Tíminn - 10.06.1994, Blaðsíða 5
Föstudagur 10. júní 1994
13
IE Q
Bandarískir sérfrœbingar á Hótel Sögu:
Opinn fundur um
lífræna ræktun
Þrír bandarískir sérfræöingar
á sviöi lífrænnar og visthæfrar
matvælaframleiöslu koma
hingaö til lands 20. júní til aö
kanna möguleika íslendinga á
útflutningi landbúnaöaraf-
uröa á forsendum hollustu,
hreinleika og gæöa.
Bandaríkjamennirnir dvelja
hér í viku og munu meðal ann-
ars kynna sér aðstæður við
framleiðslu og úrvinnslu í ís-
lenskum landbúnaöi og mat-
vælaiðnaði. Þeir eru hér í boði
bændasamtakanna en 24. júní
verður haldinn opinn fræðslu-
fundur á Hótel Sögu þar sem
þeir flytja erindi um myndun
innlendra og erlendra markaða
fyrir íslenskar lífrænt ræktaöar
afurðir, markaðsmöguleika
náttúrulegs kjöts í Bandaríkjun-
umogjapano.fl. ■
Eftirtalinn búnaður innifalinn í tiiboðsverði:
• Vökvatengi fyrir rúllugreip
• 520 lítra skófla, br. 160 cm
• Stuðgrind framan á vél
• Sjálfvirk stöðustilling á skóflu
• Þriggja staðla skóflu-hraðtengi
• Vökva stjórnventill
• Ein stjórnstöng stjómar öllum aðgerðum
Verð aöeins kr. 249.000 án vsk.
Burðargeta 5t - sturtar á þrjá vegu.
Fylgihlutir. Hemlakerfi - stöðuhemill - Ljós 12 volt
Stillanlegt dráttarbeisli.
G. Skaptason
Sími 91-682880, fax 91-682881
Tækin eru fyríríiggjandi eða til afgreiðslu með
stuttum fyrirvara-
Globusí
Lágmúla 5, s:681555
ALÖ QUICKE 620
á flestar alaenaar aerð/r dráttarvéla 55-80 ha.
Vortilboð aðeins
kr. 399.000,
án vsk.
Formaöur Landssamtaka sauöfjárbœnda:
„ Enginn veit hversu
slæmt ástandib er"
STJORNTÆKI!
Öllum aðgerðum ámoksturstækjanna er stjórnað með einni stjórnstöng.
Einnig vökvaúttökum fyrir rúllubaggagreip o.fl.
Arnór Karlsson, formaöur
Landssamtaka sauöfjárbænda
og bóndi í Arnarholti í Bisk-
upstungum, segir rekstrarerf-
iöleika sauöfjárbænda ekki al-
menna, heldur nái þeir ein-
ungis til hluta þeirra. Hann
segir höfuömeiniö vera aö of
margir séu í þessari fram-
leiöslu miöaö viö núverandi
ástand.
— Ástandið virðist vera vægast
sagt slæmt á mörgum stöðum,
eða hvað?
„Þetta eru í rauninni allt sam-
an nafnlausar fullyrðingar. Það
veit enginn hvernig ástandið er
í raun og veru. En því miður ótt-
ast maður að það sé slæmt.
— Eru erfiðleikarnir ekki orðn-
ir miklir þegar bændur eiga ekki
fyrir áburði á tún?
„Sem betur fer er ekki nema
takmarkaður hluti af bændum
sem er í þessum erfiðleikum.
Það er svo sem nógu alvarlegt
að einhver hluti þeirra standi
þetta illa, en ég held að það sé
ekki rétt aö túlka það þannig að
sauðfjárbændur séu almennt í
greiðsluerfiðleikum."
— Eftir skerðingar á fram-
leiðslurétti undanfarin ár hafa
margir bændur bent á að búin
séu í mörgum tilfellu moröin of
lítil til þess að hægt sé að lifa af
þeim. Hvað segirðu um það?
„Breytileikinn er gífurlega mik-
ill í þessu. Þetta fer til dæmis
mikið eftir því hversu menn eru
með miklar skuldir. Það er auð-
vitað mjög eðlilegt að þeir sem
áttu fullt í fangi með að ná end-
um saman fyrir skerðinguna
geti það ekki núna."
— Sjá bændur fyrir endann á
niðurskurðinum, eða næst
markmiðið ekki í haust?
„Ég geri mér vonir um að þetta
ár verði versta árið. Við upphaf
búvörusamningsins urðu of
miklar birgðir og greiðslumark-
ið reyndist of hátt. Það var ým-
islegt í upphafi sem kom illa út,
eins og t.d. útsala á eldra kjöti
og of lítið fé til markaðsstarfs
innanlands. Það má segja að
bændur séu að endurgreiða
núna það sem þeir fengu um-
fram það sem grundvöllur var
fyrir. Það var ekki grundvöllur
fyrir svona háu greiðslumarki,
samkvæmt þessum reglum."
— En er þá ekki allt sem bygg-
ist á þessum útreikningum
hreinlega rangt og þar á meðal
vísitölubúið og sá grundvöllur
sem sauðfjárbændur eiga að
geta lifað af?
„Það er vafalaust. Auðvitað er
það höfuðmeinið að það eru of
margir í þessari framleiðslu.
Vísitölubúið er yfirleitt ekki til
staðar lengur. Við vorum bara
settir í þá stöðu við gerð bú-
vörusamningsins, að þurfa að
lifa á framleiðslu fyrir innan-
landsmarkað og því sem fæst
fyrir útflutninginn. Það hefur
enginn aðili sýnt nokkurn vilja
til að koma til móts við þetta,
t.d. með því að verðbæta kjöt til
útflutnings. Þessa erfiðleika
núna má rekja til afnáms út-
flutningsbótanna og það var
náttúrlega ákaflega harkaleg að-
gerð á sínum tíma." ■
Arnór Karlsson