Tíminn - 07.04.1994, Page 9
Fimmtudagur 7. aprfl 1994
rðSTííE?4ltt.ua1Efl
9
Bílasprengja veldur dauba átta ísraelsmanna:
Böm bmnnu eins og
kyndlar eftir spreng-
ingu á strætóstöb
Afula, ísrael, Reuter
Böm , brunnu eins og kyndlar
eftir að bílasprengja sprakk á
strætisvagnastöö í noröurhluta
ísraels í gær. Talið er aö palest-
ínskir öfgamenn hafi komiö
sprengjunni fyrir.
Vitnum bar saman um aö aö-
koman hafi verið hræöileg.
Börn komu í ljósum logum út úr
vagninum hrópandi á hjálp.
Líkamspartar lágu eins og hrá-
viöi um götuna. Að minnsta
kosti átta létu lífið og um fimm-
tíu slösuðust, sumir alvarlega.
Talið er aö tilræöismaðurinn
hafi látist í sprengingunni.
Tvö ár frá því oð Bosníu-Serbar hleyptu affyrstu
skotunum:
Bosníu-Serbar
vilja alls-
herjar vopna-
hlé í Bosníu
Sarajevó, Reuter
Bosníu-Serbar fóm fram á þaö
við yfirmenn Sameinuöu þjóö-
anna í gær aö þeir tækju aö sér
aö koma á vopnahléi í Bosníu,
nákvæmlega tveimur ámm frá
því aö leyniskytta í Sarajevó
hleypti af fyrstu skotum stríös-
ins.
Michael Rose, yfirmaöur friöar-
gæsluliðs Sameinuöu þjóðanna í
Bosníu, greindi frá því aö Bo-
sníu- Serbar hefðu fariö þess á
leit viö sig aö hann kæmi á fundi
leiðtoga Bosníu-Serba og yfir-
manns Bosníuhers sem er að
mestu skipaður Múslimum.
Leiötogar Bosníu-Serba sögöust
vilja ræöa allsherjar vopnahlé í
Bosníu.
Stjómvöld í Washington og
Moskvu hafa knúiö fram vopna-
hlé í einum þriðja hluta Bosníu
þar sem Múslimar og Króatar
búa. Einnig hafa þau komiö á
vopnahléi í Sarajevó, þar sem
Múslimar og Bosníu-Serbar búa
en borgin veriö hefur í herkví
síöustu misserin.
Bosníu-Serbar hafa fallist á að
Sameinuðu þjóöirnar fái aö
senda eftirlitsmenn til borgar-
innar Gorazde þar sem Múslimar
eiga í vök að verjast. Þeir vilja
samt ekki að Rose mæti á svæöið
og bera því viö aö ekki sé hægt
að tryggja öryggi hans.
Formælandi Sameinuöu þjóö-
anna sagöi aö tólf manns hefðu
látiö lífið í grennd viö Gorazde á
þriðjudag, þar af þrjú böm. Tala
látinna er þá komin í 64 frá því
fyrir páska.
Rose sagðist telja að Bosníu-
Serbar væru meö árásum sínum
aö reyna að þvinga Múslima aö
samnmgaboröinu.
Stjórnvöld í Króatíu tilkynntu í
gær að þau ætluðu aö senda alla
bosníska flóttamenn heim til sín
því að ekkert væri lengur aö ótt-
ast á þeim svæðum sem Króatar
og Múslimar hafa látið af bar-
dögum. ■
Zulumenn á göngu áleiöis til Pretoríu.
Tugir milljóna til styrktar Inkata-
hreyfingu Zulumanna
í síöasta tölublaöi Þýska vikurits-
ins Der Spiegel er greint frá því aö
Inkatahreyfing Zuluhöföingjans
Butolesis hafi mörg undanfarin ár
veriö studd meö fé þýskra skatt-
borgara. Sem dæmi nefnir Spieg-
el stuöning Adenauerstofnunar-
innar, sem er nátengd kristilegum
demókrötum, viö gagna- og upp-
lýsingamiöstöö Inkatahreyfingar-
innar. Sá styrkur einn og sér nam
sem svarar 250 milljónum ís-
lenskra króna. Þeir peningar vom
teknir af fé þróunarsamvinnu-
ráðuneytisins og áttu að notast til
aö treysta gmndvöll lýöræöis í
Suður Afríku og hvetja stríðandi
fylkingar til að berjast með orö-
um í staö vopna.
Ráðuneytið styrkir fjölda þróun-
arverkefna í gegnum stofnanir
tengdar þýsku stjómmálaflokk-
unum. Þingmenn þýskra sósíal-
demókrata hafa lýst hneykslun
sinni yfir aö haldiö skuli áfram að
styrkja liösmenn Butolesis, en
hann berst sem kunnugt er meö
öllum ráöum gegn því aö kosn-
ingar veröi í heimalandi Zulu-
manna í Suöur-Afríku. ■
Kaupmannahöfn, Reuter
Danska þjóöþingiö samþykkti í
gær aö senda eftiriitssveit til
borgarinnar Hebron á vesmr-
bakka Jórdanár.
Poul Nymp Rasmussen, forsæt-
isráöherra Danmerkur, sagði frá
því í gær aö þingið hefði fallist á
að senda 35 manna hóp til
Hebron. í hópnum væm bæði
lögregluþjónar og óbreyttir
borgarar.
Ákveðið hefur verið að í Hebr-
on veröi 160 erlendir eftirlits-
menn til að fylgjast meö því aö
samkomulag Frelsissamtaka Pal-
estínu, PLO, og ísraelsstjómar
um sjálfsstjóm Palestínumanna
á Vesturbakkanum verði virt.
Enn er þó óljóst í hverju ná-
kvæmlega starf eftirlitsfólksins
muni felast. Þaö liggur samt fyr-
ir aö ekki veröur um hefðbimd-
iö friöargæslustarf aö ræða.
ísraelsstjóm féllst á það í síð-
ustu viku aö kölluð yröi til sveit
erlendra eftirlitsmanna meðal
annars til aö tryggja öryggi Pal-
estínumanna í Hebron. Þar hef-
ur ríkt mikil spenna frá því að
öfgasinnaður ísraelsmaöur
myrti á fimmta tug íslamstrúar-
manna viö bænagjörð í mosku
bæjarins.
Af þeim 160 sem sendir veröa
til Hebron veröa 90 Norðmenn
og 35 ítalir auk Dananna 35.
Hvorki gengur né rekur í stjórnarmyndunarviörœbunum á Ítalíu:
Bossi á í vök ab verjast í
átökunum við Berlusconi
Reuter
Arafat á heimleib
Yasser Arafat, leiötogi Frelsissamtaka Palestínu, PLO, heilsar Mohamad Qudssyia, yfirmanni herafla
samtakanna, á flugvellinum í Amman. Arafat hefur krafist þess oð Israelsher fari meb allt sitt liö frá
Jeríkó og Cazaströndínni innan viku. Frá Amman hélt hann til Kairó þar sem fulltrúar PLO og Israels-
stjórnar eru aö reyna aö komast aö samkomulagi um hvernig viörœöum um sjálfsstjórn Palestínu-
manna á herteknu svœöunum skuli háttaö.
Róm, Reuter
Umberto Bossi, formaöur Norö-
urbandalagsins á Ítalíu, var
harðlega gagnrýndur í gær fyrir
aö eiga sök á að upp úr slitnaöi í
stjórnarmyndunarviöræöum
flokkanna sem mynduðu Frels-
isbandalagið fyrir nýafstaðnar
þingkosningar.
Stjómmálaskýrendur og höf-
undar lesendabréfa gagnrýna
Bossi fyrir aö hnýta í þá ákvörö-
un fjölmiðlakóngsins Berlus-
conis að bíöa meö frekari stjóm-
armyndunarviöræöur þangaö
til Scalfaro, forseti landsins,
hefði útnefnt forsætisráöherra.
Berlusconi stofnaöi flokk sinn
Áfram Ítalía fyrir tveimur mán-
uðum og náöi aö festa sig í sessi
fyrir kosningar og mynda Frels-
isbandalagið með Noröur-
bandalaginu og nýfasistum.
Bossi er sakaöur um að viröa
ekki vilja kjósenda sem hefðu
greitt flokkum Frelsisbandalags-
ins atkvbæöi sitt af því aö þeir
hefðu viljaö sjá flokkana sem aö
því standa sameinaða viö
stjómvölinn.
Bossi hefur hvaö eftir annaö
ráðist harkalega að Berlusconi,
sem hann uppnefnir „Berluska-
iser" og segir hann vanhæfan til
aö leiða ríkisstjórn vegna um-
svifa sinna í fjölmiölaheimin-
um.
Stjómmálaskýrendur segja ab
Bossi eigi ekki annarra kosta völ
en að mynda stjórn meö Berlus-
coni og nýfasistum. Ef hann
sætti sig eklá viö það, veröi aö
boöa til nýrra þingkosninga.
Bossi þarf nauösynlega á pólit-
ískum sigri aö halda í viöureign-
inni viö félaga sína úr Frelsis-
bandalaginu til að sýna aö hann
sé einhvers megnugur eftir aö
hafa þurft aö horfa upp á hluta
af fylgi Norðurbandalagsins
hverfa til liðs viö Berlusconi. ■
Danir ætla ab
senda eftirlits-
menn til Hebron
Til sölu
JOKER 88 keðjubréf
Sími: 91-675978.