Tíminn - 16.03.1994, Blaðsíða 8

Tíminn - 16.03.1994, Blaðsíða 8
8 Mi&vikudagur 16. mars 1994 Aukiö atvinnuleysi í Sviss veldur svartsýni: Svisslendingar hafa lengi bú- iÓ vib efnahagslega velsaeld og atvinnuöryggi. Þab er því engin furba ab atvinnuleysi og samdráttur setji þá út af lag- inu. Þeir sérfræbingar sem treysta sér til ab spá í framtíöina þar á bæ fullyröa ab Svisslendingar eigi eftir ab láta í minni pokann fyrir helstu keppinautum sín- um. Henner Kleinewefers, efna- hagssérfræöingur í Friborg, segir ab allir þeir hópar samfélagsins sem máli skipti séu komnir í skotgrafahemaö og leggi allt upp úr því aö verja stööu sína í staö þess aö sækja fram. Silvio Borner, virtur hagfræb- ingur í Basel, bendir á aö nauö- synlegar efnahagsumbætur komist ekki til framkvæmda. Svissneski stöðugleikinn hefur breyst í stöbnun. Þjóöin viröist sama sinnis. Samkvæmt skoöanakönnun Gallup- stofnunarinnar töldu aöeins 27 af hundraöi aö þeim myndi vegna betur í ár en á síö- asta ári. Þetta breytir ekki því aö Sviss er enn sem fyrr eitt ríkasta land veraldar. Skuldir ríkisins em enn vel viöráöanlegar þó að þær hafi aukist nokkuö aö undan- förnu, svissneskar verksmiðjur em nýtískulegar og vinnuafliö er vel menntað. Samdrátturinn er aöallega í fólksfrekum grein- um eins og fata- og málmiðnaði og í byggingariönaöinum. Þar bitnar hann fyrst og fremst á ómenntuðu starfsfólki. Upp- sagnir og hagræöing em boðorb dagsins. Þó að atvinnuleysið hafi ekki veriö meira svo áratugum skipt- ir þá er þaö ekki nema rúm fimm prósent en í nágranna- löndunum þætti slíkt víst vel viðunandi. Svissneski gjaldmib- illinn er sterkur og vextimir em lágir. Þjóöarsátt úr sögunni En tölurnar blekkja - í sálarkytr- um Svisslendinga ríkir þung- lyndi. Meirihluti þjóöarinnar telur sig útilokaöan frá hagsæld og gróöa. Fólkiö sér hvemig bankar og tryggingafélög hagn- ast og tölur um gróöa iönfyrir- tækja fara síhækkandi. Fyrirtæki í efnaiðnaöi, matvælaiðnaöi, úraframleiðslu og vélsmíði græöa á tá og fingri. Gróðinn skilar sér þó ekki til launþeganna. Launin halda ekki einu sinni í viö verðbólg- una en þaö hefur hingaö til þótt sjálfsagt mál. í vikublaðinu „Die Weltwoche" hélt leiðarahöf- undur blaösins því nýlega fram að „eftirstríösáragróbinn" væri uppétinn. Svona fullyröingar vekja skilj- anlega gremju almennings. Þrátt fyrir staöhæfingar um annað er ríkidæmi óvíöa eins misskipt og í Sviss. Sá fimmt- ungur þjóöarinnar sem fær minnst í sinn hlut telst hafa yfir að ráða minna en fimm af hundraöi þjóðarteknanna á meöan þau tuttugu prósent sem hafa þaö best fá tæplega helm- ing þjóöarteknanna í vasa sinn. Til 'samanburöar má geta þess aö í Þýskalandi fær fátækasti fimmtungurinn tæplega sjö prósent í sinn hlut og ríkasti hlutinn vel innan viö 40 pró- sent. Svisslendingar hefðu hvorki í vöku né draumi látið þaö hvarfla aö sér aö markaðsbú- skapurinn gæti leikið þá svona Álver í svissnesku Ölpunum. Svisslendingar að missa s j álfs traus tið Atvinnuleysið í sviss- nesku kanlónunum Jl’ýski hluti Sviss |Fjöldi atvinnu- llausra: 110 204 lí prósentum 4,2 • Bem "í ‘ . l3usanne Vestur-Sviss og Tessin' Fjöldi atvinnl. 77 963 hlutfall í prósentum 7,7 ettuverksmiðjan á hausinn og til að kóróna allt saman rúllaöi rafiðnaöarfyrirtæki í bænum yf- ir um eftir að hafa hætt sér út á hálan ís í fasteignaviðskiptum. Það er ekki nema nokkur ár síð- an Waadt var blómlegasta kant- óna landsins. Á níunda áratugn- um bættust rúmlega 60 þúsund ný störf við í Waadt en á síðasta ári fóru aftur á móti 700 fyrir- tæki á hausinn. Rúmlega átta af hundraði eru atvinnulausir í kantónunni. Ástandiö er svipað í Genf. Þar er eymdin sérstak- lega áberandi vegna glæsileika og íburöar þeirra sem einhvers mega sín. Atvinnulausir banka- ÚTLÖND grátt. Allt frá árinu 1937 þegar málmiðnaðarmenn og starfs- fólk í úraverksmiðjunum afsal- aöi sér verkfallsréttinum í samn- ingum viö atvinnurekendur, hafa Iaunþegar í Sviss getað treyst á félagslegan stuöning vinnuveitenda. Af ofangreindu má ljóst vera að sú „þjóðarsátt" sem ríkt hef- ur í landinu er úr sögunni. Þeg- ar kreppt hefur að svissneskum fyrirtækjum á liönum áratugum hefur ekki verib gripiö til rót- tækari aögerða en aö stytta vinnutímann tímabundib. Nú er fólki sagt upp störfum viö svipaðar kringumstæöur og ekki ráðið aftur þó að hagur viökom- andi fyrirtækis vænkist. Fjöldi þeirra sem þurfa á opin- berri aöstoð ab halda eykst stöb- ugt. Talið er aö þrír af hundraöi Svisslendinga lifi undir fátækr- armörkunum. Á götum borga og bæja eru betlarar og heimilis- lausir dagleg sjón. Genf nærri gjaldþrota Kreppan hefur koniiö sérstak- Húsnœbisauglýsingar í Sviss: Fátœkt mitt í auölegöinni. lega hart niöur á þeim sem búa í Wallis og vesturhluta lándsins þar sem frönskumælandi hluti þjóöarinnar býr. í ferðamanna- bænum Vevey í kantonunni Waadt við Genfarvatn er 15% atvinnuleysi. Það dugar auösjá- anlega ekki til þó aö fjölþjóða- fyrirtækið Nestlé sé með aöal- stöövar sínar í bænum. Hruniö hófst þegar vagnasmiöja bæjar- ins varð að loka vegna verkefna- leysis. Skömmu síðar fór sígar- menn, auglýsingafólk og fólk í byggingariðnaöi sækir í fá- tækrarhjálpina og margir þeirra sem höföu þaö gott fyrir nokkr- um ámm þurfa nú aö gista í tómum jámbrautarvögnum yfir nóttina. Borgin sem hýsir fundarstabi Sameinuöu þjóðanna er því sem næst gjaldþrota. Enn sem kom- iö er hefur það ekki nægt til aö borgaryfirvöld taki vib sér og grípi til aðgerða. Þaö eina sem þeim hefur dottið í hug er slag- oröið „Uppbyggingin byrjar í höfðinu". Þetta á aö hressa upp á dapra stemmninguna sem nú ríkir í Genf. Ótti fólks við þaö sem framtíð- in kann að bera í skauti sínu kemur í veg fyrir að þaö aðhafist nokkuö og ekki bætir kok- hreysti atvinnurekenda úr skák sem nota öll tækifæri til að lýsa því yfir aö nú verði að skera niö- ur velferöarkerfiö. Efnahagskreppan hefur líka breytt leikreglum stjómmála- lífsins. Hingað til hefur ríkt ótrúleg eining imi stjórn lands- ins og varla veriö hægt aö tala um stjómarandstööu í hef- bundnum skilningi. Undanfar- iö hefur þetta breyst og óvænt átök hafa brotist út milli misvel skilgreindra stjómmálaafla. Svisslendingar virðast hafa misst sjálfstraustið. Þeir halda sig heima og spara viö sig sem mest þeir mega. Allar frámtíðar- spár benda til minnkandi neyslu, samdráttar og stöönun- ar. Útlitið virðist vægast sagt dökkt allsstaðar nema hjá bönk- unum. Þeir geta nuddaö saman höndum því almenningur hefur tekiö til viö aö spara. A síöasta ári jókst spamaöur Svisslend- inga um fjóröung og nam sem svarar ellefu milljörðum ís- lenskra króna. Nýlega bámst samt þau gleöi- legu tíöindi aö spamaöarham- urinn væri mnninn af þjóðinni og hún væri farin að snúa efna- hagslífinu meö aukinni neyslu. Þau leiöindi fylgdu þó meö þessum upplýsingum, aö raun- tekjur fólks fæm minnkandi. Silvio Bomer segir aö sviss- neska þjóöin sé eins og skjald- baka á hvolfi. Henner Kleinewe- fers segir efnahagsbata ekki fyr- irsjáanlegan. Hann segir ástand- iö ekki nógu slæmt til að hreyfa almennilega viö fólki. Der Spiegel/ÁÞÁ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.