Tíminn - 25.05.1994, Síða 16
Vebrib í dag (Byggt á spá Veburstofu kl. 16.30 í gær)
• Yfir Islandi og hafinu umhverfis er 1023mb hæbarsvæbi sem • Austur- og Færeyjadjúp: Hæg norblæg átt Skúrir.
hreyfist lítib eitt. Hitibreytist lítib.
• Allt landib og mibin: Fremur hæg breytileg átt. Skyjab meb köfl- * Subaustur- °9 SuburdÍúP: Austan 3 til 5 vindsti9- skúrir-
um °9 hætt vib smáskúrum, einkum inn til íandsins sfód'egis. # Subvesturdjúp: Subaustan 3-5 vindstig. Þokubakkar.
• Vestur- og Norburdjúp: Breytileg eba subvestlæg átt, 3-4 vind-
stig. Skýjab meb köflum og sums stabar smáskúrir.
VSÍ segir Atvinnuleysistryggingarnar á villigötum í niöurgreiöslum á vinnulaunum fyrirtœkja:
Átta fyrirtæki fengib 20 m.kr.
styrki til þróunarverkefna í ár
„Niöurgreiöslur á vinnuafli
eins fyrirtækis geta komiö
ööru fyrirtæki í þrot," segir
m.a. í greininni „Atvinnuleys-
istryggingar á villigötum" í
fréttablaöi Vinnuveitendasam-
bandsins. Veruleg gagnrýni
kemur þar fram á þær hundr-
aöa milljóna króna styrkveit-
ingar og niöurgreiöslur á
vinnuafli sem iökaöar eru af
Atvinnleysistryggingasjóöi.
Aö mati VSÍ elur þessi starfsemi
á óheilbrigðum sjónarmiöum í
atvinnurekstri, truflar sam-
keppni fyrirtækja og rífur niöur
viömið fyrir því hvað sé hag-
kvæmt og lífvænlegt. VSÍ hvetur
eindregið til þess aö sveitarfélög-
in veröi leyst undan þeim sér-
stöku greiðslum til Atvinnuleys-
istryggingasjóðs sem nú tíökast,
„því forsendurnar em rangar."
Það sem af er ársins segir blaðiö
aö stjóm Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs hafi úthlutað 20 millj-
ónum króna í styrki til fyrirtækja
undir liðnum „þróunarverkefni
til varanlegrar atvinnusköpun-
ar". Þessir styrkir hafi verið veitt-
ir án auglýsinga og mnnið til 8
fyrirtækja.
„Þá hefur sjóburinn styrkt tugi
fyrirtækja með greiðslu styrks
sem svarar til fjárhæbar atvinnu-
leysisbóta, enda ráði fyrirtækin
starfsmenn af atvinnuleysisskrá
og fá greiddar bætur sem við-
komandi starfsmaöur hefði ella
notið. Umsóknir um niður-
greiðslur á vinnuafli af þessum
toga skipta tugum og fjölgar
hratt." Til þessa verkefnis hafi
sjóðurinn 600 milljónir sem
sveitarfélögin eiga að leggja hon-
um til samkvæmt samkomulagi
við ríkið til að greiða fyrir at-
vinnusköpun og átaksverkefn-
um.
Sveitarfélögin lögðu 500 millj-
ónir í sjóbinn til þessa verkefnis
á síðasta ári. Og þau áttu síðan
sjálf ab sækja um styrki til ein-
stakra verkefna til aö bæta at-
vinnulífiö í sveitarfélaginu.
Innan við 200 milljónir af þessu
fé fóm hins vegar í slíka styrki.
En sveitarfélögin hafa í vaxandi
mæli leitast við að fá fyrirtæki á
almennum markabi til samstarfs
um umsóknir og styrki. „Af
hálfu sveitarstjómanna virðist
þá einkum hafa verið horft til
þess að ná til baka þeim fjár-
munum, sem þeim var áður gert
að leggja í sjóðinn". Þótt reglur
hafi átt aö tryggja að ekki kæmi
til stuðnings vib verkefni sem
tmflaö gætu samkeppni ein-
stakra fyrirtækja segir VSÍ þegar
ljóst „að sá mælikvarði er ab
engu orðinn. Lítil fyrirstaða er
gegn umsóknum fyrirtækja, þótt
þau séu augljóslega í samkeppni
við önnur í sömu grein".
Vinnuveitendasambandið telur
einnig aö vömþróunarstarf At-
vinnuleysistryggingasjóðs bygg-
ist á gmndvallarmisskilningi. Sé
vilji til þess að verja skattfé til
stuðningsaðgerða í atvinnulíf-
inu þá eigi að gera það með op-
inberum hætti á afmörkuöum
sviðum. VSÍ hvetur til ab sveitar-
félögin veröi leyst undan hinum
sérstöku greiðslum í Atvinnu-
leysistryggingasjóö, enda heil-
brigðara að sveitarstjómir ráb-
stafi þessum fjármunum sjálfar.
Ársfundur Alþjóöa hvalveiöiráösins í Mexíkó:
Tveir íslenskir
áheyrnarfulltrúar
XR - rétta leibin, stendur á þessum vagni sem Reykjavíkuriistinn notar til kynningar í borginni. Strœtisvagninn á
jafnframt oð minna á málefni SVR, sem R-iistafóik telur holdgerfingu einkavœbingarstefnu borgarstjórnarmeiri-
hlutans.
Reykjavíkurlistinn ekur um borgina í strœtisvagni meö hátalarakerfi.
Dóra Hafsteinsdóttir:
Fullur vagn af fólki og fjöri
„Þeir hjá Alþjóða flutnings-
verkamannasambandinu meta
íslendinga og Óskar svo mikils
ab þeir buöu honum ab veröa
fulltrúa þess á fundinum. Þann-
ig ab þetta er heibur fyrir okkur
íslendinga og íslenska sjó-
menn," segir Hólmgeir Jónsson,
framkvæmdastjóri Sjómanna-
sambandsins.
Tveir íslendingar sitja sem
áheymarfulltrúar á ársfundi Al-
þjóða hvalveiðiráðsins sem fram
fer þessa dagana í borginni Puerto
Vallarta sem er Kyrrahafsmegin í
Mexíkó. Auk Óskars Vigfússonar,
formanns SSÍ, sem situr þingib
sem áheyrnarfulltrúi Alþjóða
flutningaverkamannasambands-
ins, er þar einnig Guðmundur Ei-
ríksson, þjóðháttarfræðingur frá
utanríkisrábuneytinu. En sem
kunnugt er þá gekk ísland úr Al-
þjóða hvalveiðiráöinu á sínum
tíma en næsta sumar hyggjast ís-
Slapp ómeidd
Ung kona slapp ómeidd þegar bif-
reib hennar eyðilagðist í eldi und-
ir Hafnarfjalli á sunnudag. Konan
var ein í bílnum á suðurleið þegar
ökumaður bifreiðar sem ók á eftir
henni tók eftir því að reyk lagöi af
bílnum. Honum tókst að gera
konunni vibvart og hún náði ab
yfirgefa bílinn rétt í tæka tíð áður
en eldur gaus upp. Lögreglan í
Borgamesi komu á vettvang og
tókst henni ab slökkva eldinn en
bifreiðin er gerónýt. ■
lensk stjómvöld leyfa hrefnuveið-
ar í fyrsta skipti síöan um miðjan
síðasta áratug.
Af helstu málum sem verða rædd
á ársfundinum í Mexíkó má m.a.
nefna tillögu Frakka um hval-
veiðibann á öllu Suöur-íshafinu
og hálfa leið að miöbaug, tillögu
Norðmanna um endurskoöun á
stjómarreglum sem meðal annars
lúta að nýjum reiknireglum varð-
andi veibikvóta. Ennfremur
leggja Norðmenn til endurskoö-
un á stjómunarkerfi rábsins sem
lýtur m.a. að eftirlitsreglum og
reglum um hvalatalningar svo
nokkuð sé nefnt.
Þá er viðbúið að einhverjar um-
ræbur verði á ársþinginu um það
sem kallað er „mannúðlegar
drápsabferbir" en ætlunin er ab
taka þetta efni sérstaklega fyrir á
ársfundi ráðsins á næsta ári. Bret-
ar hafa sýnt þessu efni mikinn
áhuga og er búist við að þeir muni
reyna ab fá samþykkta ályktunar-
tillögu sem væntanlega mun
beinast ab grindhvalaveiðum
Færeyinga.
Ennfremur er talið líklegt að Jap-
anir muni reyna ab fá samþykkt-
an kvóta fyrir hrefnuveibar auk
þess sem viðbúiö er að Banda-
ríkjamenn muni fara fram á auk-
inn hvalakvóta fyrir fmmbyggja í
Alaska. Þá er talið líklegt að
Grænlendingum verbi veittur
fmmbyggjakvóti sem saman-
stendur aðallega af hrefnum og
langreyðum auk þess sem þeir
hafa farið fram á leyfi til að veiba
nokkra hnúfubaka. ■
Eins og flestir borgarbúar
hafa sjálfsagt oröiö varir viö í
gær hefur Reykjavíkurlistinn
tekiö upp þann erlenda siö aö
keyra um götur og torg, meö
hátalarakerfi til aö auglýsa
framboöiö.
Dóra Hafsteinsdóttir hjá R-
listanum sagði ab tilgangurinn
með þessum vagni væri sá ab
ná sem mest til fólks í öllum
hverfum borgarinnar til þess aö
kynna bæði starf og stefnu
Reykjavíkurlistans.
„Okkur hefur verið afar vel
tekið. Vagninn er fullur af fram-
bjóðendum og sjálfbobaliðum
þar sem boöið er upp á allt það
sem við höfum gefið út í þessari
kosningabaráttu, merkjum,
húfum, bolum o.þ.h. Þetta er líf
og fjör, þetta er strætó fullur af
lifandi og skemmtilegu fólki,"
sagbi Dóra Hafsteinsdóttir. ■
BEINN SIMI
AfCREIÐSLU
TIMANS ER
631*631
Kristján syngur með Barnakór Grensáskirkju
Barnakór Grensáskirkju er ab
ná langþráðu markmiði meb
söngferðalagi til Ítalíu. Þar dvel-
ur hann í borginni Piacenza í
boði kórsins Coro Polifonico
Famesiana. Kóramir halda þar
tónleika til styrktar krabba-
meinssjúkum n.k. föstudag, 28.
maí, og mun Kristján Jóhanns-
son leggja þeim lið sitt. Á efnis-
skrá kórsins er kirkjutónlist, ís-
lensk og erlend lög af ýmsu tagi,
þjóðlög, negrasálmar og lög úr
söngleikjum. Krabbameinsfélag
íslands styrkir barnakórinn til
fararinnar og verður verndari
tónleikanna.
Barnakór Grensáskirkju er nú
ab ljúka sínu fjórða starfsári.
Margrét J. Pálmadóttir hefur
verið stjómandi hans frá upp-
hafi. Undirbúningur Ítalíufarar-
innar hefur staöið lengi.
í kvöld, miövikudaginn 25.
maí, heldur kórinn tónleika í
Seltjamameskirkju þar sem
hann flytur hluta efnisskrárinn-
ar. ■