Tíminn - 04.06.1994, Page 9
Laugardagur 4. júní 1994
Sfrmiiw
9
Stœrsta landkynningarátak, sem ráöist hefur veriö í erlendis, stendur nú yfír:
Hundraö milljónir
að skila milljaröi
í vor hófst mesta auglýsinga-
herferö fyrir ísland erlendis,
sem framkvæmd hefur verið.
Um 100 milljónum króna
verhur varið í heildina til ab
auglýsa ísland fyrir ferða-
menn í Bandaríkjunum,
Skandinaviu og á meginlandi
Evrópu. Markmibið er ab þessi
upphæö tífaldi sig og skili ein-
um milljarði í vibbótartekjur
fyrir íslendinga.
„Þab var ákveðið vandamál
hvað við íslendingar höfum
dreift kröftunum mikib," segir
Pétur J. Eiríksson, markaðsstjóri
hjá Flugleiðum. „Flest fyrirtæki
í feröaþjónustu em lítil og hafa
ekki sérlega mikla burði. Það á
við um alla aðra en Ferðamála-
ráb, sem þó hefur úr of litlu að
spila. Flugleiöir em nánast eini
aðilinn sem hefur auglýst ísland
erlendis. Þab þarf að spenna
fleiri hesta fyrir kerruna. Ríkið
hefur verulegum skyldum að
gegna á þessu sviði. Ekki síst
vegna þess að 25-30% af öllum
tekjum af erlendum feröa-
mönnum renna beint í ríkis-
sjóð."
Forsvarsmenn Flugleiða viðr-
uðu þá hugmynd við sam-
gönguráðherra, að ráðist yrði í
sameiginlegt landkynningar-
átak og varið til þess 100 millj-
ónum króna. Gert var ráb fyrir
að helmingur kæmi frá Flugleið-
um og helmingur frá sam-
gönguráðuneytinu.
„Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra tók þessu mjög vel.
Hann fann leiðir til þess ab fjár-
magna hluta ríkisins og við urö-
um sammála um að láta til skar-
ar skríöa," segir Pétur.
í framhaldinu var skipuð
nokkurs konar framkvæmda-
nefnd tveggja manna. í henni
eiga sæti Magnús Oddsson, fyrir
hönd ráðuneytisins, og Pétur J.
Eíríksson, fyrir hönd Flugleiða.
„Það var ákvebið í upphafi ab
allir þessir peningar skyldu
renna til beinna auglýsinga á ís-
landi í erlendum blöðum meb
mikla útbreiðslu," segir hann.
„Þannig teljum við okkur ná
betur til almennings. Við erum
að auglýsa í blöðum eins og
Stem og Der Spiegel í Þýska-
landi og öðrum neytendablöð-
um, þar sem ísland hefur ekki
sést nema í minni auglýsing-
um."
— Hvað kosta þessar auglýsing-
ar?
„Sem dæmi má nefna heilsíðu-
auglýsingu í Stem, sem kostar
99 þúsund mörk hver birting,
eða um fjórar milljónir íslenskra
króna. í Der Spiegel kostar heils-
íða í lit 87 þúsund mörk. Reynd-
ar fáum við 3-5% afslátt. í
Þýskalandi emm við ab tala um
14 birtingar, sem kosta samtals
716 þúsund mörk, eba rúmlega
30 milljónir króna. Þetta era
geysilega háar upphæðir, en á
móti kemur að við náum til
milljóna manna."
Tveimur þriðju
eytt í sumar
„Það er auðvelt að eyða miklum
peningum í auglýsingar, þess
vegna skiptir miklu máli að
vejia réttu fjölmiblana og þab
teljum vib okkur hafa gert.
Auglýsingaféð skiptist þannig
að ákveðið var ab eyða 30 m.kr.
til auglýsinga í Þýskalandi, 30
m.kr. í Bandaríkjunum, 20
m.kr. í Bretlandi, 10 m.kr. í
Skandinavíu og 10 m.kr. í
Frakklandi, Hollandi og á Spáni.
Tveimur þribju af þessum 100
milljónum er varið til þess að
auglýsa sumarið.
Það var ákveöið að leggja
mesta áherslu á þá staði, sem
við fljúgum til allt árið, og þá
markaði sem við teljum ab gefi
besta svöran á skömmum tíma.
Ég tel að vib höfum ekki dreift
þessu um of. Rúmlega helming-
ur fer á tvö markaðssvæbi og af-
gangur dreifist á fimm önnur
svæöi. Við lítum á Skandinavíu
sem einn markað. Tveir þribju
af því, sem rennur til auglýsinga
í Frakklandi, Hollandi og á
Spáni, fara til Frakklands. Dreif-
ingin er ekki mikil og í Þýska-
landi náum við t.d. umfangs-
mikilli birtingu í skamman
tíma."
— Eruð þið famir að sjá hverju
þetta skilar?
„Nei, vib sjáum þab ekki enn-
þá. Við finnum það, bæði á
skrifstofum Flugleiða og Ferða-
málaráðs, að viðbrögðin era
mikil og jákvæð. Við sögðum í
upphafi ab 100 milljónir króna í
auglýsingar ættu að skilá einum
milljarði í viöbótartekjur í feröa-
mannaiðnaði á íslandi. Þetta er
mjög raunhæft markmib. Það
þarf ekki svo mikið til þess ab
vekja áhuga ferbamanna á ís-
landi."
Ekki rétt ab beina
öllum til fjalia
„Við leggjum meiri áherslu á
afþreyingu og hvab hægt er ab
gera á íslandi, heldur en nátt-
úrafegurðina, þó hún spili auð-
vitað stórt hlutverk í landkynn-
ingxmni," segir Pétur. „Einstak-
lingar og pör hafa verið ein-
kennandi fyrir ferbamenn á
Islandi, en við viljum ná meira
til fjölskyldna en áður. Við
leggjum meiri áherslu á sveit-
imar og þann hluta íslands sem
mati fegurri hluti landsins.
Þab er ekki rétt stefna að beina
öllum feröamönnum upp á há-
lendið, sem bæði er opið
skamman tíma á ári og ekki
hægt að veita þar nema mjög
takmarkaða þjónustu. Við höf-
um m.a. fengið bændur til liðs
vib okkur, en þeir leggja fram 10
milljónir króna í þessa land-
kynningu."
Verblagið er vandamál
— En nú er talsvert dýrara að
ferðast til íslands heldur en til
hefðbundinna ferðamannalanda?
„Þaö er vandamál hvað ísland
er dýrt. Vib eram í mjög harðri
samkeppni, bæði við Suður-
lönd, sem era ódýrari en Norð-
urlöndin, og nágrannalönd eins
og írland, Finnland og Svíþjóð,
sem era orðin talsvert ódýrari
en ísland. Okkar staða er lakari
vegna þess hve verðlag hér er
hátt. Ferðaskrifstofur og aðilar í
feröaþjónustu hafa reynt að
halda verðinu niðri og meb
samstilltu átaki hefur þab tekist.
Hér hafa ekki orðib verðhækk-
anir síðustu 2-3 árin. Okkur hef-
ur tekist að lækka verb á bíla-
Pétur j. Eiríksson: „Abdáendur íslenska
hestsins eru stór markhópur."
ennþá lengra í þeim efnum.
Verðlag á mat er of hátt. Það
verður að lækka veralega. Þetta
vandamál vinnur veralega gegn
okkur."
— Er það ekki röng stefha að
markaðssetja ísland erlendis með
glansmyndum, í stað þess að
benda á að þetta er land þar sem
allra veðra er von og að hér er
hcegt að lenda í ýmsu?
„Við eram að selja vöra og
þurfum náttúrlega að hafa hana
í fallegum umbúöum. Ég tel
ekki rétt ab auglýsa ísland sem
stað þar sem er eilíft rok og rign-
ing. Island er fallegast í sól, og
það er mikilvægt að markabs-
setja þaö eins og þaö er falleg-
ast.
Hins vegar er ekki síbur áríb-
andi að upplýsa fólk um það,
hvemig raunveralegar aðstæður
era, og það gera bæbi Flugleiðir
og aðrir sem selja ferðir til ís-
lands."
— Nú er fjöldi ferðamanna yfir
sumarmánuðina viðunandi, en er
ekki möguleiki á að lengja ferða-
mannatímabilið?
„Það hefur sýnt sig aö það er
vel hægt að gera þaö. Þetta er
ekki auðvelt og kostar bæði
peninga og tíma að gera þaö.
Hér hefur átt sér stab ákveðin
uppbygging í afþreyingu fyrir
ferðamenn aö vetrarlagi. Hún
hefur verið markaðssett og það
er ab skila árangri. Dæmi um
þetta era jöklaferðir á snjósleð-
um, jeppaferðir í snjó á láglendi
og ýmsar styttri ferðir."
Stór rábstefnumiöstöb?
„Við höfum kynnt ísland sem
rábstefnuland allt árið og það
hefur skilað mjög góðum ár-
angri. Hótelin hafa verið að
bæta aðstöbu sína til þess ab
taka við ráöstefnum, en það
þarf meira til. íslendingar þurfa
að horfa til byggingar ráb-
stefnumiðstöðvar. Til þess ab
geta markaðssett ísland yfir vet-
urinn þarf ab vera til hér að-
staba og afþreying sem hentar
fójjd., jýlenn koxna ýkkUhiogaj!^.
er. Þxggöur, smt&xSÞ leiijubffluip> en4n*%ani«ftLgáiiga;i
t
til að ganga um götumar í snjó-
bleytu eða sitja inni á hótelher-
bergjum."
Með ráðstefnumiðstöð segist
Pétur eiga við byggingu eða safn
bygginga, þar sem hægt er ab
halda stórar ráðstefnur. Reynsl-
an af ráðstefnumiðstöðvum er-
lendis hefur sýnt að þær standa
sjaldnast undir sér sem slíkar,
en skila aftur á móti drjúgum
skerfi til samfélagsins.
„Ráðstefnumiðstöb, þar sem
ríkið kæmi inn með grannvib-
skipti, t.d. meb því að leggja
niður rábstefnusalina í Borgar-
túninu, gæti orðið mikil lyfti-
stöng fyrir ferbamannaiðnaö-
inn," segir Pétur. „Sú aðstaða,
sem við höfum í dag, er ágæt
svo langt sem hún nær, sérstak-
lega á Hótel Loftleiðum, Holi-
day Inn og Hótel Sögu, en hún
er of lítil. Það er mikill fjöldi af
ráðstefnum sem við eigum
möguleika á aö halda, en koma
ekki til íslands vegna þess að
þær era of stórar til þess ab við
getum tekib við þeim. Ég get
nefnt þar alþjóðlegar stofnanir
sem við eigum aðild að, s.s.
Rauða krossinn, NATO, UN-
ESCO o.fl. Þessar ráðstefnur
standa oft yfir í 2-4 vikur og
krefjast öryggisgæslu, skrifstofu-
aðstöðu o.fl. sem er erfitt ab
veita á litlum hótelum."
Ónýttir möguleikar
í hestamennsku
— íslenski hesturinn hefur kynnt
landið mikið erlendis. Verðið þið
vör við aukningu ferðamanna sem
koma hingað út afhestinum?
„Já. Ef við tökum bara Þýska-
land, þá skilst mér að þar séu yf-
ir 40 þúsund íslenskir hestar. Að
baki hverjum hesti er kannski 2-
3 manna fjölskylda og allir þess-
ir Þjóbverjar era mögulegir ís-
landsfarar. Það sama hefur verið
að gerast í öbram löndum. ís-
lenska hestinum hefur t.d. fjölg-
að mikið í Svíþjóð og nú er unn-
ið að kynningu á honum í Bret-
landi og Bandaríkjunum.
íslenski hesturinn hefur skapað
mjög mikla umferð. Við eram
meö hestaferbir yfir hálendið og
styttri ferbir í byggð. Hér kemur
fólk til þess að skoða hesta og
kaupa. A landsmót hestamanna
á Hellu um mánaðamótin
júní/júlí koma a.m.k. 3000-
3500 erlendir gestir.
Vib höfum viljab styðja kröft-
uglega við bakið á þeim sem
bjóða upp á hestaferðimar. Það
hefur einnig verið bent á að á
þessu sviði séu fyrir hendi ónot-
aðir möguleikar, s.s. námskeiöa-
hald yfir veturinn. Á íslandi era
a.m.k. tvær reiðhallir, sem hægt
væri ab nýta allan veturinn.
Meb allan þennan stóra mark-
hóp í Evrópu teljum við vera-
lega möguleika á að fá hingab
fólk yfir veturinn til þess að
kynnast hestinum nánar, bæði
fjölskyldur og imglinga í skóla-
fríum. Ég held ab það sé mikill
möguleiki fyrir hestamannafé-
lög og samtök hestamanna að
ná inn aukatekjum meb því ab
bjóba upp á námskeið af þessu
tagi."
■
> '1 I-iSJ . Lsii*6jjJri ííIC'^ííADl'