Tíminn - 14.04.1994, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 14. apríl 1994
3
Salvi viö sólaexemi í íslenskum hestum rannsakaö til hlítar í Svíþjóö:
Fundið smyrsl á exem
hrossaútflutningsins
Stefnt ab harbri samkeppni
vib Hagkaup í vöruverbi:
Fjóröa 10-11
búöin opnuö
í dag í Borg-
arkringlunni
íslenskir hestar á erlendrí grund, á stórbúi í Þýskalandi. Auk íslensku hestanna má sjá hross aföbrum stofnum,
sem ekki eiga vib sólarexem ab stríba.
Tveir íslendingar eru þessa
dagana í samvinnu viö
Sænska dýralæknaháskólann
í Uppsölum aö undirbúa víb-
tæka og endanlega tilraun
með sérstakan salva gegn sól-
arexemi í íslenskum hrossum
á erlendri grund. Miklar vonir
eru bundnar viö þennan salva
þar sem forathuganir hafa
gefib góba raun en sólarexem
er útbreitt og mjög alvarlegt
vandamál í hrossaútflutrtingi
frá íslandi og hefur skabab
þennan útflutnng mikib.
Sólarexem leggst á u.þ.b. þribja
hvert íslenskt hross sem flutt er
út og lýsir sér í miklum klába,
bólgum og sárum. Hrossin klóra
sér ofsalega. í slæmum tilfellum
nudda þau fax og tagl af og
bólguþrútin sárin standa opin.
Þetta hefur leitt til þess aö marg-
ir vilja heldur hross sem fædd
em erlendis, því sólarexems
veröur síbur vart í þeim hross-
um.
Þab em þeir Gísli Jónsson
hrossaútflytjandi og Davíb
Ingason lyfjafræbingur sem
standa að framleiðslu á þessum
sólarexemsalva og dýralæknar
vib háskólann í Uppsölum ósk-
uðu eftir ab fá aö kanna betur
áhrifamátt hans meb sérstakri
vísindalegri tilraim sem er aö
hefjast um þessar mundir. Alls
munu um 150 íslensk hross taka
þátt í tilrauninni.
Salvinn er unninn samkvæmt
uppmnalegri uppskrif frá Gísla
en þróuð og útfærb af þeim
Davíö í sameiningu. Þetta er
náttúrulyf ab stofni til en í sam-
tali við Tímann vildi Gísli ekk-
ert segja frekar um þau efni sem
í salvanum væm. Hann sagbi þá
þögn helgast af rábgjöf sem þeir
hefðu leitað sér vegna áforma
um að fá einkaleyfi á uppskrift-
inni. Gísli sagöi þó aö hér væri á
ferðinni tiltölulega einfalt lyf
sem ekki væri dýrt í framleiöslu.
í foraathugun sem gerb var á
salvanum í fyrrasumar kom
verulegur árangur í ljós, en aö
sögn Gísla er brýnt að menn
geri sér grein fyrir því aö hér er
ekki um lækningu aö ræða,
heldur lyf sem slær á einkennin.
Af þeim 20-30 hrossum sem
tóku þátt í forathuguninni var
áberandi hversu fljótt dró úr
bólgum og kláði minnkabi.
Augljóst þótti jafnframt ab salv-
inn virkaði graeðandi og hrossin
vom rólegri og nábu eðlilegri
matarlyst.
Ljóst er að ef fram er komin
haldbær vöm við sólarexemi í
íslenskum hestum hafa mikil
tíöindi gerst í útflutningi ís-
lenskra hrossa. Tugþúsundir ís-
lenskra hrossa em um alla Evr-
ópu og ab sögn Gísla Jónssonar
er þetta fyrst og síðast vandamál
sem íslendingar þurfa sjálfir ab
leysa.
-ÁG/BG
Marel hf. og dótturfyrírtœki höföu 18,1 m.kr. hagnaö afrúmlega
560 milljóna veltu:
Tekjur 27% upp á árinu
Fjóröa búb 10-11 verslunar-
keöjunnar veröur opnuö í dag
á 1. hæb í Borgarkringlunni í
Reykjavík. Ab sögn Eiríks Sig-
urbssonar, framkvæmda-
stjóra Vöruveltunnar hf., sem
rekur 10-11 búbimar, er
þama um ab ræba nýtísku
matvöra- og heimilisvöra-
verslun á 500 fermetra gólf-
rými. Innangengt veröur í
verslunina úr Borgarkringl-
unni meban hún er opin jafn-
framt því sem inngangur af
bílastæbum verbur opinn frá
klukkan 10 á morgnana til
klukkan 11 á kvöldin alla
daga vikunnar.
Fyrsta 10-11 verslunin var
opnub í Engihjalla í Kópavogi í
nóvember 1991. Síðan hafa ver-
iö opnaöar 10-11 verslanir í
Glæsibæ og við Laugalæk. Fyr-
irtækið áformar ab opna
fimmtu 10-11 búðina í Hafnar-
firði í nóvember næstkomandi.
Framkvæmdastjórinn segir ríka
áherslu lagða á það að verslan-
irnar fylgi ákvebnum markmið-
um. Meðal þeirra er að 10-11
búðimar hafi „lágveröstefnu"
og eigi því í haröri samkeppni
viö stórmarkabi, t.d. Hagkaup,
hvab vöruverð varbar. Sé leitast
viö að fylgjast nákvæmlega
meb verbi keppinautanna dag-
lega og jafnvel oft á dag. Versl-
animar bjóbi allar vörur til
heimilisins; matvörur, hrein-
lætisvörur og abrar heimilisvör-
ur. Síðast en ekki síst miöist af-
greiðslutími 10-11 veslananna
við þarfir viðskiptavinanna.
-HEI
Rekstrartekjur Marels hf. og
dótturfyrirtækja þess voru tæp-
lega 562 milljónir króna á síð-
asta ári. Það var 27% hækkun
frá fyrra ári. Sala vöru og þjón-
ustu nam rúmlega 530 m.kr. en
aðrar tekjur, kringum 31 millj-
ón hvort ár, voru að megin-
hluta fengin framlög til vöru-
þróunar. Rekstrargjöld án fjár-
magnstekna hækkuðu einnig
um 27% milli ára, í 527 milljón-
ir. Fjármagnsgjöld urðu 15
milljónir á árinu, sem var meira
en tvöföldun milli ára. Hagnað-
ur ársins var 18,1 milljón króna,
sem er 3,2% af rekstrartekjum.
Árið ábur var hagnaður 20,5
m.kr., eða 4,6% af tekjum.
Árið 1993 var í fyrsta sinn gerð-
ur samstæöuársreikningur fyrir
Marel hf. og dótturfyrirtæki
þess og allar framangreindar og
eftirfarandi tölur eru úr honum.
Bókfærðar eignir Marels hf.
voru rúmlega 403 milljónir kr. í
árslok, sem er 43% hækkun frá
fyrra ári. Skuldir lækkuðu um
74% á árinu, í 246 milljónir.
Eigið fé félagsins í árslok var
rúmlega 156 milljónir sem var
11% hækkun á árinu. Eiginfjár-
hlutfall var tæplega 39% í árs-
lok,' veltufjárhlutfall 1,4 og
lausafjárhlutfall 0,9.
Á miðju síðasta ári keypti Mar-
el hf. Vélsmiðju Sigurðar H.
Þórðarsonar og flutti reksturinn
að Höfðabakka 9., þar sem félag-
ið hafði tekiö á leigu 1.600 fer-
metra húsnæði til viðbótar
þeim 2.000 fermetrum sem þab
hafði fyrir.
í árslok 1993 var 71 starfsmaö-
ur fastráðinn, sem var fjölgun
um 22 (45%) á árinu. Fimm
menn störfuðu hjá dótturfyrir-
tækjum eriendis.
Viðskipti með hlutabréf Marels
hf. á Verðbréfaþingi voru tæpar
44 milljónir kr. að söluverbi á
árinu. Sölugengi hlutabréfa var
2,55 í ársbyrjun en 2,65 í árslok
og hafði því hækkað um 10%
þegar tekið er tillit til 6% arö-
greiðslna á árinu. Markabsverb
hlutabréfa var um 288 milljónir
í árslok. Hluthafar voru þá 330,
stærstir þeirra Burðarás um
40%, Sigurður Egilsson 10% og
Þróunarfélagib tæp 10%. - HEI
Jafnabarmannafélag íslands stofnab í kvöld:
Taugatitringur
hjá krötum
Jón Þór Sturluson, stjómarmab-
ur í Sambandi ungra jafnabar-
manna, segir ab Jón Baldvin
Hannibalsson, formabur Al-
þýbuflokksins, og Gubmundur
Oddsson, formabur fram-
kvæmdastjómar flokksins, hafi
bábir lýst yfir ánægju sinni þeg-
ar þeim var kynnt fyrirhugub
stofnun Jafnabarmannafélags
íslands. Hann segir ab gagnrýni
á stofhun félagsins innan
flokksins komi á óvart.
í kvöld verður haldinn stofn-
fundur nýs kratafélags í höfuð-
borginni, Jafnabarmannafélags ís-
lánds' og fer athöfnin fram á ■
Komhlöðuloftinu vib Banka-
stræti. Skiptar skobanir eru meðal
krata um stofnun þessa félags og
m.a. er líklegt að framkvæmda-
stjóm flokksins muni ræða við
abstandendur félagsins í dag. Þá
hefur þab vakið athygli ab yngsti
þingmaður flokksins, Petrína
Baldursdóttir í Reykjaneskjör-
dæmi hefur gagnrýnt stofnun fé-
lagsins. í grein i Mbl. fullyrðir
hún m.a. ab félagið sé stofnað í
þeim tilgangi að vera bakland fyr-
ir félagsmálaráöhena til þess að
slást viö Jón Baldvin um for-
mennsku í Alþýöuflokknum.
Jón Þór segir ab með stofnun
Jafnaðarmannafélagsins sé kom-
inn vettvangur fyrir umræöu eins
og t.d. félagsmál, neytenda- og
verkalýösmál og um sjálfa jafnað-
arstefnuna svo að nokkuð sé
nefnt. Hann segir aö þeir sem
standi ab stofnun félagsins telji að
flokkurinn hafi tapab miöjunni
og því vilji menn skapa kröftuga
umræðu um þessi málefni sem til
þessa hafa ekki verið nægjanlega
skapandi innan flokksins.
Hann neitar því að stofnun fé-
lagsins sé eitthvert vantraust á
þær stofnanir flokksins sem fyrir
era. -grh
Þorkell Sigurlaugsson og Sigmundur Gubbjarnarson kynna starfsemi
Tæknigarbs á fréttamannafundi í gær.
Sambýli atvinnu-
lífs og Háskóla
Tæknigaröur er nýsköpunar-
setur vib Háskóla Islands ætl-
ab til útleigu til fyrirtækja og
einstaklinga sem stunda ab
nýsköpunarstarfsemi á svibi
hugvits og tækniibnabar. Þar
getur myndast hvetjandi sam-
býli atvinnulífs og háskóla-
starfsemi sem gæti stublab ab
aukinni nýsköpun og tiliu'b
nýrra atvinnutækifæra.
í Tæknigarði geta leigjendur
haft aðgang ab faxi, geislaprent-
ara og ljósritunarvél, ásamt
símavörslu og póstþjónustu á
hagstæðu verði. Einnig er
mögulegt ab tengjast tölvimeti
HÍ og gegnum það erlendum
tölvunetum. Fundarsalir og vel
búin veitingastofa eru í húsinu,
sem gefur kost á að halda fundi
eða kynningar með veitingum.
Húsnæbi Tæknigarðs er 2500
fermetrar og eru um 1500 fer-
metrar ætlaðir til útleigu.
-ÓB