En ég tel þaö ekki nógu gott hafa opið fram undir morgun. Ég mundi ætla ab flestir séu orðnir frekar þreyttir klukkan þrjú." Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknin „Fyrir mitt leyti finnst mér það alveg sjálfsagt að hafa þetta opib eins lengi og fólk bara nennir aö vera á þessum skemmtistööum. Ég get ekki séð ab þaö breyti neinu þótt það sé verið að reyna ab stýra skemmtunum inn á ein- hvem tíma." Siguröur Guömimdsson, formaöur Félags starfsfólks I veitingahúsum: „Nei, ég er ekki tilbúinn að gefa opnunartíma veitingahúsa frjáls- an í einu stökki. Ef menn verða sammála um ab rýmka þessar reglur, þá tel ég nauösynlegt ab þaö veröi gefinn ákveðinn aðlög- unartími. Þab getur vel verið ab það leiði til þess ab mín skoðun yrði sú að opnunartíminn ætti að verba alveg frjáls. Það mætti einnig hugsa sér að taka út úr ein- hver ákveöin hús, t.d. danshúsin, og hafa þá meiri næturklúbba- svip á þeim." Bréf Arthúrs til Hauks Til Hauks Halldórssonar, formanns Stéttarsambands bœnda, Bœndahöllinni, Hagatorgi. Reykjavík, 26.1.1993. Vegna þeirra orða, sem þú lést falla í umræðuþættinum „Er bóndi bústólpi?" í Sjónvarpinp í gærkvöldi, þriðjudaginn 25. janúar, get ég ekki stillt mig um að senda þér línu. í þættinum hafðir þú orð á því að þaö væri eins og einhverjir hjá Sjónvarpinu væru „í hlekkj- um hugarfarsins" og lést það fylgja að þú teldir þetta hugar- ástand sjúklegt. Við þetta bættist að bæði hjá þér og öðrum, sem tóku til máls í þættinum, kom fram þaö sjónar- mið að Ríkissjónvarpinu væri ekki treystandi til að gera sóma- samlega heimildarmynd um landbúnab á íslandi. Sem starfsmanni þessarar stofn- unar þykir mér auövitað súrt í broti að sitja undir slíkum orð- um. Og ekki síst fyrir þá sök, að allar þessar ásakanir eru sannar. Ég vil að þú og aðrir talsmenn bænda vitið að allur þorri starfs- manna Ríkisútvarpsins skamm- ast sín fyrir þá aðför, sem hvað eftir annab hefur verið gerö að bændum í Sjónvarpinu. Sem dagskrárgerðarmaður í fjölda ára, bæöi í Útvarpi og Sjónvarpi, og höfundur heimild- Alþýöubandalagiö í Reykjavík ákveöur eftir átaka- fund aö efna til forvals 12. febrúar: Þátttakan bundin viö gamla flokksskrá skipa sæti Alþýðubandalagsins á sameiginlegum framboðslista félagshyggjuflokkanna í Reykja- vík. Undanfamar vikur hefur stjórn fulltrúaráðsins leitað leiða til að ná samkomulagi, en það hefur ekki tekist. Fastlega er reiknað með að Gubrún Ágústs- dóttir varaborgarfulltrúi skipi annað sæti flokksins, en Árni Þór Sigurösson og Arthur Mort- hens takast fast á um hitt sætið. Fleiri sækjast eftir kjöri í tvö efstu sæti listans. Á fulltrúarábsfundinum í fyrra- kvöld lögbu þrír forystumenn í verkalýöshreyfingunni, Grétar Þorsteinsson, Leifur Guðjónsson og Bjöm Grétar Sveinsson, fram tillögu um að fram færi forval og þátttakendur í því yrðu flokks- menn og stuðningsmenn flokksins sem skráb hefðu sig í flokkinn viku fyrir forvalið. Full- trúar í Alþýðubandalagsfélaginu í Reykjavík lögðu til að forvalið yröi bundið við þá flokksmenn sem skráðir vora í flokkinn í nóvember sl. þegar landsfundur Alþýðubandalagsins fór fram og var sú tillaga naumlega sam- þykkt. Tíminn spurði Ólaf Ragnar Grímsson, formann Alþýöu- bandalagsins, hvort hann hefði ekki áhyggjur af átökum innan Alþýðubandalagsins í Reykjavík um skipan listans og hvort hann óttaðist ekki ab átökin myndu skaba sameiginlega framboöiö. „Ætli þau skaði þab nokkuð meira en átökin milli Alfreðs Þorsteinssonar, Helga Pétursson- ar og Gerðar Steinþórsdóttur eða barátta milli margra manna hjá Alþýbuflokknum." -EÓ Fulltrúaráö Alþýöubandalags- ins í Reykjavík hefur sam- þykkt aö láta fara fram forval 12. febrúar um val á frambjóð- endum á framboöslista fyrir borgarstjómarkosningamar í vor. FuUtrúaráöiö ákvaö aö takmarka þátttöku í forvalinu viö flokksskrá flokksins eins og hún var þegar Alþýöu- bandalagiö hélt landsfund í nóvember sl. Samkvæmt þessu munu flokksmenn sem skráö hafa sig í flokkinn á síð- ustu tveimur mánuöum ekki fá aö taka þátt í því. Átök era um hverjir eigi að Abferb gegn atvinnuleysi: Allur fiskur verbi unninn hér- lendis Stjómarfundur í deild fisk- vinnslufólks í Verkamanna- sambandi íslands skorar á rík- isstjómina aö sjá til þess aö allur fiskur sem veiddur er innan íslenskrar fiskveiöUögs- sögu veröi unninn hérlendis. Stjómin telur að þetta sé fljót- virkasta aðferbin til að skapa ný störf í því mikla atvinnuleysi sem nú er á meðal verkafólks. Minnt er á að samkvæmt lögum er fiskurinn í sjónum sameign þjóðarinnar og því eigi íslenskt verkafólk forgangsrétt ab þeirri vinnu sem hann skapar. -grh Arthúr Björgvin Bollason armynda um ýmis efni þarf ég ekki að fara mörgum oröum um þau vinnubrögð, sem vibhöfð vora í sögufrægum þáttum Bald- urs Hermannssonar og sjón- varpsþættinum „Bóndi er bú- stólpi". Meö því að kalla slíkan óhróöur „heimildarmyndir" er hreinlega verið að „klæmast" á því oröi. Umræddar sjónvarpsmyndir era auðvitað ekkert annað en ómerkilegar og Ula unnar áróð- ursmyndir, sem skömm er ab skuli vera sýndar í „sjónvarpi allra landsmanna". Án þess að fara nánar út í þá sálma hafa glöggir kvikmynda- rýnar bent á að um margt séu þessar ógeöfelldu myndir soönar Haukur Halldórsson saman og „kryddaöar" á líkan hátt og myndir sem þýskir nas- istar létu gera um Gyöinga í Þriðja ríkinu. Sá samanburður væri reyndar verðugt verkefni fyrir einhvern snjallan kvik- myndafræðing. En svo ég víki aftur aö megin- efni þessa bréfs, þá er ástæðan fyrir þessari niöurlægingu Sjón- varpsins einfaldlega sú að það er undir jámhæl hins pólitíska valds. Eins og allir vita, var Ríkisút- varpið beitt pólitísku ofbeldi á liönu vori, þegar menntamála- ráðherra setti mann, sem út- varpsstjóri hafði vikib úr starfi dagskrárstjóra Sjónvarps, aftur inn í stofnunina og að þessu sinni í embætti framkvæmda- stjóra. Frá þeim degi hefur Sjónvarpib verið í pólitískri „herkví". Viö, sem látum okkur annt um þessa stofnun, höfum orðið að horfa á það aögeröalaus að allar grand- vallarreglur lýöræðis og faglegra vinnubragða hafa verið hunsað- ar í dagskrá Sjónvarps. Það hefur ekki verið létt ab sitja undir linnulausri pólitískri mis- notkun þessa ríkisfjölmiðils. Þar hafa ýmsir verið beittir pólitísku ofríki, þótt óhætt sé að fullyrða að bændur hafi í því tilliti fengið drýgsta skammtinn. Eg veit aö ég mæli fyrir munn alls þorra starfsmanna Ríkisút- varpsins þegar ég segi að við, sem hér störfum, hörmum þær skammir og svívirðingar, sem bændur og samtök þeirra hafa mátt þola I sínum eigin fjöl- miöli, — því Ríkisútvarpið er eign allra landsmanna. Hins vegar vísa ég ábyrgðinni á þessari svívirðu alfarið til menntamálaráöherra, sem með dæmalausri valdníðslu gerði settum framkvæmdastjóra Sjón- varps kleift aö misnota miöilinn jafn gróflega og raun ber vitni. Það er sannfæring mín og margra annarra í þessari stofnun að hans skömm muni lengi verða uppi. Virðingarfyllst, Arthúr Björgvin Bollason, skipulags- og dagskrárráðgjafi út- varpsstjóra. Andrés Cubmundsson, starfsmabur Laugardalslaugar og einn sterkasti mabur landsins, virbist kunna vel vib ab baba sig upp úr brennisteinsríkum leirnum. Tímamynd CS Nýjung í Laugardalnum: Leirböð til heilsubóta Tekin hafa verið í notkun leir- böð viö sundlaugina í Laugar- dal, þar sem einnig er boðiö upp á nudd. Leirbööin eru um 40 stiga heit og er notast viö brennisteinsríkan hveraleir, sem engar bakteríur eöa veirur geta lifaö í. Leirböðin era talin vera gagnleg gegn vöðvaspennu, vöbvabólg- um, gigtarverkjum og þeim kvill- um sem spenna og kvíbi ýta und- ir auk ýmissa húðsjúkdóma. Þá mun Heilbrigbiseftirlit Reykjavík- ur fylgjast reglulega með því ab leirinn fullnægi heilbrigðiskröf- um. Þótt leirböðin geti verið allra meina bót fyrir marga, auk þess sem þeim fylgir einatt mikil afs- löppun fýrir viökomandi, þá era þau ekki fyrir alla. Fólki, sem er með hjarta- og æöa- sjúkdóma, er t.d. ráðlagt aö fara ekki í leirböðin og ekki heldur fólki meb bjúg, ferskar blæbingar og smitandi sjúdóma. Þá eru leir- bööin ekki fyrir ungböm og gam- almenni. -grh

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.