Tíminn - 29.03.1994, Síða 3
Þriðjudagur 29. mars 1994
flwlww
3
Fermingarböm
stela áfengi af
lögreglu
Nemendur í 8. bekk grunn-
skólans í Ólafsfirbi tóku
ófrjálsri hendi fiösku af sterku
víni þegar þau voru í kynnis-
ferö á lögreglustöö bæjarins
fyrir skömmu.
Atvikiö átti sér stað þegar lög-
reglumaður sem kennir böm-
unum jafnframt umferðar-
fræðslu í skólanum, fór meö
þau í skoðunarferð á lögreglu-
stöðina. Eftir að skoðunarferð-
inni lauk, var athugað hvort all-
ir hlutir væm á sínum stað og
kom þá í ljós að vantaði vín sem
gert hafði verið upptækt og var í
geymslu á staðnum. Við nánari
eftirgrennslan kom í Ijós að
tveir af 27 nemendum sem vom
í heimsókn höfðu tekið flösk-
una og laupiað henni út bak-
dyramegin og falið hana þar í
snjóskafli.
Bömin fermast á þessu vori og
séra Svavar Jónsson, prestur í
Ólafsfirði, segir það orðið tíma-
bært að hreinskilin umræba fari
fram innan kirkjunnar og í
þjóöfélaginu almennt um ferm-
inguna og gildi hennar. „Mér
finnst líka tímabært ab menn
fjalli í hreinskilni um æsku
landsins," sagði Svavar í gær.
„Þetta em síst verri einstakling-
ar nú en áður, en mér finnst að
það þurfi ab fara fram víbtæk
umræba um siðferöi unglinga.
Þessi gömlu sjálfsögöu gildi em
farin að láta á sjá og þar er ég
ekki að taka unglingana neitt út
úr. Það læra bömin sem fyrir
þeim er haft. Ég er viss um að
þeir einstaklingar sem þama
áttu í hlut muni læra af þessum
mistökum."
-ÁG
Sameiginlegt vinstra
frambob í Eyjum
Alþýðubandalag, Alþýbuflokkur
og Framsóknarflokkur í Vest-
mannaeyjum bjóða fram sam-
eiginlegan lista fyrir bæjar-
stjórnarkosningamar í vor og
ber hann heitið Vestmanna-
eyjalistinn og verður hann með
listabókstafinn V. Listann skipa
eftirtaldir aöilar:
1. Guðmundur Þ. B. Ólafsson, tóm-
stunda- og íþróttafulltrúi
2. Ragnar Óskarsson, kennari
3. Svanhildur Guðlaugsdóttir, ræst-
ingastjóri
4. Guðný Bjamadóttir, ljósmóðir
5. Guðmunda Steingrímsdóttir, for-
stööumaður
6. Skæringur Georgsson, fram-
kvæmdastjóri
7. Láms Gunnólfsson, stýrimaður
8. Hörður Þóröarson, leigubílstjóri
9. Stefán Jónasson, verkstjóri
10. Guðrún Erlingsdóttir, formaður
Verslunarmannafélags Vestmanna-
eyja
11. Katrín Freysdóttir, leiðbeinandi
12. Þuríður Bemódusdóttir, fisk-
verkandi
13. Vilhjálmur Vilhálmsson, vakt-
maður
14. Róbert Marshall, nemi
ÓB
Nokkrir frambjóbendur Neslistans. F.v. Högni Oskarsson, Katrín Pálsdóttir, Eggert Eggertsson, Siv Fribieifsdóttir
og Sverrir Ólafsson. Tímamynd cs
Bobib fram undir
nafni Neslistans
.Bæjarmálafélag Seltjamarness
hefur gengib frá framboði Nes-
listans fyrir komandi sveitar-
stjórnarkosningar á Seltjamar-
nesi. Bæjarmálafélagib hefur átt
tvo bæjarfulltrúa af sjö á þessu
kjörtímabili. Siv Friöleifsdóttir,
bæjarfulltrúi og oddviti Neslist-
ans, sagði í samtali við blaða-
mann Tímans að Bæjarmálafé-
lagib væri einstaklingsfélag en
ekki flokksfélag og í félaginu
væri bæði starfandi flokksbund-
ið og óflokksbundið fólk. Mjög
góð samstaöa hefði ríkt mebal
félagsmanna og frambjóðenda á
því kjörtímabili sem nú er að
líða og þrátt fyrir mikinn
minnihluta í bæjarstjóminni
hefði félaginu tekist að hafa
áhrif á mörg mikilvæg málefni,
eins og t.d. að stöðva fyrirhug-
aöar byggingaframkvæmdir á
svæðinu í kringum Nestjörn og
Nesstofu. Bæjarmálafélagiö
gekkst fyrir borgarafundi um
málið og í framhaldi af honum
var gerö skoðanakönnun meðal
íbúanna sem leiddi í ljós mikla
óánægju mebal bæjarbúa meb
fyrirhugaðar framkvæmdir.
Þetta varð til þess að bæjaryfir-
völd breyttu skipulaginu og er
nú gert ráö fyrir 24 húsum i
staðinn fyrir 94 hús ábm, þrátt
fyrir að meirihluti bæjarbúa vilji
engar byggingar á svæðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur
þama þvert á vilja meirihluta
bæjarbúa. Neslistinn finnur fyr-
ir miklum meðbyr og stuðningi
frá íbúunum og er það meðal
annars ein ástæðan fyrir því að
ákveðib hefur verið að bjóða
fram sameiginlegan lista óháb-
an venjulegri flokkapólitík.
Það er markmib Neslistans að
ná þriðja manninum inn og
skerpa þannig betur skilin í bæj-
arpólitíkinni.
Neslistinn:
1. Siv Friðleifsdóttir, sjúkraþjálfari
2. Eggert Eggertsson, lyfjafræðingur
3. Katrín Pálsdóttir, hjúkrunarfr.
4. Högni Óskarsson, læknir
5. Amþór Helgason, deildarstjóri
6. Sunneva Hafsteinsdóttir, kennari
7. Sverrir Ólafsson, rafmagnsverk-
fræðingur
Tillögur Sjálfstœöisflokksins í Reykjavík í atvinnumálum kynntar:
Skapa þarf 6000 störf
fyrir aldamót
Markmið Sjálfstæöisflokksins í
Reykjavík í atvinniunálum er ab
sköpub verbi sex þúsund ný störf
fyrir árib 2000. Gert er ráb fyrir
því ab átaksverkefni verbi áfram
notub til ab draga úr afleibingum
atvinnuleysis á sama tíma og auk-
in áhcrsla verbur lögb á langtíma-
abgerbir til ab stubla ab þrótt-
meira atvinnulífi í framtibinni.
Þetta er liöur í tillögum Sjálfstæb-
isflokksins í atvinnumálum fyrir
borgarstjómarkosningamar í vor.
Ámi Sigfússon borgarstjóri kynnti
tillögur Sjálfstæðisflokksins í gær
en þær kallar hann „tíu lykla að
nýjum tímum". í tillögunum kem-
ur fram að Sjálfstæðismenn ætla
ekki að einkavæða þjónustufyrir-
tæki í eigu Reykjavíkurborgar en
leitaö verði leiöa til að ná fram auk-
inni skilyirkni í rekstri. Þá er stefnt
að því að koma á samstarfsvett-
vangi aðila úr atvinnulífi til að
móta atvinnustefnu til aldamóta.
Af tíu lyklum Sjálfstæöisflokksins
má néfna hugmynd um aö treysta
ímynd Reykjavíkur sem heilsuborg-
ar sem gefi aukna möguleika í ferða-
mannaþjónustu. Áhersla er lögð á
smáfyrirtæki sem vaxtabrodd í at-
vinnulífinu og nauðsyn þess að
innkaup borgarinnar taki miö af efl-
ingu innlends iðnaöar. Sjálfstæðis-
menn hvetja til breytinga á skatt-
kerfinu til að efla atvinnulífið. Þeir
vilja að sérstakur skattur á verslun-
ar- og skrifstofuhúsnæði verði lagð-
ur niður og fýrirtækjum og einstak-
lingum verði gert kleift með skatt-
kerfisbreytingum að leggja fé í þró-
unarverkefni og
atvinnuuppbyggingu. Þá telja þeú
grundvallaratriði að fjárfestingar í
atvinnulífinu hafi forgang og leyfð-
ar verði flýtifymingar til aö hvetja
fyrirtæki til ab hraba fjárfestingum
sínum. Borgarstjóri hefur óskað eft-
ir viðræðum vib ríkisvaldið um
þessar breytingar en vibræður eru
þegar hafnar um skattfrelsi þróun-
arverkefna. í tillögunum er einnig
hvatt til frekara samstarfs borgar-
innar, atvinnulífsins og Háskólans
í
•' ÍX-J Iiirmí '• • Wm! i frimlir i ImmMS '^■K ■ a
Borgarstjórínn ímibrí svibsmynd Atvinnumálakynningar sinnar ígœr. Blaba-
mannafundur Arna var haldinn í Kaffivagninum á Cranda. Tímamynd cs
og ab fyrirtæki í borginni fái stuðn-
ing við verkefnaútflutning.
Jafnhliða langtímaverkefnunum
hyggjast sjálfstæðismenn setja af
stað átaksverkefni til að draga úr af-
leiðingum atvinnuleysis. Stefnt er
að því ab tólf hundruð atvinnu-
lausra fái vinnu á næstu vikum í
framhaldi af samþykkt borgar-
stjómar frá 3. mars síðastliðnum.
Verið er að vinna ab hugmyndum
um fjármögnun verkefna í því sam-
bandi.
-GBK
8. Omar Siggeirsson, verslunarstjóri
9. Laufey Steingrímsdóttir, næring-
arfræðingur
10. Guðmundur Sigurbsson, læknir
11. Anna Guðmundsdóttir, há-
skólanemi
12. Valgerður Janusdóttir, kennari
13. Jóhann Pétur Sveinsson, lög-
fræðingur
14. Guðrún Þorbergsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
ÓB
Neytendasamtökin:
Vara vi& smá-
hlutum inni í
páskaeggjum
Neytendasamtökin hafa sent frá
sér áminningu til foreldra og selj-
enda lítilla pákaeggja með smá-
hlutum í, þar sem varað er við
hættu sem skapast getur ef smá-
böm komast í þessi egg. Á það er
bent ab lítil böm geti gleypt smá-
hlutina í eggjunum og jafnvel
kafnað. Það er einkum bent á er-
lend páskaegg af þessari gerð sem
verib hafa hér á markaði um nokk-
urt skeib en á þeim eggjum em
engin vamaðarorð á íslensku held-
ur einungis á eriendum málum, en
þar kemur fram að eggin em ekki
ætluö bömum yngri en þriggja
ára. Eins em í umferð vinsæl egg
frá Mónu, svokölluð Lukkuegg, en
á þeim er viðvörun á íslensku þar
sem varað er við smáhlutunum og
bent á að eggin séu ekki ætlub
bömum yngri en 3-4 ára. ■