Tíminn - 04.02.1994, Síða 9

Tíminn - 04.02.1994, Síða 9
Föstudagur 4. febrúar 1994 fÍMÉWt 9 Kannanir sérfrœbinga benda til þess aö Austur-Alpasvœöiö hagnist mest á EES: Austurríki á uppleiö Frá stofnun Evrópubanda- lagsins hefur Austurríki ásamt Sviss veriö eins og hvítur blettur á Evrópukort- inu. Þessi tvö ríki stóðu utan bandalagsins þó aö nágranna- ríki þeirra í Vestur-Evrópu, Ítalía, Frakkland og Þýskaland, væru öll stofnaðilar EB, Þann 1. janúar 1994 tengdist Austurríki þessum nágrönn- um sínum með aðild að hinu Evrópska efnahagssvæði og stefnir landið að aðild að Evr- ópubandalaginu 1. janúar 1995. Þegar að er gáð sést að stærri hluti Austurríkis er austan þeirrar línu sem taldist vera járntjaldið á dögum kalda- stríðsins. Þessi staösetning, auk efnahagsaðgerða innan- lands, hefur gefib tilefni til þess að endurmeta stöðu landsins með trilliti til þess áhuga sem erlend fyrirtæki hafa sýnt á að flytja þangað stöövar sínar. Samkvæmt könnun sem EUREKA lét gera sumarið 1992 er útlit fyrir að hagvöxtur verði hvergi meiri í Evrópu en á Alpa-efnahagssvæöinu svo- kallaða. í könnuninni var gerð úttekt á 170 svæðum (Region- en) í Evrópu og komist að þeirri niðurstööu að sá hluti Evrópska efnahagssvæðisins sem mundi hagnast mest á til- komu þess væri Alpasvæðið, sem nær yfir Austurríki, Suð- ur-Þýskaland og Norður-Ítalíu. Sameignarfyrirtæki í Austur-Evrópu Þrátt fyrir efnahagssamdrátt- inn í fyrra er spáð 1,5% hag- vexti í Austurríki á þessu ári. Ef þessi spá gengur eftir verður efnahagsuppgangurinn þar í landi meiri en víðast hvar. Athafnasemi austurrískra fyr- irtækja í Austur-EvTÓpu bendir eindregið til þess að spáin eigi eftir að rætast. í lok ársins 1992 höfðu þau fjárfest fyrir sem nemur 60 miUjörðum ís- lenskra króna í Austur-Evrópu. Þá hafði nærri fimmtungur þeirra, 9000 fyrirtæki, stofnab sameignarfyrirtæki (Joint- venture) í Austur-Evrópu. Fleiri en 1000 alþjóðafyrirtæki sinna mörkuðum í Austur-Evr- ópu frá Austurríki. Þar á meöal eru mörg heimsþekkt nöfn eins og American Express, Bosch, Coca Cola, Daimler Benz, Gillette, IBM, McDon- ald's, Nestlé, Pepsi og PhiUps. Það er einkum Vín, höfuðborg landsins, sem hentar vel í þessu tilliti. Margra ára reynsla austurr- ískra ráðgjafafyrirtækja af við- skiptalífinu í Austur-Evrópu styrkir þessa þróun enn frekar. Bankar landsins hafa þá stefnu ab tryggja fjármagn þegar um „austur"-viðskipti er aö ræða. Þeir hafa áratugareynslu af gerð verslunar- og viðskipta- samninga í ríkjum Austur- Evrópu. Auk þess sem bank- amir hófu afskipti af stofnun sameignarfyrirtækja og fjár- mögnun iðnframleiðslu í aust- urvegi löngu ábur en aðrar bankastofnanir á Vesturlönd- um. Austurrísku bankamir hafa því verulegt forskot á erienda keppinauta sína í viðskiptum við Austur-Evrópuríkin. Þessu Rábstefnuhöllin í Vín JL Vínaróperan UTLÖND til viðbótar er Austurríki með samning um bann við tví- sköttun við Tékkland, Slóvak- íu, Ungverjaland, Rúmeníu, Búlgaríu, Pólland og öll fyrr- verandi lýðveldi Sovétríkj- anna. Fyrirtæki í þessum lönd- um geta því hámarkað bæði hagnaö og skattafrádrátt. Enginn teljandi munur er á gæöakröfum í Austurríki og vesturhluta Þýskalands en laun em töluvert lægri í Aust- urríki. Þetta gerir landiö sér- lega fýsilegan kost sem mið- stöð Evrópuviöskipta. Stjóm- völd hafa lagt sitt lóð á vogar- skálamar með aðgerðum og fjárframlögum til að ýta undir viðskipti við nágrannalöndin í austri. Einnig em í gangi verk- efni sem eiga að styrkja upp- byggingarstarf austurrískra fyrirtækja innanlands. Lágskattaparadísin Austurríki Þann 1. janúar 1994 gengu í gildi ný skattalög sem eiga ab létta álögum af fyrirtækjum. Skattabreytingin hefur vakið athygli langt út fyrir land- steinana, því hún gerir Austur- ríki að lágskattalandi. At- vinnuskattur var lagður af og í hans stað var farið að skatt- leggja hagnað. Skattaprósent- an lækkaði úr 39% í 34%. Hætt var að leggja á eignaskatt og erfðaskatt. Skattlagabreyt- ingin geröi þab ab verkum að skattar í Austurríki em nú með því lægsta sem gerist í Evrópu. Þrátt fyrir lækkun hlutfalls ýmissa skatta haldast þeir frá- dráttarliðir sem boðið hefur verið upp á. Uppbygging innan- lands Austurríkismenn hafa á und- anfömum ámm lagt mikla áherslu á uppbyggingu sam- gönguæða innanlands tengingum við útlönd. Mest áhersla hefur verið lögð á svokallaða tæknigarða. Þeir em nú orðnir rúmlega tutt- ugu. Tæknigarðar bjóða fjár- festum upp á hagkvæmt tækniumhverfi, hæft vinnu- afl, góð aðföng, þjónustu og samgöngur. Tæknigarbamir em sérhæfðir á mismunandi sviðum og höfða því til ólíkra fyrirtækja. í suöurhluta Vínarborgar var tæknigarðinum Wiener Neu- dorf komiö á fót. Hann er beintengdur bæöi við hrað- brautar- og jámbrautamet landsins. Garburinn er í næsta nágrenni við Vínarborgarflug- völl og stutt er að fara í betri hverfi borgarinnar. Aðeins sunnar er tæknigarð- urinn Niederösterreich-Sud, þar sem unniö er að fram- leiðslu á umhverfisvænum vömm og hugbúnaðarfram- leiðslu. Lega landsins Það er ekki nýtt að útlend fyr- irtæki líti Austurríki hým auga þegar þau em aö færa út kví- amar. Þetta hefur sérstaklega átt við um þýsk fyrirtæki. Þau hafa flutt til Austurríkis í hundraðatali í tímans rás. Ástæöan er augljós. í löndun- um tveimur er talað sama tungumálið og lagaumhverfið er svipað. Það sem freistar Þjóðverjanna er þó fyrst og fremst gæðaframleiösla með minni tilkostnaði en í Þýska- landi. Þróunin í Þýskalandi ab undanförnu bendir þó til þess ab aðstöðumunurinn jafnist bráðlega út. Hvab sem því líð- ur verður spennandi að fylgj- ast meö því hvaða áhrif aðild Austurríkis að hinu Evrópska efnahagssvæöi kemur til með að hafa. Spumingin er hvort Austurríkismönnum tekst að notfæra sér legu landsins á mörkum „austurs" og „vest- urs". Ágúst Þór Ámason mr Vinningstölur ,------------ miðvikudaginn: 2. febr. 1994 VINNINGAR 6 af 6 . 5 af 6 B+bónus 5 af 6 4 af 6 . 3 af 6 3+bónus FJÖLDI VINNINGA 235 984 UPPHÆÐ Á HVERN VINNING 34.770.000 372.923 103.912 2.110 216 Aðaltölur: 12/ 14 27 31) (36) (46 BÓNUSTÖLUR (3}@)(32) Heildarupphæð þessa viku: 36.535.970 áisi, 1.765.970 UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 BIRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR Jfljuinningur fór til: Tvöfaldur 1. vinningur næsta miðvikudagT

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.