Tíminn - 25.05.1994, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 25. maí 1994
11
Framkvœmdir fyrir landsmót UMFÍ í sumar ganga vel en m.a. veröur komiö upp upphituöum hlaupabrautum.
Helgi Haraldsson, formaöur FRÍ:
„Mikiö framfaraspor stigiö"
-meö tilkomu nýja vallarins veröur aöstaöa til íþróttaiökunar á Laugarvatni ein sú besta á landinu.
Framkvæmdir vegna landsmóts
UMFÍ á Laugarvatni í sumar
standa nú yfir af fullum krafti.
Verið er að byggja íþróttavöll
með aðstööu fyrir flestar grein-
ar íþrótta. Kringum völlinn
verður upphituö hlaupabraut,
sú fyrsta hér á landi, en innsta
brautin á íþróttavellinum í
Mosfelssbæ er þó upphituð. Að
sögn Helga Haraldssonar, for-
manns FRÍ, er þetta mikið
framfaraspor í aðstöðunni fyrir
frjálsíþróttamenn og aðra
íþróttamenn.
„Upphaflega var þetta spum-
ing um hvort hiti væri lagður í
hlaupabrautina eöur ei. Á tíma-
biU var búið að ákveða að ekki
yrði lagður hiti. Okkar laga- og
tækninefnd skrifabi þá bréf til
framkvæmdaraðila þar sem því
var lýst yfir að þaö væri mikiö
slys ef hitinn yrði ekki lagður í
híaupabrautina. Þeir tóku svo
þá ákvörðun að hafa hita í
brautinni sem betur fer," segir
Helgi.
Helgi talar um að áhrif þess að
hafa upphitaðan íþróttavöll séu
víðtæk. „Þegar kominn er hiti í
heila hlaupabraut þá geta
íþróttamenn farið að æfa miklu
fyrr úti. Oft er gott veður yfir
vetrartímann en snjór yfir öllu
og upphituö Tartan-braut kem-
ur til með að breyta miklu fyrir
okkur. Áhrifin af þessari upp-
hituðu hlaupabraut koma líka
fram í fleiri atriðum. Rekstur
íþróttamiðstöðvar íslands hlýt-
ur að styrkjast mikið. Það má
vel vera ljóst að á Laugarvatni
veröur nú hægt að vinna fjöl-
hæft íþróttastarf og aðstaðan
verður nú með því besta á land-
inu ásamt Laugardalsvellinum
og Mosfellsbæ. íþróttamenn
geta farib og dvalið þama í
nokkurn tíma við æfingar yfir
vetrartímann þegar íþróttvöll-
urinn er kominn í gagnið. Þessi
aöstaöa ætti því líka aö geta
sparað einhverjar utanlands-
ferðir íþróttamanna. Áhrifanna
gætir líka í skólamálum á Laug-
arvatni því ungir og efnilegir
íþróttamenn hljóta að velta
þeim möguleika fyrir sér að fara
til framhaldsnáms ab loknum
gmnnskóla, þar sem aðstaða til
íþróttaiðkana er fyrir hendi allt
árið um kring. Þetta hefur aftur
þau áhrif að tekjur fýrir sveitar-
félagið aukast. Það er því vel
ljóst að með upphitaðri hlaupa-
braut á Laugarvatni er verið ab
stíga mikið framfaraspor í
íþróttum," sagði Helgi að lok-
um.
Sigríöur Anna Cuöjónsdóttir setti íslandsmet íþrístökki kvenna á vor-
móti UMFA og jón Arnar Magnússon jafnaöi íslandsmetiö í 11 Om
grindahlaupi. Sigríöur Anna:
„Stefnan sett á lág-
markiö fyrir Evrópu-
meistaramótiö"
Sigríöur Anna Guðjónsdóttir úr
HSK setti glæsilegt íslandsmet í
þrístökki á vormóti Aftureldingar
sem haldið var á Varmárvelli í
Mosfellsbæ um helgina. Sigríður
Anna stökk þá 12.22 metra og
bætti eigiö íslandsmet og Guð-
rúnar Amardóttur um ellefu
sentimetra. Þá jafnaði Jón Amar
Magnússon úr UMSS ellefu ára
gamalt íslandsmet Þorvaldar
Þórssonar á sama móti í llOm
grindahlaupi þegar hann fór
vegalengdina á 14.36 sekúndum.
Þess má geta að Jón Amar bætti
íslandsmetið í 300m hlaupi fýrir
skömmu og viröist vera í feikna-
góðu formi þessa dagana.
Sigríður Anna bætti íslandsmet-
ið um þarsíðustu helgi á móti á
sama stað en metiö fékkst ekki
staöfest vegna of mikils með-
vinds. En metið lá í loftinu. „Ég er
í mjög góðu formi þessa dagana
enda búin að æfa mjög vel í vetur
og æfingaferðin til Flórída um
páskana var mjög dýrmæt. Ég á
eftir ab bæta mig meira því ég
þarf ab hvíla mig betur fyrir mót-
in og t.d. um helgina hafði ég lít-
ið hvílt mig. Þetta var því eins-
konar „óhvílt mót" en ég bætti
metið samt." Sigríður Anna sagði
stefnuna hjá sér vera setta á að
komast á Evrópumeistaramótið í
Helsinki í ágúst. „Stefnan er sett á
að ná lágmarki á Evrópumeistara-
mótib en þab er 13 metrar sem ég
tel mig vera færa um ab ná. Þab
em samt ekki mörg tækifæri sem
ég fæ til að bæta mig enda mótin
ekki mjög mörg. En þau helstu og
stærstu em vormót FRÍ um næstu
helgi, Evrópubikarkeppnin í
Dublin, Reykjavíkurleikamir og
Olafur og Heiba kjörin best
Lokahóf HSÍ var haldið á annan í
hvítasunnu og vom leikmenn úr
liðum íslandsmeistaranna kjörin
best. Það vom þau Heiöa Erlings-
dóttir úr Víkingi og Ólafur Stef-
ánsson úr Val sem hlutu nafn-
bótina bestu leikmenn íslands-
mótsins. Jóhann Ingi Gunnars-
son, þjálfari Hauka, var kjörinn
besti þjálfarinn en þess má geta
að kjörib fór fram að lokinni
deildarkeppninni. Efnilegustu
leikmennimir vom KR-ingamir
Hilmar Þórlindsson og Brynja
Steinsen. Bestu markverðimir
vom kosnir Guðmundur Hrafn-
kelsson, Val og Kolbrún Jóhanns-
dóttir Fram. Petr Baummk úr
Haukum og Judit Eztergal úr ÍBV
vom bestu vamarmennimir. Ól-
afur Stefánsson og Sigurbur
Sveinsson, Selfossi, vom bestu
sóknarkarlamir og hjá konunum
var það Heiða Erlingsdóttir.
Bestu dómaramir vom Stefán
Amaldsson og Rögnvald Erlings-
son. ■
Sigríbur Anna Cuöjónsdóttir úr HSK setti glæsilegt íslandsmet íþrístökki á vormóti
Aftureldingar þegar hún stökk 12.22 metra og bœtti sitt eigib Islandsmet um 11
sentimetra.
Meistaramót íslands. Stefnan á
öllum þessum mótum hjá mér
veröur ab bæta íslandsmetið enda
er þab alltaf mikil lyftistöng, ekki
bara fyrir mig, heldur frjálsar
íþróttir í heild þegar íslandsmet
fellur. Þá er fólki Ijóst að þaö em
framfarir í frjálsum hér heima,"
sagði Sigríður Anna Guðjónsdótt-
ir, Islandsmethafi í þrístökki
kvenna að lokum.
Önnur helstu úrslit á vormótinu
í Mosfellsbæ urðu þau að Geir-
laug B. Geirlaugsdóttir úr Ár-
manni sigraöi í lOOm hlaupi
kvenna á 12.26 sekúndum. í
lOOm grindahlaupi kvenna sigr-
aöi Þuríður Ingvarsdóttir, Selfossi,
á 14.89 sekúndum og í HOm
grindahlaupi karla sigrabi Jón
Arnar Magnússon á tímanum
14.38 sekúndum. Jón Amar sigr-
abi einnig í hástökki karla, stökk
tvo metra, og han sigraði einnig í
langstökki, stökk 7.34m. Unnur
María Bergsveinsdóttir, UMSB,
sigrabi í 800m hlaupi kvenna þeg-
ar hún fór vegalengdina á 2:26.45
mínútum. Haukur Sigurðsson,
Ármanni, vann 200m hlaup karla
og hljóp á 22.13 sekúndum. Guö-
laug Osk Halldórsdóttir, UBK,
sigraði í sömu grein í kvenna-
flokki og hljóp á 26.05 sekúnd-
um. Magnús Aron Hallgrímsson,
Selfossi, sigraði í spjótkasti karla
ÍÞRÓTTIR
KRISTJÁN GRÍMSSON
og kastaði 58.20m á meðan Birg-
itta Guðjónsdóttir, UMSE, sem
sigraði í kvennaflokki henti spjót-
inu 46.44m. Guðbjörg Viöars-
dóttir, HSK, vann í kúluvarpi
kvenna og þeytti kúlunni
11.85m. ■
NBA
úrslit
Houston tók Utah
í karphúsib
Úrslitaleikur
vesturdeildarinnar:
Houston-Utah Jazz
100-88
Leikmenn Houston Rockets
sýndu hvers megnugir þeir em í
fyrsta leiknum gegn Utah í úr-
slitum vesturdeildarinnar. Stab-
an í hálfleik var 54-34 og var
aldrei spurning hvorum megin
sigurinn myndi lenda, Hakeem
Olajuwon gerði 31 stig og
Kenny Smith 27 en af þeim kom
18 úr 3ja stiga skotum. Það lið
sem fyrst vinnur fjóra leiki mæt-
ir New York eba Indiana í úrslit-
um NBA en fyrsti leikurinn
þeirra á milli var síðastliðna
nótt. New York sigrabi meistara
síðustu þriggja ára 87-77 og því
4-3 og mætir Indiana eins og áb-
ur sagði. Indiana lagbi Atlanta
ab velli 4-2.
UTIVISTAR- 0G
SPORTFATNAÐUR
Heildsala — Smása/a
SPORTBÚÐ KÓPAVOGS
Hamraborg 20A • Sími 91-641000