Tíminn - 12.04.1994, Side 9

Tíminn - 12.04.1994, Side 9
Þríbjudagur 12. apríl 1994 m**—— 9 Rússar gramir út af loftárásum Nató á Serba Horfur á ab Serbar rábist á U nprofor Reuter Nokkuö bar í gær á þykkju milli Rússlands og Vesturlanda út af loftárásum Nató í fyrradag og gær á stöövar Bosníu-Serba viö Goradze, borg austanvert í Bosníu sem er á valdi Bosníu- múslíma en Serbar sitja um. Eru þetta fyrstu árásir flughers Nató á serbneskt herlið á jörðu niöri. Andrej Kozyrev, utanríkisráð- herra Rússlands, kallaöi í gær loftárásir þessar „alvarleg mis- tök" af hálfu Vesturlanda og heföu þær í för með sér auknar horfur á að Bosníustríöiö breiddist út. Rússneska stjórnin hefur kvartað yfir því aö hafa ekki verið höfð meö í ráöum áð- ur en loftárásirnar voru gerðar og sagöi Kozyrev þaö bera vott um mikla ófyrirleitni. Boris Jelt- sín, Rússlandsforseti, segist hafa kvartað persónulega yfir því viö Clinton Bandaríkjafor- seta í gær að Bandaríkjastjóm skyldi ekki hafa ráöfært sig viö rússnesku stjómina áöur en fyrri loftárásin á umsátursliðiö við Goradze var gerð á sunnu- dag. Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, og forustumenn Bosníu- Serba fóm í gær höröum orðum um Sameinuöu þjóðimar í til- efni loftárásanna, en þær vom geröar ab beiðni Unprofor, frið- argæsluliös S.þ. í Bosníu. Sagöi Milosevic að þar með hefðu S.þ. ótvírætt tekið þátt í stríðinu meb múslímum gegn Serbum og stefnt þar með trúverðug- leika sínum sem málamiðlara í hættu. Ummæli eins af fomstu- mönnum Bosníu-Serba em túlkuö á þann veg að þeir hygg- ist svara loftárásunum með árásum á Unprofor. S.þ. hafa lýst Goradze „öraggt svæöi", sem sé undir sinni vemd, en Serbar saka múslíma um að hagnýta sér þá vemd til sóknaraö- gerða á hendur Serbum. Síödegis í gær héldu Serbar enn áfram stór- skotahríö á Goradze. Fréttir í gær bentu ekki til þess að Serbar heíðu oröið fyrir mjög miklu tjóni í árásiun Nató. Manfred Wömer, aðalritari Na- tó, varaöi í gær Bosníu-Serba við því ab svara flugárásum Nató með árásum á Unprofor og sagði að bandalagiö myndi bregöast viö af hörku Unprofor til vamar, ef Serbar stæðu viö hótanir sínar í garö friöargæsluliðsins. .■ / Sarajevó ígœr. Ættingjar umsetins fólks í Coradze krefjast þess at> S.þ. gangi fram afaukinni hörku gegn Serbum. Stríb ANC og Inkatha harönar: Hraðvaxandi mann- fall í Kwazulu-Natal Jóhannesarborg, Reuter Rúmlega 550 manns vom drepnir í átökum af stjómmálaástæöum í Suöur- Afríku í s.l. mánuði, að sögn mannréttindanefndar nokk- urrar. Mest var mannfalliö í KwaZulu, landi Súlúa, og fylkinu Natal sem er umhverfis KwaZulu. Manndráp þessi munu aö mestu hafa oröið í átökum milli Afríska þjóöarráösins )ANC), fylgismestu samtaka suburafrískra blökku- manna, og Inkatha-frelsisflokks- ins sem hefur allmikið fylgi með- al Súlúa. Mannréttindanefnd sú er hér um ræöir segir aukningu pólitíska ofbeldisins í mars áhyggjuefni, því að fram aö þeim mánubi hafi manndrápum af þeim ástæðum þarlendis fariö fækkandi sjö mánuði í röð. Segir nefndin aö KwaZulu-Natal sé nú eina svæðið í Suður-Afríku þar sem ofbeldiö sé enn á „háu stigi". Mun þar vera átt við ofbeldi sem skilgreint er sem pólitískt. Stjómvöld hafa lýst yfir neyöar-' ástandi í Natal með það fyrir aug- Þúsundir drepnar í Rúanda á tœpri viku: Uppreisnarmenn í sókn Mulindi í Rúanda, Reuter Uppreisnarmenn í miðafríska smárikinu Rúanda segja skæm- her sinn að því kominn að taka Kigali, höfuðborg landsins. Franskur herforingi í borginni ráölagði fréttamönnum í gær að forða sér þaban og kvað upp- reisnarmenn ekki eiga nema 10 km ófarna þangab. Talsmenn uppreisnarmanna segja að baráttuvilji stjómar- hersirís sé oröinn lítill. Uppreisnarmenn þeir er hér um ræðir heita opinberléga Föð- urlandsfylking Rúanda (skamm- stöfun heitis á ensku RPF) og er formaður þeirra samtaka Alexis Kanyarengwe, rúmlega hálfsex- tugur að aldri og fyrram innan- ríkisráðherra landsins. Flestir þar í flokki em Tútsar, en í stjómarhemum munu einkum vera Hútúar. Þorri íbúa í Rúanda og grannríki þess Búrúndi er af þessum tveimur þjóðum og em Hútúar í miklum meirihluta. Hroðaleg óöld hefur geisað í Rúanda, einkum höfuöborg- inni, síðan á miðvikudag s.l. er Juvenal Habyarimana, forseti landsins, fórst ásamt starfsbróð- ur sínum í Búrúndi er flugvél sem þeir vom meb var skotin nibur með eldflaug. Habyari- mana var Hútúi og er dauði hans fréttist hófu Hútúar í Rú- anda ofboðslegar ofsóknir á hendur Tútsum. Hefur fólk ab sögn fréttamanna verib drepib í þúsundatali. Stríð hófst í Rúanda milli túts- ískra uppreisnarmanna og stjómar Habyarimana fyrir um þremur ámm, en fyrir níu mán- uðum tókst að stöðva þaö með friöarsamkomulagi. Fréttir í gær frá Rúanda bentu til þess að hryöjuverkaaldan væri farin að breiðast frá höfub- borginni út um land. Verið er að flytja vesturlandamenn, búsetta í Rúanda, úr landi undir vemd belgískra og franskra hermanna, sem þangað hafa verið sendir í þeim erindagerðum. Meöal drepinna síðustu daga em tíu belgískir friðargæsluliðar. Hafa Hútúar þungan hug á Belgum og kenna þeim um dauða Haby- arimana. Fréttir benda til þess að RPF- liöar, sem hingað til hafa hafst við nyrst í landinu, séu nú í sókn í suöurhluta þess. Kanyar- engwe segir ab RPF muni ab unnum sigri koma á reglu, stofna til réttarhalda yfir þeim sem bæm ábyrgð á hrannmorö- unum undanfama daga og mynda stjóm í félagi við aðra flokka. Hann hafnar öllu sam- starfi viö bráöabirgðastjóm sem þegar hefur veriö mynduð í Ki- gali, segir hana ekki vera annað en „skálkaskjól fyrir manndráp- arana." ■ um aö tryggja að þingkosningam- ar sem ákveönar hafa verið tmdir lok mánaöarins fari fram snurðu- laust. Inkatha neitar enn sem fyrr aö taka þátt í kosningunum, þar sem allir kynþættir landsins njóta jafnréttis. Veröa þetta fyrstu kosningarnar af slíkum í sögu suðurafríska ríkisins. Illindin í KwaZulu-Natal virbast enn magnast, þrátt fyrir aö stjóm- in hafi sent þangaö hermenn í þúsimdatali til að gæta friðar eftir að neyöarástandstilskipunin gekk í gildi 31. mars. Frá þeim degi hafa tæplega 150 manneskjur falliö þar í pólitískum vígaferlum. Að sögn nefndarinnar hafa yfir 4100 manns veriö drepnir í Suð- ur- Afríku af stjómmálaástæöum frá því í júlí í fyrra, er ákveðið var hvenær fyrstu allra kynþátta þingkosningar landsins færa fram. Dánartalan af þeim ástæð- um á þeim fjóram árum, sem liö- in era frá því að Frederik Willem de Klerk, Suður- Afríkuforseti, hófst handa við aö afnema apart- heid, er komin upp í um 15.000. Zhírínovskíj hrækir á mótmælafólk Nigería Afríku- meistari Nígería varð á sunnudaginn Afrikumeistari í knattspymu eftir að hafa boriö sigurorð af Zambíu í úrslitaleik, 2-1, og staðfesti þar með yfirburöi sína í Afríku. Emmanuel Amunike, sem ekki hafði fengið náð fyrir augum þjálfarans í síðustu fjór- um leikjum, skoraöi bæði mörk Nígeríu í leiknum eftir að Zambía hafði náb forystunni strax á upphafsmínútunum þegar vamarmaburinn Elijah Litana skallaði í markiö eftir homspymu. Nígeríumenn vöknuðu upp vib vondan draum og liðið, sem skipaö var m.a. 8 leikmönnum sem leika víðsvegar í Evrópu, tók völdin á vellinum. Þetta var annar sigur Nígeríu í þessari keppni en síð- ast vann landið árib 1980. Hins vegar hafa Zambíumenn aldrei sigrab í keppninni en þetta var í annab sinnið sem þeir tapa í úr- slitum. Zambíumenn geta þó vel við unað, því eins og knatt- spymumönnum er eflaust í fersku minni þá fómst 18 leik- menn og forráðamenn liðsins í flugslysi í apríl á síðasta ári. -KG Strassburg, Reuter Um 100 manns úr samtökum franskra stúdenta af gyöingaætt- um söfnuöust í gær saman vib ræðismannsskrifstofu Rússlands í Strassburg, þar sem Vladímír Zhírínovskíj, þekköir þjóöemis- sinnaður stjómmálamaður rúss- neskur, var þá staddur. Gerðu stúdentar þessir hróp að Zhír- ínovskíj og kölluöu hann nýnas- ista. Brást Zhírínovskíj illa við, hrækti á mótmælafólkið, kastaði í það möl og mold úr garðinum vib konsúlatib, kvabst ætla að brjóta höfubkúpur þess og drepa það með „kjamorkuskammbyssunni minni." Zhírínovskíj er í Strassburg sem fulltrúi í rússneskri sendinefnd er þangað kom á fund hjá þing- mannarábi Evrópuráðsins. ■ Vlnning laugarx (21 9. apríl 1994 (T) VINNINGAR fjOldi VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5a!5 K 0 5.366.790 2. 4S1í 92.423 3. 4 af 5 127 7.532 4. 3a!5 4.776 467 Heildarvinningsupphæd þessa viku: 9.108.284 kr. BIRGIR UPPIÝSINGAR: SlMSVARI 91-681511 lukkul(na991002

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.