Tíminn - 04.02.1994, Síða 11

Tíminn - 04.02.1994, Síða 11
fQstycjagur 4..febrfjaDl8S4 11 Upphaf sagnfræbi Herodotus: The Histories. Translated by Walter Blanco. New Translation — Selections — Backgrounds — Comment- aries. Edited by Walter Blanco and Jennifer Tolbert Roberts. A Norton crit- kal edition. W.W. Norton & Company — New York — London 1992. Hugmyndin um aö Grikkland eöa Hellas hafi veriö einsleitt samfélag er ekki rétt. Þótt Hell- enar töluðu fomgrísku, þá var hún ekki stöðluð, mállýskur voru algengar og borgríkin vom tun margt frábrugðin hvort öðm. Gríska Hómers, Pindars og Heródótusar var ekki sama málið. Hver ritaði á grísku, en mál þeirra var samt sem áður frábmgðið hvort öðru, þó ekki svo að ekki mætti auöveldlega skilja sem grísku. Aþena er frægust borgríkja, en mannval var víðar. Heródótus var frá Halikamassos, jónískri borg á suðvesturströnd Litlu- Asíu, þar sem nú heitir Tyrk- land. Hann fæddist um 480 f.Kr. Hann fór víöa, um Grikk- land, til Babýlon, Ítalíu, Sikil- eyjar og Egyptalands. Saga hans er frásagnarsaga. Hann sagði margar sögur af ein- um atburði, lýsti því nákvæm- lega sem hann varð vitni að eða sá og einnig skráði hann lýsing- ar annarra. Frásagnir Heródót- usar em fyrstu frásagnir í fram- haldandi söguformi í evrópsk- um bókmenntum. Siðferðisboð- skapur hans er, að forðast ofdirfð og telja sig guðum líkan. Guðimir em fullir afbrýði og þola engum mennskum manni að nálgast. Þeir, sem það gera, em dæmdir. Aðvörunin er end- urtekin sí og æ. Krösus aðvarar Kýms, Xerxes er varaður viö of- dirfð og Daríus einnig. „Saga" Heródótusar er safn anekdóta, smásagna sem kasta ljósi á löngu liöna tíma og sviðið er klassískra höfunda stóð með miklum blóma þar í landi alla 19. öldina og fram á 20. öld. Burckhardt, Weber, Mommsen, Wilhelm von Humboldt, Fried- rich August Wolf, Johann Gust- av Droysen, August Böckh og Ulrich von Wiiamowirz-Moel- lendorf eiga hér greinar og út- drætti. Klassíkin tengdist þýskri pólit- ík, ekki síst á 20. öld. Deilur hóf- ust um þýöingu latínu- og grískunáms í skólakerfinu og með móðursýkislegri þjóðemis- stefnu varð humaníora að víkja um set. Samfara þessu tók að bera á efa um gildi húmanískrar menntunar með vaxandi áhrif- um rannsókna í raunvísindum, en upphaf and-húmanismans hófst að nokkru með upplýsing- unni þegar á 18. öld. A 20. öld varð „gagnfræðin" talin gagn- samlegri og aukin nytsemis- hyggja varð ráöandi víða í ríkj- um. Hér á landi var gríska af- numin sem kennslugrein í Lærða skólanum og á síðari hluta aldarinnar hvarf latína svo til sem námsgrein. íslend- ingar geta þó þakkað miðalda- blóma eigin bókmennta lat- neskri bókagerð ármiðalda. BÆKUR SIGLAUGUR BRYNLEIFSSON ekki ólíkt því sem við þekkjum, því að mannlegt eðli er það sama. Norton-útgáfumar em meðal vönduðustu útgáfna sem fáanlegar em. Fyrirmynd menntunar . í Evrópu Wilfried Nippel (Herausgegeber): Úber das Studium der Aiten Ceschichte. Deut- scher Taschenbuch Veriag 1993. Allt frá endurreisnartímunum var fornöld Grikkja og Róm- verja, bókmenntir, heimspeki og listir, „sameiginleg undir- staða og fyrirmynd allrar menntunar í Evrópu" (August Akropoíis. Böckh um 1817). Á síðari hluta 18. aldar efldist áhugi manna á þessum foma arfi, ekki síst á Þýskalandi meö nýjum háttum í skólakerönu og fomminjarann- sóknum og auknum áhuga fyrir fomlistinni, sem jókst stórlega ekki síst á Þýskalandi. Það var talað um „harðstjóm Hellena á þýskum menntum". í þessu riti era greinar og útdrættir eftir fræðimenn í klassík frá síðustu tvö hundrað áram. Valið er bundið þýska málsvæðinu, enda var áhugi fyrir fommennt- um Grikkja og Rómverja meiri á Þýskalandi á 19. öldinni en í öðram Evrópulöndum. Útgáfa Sri Larika og Austur-Tímor. Jón Ormur Halldórsson er doktor í stjómmálum Suðaust- ur-Asíu. Undanfarin ár hefur hann kennt alþjóöastjórnmál við Háskóla íslands og við há- skóla í Englandi og Hollandi. Hann hefur ritað nokkrar bæk- ur, m.a. Löndin í suörí og Islam — saga pólitískra trúarbragða, og unnið efni um alþjóðamál fyrir fjölmiðla. Erlingur Páll Ingvarsson hann- aði kápu bókarinnar, sem er 272 bls. í kiljubroti, prentuð í Dan- mörku. Verð hennar er kr. 1.590,-. jón Ormur Halldórsson. Mál og menning hefur gefið út bókina Átakasvœði í heiminum eftir Jón Orm Halldórsson. Það sækir einatt á fólk, sem fylgist með fréttaflutningi af heimsmálum, að erfitt sé að átta sig á undirrótum stríðsátaka víðs vegar um heiminn. í þess- ari bók leitast Jón Ormur við að skýra orsakir og eðli átaka og stríðsrekstrar á nokkram helstu ófriðarsvæbum jaröar á okkar tímum, en hann hefur afar yfir- gripsmikla þekkingu á þeim málum. Fjallað er um Júgóslav- íu, Norbur-írland, Afganistan og málefni Kúrda, um Líbanon, Palestínu og löndin við Persa- flóa, ríki Miö-Ameríku, Kýpur, Hví er barist? \J\J\JW\y\J\J\J\J\y\J\J\Jl Föstudagur 4 febrúar 35. dagur ársins - 330 dagar eftir. 5. vika Sólris kl. 9.59 sóiariag kl. 17.25 Dagurinn lengist um 7 mínútur Frá Hana-nú í Kópavogi Vikuleg laugardagsganga Hana- nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Gjábakka, Fann- borg 8, kl. 10. Nýlagað mola- kaffi. Lanqur lauqardaqur á morgun Langur laugardagur verður á morgun, 5. febrúar. Kaupmenn við Laugaveg og ' Bankastræti standa fyrir Löngum laugardög- um fyrsta virka laugardag hvers mánaðar. Þennan Langa laugardag er fyr- irhugab aö bjóða viöskiptavin- um Laugavegs og Bankastrætis upp á heitt Swiss Miss kókó fyr- ir utan Kjörgarö, Laugavegi 59, frá kl. 13- 16 í boði heildversl- unarinnar Innnes h/f. Kodak bangsinn skemmtir fjöl- skyldunni í Bankastræti. Bangsaleikurinn verður í gangi og munu stóri og litli bangsi gefa blöðrur og vera á svæðinu að leita að bangsanum með krökkunum. í verðlaun verða fimm vinningar frá Sporthúsi Reykjavíkur, Laugavegi 44. Auk þess bjóða verslanir og veitinga- stabir upp á afslátt eba sértilboö í tilefni dagsins. Á Löngum laugardögum era verslanir opnar frá kl. 10-17. Stjóm Laugavegssamtakanna vill hvetja landsmenn til að láta sjá sig í miöbænum og njóta úti- verannar í stærsta verslunar- kjama landsins. Nordisk Forum: Opib hús á Hallveigar- stöbum Þó að ótrúlegt megi virðast, þá era einungis sex mánuðir þar til Nordisk Forum 1994 veröur haldiö í Ábo í Finnlandi. Bráöabirgöadagskrá ætti nú ab hafa borist til allra landsnefnd- arfulltrúa, en eins og þar kemur fram verður dagskráin sérstak- lega glæsileg og áhugaverb. Hafa ber í huga að efni, sem til- kynnt hefur verib um eftir 1. nóv. sl., er ekki í bráðabirgöa- dagskránni, svo búast má við enn meiri fjölbreytni í endan- legri dagskrá. Þar sem brába- birgbadagskráin barst seinna en gert hafði verib ráð fyrir, hefur verið ákveðib ab endanlegur frestur til að tilkynna um fram- lag sé 15. febrúar nk. Til að ræöa um undirbúning og ýmis „praktísk" mál stendur undirbúningsnefnd Nordisk Foram fyrir opnu húsi laugar- daginn 5. febrúar kl. 10.30 að Hallveigarstöðum. Fundurinn er opinn öllum, en landsnefnd Nordisk Foram er sérstaklega bobið til skrafs og ráöagerða. Útivist: Lýöveldisgangan — Arib 1904 í öðram áfanga Lýðveldisgöng- unnar sunnudaginn 6. febrúar verður fjallað um minnisverða atburði áriö 1904. Gengið verbur frá Ingólfstorgi kl. 10.30 um Miðbæinn og upp á Skólavörðuholt og þaðan nið- ur á Umferðarmiðstöð. Þaöan verður farið kl. 14 suður í Hafn- arfjörð og gengið úr Lækjar- botnum og niður meö Hafnar- fjarbarlæk og ströndinni að Sundlaug Hafnarfjarðar. Staldr- að verður vib á merkisstöðum þar sem fróðir menn munu fjalla um atburði sem gerðust árib 1904 og tengjast á einhvem hátt þessum ákveðnu stöðum. Allir þátttakendur fá sérstakt göngukort, sem verður sér- stimplab. Hægt verður ab koma í gönguna eða fara úr henni á eftirtöldum stöðum: Kl. 10.30 farið frá Ingólfstorgi. Kl. 10.40 Vinaminni: „Iðnskól- inn stofnaður". Kl. 11.10 Alþingishúsið: „Heimastjóm". Kl. 11.30 Ráðhúsið: Skoðuð sýningin „ísland við alda- hvörf". Kl. 12 Ingólfshvoll: „íslands- banki tekur til starfa". Kl. 12.20 Thomsens Magasín: „Fyrsta bifreibin flutt til lands- ins". Kl. 13 Skólavörðuholt: „Mynd- listarmennimir Ásgrímur Jóns- son og Einar Jónsson hasla sér völl". Kl. 13.20 gengið niður á Um- feröarmiðstöð. Kl. 14 farið með rútu suður í Hafnarfjörð. Kl. 14.30 gengið frá Lækjar- botnum ofan við Hafnarfjörð. Kl. 15.30 Gamla Rafstöðvar- stíflan: „Fyrsti raflýsti kaupstab- urinn". Kl. 16 Póst- og símaminjasafn- ib: „Ákveðib ab láta leggja sæ- streng milli íslands og Evrópu". Kl. 16.30 Sjóminjasafn íslands: „Ákvebið að kaupa fyrsta ís- lenska togarann". Kl. 17 Sundhöll Hafnarfjaröar: „Stúlkur hefja sundnám". Á ofangreindum stöðum taka á móti hópnum og fjalla um þessa minnisverðu atburöi þeir: Jón Böðvarsson ritstjóri, Lýður Bjömsson sagnfræöingur, Sum- arliði ísleifsson sagnfræðingur, Hjálmtýr Heiðdal kvikmynda- geröarmaður, Kristján Bersi Ól- afsson skólameistari og fleiri. UMFERÐAR RÁÐ

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.