Tíminn - 16.03.1994, Síða 9
Miövikudagur 16. mars 1994
Simymf
9
Fiskveibideila
Norömanna og
ESB líklega leyst
Brussel, Reuter
Þegar Tíminn fór í prentun
benti flest til þess aö deila
Norömanna og Evrópubanda-
lagsins um fiskveiðar Spán-
verja í norskri lögsögu, væri að
leysast.
Jacques Poos, utanríkisráö-
herra Lúxemborgar, greindi
frá því síðdegis að lítið vantaði
upp á að samningar næðust.
Hann sagði að vel horfði með
samkomulag um að breyta
fjölda þeirra atkvæða sem
nægðu til að stöðva mál í ráð-
herraráöi EB.
Poos sagði að það væru tíu á
móti tveimur. Bretar og Spán-
verjar em einir um aö viija
hafa óbreyttan fjölda atkvæða
en með því móti geta þeir
haldið áhrifum sínum. Sam-
kvæmt núgildandi fyrirkomu-
lagi þarf um þriöjung atkvæða
til að stöðva mál í ráðinu en ef
Bretar og Spánverjar ná sínu
fram þarf aðeins fjórðung til
að koma í veg fyrir að mál nái
Austur-Asíu-
félagið skilar
aftur arbi
Kaupmannahöfn, Reuter
Danska verslunar- og skipafyr-
irtækið Austur-Asíufélagið skil-
aði aröi í fyrra eftir að hafa tap-
að miklu fé á liðnum ámm.
Formælandi félagsins greindi
frá því í gær að hagnaður fé-
lagsins hefði verið sem svarar
einum og hálfum milljarði ís-
lenskra króna. Árið 1992 tapaði
félagið aftur á móti nærri tíu
milljörðum íslenskra króna.
Innan Austur-Asíufélagsins
hefur verið' unniö aö endur-
skipulagningu og hagræðingu
og telja forráöamenn fyrirtæk-
isins að svo vel hafi til tekist að
vænta megi aukins gróða í ár
frá því sem var á síðasta ári. ■
fram að ganga. Viömiðunin er
að tvö „stór" ríki og eitt „lítið"
geti sameinast um að hefta
framgang mála. Ef Bretar og
Spánverjar standa fastir fyrir
verður svo áfram þó að aðild-
arríkjunum hafi fjölgað um
fjögur.
Klaus Kinkel, utanríkisráð-
herra Þýskalands, sagöi að við-
ræðumar hefðu enn sem kom-
ið er verið árangurslausar.
Hann væri þó ekki tilbúinn til
að gefast upp.
Kinkel sagðist ekki telja rétt
að boða til sérstakrar ráðstefnu
til að leysa vandann sem hefði
skapast vegna stækkunar
bandalagsins. ■
Stund milli stríba
Reuter
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, var í sólskinsskapi þegar Margrét Þórhildur Danadrottning kom íheimsókn
ásamt Hinriki manni sínum. Kohl hefur ekki átt sjö dagana sœla oð undanförnu og flest bendir til þess oð hann
veröi oð sœtta sig vib ab flokkur hans, Kristilegir demókratar, tapi í flestum þeirra 19 kosninga sem verba í
Þýskalandi á árínu.
ESB ætlar að herða bar-
áttuna gegn svindli
Brussel, Reuter
Rene Steichen, sem fer með
landbúnaðarmál innan fram-
kvæmdastjórnar Evrópu-
bandalagsins, segir að banda-
lagið ætli að herða baráttuna
gegn þeim sem misnota
styricjakerfi landbúnaðarins.
Það gildi jafnt um fyrirtæki
sem einstaklinga.
í síðasta mánuði gagnrýndu
endurskoöendur reikninga
bandalagsins framkvæmda-
stjómina og stjómir aðildar-
ríkjanna fyrir að aðhafast ekk-
ert til ab stöbva þá sem not-
færðu sér landbúnaðarstyrkja-
kerfi Evrópubandalagsins með
ólöglegum hætti. Landbúnað-
arkerfi EB veltir sem svarar
þrjúþúsund milljörðum ís-
lenskra króna.
Hugmyndin er að setja nöfn
þeirra sem svíkja fé út úr „kerf-
inu" á svokallaban svartan
lista. Á listann á líka að setja
nöfn þeirra sem em gmnabir
um að hafa náð sér í landbún-
aðarstyrki með ólögmætum
hætti. Landbúnaðarráðið þarf
að samþykkja þessa tilhögun
mála eftir að Evrópuþingið
hefur fjallað um málið.
Þó að framkvæmdastjómin
rannsaki meint svindl í land-
búnaðarstyrkjakerfinu kemur
það í hlut einstakra ríkja ab
refsa þeim sem hafa gerst brot-
legir. Á því hefur oft orðið mis-
brestur.
Kínverjar vilja vera stofna
abilar ab arftaka GATT
Genf, Reuter
Krafa Kínverja um að vera með í
hópi stofnaðila WTO, „World Tra-
de Organisation", nýtur stuönings
helstu viðskiptavina þeirra. Banda-
ríkjastjóm er þó ekki með í þeim
hópi.
Kínverjar sóttu um aðild að GATT
um það leyti sem Úrúgvæ-lotan
hófst árið 1986. Helsta hindrunin í
vegi fyrir abild þeirra er gagnrýni
Bandaríkjastjómar vegna mann-
réttindabrota kínverskra stjóm-
valda.
Kínverjar sögðu sig úr GATT eftir
að kommúnistar tóku völdin í land-
inu árið 1949. Þeir em nú meðal
þeirra 20 þjóöa sem sótt hafa um
aðild. Eitthundrub og sautján ríki
eiga abild að GATT. Þau munu telj-
ast stofnaðilar ab WTO þegar stofn-
unin tekur til starfa árið 1995. ■
Atkvæða-
vægisdeilan
ab leysast
Brussel, Reuter
Javier Solana, utanríkisráð-
herra Spánar, segir að Bretar séu
nálægt því að fallast á tillögu
Spánverja um lausn I atkvæða-
vægisdeilu ráðherrarábs Evr-
ópubandalagsins.
Bretar og Spánverjar em and-
vígir ákvöröun hinna Evrópu-
bandalagsríkjanna tíu um að
hækka hlutfall atkvæba sem
nauösynlegt er til að stöbva
mál í ráðinu úr 23 í 27.
Hækkunin fylgir fjölgun í ráö-
herraráðinu, við aöild Austur-
ríkis, Finnlands, Svíþjóðar og
Noregs að Evróupbandalaginu,
úr 76 í 90.
Tillaga Spánverja gerir ráð fyr-
ir því ab hlutfalliö verði hækk-
ab en ef þrjú ríki hafi samtals 23
atkvæði geti þau stöðvað mál.
Þetta er svipab fyrirkomulag og
nú er í gildi og því ólíklegt aö
ríkin tíu geti fallist á hugmynd-
ina þó að Bretar sætti sig við
hana. ■
Óþekktar
myndir af
Marilyn
Reuter
Myndirnar hér ab ofan voru tekn-
ar af Marilyn Monore árib 1957
af Ijósmyndaranum Richard Aved-
on.
Tímaritib The New Yorker stillti
þeim upp í anddyri Bel Air hátels-
ins í tilefni þess ab blabib cetlar ab
tileinka nœsta tölublab Hollywood
og kvikmyndaheiminum.