Tíminn - 25.05.1994, Side 6

Tíminn - 25.05.1994, Side 6
6 Mi&vikutiágfo ÍS. rri’áf 1994 UR HERAÐSFRETTABLÖÐUM KEFLAVIK Borbvibur úr 30 ára gamalli ösp Árið 1964 gaf Sigurður Blön- dal skátakrökkum frá Egils- stöðum sem voru á skátamóti á Hallormsstað 5 asparplönt- ur. Plönturnar voru gróður- settar í garði Vilhjálms Emils- sonar að Laufási 7 á Egilsstöð- um og döfnuðu vel. Nú í maí, 30 árum síðar, lét svo Vil- hjálmur fella þrjár aspir en þær voru orðnar mjög stórar og rúmfrekar. Ein öspin reyndist vera 14 metrar á hæð og 108 cm í um- mál, önnur var 14,10 metrar og 120 cm í ummál og þriðja var 14,50 m á hæð og ummál- ið 132 cm. Því næst lét Vilhjálmur flytja trjábolina imn í Hallormsstað og fékk starfsmenn skógrækt- arinnar til að fletta bolnum í borðvið. Völundur Jóhannes- son var svo fenginn til að mæla út það sem aspirnar gáfu af sér og reyndist það vera 37 fermetrar af borðviöi og var hvert borð tomma á þykkt. Viðurinn var mjög fallegur og gefur fyrirheit um að eftir 20-30 ár verði hægt að fá fal- legan borðvið úr öllu þvi lerki sem skógarbændur eru að setja niöur í dag. Verk Ríkharbs Jónssonar til Djúpavogs Afkomendur Ríkharðs Jóns- sonar myndhöggvara hafa ákveðið að gefa Djúpavogs- hreppi verk hans sem geymd hafa verið á vinnustofunni áð Grundarstíg 15 í Reykjavík. Af þessu tilefni var efnt til sér- stakrar athafnar á Djúpavogi 20. maí sl., þar sem dóttir listamannsins, Ólöf Ríkharðs- dóttir, afhenti gjafaafsal fyrir verkunum. Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra var einnig viðstaddur og undirrit- aði samning um framlög ríkis- sjóös til uppbyggingar lista- safns Ríkharðs Jónssonar. Ríkharður Jónsson fæddist á Strýtu í Geithellnahreppi árið 1888. Hann var afkastamikill myndhöggvari og eftir hann liggur mikill fjöldi verka. Ólaf- ur Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpavogi, segir að listaverka- gjöfin hafi mikla þýðingu fyrir sveitarfélagið og reyndar fjórðunginn í heild. Safn sem þetta eigi sér enga hliöstæðu á Austurlandi. Bókasafnib er stórt og plássmikib. Vilhjálmur Emilsson sendur vib lerkibút sem hafbi legib á lóbinni í 14 ár og aspirnar þrjár ábur en þeim var flett nibur í borbvib í nýju söginni á Hallormsstab. safni. Einnig er anddyri og stórt alrými ásamt snyrtingu. Á efri hæð viöbyggingarinnar, sem nú er fokheld, er gert ráð fyrir sjö almennum kennslustofum. SVFÍ veitir Subur- nesjamönnum gullmerki Landsþing Slysvarnafélags ísl- ans var haldið um næstsíðsustu helgi. Þar voru nokkrum Suður- nesjamönnum veitt gullmerki, svokölluö þjónustumerki SVFÍ, fyrir störf og stuðning við slysa- vamamál í gegnum tíðina. Þremur Garðmönnum, einum Grindvíkingi, og ungri stúlku úr Njarövík vom veitt merkið. Úr Sigfús Magnússon, Gubrún Pét- ursdóttir og Ásgeir M. Hjálmars- son meb gullmerki Slysavarnafé- iagsins. Garöinum voru það Guðrún Pétursdóttir, Ásgeir M. Hjálm- arsson og Sigfús Magnússon sem fengu gullmerkið. Sigmar Eövarðsson úr Grindavík fékk einnig gullmerki SVFÍ og Gróa Axelsdóttir úr Sandgerði. Gróa tók við merkinu fyrir hönd fjöl- skyldu hennar en allt frá stofn- un Sigurvonar í Sandgerði árið 1928, hafa náskyldir ættliðir Gróu veriö í sveitinni. Sandgerði: Nýbygging vlb skólann tekin í notkun Hluti nýrrar glæsilegrar við- byggingar við gmnnskóla Sand- gerðis var formlega tekin í notk- un á Degi fjölskyldunnar. Um er að ræöa svokallaöan B-áfanga sem samanstendur af stórum sal, tónmenntastofu, mynd- og handmenntastofu ásamt bóka- Víkurfréttir BT dagblað AKUREYRI Hundur beit póst- burbarkonu Hundur beit póstburðarkonu í Glerárhverfi á Akureyri í síðustu viku. Konan hlaut lítilsháttar meiðsl á fæti og fékk sprautu gegn stífkrampa á slysadeild. At- burðurinn hefur veriö kærður til lögreglu. Aö sögn lögreglunnar var póst- burðarkonan, sem er á átjánda ári, aö bera út póst þegar lítill hundur af greifingjakyni glefs- aði í fót hennar með þeim af- leiðingum aö hún hlaut nokkrar skrámur. Hundurinn var tjóðr- aður á lóð viðkomandi húss en gat hlaupið nokkuð um og komist að útidymm hússins án þess aö vera leystur úr tjóður- bandinu. Leyfi er fyrir hundin- um og mun hann ekki þekktur að þvi að áreita fólk. Sauðburöur stendur sem hæst: Frjósemi fjár alltaf ab aukast Sauðburður stendur nú sem hæst. Hjá mörgum bændum er um helmingur borinn en ann- arsstaðar er sauðburður kominn lengra á veg. Frjósemi hefur ver- ið óvenju mikil, flestar ær eru tvílembdar og nokkuö er um mað ær eigi þrjú lömb. Sauðburöur hefur gengiö frem- ur vel á þessu vori á Noröur- landi en þó hafa nokkur brögö verið aö því að ær eigi erfitt meö burð. Elfa Ágústsdóttir dýralæknir segir að hún geti þó ekki merkt aö um fleiri útköll en venjulega væri að ræða vegna sauðburöar. „Það þarf æt- íð að hjálpa til í einstökum til- fellum en þetta er ekki meira í ár en venjulega," segir Elfa. Frjósemi sauðfjár hefur veriö að aukast á undanfömum ámm og nú virðist heyra til undan- tekninga að ær fæði eitt lamb. Guðmundur Víkingsson, bóndi í Garðshorni á Þelamörk, sagði að þaö sem af sauöburði væri hjá sér væru flestar ær tví- lembdar og tvær hefðu borið þremur lömbum. Svipaða sögu væri að segja frá þeim bæjum þar sem hann þekkti til. Frjó- semin væri aö aukast. „Menn hafa veriö aö rækta þessa eigin- leika fjárins á undanfömum ár- um og farangurinn er kominn í ljós," sagði Guömundur. Svip- aðan tón var að heyra hjá öðr- um sauðfjárbændum er rætt var viö. Gámastöbvar Sorpu auka þjónustu vib fyrirtœki meb lítinn úrgang: Sorpu-menn læra af reynsl- unni „Reynslan hefur kennt okkur margt, þau 3 ár sem Sorpa gefur starfað," segir í tilkynn- ingu frá sorpeyöingarfyrir- tækinu Sorpu. Eitt af því, sem Sorpumenn hafa lært, er að mörg minni fyrirtæki vilja frekar sjá sjálf um sín sorp- mál en láta þau í hendur sér- hæfðs flutningsaöila. Til að koma til móts við þessi fyrir- tæki bjóða gámastöövar Sorpu nú upp á aukna þjón- ustu viö fyrirtæki meö lítinn úrgang, sem fellur undir lág- marksgjald móttökunnar í Gufunesi (1.386 kr.). Þessi fyrirtæki geta nú keypt klippikort, sem gilda sem greiðsla fyrir allt aö 10 losanir á gámastöðvum. Um er að ræða 5 gerðir af kortum, sem kosta frá 1.875 kr. og upp í 8.750 kr. Á dýrasta kortinu gildir hver klipping fyrir 1 m3 af óendur- vinnanlegu soipi, en kortið alls fyrir 10 m3. Odýrasta kortið dugar til að greiða fyrir mót- töku samtals 5 m3 af endur- vinnanlegum bylgjupappa. Hvert klipp gildir fyrir 0,5 m3. Þannig að lágmarksgjaldið er tæpar 188 kr. fyrir að losna við kassa á gámastöð. Sorpa ætlast til að úrgangur sé flokkaöur áð- ur en komið er með hann á gámastöð. Sá, sem kemur meö úrgang, skal sjálfur koma hon- um í þar til gerðan gám. Starfs- menn Sorpu leiðbeina mönn- um og hjálpa þeim með þyngri hluti. Fyrirtækin mega koma með allt að 4 rúmmetra í einu, gegn framvísun klippikorts fyr- ir viðkomandi sorpflokk. Bílar með rauð vsk-númer teljast fyr- irtækjabílar og sömuleiðis bílar merktir fyrirtækjum. Á gámastöðvunum eru gámar fyrir fjölmarga úrgangsflokka: málma, timbur, bylgjupappa, dagblöö/tímarit, garöa/gróöur- úrgang, grjót/gler, bagganlegt sorp, óbagganlegt sorp, spilli- efni og umbúðir undan drykkj- arvörum. í Garðabæ og Ána- naustum eru auk þess sérstakir gámar fyrir net og hjólbarða. Sérstakir gámar fyrir sláturúr- gang í Garöabæ og á Sævar- höfða. En asbest er einungis hægt að losna við á Sævar- höfða. Gámastöðvakort fást á skrif- stofu Sorpu, sendibílastöðvum, 7 bensínstöðvum og Nesti við Bíldshöfða. Almenningur má koma með allt að 2 m3 af flokkuðum úr- gangi í einu án greiðslu. ■ Karl Eiríksson, forstjóri Brœbranna Ormsson hf. (t.h.), afhendir Valgarbi Egiissyni, framkvœmdastjóra Listahátíbar í Reykjavík, ávísun upp á 2 milljónir. Niflungahring- urinn rær tvær milljónir Þýsku fyrirtækin AEG, Beck's Lift Material og Robert Bosch ásamt Bræörunum Ormsson hf., hafa ákveöiö að styrka sérstaka uppfærslu Listahátíð- ar í Reykjavík á óperunni Niflungahringnum eftir Ri- chard Wagner meö rúmlega 50 þúsund mörkum, eða tveimur milljónum íslenskra króna. Niflungahringurinn er stærsta og vibamesta tónverk vest- rænna tónbókmennta og sækir efniviö að mestu leyti í íslensk- ar fornbókmenntir, einkum Völsungasögu. Uppfærslan er samvinnuverkefni Listahátíðar, Þjóðleikhússins, íslensku Óper- imnar, Sinfóníuhljómsveitar ís- lands og Wagnerhátíðarinnar í Bayreuth. Saga samskipta íslendinga og Þjóðverja er löng og má a.m.k. rekja til viðskipta Hansakaup- manna og íslendinga á 14. öld. Þýska þjóðin hefur lengi sýnt íslenskri sögu, menningu og landinu sjálfu mikinn áhuga, eins og sést t.d. á því hvert Ri- chard Wagner sækir efniviö í óperu sína. Auk þess má nefna að Þjóðverjar eru fjölmennasti hópur ferðamanna ár hvert hér á landi. Þýsku fyrirtækin, sem nú hafa ákveðið ab kosta að hluta til uppsetningu Niflunga- hringsins, hafa átt viðskipti við íslendinga í áratugi og hafa mikinn áhuga á því ab styrkja þann menningarviðburð sem uppsetning óperunnar vissu- lega er í tilefni af 50 ára afmæli íslenska lýbveldisins. ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.