Tíminn - 26.03.1994, Blaðsíða 11
Laugardagur 26. mars 1994
8Mwn
n
ur áður en hann komst niður á
Philip Marlowe, sem færði
honum fé og frægð. Og áður en
lauk fór hann nánast um hann
orðum sem einn riddara hring-
borösins: „Mergur málsins er,
að spæjarinn er til staðar, heill
og allur og samur, á hverju sem
gengur, þ.e.a.s. sem spæjari ut-
an og ofan sögunnar, og verður
það alla tíð. Þess vegna hlýtur
hann aldrei stelpuna né kvænt-
ist né á sér einkalíf utan það að
matast og hvílast og að hafa
stað fyrir fötin sín. Það er sið-
ferðilegur og andlegur styrkur
hans að bera aldrei annað úr
býtum en þóknun sína, en fyrir
hana verndar hann saklausa;
gætir hjálparvana og tortímir
hinum illu. Og það, að þetta
leggur hann fyrir sig gegn rýr-
um launum í spilltum heimi,
upphefur hann."
The Boy Who Would Be King, eftir Earl
Greenwood og Kathleen Tracy. A Signet
Book, £4,99.
Elvis Presley var ein goðvera
ódáinsvallanna í Hollywood.
Frá honum segir í bók þessari
frændi hans, Earl Greenwood
(en amma hans var föðursystir
Elvis), og nýtur aðstoðar blaða-
konu, Kathleen Tracy. Segja
má, að þeir hafi alist upp sam-
an og fylgst að fram yfir tvítugt
(en síðar varð Greenwood einn
aðstoðarmanna söngvarans),
og er óvíst aö kostur sé á betri
frásögn af uppvaxtarárum Elvis
Presley. í síðari hluta bókarinn-
ar er nærfærni minni, þótt af
kunnugleika sé frá sagt. Að
nokkru marki virðist frásögnin
þó stílfærð.
Elvis Presley var fæddur 8.
janúar 1935 í smábæ í Miss-
issippi, Tupelo, sem hafði þá
um sex þúsund íbúa. Forfaðir
LISCOP
Klippur fyrir sauðfé,
nautgripi og hesta.
•
Drykkjarker, drykkjarstútar,
hitalampar.
•
Úrval varahluta og aukahluta
ÁRÆÐIHF.
Höfðabakka 9,112 Reykjavfk.
Simi: (91)67 00 00. Fax: (91)67 43 00.
Stokke tripp trapp
Stóllinn sem vex
með barninu
5 ára ábyrgð
Sama verð og annars staðar
á Norðurlöndum
kr. 9.760,-
Faxa,ení 7
wfrCII s. 687733
Sendum í póstkröfu
um allt land
Fréttir af bókum
hans í karllegg, skoskur járn-
smiður, hafði sest að í Norður-
Karólínu 1745. Elvis var ein-
bimi (en tvíburabróðir hans dó
í fæðingu). Faðir hans var
verkamaður, laus í rásinni á
yngri árum, og móðir hans
vann öðru hverju úti. Bjuggu
þau við fátækt, en nutu nokk-
urs stuðnings efnaðs ættingja.
Fluttust þau til Memphis, þegar
Elvis var fjórtán ára gamall, og
leit hann á þann bæ sem
heimabæ sinn. Þar gekk hann í
fjölbrautaskóla, sem hann út-
skrífaðist úr 1953. Á bams- og
unglingsárum vakti hann
a.m.k. tvívegis athygli fyrir
söng sinn - 8 ára gamall á hér-
aðsskemmtun og síðar í keppni
í fjölbrautaskólanum - en
hann virðist ekki á unglingsár-
um hafa stefnt að því að leggja
fyrir sig söng. Og tók hann
starf sem vörubílstjóri fyrst í
stað.
Fljótlega fór Elvis Presley að
syngja á veitingastöðum við
góðar undirtektir, og inn á
fyrstu plötu sína söng hann
þegar 1953. Önnur plata hans
var út gefin í janúar 1955.
Réttu ári síðar, í janúar 1956,
valdi Cashbox hann besta nýja
„country and western" söngv-
arann, og RCA-plata hans,
„Heartbreak Hotel", hlaut met-
sölu. Frægðarferill hans var
hafinn.
PÓSTUR OG SÍMJ
Útboð
Tilboð óskast í innréttingar og frágang húsrýmis á 1.
hæð við Hofsvallagötu 53.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu fasteignadeildar,
Pósthússtræti 5, frá og með þriðjudeginum 29. mars
1994, gegn 10.000,- króna skilagjaldi.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu fasteignadeildar
þriðjudaginn 19. apríl 1994 kl. 11:00.
Reykjavík, 24. mars 1994,
Póst- og símamálastofnunin.
BILAHUSIÐ
Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2
Sími: 67 48 48 Opið laugardag 10-17 sunnudag 14-17
Bílheimar Fosshálsi 1 - Borgarbílasalan Grensásvegi 11
BG bílasalan Keflavík - Betri bílasalan Selfossi - Bílasala Vesturlands -
Bifreiðaverkstæði Sig. Valdimarssonar Akureyri -
Lykill Reyðarfirði - Emir ísafirði