Tíminn - 29.03.1994, Blaðsíða 7
7
Tímamynd CS
Vigfús Þór Árnason fermingakóngur meö um 200 fermingar:
Fyrsta ferming í Grafarvogskirkju
Fermt var í Grafarvogskirkju á
sunnudag, pálmasunndag, í
fyrsta sinn, en kirkjan var vígð
þann 12. desember sl. Grafar-
vogssókn er bammörg sókn og
sóknarpresturinn þar, sr. Vig-
fús Þór Ámason, er „ferminga-
kóngurinn" í ár með flestar
fermingamar, eða um 200 tals-
ins.
Hópurinn, sem fermdist á
sunnudag, var sá fyrsti af átta
hópum, þannig að mikið verð-
ur um að vera yfir páskana á
þessu sviði.
Undanfarin fimm ár hafa
sóknarböm í Grafarvogi
fermst í Árbæjarkirkju. Á
myndinni má sjá sr. Vigfús Þór
Árnason í hópi fermingar-
bama sinna sl. sunnudag.
„Samningsstjórnun þýöir gerbreytt vinnubrögö og ööruvísi hugsun í
ríkisrekstri," segir fjármálaráöherra:
Hentar best stofnunum
meb fá meginhlutverk
„Þau vandamál, sem upp hafa
komiö á Norðurlöndunum,
eru m.a. þau að í ýmsum til-
fellum reyndist erfitt ab skil-
greina hvað stofnun var að
selja. Þá höfbu stjómvöld ekki
ákveðnar hugmyndir um þaö
hvab þau vildu kaupa eða aö
erfitt reyndist að mæla árang-
ur.... Loks má nefna ab í
nokkrum tilfellum jókst skrif-
ræöi til muna. Stjómendur
stofnana sátu yfir skýrslum til
rábuneyta um árangur og
ráðuneytin skrifuðu beibnir
um frekari upplýsingar."
Þessa athyglisverðu lýsingu
gaf fjármálaráðherra, Friðrik
Sophusson, á þeim vandamál-
um, sem upp hafa komið hjá
öðrum þjóðum sem gert hafa
tilraunir með svokaUaða „samn-
ingsstjórnun", sem nýlega var
kynnt á ráðstefnu um nýslýpan
í ríkisrekstri.Taldi ráðherra okk-
ur gagnlegt að læra af reynslu
hinna. Haukur Ingibergsson
skilgreindi „samningsstjómun"
sem stjómunaraðferb í ríkis-
rekstri sem tengi saman fjárveit-
ingar og afköst. Hún byggist á
formlegum samningi um sam-
skipti ráðuneytis og stofmmar.
Megi segja að samningurinn sé
um magn og gæði þeirrar þjón-
ustu, sem ráðuneyti „kaupir" af
stofnun, og hversu mikið það
„greiðir" fyrir hana. Samnings-
stjómun sameini á ýmsan hátt
kosti stjómsýslu og markaöar-
ins, þar sem hún skapi sveigjan-
leika og svigrúm. Með samn-
ingsstjómun nýti ríkisvaldið
tækni markaðarins við ab ná
sem bestum starfsárangri og
flétta saman afköst, fjárveiting-
ar og gæbi.
Aðferðafræði samningsstjóm-
unar eigi þó misvel viö stofnan-
ir. Best henti hún stofnunum
sem gegna einu eða fáum meg-
inhlutverkum og þar sem árang-
ur sé mælanlegur. Hún henti
síður stofnunum með fjölþætt
hlutverk og þar sem markaðs-
hlibstæðum verbi ekki við kom-
ib.
Reynsla granna okkar hefur
ekki öll verið á þann veg sem
fyrr er lýst. Sem dæmi um góð-
an árangur í Danmörku nefndi
Haukur eftirfarandi: Einka-
leyfastofnunin geröi ráö fyrir 3-
4% framleiðniaukningu á
þriggja ára samningstíma.
Reynslan sýndi 9-12% aukn-
ingu þegar á fyrsta ári.
í samningi við Þjóðminjasafn-
ið var tilskilin 50% aukin að-
sókn árin 1992-95. Markmiðinu
var þegar náð árib 1992, þrátt
fyrir ab hafin var innheimta að-
gangseyris.
Hjá Flugmálastofnim var gert
ráð fyrir 3-4% framleiðniaukn-
ingu á ári í þrjú ár. Um 5-8%
aukning kom fram þegar á
fyrsta ári.
„Að sjálfsögðu hefur ekki náðst
svo góður árangur í öllum til-
fellum," sagbi Haukur.
Hann vitnaði einnig til saman-
buröar sem Hagsýsla ríkisins
hafi gert á rekstri samstæðra
stofnana með tilliti til afkasta
og árangurs. „Þær sýna veruleg-
an mun á afköstum og starfsár-
angri stofnana. Ekki er fjarri lagi
ab ætla að lækka megi rekstrar-
kostnað þeirra stofnana, sem
verstum árangri skila, um 30%
án þess að skerba þjónustu vib
almenning, séu þær reknar eins
og bestu stofnanir í viðkomandi
málaflokki. Þessar vísbendingar
sýna einnig hve flatur niður-
skurður fjárveitinga getur verið
ósanngjam," sagði Haukur Ingi-
bergsson.
Fj ármálaráöherra upplýsti ab
nú þegar verði hafist handa við
undirbúning þjónustusamn-
inga milli ráðuneyta og stofn-
ana þeirra. Stofnanir, sem þar
hafa orðiö fyrir valinu, eru:
Bændaskólinn á Hólum,
Kvennaskólinn, Geislavamir
ríkisins, Rannsóknarstofnun
byggingariðnaöarins og Vita- og
hafnarmálastofnun. „Samn-
ingsstjómun þýðir gerbreytt
vinnubrögð og öðmvísi hugsun
í ríkisrekstri," sagði Friðrik Sop-
husson.
Ráðstefnan var haldin af fjár-
málaráðuneytinu í samráði við
Aðgerbarannsóknarfélagið,
Gæðastjómunarfélagiö, Hag-
ræðingarfélagið og Stjómunar-
félag íslands. - HEI
Bcejarstjórn Akraness styöur ósk þingmanna um út-
tekt á stööu fyrirtcekja á Vesturlandi:
Fagnar fyrirhug-
uðum aðgerðum
á Vestfjörðum
„Víba um land hefur atvinnu-
ástand verið mjög slæmt án þess
að gripið hafi verið til opinberra
aðgerða til að draga varanlega úr
atvinnuleysi. Því er ástæða til
þess að fagna fyrirhuguðum að-
gerðum á Vestfjörðum, enda
verði gripið til svipaðra abgerða
annars staðar á landinu," segir í
Lífshætta í
Jökuldölum
Landsvirkjun varar ferðamenn
á Fjallabaksleið nyrðri við
hættu í Jökuldölum. Vegna
mikils fannfergis þar em leiðar-
ar á háspennulínunni hættu-
legir mönnum, einkum vél-
sleðamönnum. Þar sem fann-
fergið er mest er hæðin upp í
vírana aðeins um þrír metrar og
lífshættulegt ab koma of nærri
þeim. Mikilvægt er að allir, sem
eiga leið um Jökuldal á meðan
þetta ástand varir, forðist þá
staði þar sem stutt er upp í leið-
ara háspennulínunnar.
í ár er það
íslenskt
Á fundi Orlofsnefndar hús-
mæðra í Kópavogi var sam-
þykkt tillaga þess efnis að í ár
veiti nefndin aðeins styrki til
hvíldardvala eða ferðalaga
fyrir konur sem nota styrkinn
hér innanlands.
Þetta er framlag nefndarinn-
ar til íslenska átaksins í at-
vinnu- og iðnaðarmálum,
sem verib hefur í gangi undir
slagorðinu „íslenskt — já
takk". Það verða því engir
styrkir veittir á þessu ári til
ferðalaga erlendis, eins og gert
hefur verið undanfarin ár.
ÓB
samþykkt sem bæjarstjóm Akra-
ness gerði á síðasta fundi sínum.
En þar var úttekt á stöðu sjávar-
útvegsfyrirtækja á Vesturlandi
m.a. til umræðu.
Bæjarstjómin minnir á þann
vanda, sem skapast hefur á
Akranesi vegna skerðingar veiði-
heimilda og vanda í skipasmíba-
iðnaði. Bæjarstjóm hefur ábur
beint þeirri áskomn til stjóm-
valda að ráðist verði gegn at-
vinnuleysi og ítrekar nú þá
áskomn.
„Bæjarstjóm fagnar bréfi þing-
manna Vesturlands til Byggba-
stofnunar, þar sem óskað er eftir
úttekt á stöðu fyrirtækja í Vest-
urlandsumdæmi og visar til
bréfs bæjarstjómar frá 12. mars
1990 um saman efni, með þeirri
ósk, að árangvu verði meiri nú
en áður." -HEI
Stokke tripp trapp
Stóllinn sem vex
með barninu
5 ára ábyrgð
Sama verð og annars staðar
á Norðurlöndum
kr. 9.760,-
cpol
Faxafeni 7
s. 687733
Sendum í póstkröfu
um allt land
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1980-1.fl. 15.04.94 - 15.04.95 kr. 351.662,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, mars 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS