Tíminn - 16.03.1994, Blaðsíða 3
Mi&vikudagur 16. mars 1994
3
Þegar upp er staöiö er þessi skýrsla baráttutaeki lcekna:
Skýrsla Ríkisendurskoðunar
besta 75 ára afmælisgjöfin
„Skýrsla Ríkisendurskoöunar
fletti ofan af ríkisvaldinu og
þar, meb eftir atvikum einnig .
ráöherra heilbrigbismála og
skildi hvort tveggja eftir nak-
ií>. Skýrsla Ríkisendurskobun-
ar er því áfellisdómur yflr þess-
um abilum. Hún er ekki áfell-
isdómur yfir læknum. Hvorki
ráöherra heilbrigöismála né
Ríkisendurskoöun áttuöu sig á
því og fóru því fram meö áróö-
urslegu offorsi. Þegar upp er
staöiö er þessi skýrsla baráttu-
tæki lækna. Svo merkilegt sem
þaö kann aö viröast var því
þessi bláubókarútgáfa Ríkis-
endurskoöunar á jólaföstunni
eftir pöntun ráöherra heil-
brigöismála ef til vill besta
gjöfin sem samtökum lækna
gat borist á 75 ára afmælinu."
Þetta segir m.a. í ályktun stjóm-
ar Læknafélags íslands um
skýrslu Ríkisendurskoðunar frá
því í desember 1993 um greiösl-
ur til lækna, sem birt er í frétta-
bréfi lækna. Stjóm Læknafélags-
ins hefur fjallaö um skýrsluna á
mörgum fundum og í framhaldi
af því samiö ályktun og sent til
heilbrigðisráöherra og Ríkisend-
urskoðunar. Að mati lækna gerði
Ríkisendurskoðun sig seka um
mistúlkanir og þó einkum að
reyna aö leiða í ljós; aö læknar
væm ekki trúveröugir, sinntu
ekki starfsskyldum sínum, hefðu
óeðlilega há laun, væm í starfi
hjá fleiri aöilum en svo aö eðli-
legt gæti talist og þeir meö góöu
móti komist yfir.
Fjölmiðlar brugbust
Fjölmiðlamir fá líka sitt. Að
Morgunblaöinu undanskyldu
hafi þeir hampaö og gert að
meginatriöum einstökum og fá-
um hugsanlegum frávikum, alið
á fjöldaráöningum og dyggilega
geflö í skyn aö læknar sinntu
ekki starfsskyldum sínum.
„Stjóm Læknafélags íslands
hlýmr að lýsa harmi fremur en
fyrirlitningu þótt viö ætti á þess-
um vinnubrögöum og þessari
framkomu. Ríkisendurskoðun
og fjölmiðlar meö undantekn-
ingu eins og aö framan greinir
verðskulda enga frekari umræöu.
Em þó aö mestu kostuð af skatt-
peningum borgaranna þar á
meðal lækna og ætm aö þekkja
ríkar siðferöisskyldur sínar."
Ööm máli gegni um ráöherra
heilbrigöismála. Enginn fárist yf-
ir því þótt hann leiti sér upplýs-
inga og með hverjum hætti.
„Læknar munu hins vegar ekki
gleyma forsendum hans fyrir
könnun þessari né heldur kynn-
ingu hans á niðurstöðunum."
Niðurstöður í könnun á kjörum
lækna segja þeir ekki koma sjálf-
um þeim á óvart. Af 850 lækn-
um sem hún náöi til hafl 200
tekjur undir tveim milljónum á
ári og læknar með meira en 8
milljónir á ári séu tæpur tugur.
Meðaltekjur lækna séu 350 þús-
und kr. á mánuði, hvar af föst
laun séu á bilinu 80-200 þús.kr.
Vegna lágra fastra launa verði
viðbótartekjuöflunin tiltölulega
há. Ekki sé nákvæmt aö tala um
yfirvinnu og aukavinnu á stofn-
unum. „Yfirvinna er í mörgum
tilvikum alls ekki greidd. Þaö á
einkum við þegar hún er í raun
unnin þótt merkilegt megi virð-
ast. Ýmsar heilbrigðisstéttir fái
hins vegar greidda óunna yfir-
vinnu en það á ekki við um
lækna."
Læknar benda á að vegna þess
hve föstu launin séu lág hafi þeir
líka lág eftirlaun — „reyndar svo
að fæstir læknar treysta sér til að
hætta að starfa svo lengi sem
þeir fá í fæturna staðið og ein-
hverja heila hugsun hafa. Eftir
75 ára aldur þurfa þeir árlega að
sanna að þeir séu færir um að
starfa áfram."
„Launakerfi á íslandi er skrípi,"
er einkunn lækna. Höfundar
launakerfls lækna séu samninga-
nefndir ríkisins í umboði ráðu-
neyta fjármála og heilbrigöis-
mála. Ríkisvaldið hafi haft sitt
fram í samningagerð og kjara-
samningar við lækna séu því
hugmyndafræðilegt afkvæmi
þess. - HEI
Stóra fíkniefnamáliö:
Gæslu-
varbhald
framlengt
Gæsluvarðhald var í Héraös-
dómi Reykjavíkur framlengt í
gær yfir höfupaumum í stóra
fíkniefnamálinu sem kom
upp í fyrrasumar og gildir
varöhaldið þar til dómur fell-
ur en þó ekki lengur en til 15.
júní nk.
Saksóknari hefur gefiö út
ákæru í málinu og auk höfuö-
paursins eru margir fleiri
ákærðir. Talið er að umfang
fíkniefnainnflutningsins hafi
veriö gríðarlegt, eða um 34 kíló
af hassi og allt að 4,9 kíló af am-
fetamíni. Innflutningurinn á
að hafa farið fram í 3 ferðum.
Auk þessa hafa aðrir aðilar sem
tengjast þessu máli flutt inn 12
kíló af hassi og kíló af amfetam-
íni.
Höfuðpaurinn sem ákærður
hefur verið, hefur setið inni frá
því í ágúst í fyrra þegar hann
var fyrst dæmdur í gæsluvarð-
hald. Auk hans hefur meira en
tugur manna sem tengjast mál-
inu setiö inni í lengri eða
skemmri tíma. ■
Veöriö lék v/ð höfubborgarbúa í gœr og vorhugur var í fólki sem dreifsig út úr húsi. Þessar blómarósir voru ab máta tröppurnar á hinu nýja Ingólfs-
torgi síbdegis og virtust kunna vel vib sig í marssólinni. Tímamynd cs
Niflungahringurinn
á Listahátíð 1994
Miðasala er hafín á fyrsta viö-
buröi Listahátíðarinnar 1994
sem hefst þann 27. maí næst-
komandi. Þjóöleikhúsiö frum-
sýnir þaö kvöld sérstaka út-
gáfu á Niflungahringnum eftir
Richard Wagner.
Um er að ræða eins kvölds sýn-
ingu þar sem valin atriði úr
Hringóperunum fjórum verða
sviðsett og skeytt saman með
tengitextum. í vali atriða er lögð
nokkur áhersla á íslenskan bak-
grunn verksins en Wagner
studdist mjög viö íslenskar fom-
bókmenntir við gerð þess. Bæði
söguefni og helstu persónur
Niflungahringsins munu koma
þeim Islendingum kunnugiega
fyrir sjónir sem em vel heima í
Snorra-Eddu, Eddukvæðum og
Völsungasögu. Niflungahring-
urinn er stærsta og viðamesta
tónverk vestrænna tónbók-
mennta og tók þaö Wagner um
28 ár aö semja hann. Verkið
samanstendur af fjómm óper-
um: Rínargullinu, Valkyrjunni,
Sigiuöi Fáfnisbana og Ragnarök-
um og tekur flutningur þess í
heild 15 klukkustundir. Nifl-
ungahringurinn hefur verið
sýndur í öllum stærri ópemhús-
um heimsins og einnig hafa
mörg minni hús sett hann upp
með minnkaðri hljómsveitar-
gerð.
-GBK
Rumlega 95 milljóna kr.
hagnaður hjá Skeljungi
A aðalfundi Skeljungs sem
haldinn var í gær var sam-
þykkt tillaga stjómar um aö
greiöa 358 hluthöfum félags-
ins 10% arö af hlutafé. Hagn-
aöur af rekstri Skeljungs hf. í
fyrra nam 95,6 milljónum
króna og haföi hagnaöurinn
þá aukist um 2,4% frá árinu
áöur. Heildartekjur félagsins
áriö 1993 námu 6.173 milljón-
um kr. en vora 5.610 milljón-
ir áriö 1992. Eldsneytíssala fé-
lagsins dróst saman um 1%
milli ára en vörasala jókst
hins vegar um 10%.
Fjárfestingar vegna fram-
kvæmda, endurbóta og annarra
Ofí liiiíiiGOÁZ XSIIÍOQ ííi
verkefna námu 377 milljónum
króna á síðasta ári.
Að meöaltali störfuðu 258
starfsmenn hjá félaginu og
hafði þá fjölgað um 6 frá árinu
áður. Heildarlaunagreiöslur
námu 430,2 milljónum króna.
Alls flutti Skeljungur inn 169
þúsund tonn af fljótandi elds-
neyti, sem er um 26% af heild-
arinnflutningi þessara vara til
landsins og kom stærstur hluti
þess frá Shell í Noregi. Mest
flutti félagiö inn af gasolíu,
skipagasolíu og SD skilaolíu eða
rúm 85 þúsund tonn. Bensín-
innflutningurinn nam rúmum
40 þús. tonnum en þar á eftir
koma svartolía og flugvélaelds-
neyti.
Fram kom á aðalfundinum í
gær að heildarsala olíufélag-
anna, þar meö talinn influtn-
ingur Flugleiöa, hefði numið
655 þúsund tonnum sem er 4%
aukning frá árinu áöur. Þessi
aukning var nær eingöngu í gas-
og svartolíu en innflutningur
gasolíu jókst um 8,6% og svart-
olíu um 3,4%. Hins vegar dróst
bensínsalan saman m 1% og
flugvélaeldsneytissalan um 4%.
Mest seldist í fyrra af 92 oktan
bensíni eöa 51%, þá 30% af 95
oktan og aðeins 19% af blýbens-
íni. - BG