Tíminn - 26.03.1994, Síða 6
6
VMmi
Laugardagur 26. mars 1994-
Kagyr&ingaþáttur
Æijá
Út í sandinn vor róttœkni rennur.
Loginn rauöi við slitranda brennur.
Ogímakindadá
falla markmiðin há.
Hann Megas er kominn fneð tennur.
Þessi ágæta limra er úr nýrri bók, Jónasarlimrum, sem
inniheldur hvorki meira né minna en 140 limrur Jónas-
ar Árnasonar. Og fyrst farið er að glugga í þennan
skemmtilega kveðskap kemur hér önnur.
Stuttorður ráöherra
Hvort heldur hann svarar „humm"
eða „hummhumm" og „summsumm" og „dumm"
pað eftir því fer
hvers eðlis það er
sem fréttamenn inna hann um.
Stjórnmálin eru hagyrðingum hugstæð um þessar
mundir enda margt að gerast á þeim vettvangi. Kenn-
araskólanemar sendu eftirfarandi.
Á uppleið
Markúsi steypt afstóli var.
Slátrað fyrir kosningar.
íhalds töldu afglapar
aftöku til framdráttar.
Eftirfarandi vísa fannst í pósthólfi Tímans.
Skjálfti
Atkvœðastríð er afhörku háð
Heimdallur skelfur afótta.
Borgarstjóri afdirfsku og dáð
dauðhræddur lagði á flótta.
J.B.
Aðalsteinn Sigurðsson orti eftirfamdi stjómmálavísur.
Fóm
Margskonar óreiða átti sér stað
því yfirvöld gátu ekki stjómað.
Sjálfstæðismönnum sámaði það
og síðan var Markúsi fómað.
Engilbert Guðmundsson yrkir:
Fyrirmenn
Feginn vil ég finna þá
sem fyrirrúmin byggja,
skal ei láta skatna sjá
skutinn eftir liggja.
Botnar
Sami sendir botn við gamlan fyrripart.
„Hljóma finnst mér furðu snjallt
jferskeytlunnar háttur."
Ljóma tvinnast víst ávallt
vel sé spunninn þáttur.
G.J. sendi þennan botn.
Atómsbullið verður valt
en vísan orða máttur.
H.P. botnar.
Þökk sé henni þúsundfalt, ,
þjóðar æðarsláttur.
eða
Þjcðar dýrsti háttur
eöa
þjóðarinnar máttur.
Búi botnar erfiðan fyrripart með sóma og er þá vísan
þannig:
Öld er köld með vaxtavöld
veldur höldum tjóni.
Nöldrar f/öldinn, geysi gjöld
geldur Sköldungs flóni.
Og sami sendir nýjan fyrripart.
Nálgast vorið norðurslóð,
nepjan burtu víkur.
Yrkið vel og skrifið greinilega.
Botnar og vísur sendist til Tímans
Stakkholti 4.
105 Reykjavík. P.s. SKRIFIÐ GREINILEGA!
Póstmannafélagið 75 ára
Póstmannafélag íslands held-
ur upp á 75 ára afmæli sitt í
dag í Sigtúni viö Austurvöll
frá klukkan 17-19. Allir póst-
menn og aðrir velunnarar fé-
lagsins eru hvattir til að
mæta í afmælisfögnuðinn.
Póstmannafélagið, sem er eitt
elsta stéttarfélagið innan BSRB,
var stofnað þann 26. mars 1919
og áttu þá ellefu póstmenn í
Reykjavík aðild að því. Fyrsti
formaður Póstmannafélagsins
var Þorleifur Jónsson sem síðar
varö póstmeistari í Reykjavík. í
dag eru félagsmenn rúmlega
eitt þúsund og starfa þeir á um
100 pósthúsum um land allt.
Stofnun Póstskólans árið 1968
var mikilvægur áfangi fyrir
póstmannastéttina. í skólanum
hljóta póstmenn aukna þjálfun
og menntun í starfi en sérhæfð-
ar reglur og alþjóöasamningar
sem póstmenn þurfa aö kunna
skil á verða sífellt fjölþættari.
Margir póstmenn hafa lokiö
námi í skólanum sem veitir
þeim viöurkenningu til ákveö-
inna starfa innan Pósts og
síma. Meginverkefni forystu-
manna félagsins hafa frá fýrstu
tíb veriö kjara- og samningamál
Fulltrúaráð Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga telur að
sameining sveitarfélaga sé ein
áhrifamesta leiðin til aö efla
sveitarstjómarstigib og auka
hagkvæmni og skilvirkni í
rekstri sveitarfélaga.
Hinsvegar leggst fulltrúaráðið
gegn því að sameining sveitar-
félaga veröi framkvæmd með
því aö hækka lágmarksíbúa-
fjölda í hverju sveitarfélagi.
en markmiö félagsins er óbreytt
frá upphafi, þ.e. að bæta hag
póstmanna og gæta hagsmuna
þeirra. Formaöur Póstmannafé-
lagsins er Lea Þórarinsdóttir. ■
Að mati ráösins sýnir niður-
staða kosninganna í nóvember
sl. að meirihluti landsmanna er
fylgjandi sameiningu sveitarfé-
laga. Því mun umræðan um
hlutverk sveitarstjómarstigsins
og framtíðarskipan stjómsýsl-
unnar í landinu halda áfram og
em sveitarstjómir hvattar til að
hafa áfram frumkvæðið í þeirri
umræðu.
-grh
Sameining sveitarfélaga:
Eykur hagkvæmni
og skilvirkni
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
28. MAÍ1994
Leiðbeiningar um undirbúning og framkvæmd
1. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla mun hefjast fyrsta virka dag eftir 2. april, þ.e. 5. apríl
2. Krafa um bundnar hlutfallskosningar í sveitarfélagi með 300 íbúa eða færri
berist oddvita yfirkjörstjómar bréflega eigi’síðar en........v..................16. apríl
3. Sveitarstjómarmaður, sem skorast undan endurkjöri, skal tilkynna yfirkjörstjóm
þá ákvörðun sína eigi síðar en..................................................23. april
4. Framboðsfrestur rennur út kl. 12 á hádegi......................................30. apríl
5. Framlengdurframboðsfrestur, efaðeins kemurfram einn listi, rennurút............ 2. mai
6. Kjörskrá skal lögð fram eigi síðar en.......................................... 4. maí
og skal framlagning hennar auglýst fyrir þann tíma.
7. Kjörskrá skal liggja frammi til kjördags.
B. Kærufrestur til sveitarstjómar vegna kjörskrár rennur út kl. 12 á hádegi.......14. maí
9. Yfirkjörstjóm auglýsir framboðslista þegar eftir að listar hafa verið úrskurðaðir
gildir og merktir.
10. Afrit kæru sendist þeim sem kærður er út af kjörskrá eigi síðar en.............17. mai
11. Sveitarstjóm úrskurðar kærur eigi siðar en.....................................21. maí
12. Oddviti sveitarstjómar eða framkvæmdastjóri hennar undirritar kjörskrá.
13. Sveitarstjóm tilkynni hlutaðeigandi, svo og sveitarstjóm sem mál getur varðað, um breytingar
á kjörskrá strax og úrskurður liggur fyrir.
14. Sveitarstjóm skal senda oddvita yfirkjörstjómar eintak af kjörskrá þegar kjörskráin hefur verið
endanlega undirrituð.
15. Kjörstjóm tilkynni oddvita yfirkjörstjórnar, svo og sveitarstjórn sem mál getur varðað,.um
breytingar á kjörskrá strax og dómur er genginn.
16. Yfirkjörstjóm auglýsir hvenær kjörfundur hefst.
17. Kjörfundi skal slíta eigi síðar en kl. 22 á kjördag.
18. Yfirkjörstjóm auglýsir hvar og hvenær atkvæðatalning verður með nægum fyrirvara á undan
kosningum.
19. Atkvæðatalning hefst svo fljótt sem unnt er að loknum kjörfundi.
20. Yfirkjörstjóm setur notaða atkvæðaseðla undir innsigli að talningu lokinni, þegar kosning er
óbundin.
21. Kæra vegna kosninganna skal afhent hlutaðeigandi sýslumanni innan sjö daga frá þvi að lýst
var úrslitum kosninga.
22. Yfirkjörstjóm eyðir innsigluöum atkvæðaseðlum að kærufresti loknum eða að fullnaðarúr-
skurði uppkveðnum hafi kosning verið kærð þegar kosning er óbundin, sbr. nr. 19.
23. Kjörstjóm skal gefa út kjörbréf til aðalfulltrúa í sveitarstjóm og varamanna þeirra og senda
nýkjörinni sveitarstjóm greinargerð um úrslit kosninganna.
Félagsmálaráðuneytið, 24. mars 1994.